24 stundir - 19.08.2008, Blaðsíða 12

24 stundir - 19.08.2008, Blaðsíða 12
12 ÞRIÐJUDAGUR 19. ÁGÚST 2008 24stundir 24stundir Útgáfufélag: Ritstjóri: Fréttastjórar: Ritstjórnarfulltrúi: Árvakur hf. Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir Björg Eva Erlendsdóttir Magnús Halldórsson Þröstur Emilsson Elín Albertsdóttir Auglýsingastjóri: Gylfi Þór Þorsteinsson Ritstjórn & auglýsingar: Hádegismóum 2, 110 Reykjavík Aðalsími: 510 3700 Símbréf á fréttadeild: 510 3701 Símbréf á auglýsingadeild: 510 3711 Netföng: frettir@24stundir.is, auglysingar@24stundir.is, 24stundir@24stundir.is, Prentun: Landsprent ehf. Það er áhyggjuefni að hundruð fjölskyldna bíða eftir félagslegu hús- næði í Reykjavík, Kópavogi og Hafnarfirði. Í júlí voru þær 824 sem biðu eftir að komast að í Reykjavík, nær áttatíu fleiri en á sama tíma í fyrra. Í Kópavogi bíða 207 fjölskyldur en í Hafnarfirði eru þær 150. Þessar fjölskyldur treysta sér ekki til að lifa í hinu hefðbundna mark- aðsumhverfi. Þær treysta sér ekki til að leigja eða kaupa án aðstoðar sveitarfélaganna. Hvort það breytist nú þegar reikna má með því að íbúðum á leigumarkaði fjölgi og leiguverð lækki væntanlega í kjölfarið verður fróðlegt að sjá. Heldur má þó reikna með að róðurinn hjá mörg- um fjölskyldnanna þyngist enn, því atvinnuleysi eykst og verðbólgan er sú mesta í tvo áratugi. Hver króna skiptir þessar fjölskyldur máli. Hvar þær búa skiptir líka máli, því þjónusta stærstu sveitarfélaganna er mismunandi eins og kom fram í helgarúttekt 24 stunda. Tökum daggæslu barna sem dæmi, en þar sést munurinn glögglega. „Ég gerði mér ekki grein fyrir því að það væri svona gríðarlega mikill munur á milli þeirra,“ sagði einstæð móðir í viðtali við 24 stundir um helgina og vísaði til niðurgreiðslna Reykjavíkur, Kópavogs og Hafn- arfjarðar til einstæðra foreldra vegna daggæslu barna. Reykjavík greiðir 50.680 krónur fyrir eitt barn hjá dagforeldri miðað við átta klukkustunda vistun. Í Kópavogi nema greiðslurnar 35 þús- undum beint til foreldra en vistunin er niðurgreidd um 38.664 krónur í Hafnarfirði. Séu systkini einnig hjá dagforeldri eru reglurnar ólíkar milli sveitarfélaganna. Í Reykjavík er greidd viðbótargreiðsla upp á 9.760 krónur. Hafnarfjörður greiðir 25% í viðbót en Kópavogur greiðir 35 þúsund krónur sem fyrr með hverju barni. Ein- stæðar mæður með tvíbura fengju því meira greitt með börnum sínum í Kópavogi en Reykjavík. Reykjavík sker sig úr þegar litið er á gjaldskrá leik- skólanna vegna níu klukkustunda vistunar með fullu fæði. Þar kostar vistunin tæpar 13 þúsund krónur en rétt í kringum 17 þúsund krónur hjá hinum tveimur. Ekki er óeðlilegt að fjölskyldur sem þurfa að horfa í hverja krónu skoði hvað sveitarfélögin bjóða. Hins vegar er ekki nóg að skoða hvað þau segjast bjóða heldur verður að horfa á hvað þau bjóða í raun. Kjósi fjölskyldurnar að færa sig milli sveitarfélaga vegna vonar um meiri aðstoð við framfærsluna er ekki ólíklegt að þær færist af einum biðlistanum á annan. 1200 á biðlista Á vefsíðu Landssambands kúa- bænda er fjallað um hækkun álagningar á díselolíu … … Nú er ekki úr vegi að íslenskir bændur hugleiði hvort ekki sé hægt að snúa þessari vanda- sömu stöðu upp í styrkleika. Vel er hugsanlegt að draga megi um- talsvert úr notkun kemísks áburðar við ræktun túna, með hlýnandi veðurfari hafa eflaust opnast möguleikar í þeim efnum, sem ekki lágu eins beint við til skamms tíma. Þannig geta bænd- ur hugsanlega slegið tvær flugur í einu höggi; snúið á olíufélögin og fært sig yfir í lífræna ræktun. Kolbrún Halldórsdóttir althingi.is/kolbrunh BLOGGARINN Styrkirnir nýttir Á þeim breytingatímum sem við lifum nú skiptir það hins vegar máli að til staðar sé kjölfesta. Landbúnaðurinn er íslensku þjóð- félagi slík kjöl- festa. Þess vegna meðal annars, viljum við tryggja hagsmuni hans í hvívetna. Þær breytingar sem fyrirsjáanlegar eru, til dæmis með nýrri mat- vælalöggjöf, verða gerðar með hagsmuni íslensks landbúnaðar að leiðarljósi. Við munum gera strangar kröfur um heilbrigði matvæla og öll vitum við að slíkt þjónar hagsmunum landbún- aðarins, enda þótt það sé gert í þágu neytenda. Einar Kristinn Guðfinnsson ekg.is Kjölfesta Íslands Umboðsmaður neytenda leggur til, að felld verði niður opinber gjöld af litlum pökkum. Það eru einkum bækur og geisladiskar, sem margfaldast í verði í innflutn- ingi vegna gjald- anna. Einkum leggst umsýslu- gjald þungt á litla pakka. Heilmikið batterí er rekið til að innheimta þetta rugl á kostnað fólks. Vitleysa af þessu tagi þekk- ist ekki í neinu nálægu landi. Umboðsmaður hefur oft komið með góðar hugmyndir og engin er betri en einmitt þessi. Hafa má til marks um vanhæfni íslenzkra ráðherra, að þessi gjöld skuli hafa viðgengizt til þessa.... Jónas Kristjánsson jonas.is Góð hugmynd Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir gag@24stundir.is Skoðanakönnun Fréttablaðsins um borg- arstjórnarpólitíkina sýnir svo ekki verður um villst að Reykvíkingar eru óánægðir. Slíkt kemur ekki á óvart í ljósi þess að hringekjan í Ráðhúsinu hefur minnt á slakan Survivor-þátt, þar sem menn eru kosnir inn og út af meirihlutaeyjunni eftirsóttu á forsendum sem áhorfendum eru oftar en ekki óskiljanlegar. Engin ástæða er til að draga í efa að þessi könnun gefi raun- sanna mynd af skoðunum Reykvíkinga daginn sem hún var tekin. Borgarbúar eru augljóslega þreyttir á meiri- hlutaskiptum. Hins vegar eru atriði sem huga þarf að í túlkun á niðurstöðum. Í fyrsta lagi er það hið háa hlut- fall óákveðinna og svo hins vegar hið háa hlutfall þeirra sem beinlínis segjast ekki ætla að kjósa. Almenna reglan í skoðanakönnunum er að gera einfaldlega ráð fyrir að þeir sem eru óákveðnir dreifist á flokka í sömu hlut- föllum og þeir sem búnir eru að taka afstöðu. Að um 17,5% þeirra sem taka afstöðu segist ekki ætla að kjósa eða skila auðu er yfirlýsing um vantrú á stjórnmálin í Reykjavík almennt. Sérstaklega þó á Sjálfstæðisflokkinn, sem hefur verið aðalgerandi í atburðarás kjörtímabils- ins. Þegar við bætist að 44,5% aðspurðra um stuðning við flokk voru óákveðin er brýnt að hafa varann á við alla túlkun. Í sjálfu sér skiptir það ekki höfuðmáli þótt fáir séu eftir í úrtakinu, ef úrtakið er vel tekið í upphafi. Skekkjumörk aukast vissulega, en það sem huga þarf að í túlkuninni er spurningin hvort hinir óákveðnu séu hópur sem hefur svipaða eiginleika og hinir ákveðnu. Í þessu tilfelli er það mjög ólíklegt. Óánægjan er líklegri til að vera meiri meðal stuðningsmanna Sjáfstæð- isflokks en meðal stuðningsmanna minnihlutaflokk- anna. Óánægðir kjósendur Sjálfstæðisflokks eru tilbúnir að refsa flokknum í skoðanakönnun fyrir frammistöðu hans, en óvíst er að þeir muni gera það þegar til sjálfra kosninganna kemur. Þá munu óá- kveðnir horfa til frammistöðu nýrrar forustu og nýs meirihluta, og svo auð- vitað líka til frammistöðu stjórnarand- stöðunnar. En líkur eru á að fyrir mjög marga úr þessum hópi sé leiðin styttri heim í Sjálfstæðisflokkinn, en yfir til Samfylkingar eða jafnvel VG. Höfundur er stjórnmálafræðingur Óákveðnir sjálfstæðismenn? ÁLIT Birgir Guð- mundsson birgirg@unak.is tækni SÍÐUMÚLA 37 - SÍMI 510 6000 - WWW.SVAR.IS Acer Extensa 5620Z Intel tveggja kjarna örgjörvi, 1.5Ghz, 1.5GB vinnsluminni, 80 GB geymslupláss, 15.4“ CrystalBrite skjár, Windows Vista, 3 ára ábyrgð. 79.900- Skólatilboð Acer Extensa 5220B Intel Celeron örgjörvi, 1.86Ghz, 1GB vinnsluminni, 80 GB geymslupláss, 15.4“ CrystalBrite skjár, Windows Vista, 3 ára ábyrgð. 69.900- Skólatilboð Aðeins Kr. 2.406 á mánuði m.v. 48 mán. Svar lán Aðeins Kr. 2.714 á mánuði m.v. 48 mán. Svar lán

x

24 stundir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.