Eintak - 01.11.1993, Page 34

Eintak - 01.11.1993, Page 34
Guðmundur Andri Thorsson er Reykvíkíngur sem bjó víð þau ósköp sem ungur drengur að vera sendur tíl dvalar á Akureyf hvert sumar, Hér gerir Guðmundur Andrí upp við þann tíma, í hitteðfyrra fór ég til Akureyrar og ráfaði þar um bæinn heilan dag. Það var vetur. Ég var hel- víthis hálfvithi að sunnan. Ég bar það alveg með mér: göngulagið vitnaði um hálfvitaháttinn, hjá- rænulegur svipurinn, fyrirhyggjuleysið í vettl- ingaleysinu, spjátrungshátturinn í frakkavalinu sem engan blekkti sem varð litið á skóna - þetta eilífa gón út í loftið; það leyndi sér ekki hvaðan þennan mann bar að. Ég var að vitja bernskustöðva í leiðinni. Og þegar ég stóð við dyrnar á Amaro bærðist eitt- hvað í brjósti mér sem líktist kennd. Ég hafði dvalið langdvölum í þessum bæ á sumrin sem krakki, og hann hafði mótað mig. Þetta er játn- ing, hreinskilið og opinskátt uppgjör: Það var Akureyri sem gerði mig svona eins og ég er. Þótt ég stæði einn og rammvilltur í miðjum háannatímanum í Tokyo, gnæfði einn upp úr gulu jakkafatamannhafinu, fyndi ég ekki jafn sterkt til sérstöðu minnar og furðulegheita og ég gerði sem barn á Akureyri. Hvers vegna? Það var ekki vegna þess að ég var með svona stórt skarð á milli framtannanna, og ekki heldur vegna þess að ég var feitur - heldur hitt, að ég var úr Reykjavík, og staddur á Akureyri. Mér tókst aldrei að ná þessu dugnaðarlega myndarfasi sem einkennir Akureyringa og raunar alla Eyfirðinga. Ég hafði ekki blómlegt litaraftið; ég átti ekki til hressileik- ann, kunni ekki að beita röddinni þessum kvart- tón hærra en sunnanmenn gera, hafði ekki hljóminn, hafði ekki vald á lokhljóðunum. Og því varð ég sá sem ég er. Ég varð innipúki og bókabéus, lá í þjóðlegum fróðleik, einkum draugasögum og öðrum undarlegheitum í stað þess að stunda heilbrigða útiveru. Það var sem sé hin akureyrska æska sem gerði mig bókhneigðan og sjálfsagt að sýna henni þakklæti fyrir það svo sem henni ber - og þegar ég nú ráfaði þarna í kringum þessi sumur bernsku minnar þegar úti var sól en inni ríkti römm forneskjan, þá skildist mér að hversu víða sem ég þættist hafa farið og margt séð og margt lesið og marg- víslega forframast - þá yrði ég aldrei annað en helvíthis- bölvaðurhálfvithi að sunnan. Ég náði mér ekki á strik fyrr en ég dróst sorgfullur ferða- langur á krá sem hét Uppinn, en það orð mun vera haft „Ég varað horfa á Akureyringa skemmta sér- tfskuklædda, myndarlega, Ijóshærða og sólbrúna og skíðalega. “ sem hrósyrði þar nyrðra, þar sem líflegt tríó lék að vísu ekki undir samræðum fólks heldur frem- ur yfir þær og þarna hitti ég fólk úr Reykjavík sem ég þekkti naumast nema rétt í sjón og það naum- ast mig, nema þetta urðu fagnaðarfundir; þetta varð ráðstefna hálfvitanna; þetta var eins og þegar Islendingar hittast einhvers staðar í Ind- landi - heyrðu ert þú ekki þessi og þessi - og innan tíðar var eins og allir hefðu þekkst lengi. Akureyringar og Reykvík- ingar: þessi skarpa megin- andstæða þjóðlífsins milli hinna stoltu og árásargjörnu norðlinga og ríku og sakbitnu og menningarsnauðu sunn- anmanna; það er í rauninni stórkostlegt að svona þjóðarkríli geti rúmað svo afdráttarlausa andstæðu. Aðrir landsmenn horfa fremur á hana utan frá og eiga jafnvel erfítt með að skilja þessa sérstöku tegund af tortryggni sem ríkir þarna á milli - þetta er tortryggnin sem ríkir milli konungsins og helsta keppinautar hans sem telur sig eiga tilkall til valda. Þegar aðrir lands- menn veitast að Reykvíkingum tala þeir jafnan um sinn eigin skerf til þjóðarbúsins sem þeir vilja sjálfir fá að ráðskast með í stað þess að auðurinn fari suður í hendur kontórista að deila út eða breytist í fasteigna- og aðstöðugjöld sem svo aftur breytast í tjarnhús. Þessum ræðum má Reyk- víkingur ævinlega sitja undir snúandi þumlum og muldrandi í barm sér hvar sem er á landinu, nema kannski helst á Akureyri. Gagnrýni þeirra sem byggja Höfuðstað Norðurlands er einhvern veginn öðruvísi og það er erfiðara að höndla hana. Hún er miklu óbeinni - þeir tala ekki um gjaldeyristekjur þar, þeir svífa ekki heiftúðugir á mann þegar þeir vita hvaðan maður kemur og spyrja snöggt: hvað skaffar þú nú í þjóðarbúið góði, eins og Vestfirðingar og Vestmanneyingar væru vísir til að gera áður en þeir heilsa manni að sjómannasið. Það er hins vegar einhver tónn sem er hárfínn en fer samt ekki á milli rnála, það er einhver háðstónn gagnvart sunnanmönnum, eins og þeir líti í alvöru niður á þá, sjái í gegnum þá, en um leið er þetta háðstónn þess sem verður undir, ómaklega að eigin mati; þetta er háðstónn Frakkans í garð Ameríkanans, Frammarans í garð Skagamannsins. Munurinn á íslensku Reykvíkinga og Akur- eyringa liggur ekki í lokhljóðunum eða rödduðu enni. Reykvískan vitnar um aðra skaphöfn. Hún er ekki mál þess sem hefur yndi af því að hlusta á eigin rödd; hún er ekki heldur mál þess sem vill segja sögur; hún er ekki mál þess sem móta vill hugsun sína í meitlaðar setningar. I reykvískunni felast fremur möguleikar til að láta í ljós gildismat sitt, hún hentar fremur til að fella dóma um um- hverfið sem eru jafnafdráttarlausir og þeir eru stuttaralegir. Reykvískan er tungutak þess dóm- harða sem vísar spurningum á bug með setning- urn á borð við veitþað- ekki eða helst með aðeins einu orði: Bara. Velþóknun er látin í ljós með einu lýsingar- orði sem gjarnan er orðið Æðislegt, og yfir- leitt má segja það um reykvískuna að hún einkennist fyrst og fremst af því að mál- notandi vill fyrst og fremst upplýsa um- hverfið um tilfmninga- leg viðbrögð sín gagn- vart því, og þær kenndir sem það kveikir með viðkomandi, frernur en „...þá skildist mér að hversu víða sem ég þættist hafa farið og margt séð og margt lesið og margvíslega forframast - þá yrði ég aldrei annað en helvfthisbölvaðurhálfvithi að sunnan. “
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124

x

Eintak

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eintak
https://timarit.is/publication/309

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.