24 stundir - 11.01.2008, Blaðsíða 32

24 stundir - 11.01.2008, Blaðsíða 32
32 FÖSTUDAGUR 11. JANÚAR 2008 24stundir „SOS-námskeiðin byggja á rann- sóknum bandarísks sálfræðings sem heitir Lynn Clark og ganga út á að kenna aðferðir til að breyta og bæta hegðun barna,“ segir Guðlaug Sturludóttir hjá Félagsvísindastofn- un en stofnunin býður upp á sex vikna námskeið fyrir foreldra og þá sem vinna með börnum. „Aðferð- irnar byggja á miklum rannsókn- argrunni en þetta er efni sem hefur verið rannsakað í tugi ára og sýnt hefur verið fram á að þetta eru að- ferðir sem virka, þannig að þetta eru markvissar aðferðir sem verið er að kenna. Námskeiðið gengur í megindráttum út á það að styrkja jákvæða hegðun barna og minnka líkurnar á að óæskileg hegðun eigi sér stað. Eins er verið að kenna að- ferðir sem miða að því að styrkja börnin andlega og félagslega þannig að þau plumi sig betur í lífi og starfi, enda helst þetta allt í hendur. Það eru eingöngu sálfræðingar sem kenna þessi námskeið en þeir hafa allir farið á sérstök leiðbein- endanámskeið hjá Gabríelu Sigurð- ardóttur en hún er forsprakki SOS- námskeiðanna á Íslandi ásamt Ágústu Ingvarsdóttur sálfræðingi.“ SOS-námskeiðin standa yfir í sex vikur en þátttakendur mæta einu sinni í viku í 2,5 klukkutíma í senn. Námskeiðsgögn eru bók dr. Lynn Clark, SOS - Hjálp fyrir foreldra, en námskeiðið samanstendur af fyr- irlestrum og umræðum auk þess sem sýnd eru dæmi um samskipti foreldra og barna á myndbandi. Nánari upplýsingar í síma 525- 4544 síma 525-4544 og á gjs@hi.is. 24 stundir/Ómar Foreldrum hjálpað að bæta hegðun barna sinna Hvernig skal styrkja jákvæða hegðun barna Börn Á SOS-námskeið- inu er foreldrum kennt að styrkja jákvæða hegðun. Það færist mjög í vöxt að ungir krakkar hefji almennt tónlistarnám með söngrödd sína sem aðal- hljóðfæri. Ásrún Davíðsdóttir, að- stoðarskólastjóri Söngskólans í Reykjavík, segir að allt frá stofnun skólans árið 1973 hafi verið mikil eftirspurn eftir skólavist fyrir börn og unglinga. „Fyrir um það bil 10 árum var stofnuð unglingadeild við skólann og fljótlega bættist við yngri unglingadeild fyrir nem- endur allt niður í 11 ára en raunin varð sú að það voru nær eingöngu stúlkur sem stunduðu nám við unglingadeildir. Síðastliðið haust var því brugðið á það ráð að stofna sérstaka karladeild við Söngskól- ann sem ber nafnið ungmenna- deild og hún er mjög vinsæl. Þar stunda nám ungir menn, flestir komnir úr mútum, og drengir allt niður í 13 ára undir stjórn Alex- anders Ashworth, barítónsöngvara og píanóleikara.“ Stunda námið utan skólatíma Ásrún talar um að í náminu sé miðað við að nemendur hafi góð- an tónlistargrunn eða söngreynslu til að byggja á. „Það er lögð áhersla á alla þætti tónlistarnáms; radd- tækni, túlkun, samsöng, tónfræði og hreyfingar í takt við tónlist. Við miðum kennslutímann við að nemendur geti stundað námið eftir venjulegan skólatíma í almenna skólakerfinu,“ segir Ásrún og bætir við að nemendur unglingadeilda Söngskólans hafi tekið þátt í ýms- um uppfærslum með Óp- erukórnum og Sinóníuhljómsveit Íslands. „Þar má nefna sviðs- uppfærslur á óperunum Turandot og Carmen með Sinfóníuhljóm- sveit Íslands og nú síðast Carmina Burana, sem Kór unglingadeilda söng með Óperukórnum í Reykja- vík og kom út á hljómdiski nú fyrir jólin.“ Söngskólinn í Reykjavík Röddin sem hljóðfæri Unglingadeild Nokkrir áhuga- samir nemendur í unglingadeild Söngskólans í Reykjavík. Kara Arngrímsdóttir, danskenn- ari hjá Dansskóla Jóns Péturs og Köru, hefur dansað í tæplega 40 ár og finnst alltaf jafngaman. ,,Ég byrjaði sem barn í dansi, var bara í barnapössun hjá Hermanni Ragn- ars, og sem unglingur æfði ég bæði samkvæmisdans og djassballet og fimleika líka. Þá fór ég að æfa dans sem keppnisíþrótt, kenna dans og stofnaði loks dansskóla. Allt hefur þetta sinn sjarma en er þó mjög ólíkt.“ Dansskólinn var staðsettur í Bolholti 8 til ársins 2005. Þá um haustið flutti dansskólinn í Borg- artún 6 í nýuppgert húsnæði á 4. hæð. Kennt er í þremur sölum, Sólarsal, Mánasal og Stjörnusal. Á milli Sólarsalar og Mánasalar er felliveggur og er hægt að gera þá að einum stórum sal sem er þá tæp- lega 300 m2. Nemendur skólans eru á öllum aldri og námskeiðaúr- valið er fjölbreytt og úr mörgu að velja. Meðal annars er kenndur al- mennur dans, s.s samkvæm- isdansar og barnadansar, þá eru- vinsæl námskeið í samkvæmisdönsum fyrir full- orðna. Freestyle er síðan vinsælt hjá unglingum. Kennsla í breikdansi Námskeið í breikdansi hafa einnig verið vinsæl í skólanum. Breik gjörbreytti fátækrahverfum New York ásamt hipphoppmenn- ingunni sem varð til þess að klíku- krakkarnir fóru að kljást með rappi og dansi frekar en kylfum og sveðjum. Breikið tekur til sín hreyfingar úr m.a. capoeira, stepp- dansi, kungfú, akróbatík og fim- leikum. „Breik reynir heilmikið á,“ segir Kara. Þó það sjáist minna núna en þegar æðið var sem mest kringum ’86-’88, er það mun vin- sælla og sífellt fleiri og stærri keppnir koma á hverju ári á heims- vísu auk þess sem fjöldi iðkenda margfaldast. Hafa dansað og kennt saman í mörg ár Dansinn alltaf vinsæll KYNNING 24stundir/Ómar www.idan.is Í IÐNAÐI VORIÐ SÍMENNTUN Nýr námsvísir kominn út Yfir 100 námskeið fyrir starfsfólk í íslenskum iðnaði 2008 SÍMENNTUN
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

24 stundir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.