24 stundir - 08.07.2008, Blaðsíða 8
Eftir Ingibjörgu B. Sveinsdóttur
ingibjorg@24stundir.is
Formaður Félags íslenskra einka-
flugmanna, Valur Stefánsson, hefur
sent Fluglækningastofnuninni í
Reykjavík fyrirspurn um hvernig
standi á nær 100 prósenta hækkun
á almennri læknisskoðun og útgáfu
heilbrigðisvottorðs fyrir einkaflug-
menn frá því í fyrra. Þá kostaði
grunnskoðunin rúmar 8 þúsund
krónur fyrir einkaflugmenn en nú
kostar hún 16 þúsund krónur.
„Hækkanir undanfarinna ára
hafa verið miklar en þetta er drop-
inn sem fyllti mælinn. Þessi hækk-
un er forkastanleg,“ segir Valur.
Hálfdrættingur á við suma
Samúel J. Samúelsson, einn
læknanna sem reka Fluglækninga-
stofnunina, kveðst geta fallist á að
hækkunin þyki mikil. „Við breytt-
um gjaldskránni til samræmis við
nágrannalöndin. Við tökum fyrir
rannsóknir sem voru bara fríar áð-
ur. Við erum ekki nema hálfdrætt-
ingur á við suma,“ segir Samúel.
Við almenna læknisskoðun í
fyrra, sem kostaði rúmar 8 þúsund
krónur, var sjónin rannsökuð,
þvagprufa tekin og heyrnin mæld
auk þess sem flugmenn fóru í
blásturspróf, að sögn Samúels. Nú
kostar það 3 þúsund krónur til við-
bótar 16 þúsundunum, sem al-
menna læknisskoðunin kostar fyrir
einkaflugmenn, atvinnuflugmenn
og flugumferðarstjóra, að fara í
heyrnarmælingu. Hjartalínurit
kostar 3 þúsund krónur og sérstakt
öndunarpróf kostar einnig 3 þús-
und krónur. Blóðprufa kostar 1
þúsund krónur. Heildarkostnaður-
inn getur því farið upp í 26 þúsund
krónur en samkvæmt upplýsing-
um frá Flugmálastjórn fer það eftir
aldri og tegund vottorðs hversu oft
skírteinishafar þurfa að fara í allar
rannsóknirnar.
Færri skoðanir
Einar Örn Héðinsson, fram-
kvæmdastjóri flugöryggissviðs
Flugmálastjórnar, segir að slakað
hafi verið á kröfum um skoðanir
fyrir atvinnuflugmenn samkvæmt
nýjum reglum sem tóku gildi í lok
mars síðastliðins. „Atvinnuflug-
menn á aldrinum 40 til 60 ára sem
eru í fjölstjórnaráhöfnum eiga nú
að fara í læknisskoðun á 12 mán-
aða fresti í stað 6 mánaða áður.
Þetta gildir um meirihluta atvinnu-
flugmanna.“ Valur Stefánsson segir
það umhugsunarvert að fluglækn-
arnir í Reykjavík skuli hafa hækkað
gjaldið í kjölfar breytinganna á
reglunum. „Það er spurning hvort
verið sé að láta einkaflugmenn
borga fyrir færri komur atvinnu-
flugmanna.“
Fásinna að hækka
Þorsteinn Jóhannesson, flug-
læknir á Ísafirði, kveðst ekki hafa
hækkað gjaldskrá sína í mörg ár.
„Mér finnst það fásinna að hækka
gjaldskrá á þessum tímapunkti í
ljósi efnahagsástandsins í landinu,“
segir Þorsteinn. Jón Þór Sverrisson,
fluglæknir á Akureyri, kveðst hafa
hækkað verð fyrir læknisskoðun
fyrir flugmenn en hyggst fara ein-
hvern milliveg, eins og hann orðar
það.
Stefán Þórarinsson, fluglæknir á
Egilsstöðum, hefur heldur ekki
tekið upp nýja gjaldskrá Fluglækn-
ingastofnunarinnar í Reykjavík.
Forkastanleg hækkun
á læknisskoðun
Einkaflugmenn ósáttir við nær 100 prósenta hækkun á læknisskoðun hjá fluglæknum í
Reykjavík Fluglækni á Ísafirði þykir það fásinna að hækka nú í ljósi efnahagsástands
➤ Fluglæknar eiga að hafa hlot-ið þjálfun á sviði fluglækn-
isfræði.
➤ Samkvæmt upplýsingum fráFlugmálastjórn voru lækn-
isskoðanir á skírteinishöfum í
Reykjavík 1550 í fyrra en um
100 á landsbyggðinni.
➤ Vinnuveitandinn borgarlæknisskoðun fyrir atvinnu-
flugmenn.
HEILBRIGÐISSKOÐANIR
24stundir/RAX
Lent í Fljótshlíð Einkaflugmenn undrast mikla hækkun á læknisskoðun.
Lögfræðingar verða fengnir til að meta hvort
bann Kerfélagsins við því að rútur leggi í stæðið
við Kerið í Grímsnesi stenst. Framkvæmdastjóri
Samtaka ferðaþjónustu og talsmenn bæði
Ferðamálaráðs og Vegagerðar hafa lýst efasemd-
um um að bannið samrýmist lögum. Eigendur
Kersins segja átroðning ferðamanna við Kerið
spilla landinu. Þegar ekki náðist samkomulag
við stærstu ferðaskrifstofurnar á svæðinu um
gjald fyrir hvern rútufarþega brugðu landeig-
endur á það ráð að banna rútum aðgang að bíla-
stæði Vegagerðarinnar við Kerið.
Sjö ára gamalt bílastæði
Ferðamálaráð og Vegagerðin gerðu bílastæði
og stíga við Kerið fyrir sjö árum í samráði við
landeigendur. Ferðamálaráð átti frumkvæðið og
kostaði mestan hluta verksins, en Vegagerðin sá
um framkvæmdina og tók á sig hluta af kostn-
aðinum. Svanur Kristjánsson svæðisstjóri Vega-
gerðarinnar á Selfossi veit varla hvað segja skal
um ákvörðun Kerfélagsins. „Ég geri mér ekki
grein fyrir því hvaða heimildir landeigendur
hafa til að loka bílastæði Vegagerðarinnar og
man ekki til þess að neitt þessu líkt hafi komið
upp áður. Svanur segir sjaldan reyna á samskipti
við landeigendur, því núorðið sé algengast að
Vegagerðin kaupi land undir framkvæmdir.
„Oftast eru bílaplönin það lítil að þau eru inni á
vegsvæðinu sjálfu. Landeigendur samþykktu
þetta stæði og ef auka þarf eftirlit og bæta að-
stöðuna gætum við og Ferðamálaráð gert það,
en ég veit ekki til að þess hafi verið óskað. Vega-
gerðin hlýtur að reyna að tryggja að ekki verði
hægt að loka bílastæðum sem gerð eru fyrir al-
mannafé. beva@24stundir.is
Vegagerð og Ferðamálaráð vilja tryggja umgengni við Kerið
Rútubannið við Kerið óvenjulegt mál
ÞÖK
Vegagerðin Sumir ferðamenn virða ekki stígana og
mynda moldargötu með utanstígagöngu.
8 ÞRIÐJUDAGUR 8. JÚLÍ 2008 24stundir
· Hentar fartölvum með allt að 17“ skjá
· Nylon efni
· Svartur og silfurgrár
DELL BAKPOKI
FYRIR FARTÖLVUR
3.990 KR.
Fullt verð: 5.990 kr.
VA
RA
VIK
UN
NA
R
Grensásvegi 10, 108 Reykjavík // Sími 563 3000
Tryggvabraut 10, 600 Akureyri // Sími 463 3000 // www.ejs.is
2.000 kr.afsláttur
Ti
lb
oð
ið
gi
ld
ir
frá
7.
til
12
.j
úl
í
Fæðingadeildum LSH voru
gefnar nýir hægindastólar síð-
astliðin föstudag. Stólarnir
eru kærkomnir fyrir nýbak-
aðar mæður sem nú geta tyllt
sér með nýbura sína, en áður
voru tveir stólar til taks sem
voru orðnir lúnir.
Guðmundur H. Jónsson, að-
stoðarforstjóri Norvik og Val-
geir Ólafsson, verslunarstjóri
Húsgagnahallarinnar, gáfu
stólana. áb
Norvik gaf stólana
Nýir hæginda-
stólar á LSH
Náttúrverndarsamtökin Sav-
ing Iceland verða með mót-
mælabúðir gegn stóriðjuvæð-
ingu og kapítalisma í sumar.
Þær verða opnaðar 12. júlí.
Nákvæm staðsetning búðanna
verður auglýst á vefsíðu sam-
takanna, savingiceland.org,
þegar nær dregur. ejg
Saving Iceland
Mótmælabúðir
um helgina
STUTT
● Vogar Bæjarfulltrúar H-listans
í Vogum vilja að þar fari fram
íbúakosning um nýjar raflínur í
landi sveitarfélagsins að því er
segir í bókun listans frá síðasta
bæjarstjórnarfundi. Telja þeir
einnig að bæjarstjórnin sé
bundin af þeim vilja íbúa að
leggja allar nýjar raflínur í jörð,
sem fram kom á íbúafundi sl.
sumar.
● Kjötvörur Unnar Goða-
kjötvörur Norðlenska eru nú
án allra mjólkurprótína, að
lifrarpylsunni undanskilinni.
Hefur fyrirtækið unnið við að
breyta uppskriftum í þessa átt
undanfarið ár.
● Vestmannaeyjar Fram-
kvæmdum við lagningu nýrrar
tólf km vatnsleiðslu til Vest-
mannaeyja ætti að vera lokið en
þær hófust í gærmorgun og átti
að ljúka í nótt. Leiðslunni var
fyrst komið í land í Bakkafjöru
og síðan haldið til Eyja. þkþ