24 stundir - 07.06.2008, Blaðsíða 60

24 stundir - 07.06.2008, Blaðsíða 60
60 LAUGARDAGUR 7. JÚNÍ 2008 24stundir Það var Þórir Sæmundsson, Noregsmeistari í leiklist og aðalpönkarinn í Ástin er diskó, sem kynnti mig fyrir Fésbókinni. Konan ýtti mér svo inn og fann handa mér fullt af vin- um sem ég vissi ekki að ég ætti, en hún er mikill fésbóndi. Þetta er sæmilega spennandi miðill, allavega nýtt brot af veruleikanum og því gott ráð gegn snemmkörlun að tékka sig þarna inn. Ég misnota reyndar formið sem virðist sérhannað fyrir athyglisgraðar og kynsveltar sálir í stórum stefnumótaborgum. Þetta er í raun bara háþróaður og virðulegur einka- máladálkur. Landinn virðist þó taka þetta öðrum tökum. Hér minnir þetta helst á gamla sveitalífið þar sem hver er bóndi á sínum bæ og stærir sig af sínu. „Ég er með þetta fjögur hundruð fés á fóðrum.“ Og svo rambar fólk á milli bæja í leit að félagsskap og slúðurbita. Sjálfur fór ég óvart að blogga á Fésinu, sem er alls ekki hannað fyrir slíkt. Ég hef aldrei viljað blogga en hér er maður að gera það í góðum hópi, svona eins og að spjalla við fólk í hundrað manna sal, og þetta verður því öðruvísi fyrir vikið. Annars er þessi vefur of flókinn. Maður er stöðugt að fá sent veggjakrot sem fólk ætlaði alls ekki að senda en ýtti á vitlausan takka, og sjálfur er maður kannski að taka til á síð- unni hjá sér, ætlar með ruslið út í tunnu en hellir því í staðinn yfir alla vinina. Það þyrfti einhver Apple- eða Nokia-manneskja að komast í þetta, því hugmyndin er góð þótt út- færslan sé síðri. Hallgrímur Helga- son rithöfundur Gott ráð gegn snemmkörlun Ég hélt nú ekki að ég færi að fara á Face- book … en svo prófaði ég í október á síð- astliðnu ári og hafði gaman af. Á Facebook þarf ég ekki að muna netföng, heldur sendi fólki skilaboð inn á síður þess og ræði við það eins og á msn. Ég get verið í sambandi við vini mína hér og þar, sett inn fréttir af mér, skoðað myndirnar þeirra og fylgst með því sem þeir eru að gera. Sonur minn og tengdadóttir eru líka á Facebook. Ég er með mína síðu lokaða svo að þeir sem vilja skoða hana verða að vera í mín- um vinahóp. Margir kunningjar mínir hafa „fundið mig“ þarna og bætt mér í vina- hópinn. Svo er hægt að fara í skemmtilega leiki ef maður hefur ekkert annað við tím- ann að gera – þótt ég hafi reyndar nóg á minni könnu. Ég tek tölvuna mína með mér hvert sem ég fer og þegar ég þarf að stoppa erlendis kíki ég stundum þarna inn. Þetta er skemmtileg afþreying en um leið mikill tímaþjófur. Mörgum á mínum aldri finnst þetta eitthvað kjánalegt en þarna er nú samt margt merkisfólk í þjóðfélaginu. Fyrst og fremst er þetta skemmtun sem má ekki að taka of hátíðlega. Brynja Nordquist flugfreyja Mikill tímaþjófur Ég var píndur á Facebook af breskum kollega mínum. Hann hafði sett myndir þangað inn, vegna kynningarverkefnis fyr- ir Garðar Thór Cortes, og eina leiðin til að sjá þær var að skrá sig. Ég setti inn al- mennar upplýsingar um mig en ekkert persónulegt. Svo reyni ég að uppfæra þær annað slagið. Það sem er sniðugast við þetta er að það er auðvelt að ná til margra og koma upplýsingum áfram. Um daginn kom t.d. út nýtt myndband með Garðari og þá skutluðum við því inn. Ég á einhverja 700 vini en þekki ekki helm- inginn af þeim. Ég fer ekki í manngrein- arálit, heldur hleypi öllum inn. Um dag- inn hafði gamall vinur minn uppi á mér, sem bjó einu sinni í næstu götu við mig. Þetta hefur ekki stórvægileg áhrif á líf mitt og þeir tímar sem ég eyði í þetta á mánuði eru teljandi á fingrum annarrar handar. Ég reyni að hafa þetta í sæmilegu hófi. Ef mér er illt í maganum eða er ný- kominn úr klippingu þá set ég það ekkert þarna inn. Hins vegar sýnist mér sumir ganga ansi langt í þeim efnum. Einar Bárðarson umboðsmaður Fer ekki í manngreinarálit Ég var með síðu á MySpace og fannst það alveg nóg. En svo skráði ég mig á Facebook til að geta kíkt á myndir hjá vinkonu minni. Núna eru margir vinir mínir er- lendis og hér heima komnir á Facebook þannig að ég er farin að nota þetta meira. Þetta varð að annars konar tölvupósti og svo er gaman að skoða myndir hjá vinum sínum og fylgjast með þeim. Ég nenni samt ekki að senda bjórflöskur og geitur á milli, heldur eyði alltaf listanum yfir slíkar send- ingar. Ég bjó úti í Los Angeles sem krakki og þaðan fundu þrír gamlir skólafélagar mig í gegnum MySpace. Ég hef reynt að leita að gömlum skólafélögum á Facebook en ekki fundið neina enn. Facebook og MySpace hafa örugglega breytt miklu í samskiptum fólks og deitmenningu, þótt ég noti þær ekki þannig. Þetta er eins konar millistig á milli þess að hringja og tala við fólk og örugglega auðveldara. Ég kíki á þetta á hverjum degi. Þegar ég var að byrja á MySpace hleypti ég öllum inn en þegar ég stofnaði Facebook-síðuna ákvað ég að velja bara þá úr hópnum sem ég þekki. Það er kannski munurinn á þessum tveimur síðum hjá mér. Ísgerður Elfa Gunnarsdóttir leikkona Kíki á þetta á hverjum degi Ég kynntist Facebook fyrst þegar fyrrverandi yfirmaður minn hjá Gucci í London sendi mér beiðni í tölvupósti um að skrá mig. Ég nota þetta aðallega til að halda sambandi við fyrrverandi samstarfsfélaga mína hjá Gucci, fólk sem ég tengdist sterkum böndum þegar ég bjó í Bretlandi og býr núna úti um allan heim. Ein vinkona mín er t.d. í Singapúr, annar vinur minn í Bandaríkjunum og sá þriðji er kominn til Skotlands. Portúgölsk vinkona mín er líka að ferðast um heiminn og það er gaman að fylgjast með ferðasög- unni hennar á Facebook. Svo vindur þetta upp á sig. Hérlendis hef ég komist í kynni við gamla skólafélaga og aðra sem ég hef ekki séð í fjölmörg ár. Þetta er líka skila- boðaskjóða. Ef ég er á leið til London þá læt ég boð út ganga til vina minna á Facebook þar sem ég mæli mér mót við þá á ákveðnum pöbb á ákveðnum tíma. Margir nota Facebook og MySpace til að koma sér eða fyrirtæki sínu á framfæri. Ég hefði t.d. viljað þekkja þessar síður þegar ég bjó í London. Þá hefði ég hiklaust selt fatnað, skartgripi og töskur beint af mörkuðum Lundúnaborgar heim til Íslands á netinu. Díana Bjarnadóttir Skilaboðaskjóða og söluvettvangur Furðuheimar Fésbókar Má bjóða þér drykk, geit eða lýsingarorð? Hamingju, bros eða netkoss? Nýjasta æðið í netheimum er Facebook.com sem er önnur vinsælasta tengslanetsíða heims á eftir MySpace. Tugir milljóna manna á öllum aldri fara reglulega inn á Facebook til að skiptast á skilaboðum, bjórflöskum og barbapöbbum, bjóða í partí, rækta blóm og pota í mann og annan. Við spurðum fimm Fésbókarmeðlimi hvað þeir fengju út úr þessu. a Hér minnir þetta helst á gamla sveitalífið þar sem hver er bóndi á sínum bæ og stærir sig af sínu. „Ég er með þetta fjögur hundruð fés á fóðrum.“ LÍFSSTÍLL lifsstill@24stundir.is spjallið
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

24 stundir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.