Eintak

Tölublað

Eintak - 16.06.1994, Blaðsíða 48

Eintak - 16.06.1994, Blaðsíða 48
Rúnar Kristinsson, fyririiði KR, í baráttu við Frammara í gærkvöld. KR-ingar börðust miklu meira í leiknum og myndin er kannski táknræn fyrir baráttu þeirra. Betriá öllum siriðum KR valtaði yfir slappa Frammara WorldCup JSA94 ALLT UM HM ‘94 Kolumbía: Fótbotti og fíkniefni 42 eru spumingamerki 43 Þjódveijar hefja titilvömina n ivíu Noregur - Mexíkó: Norðrið mætir suðrinu 45 Einn af stórleikjum keppninnar 44 „Þetta var það sem ég vildi sjá til liðsins. Menn léku að mínu mati allir vel, ekki bara sumir, eins og var á móti FH,“ sagði Guðjón Þórðarson, þjálfari KR, sigurreif- ur eftir sannfærandi sigur KR-inga á afar döprum Frömmurum á Laugardalsvellinum í gærkvöldi. „Nú gerðist það að menn gáfu sig alla í þetta, allir sem einn,“ sagði Guðjón ennfremur. Marteinn Geirsson, þjálfari Fram, var ekki hrifinn: „Það var eins og menn hefðu ekki trú á þessu. Þetta var af- skaplega lélegt og var eins og þeir bæru virðingu fyrir KR-ingunum, sem spiluðu mjög vel og unnu sanngjarnt." Leikur KR og Fram í gærkvöldi var að mörgu leyti eins og leikur kattarins að músinni. Strax í upp- hafi virtist ljóst að KR-ingarnir hefðu viljann til að vinna, sóknirn- ar voru beittari, menn hlupu á eftir boltanum og gáfu sig í baráttuna. Frammarar virtust eins og slegnir út af laginu strax í byrjun og leikur- inn líktist leik Fram og Vals á dög- unum að mörgu leyti nema því að Fra m - KR 0:3 Izudin Daði Dervic, Salih Heimir Porca, Tryggvi Guðmundsson. Fram: Birkir Kristinsson - ySU Ágúst Ólafsson, Ómar raSð Sigtryggsson, Pétur Mar- teinsson - Gauti Laxdal (- Helgi Björgvinsson 68.), Hólmsteinn Jónasson (Guðmundur Steinsson 64.), Kristinn Hafliðason, Steinar Guðgeirsson, Anton Markús- son - Ríkharður Daðason, Helgi Sig- urðsson. KR: Kristján Finnbogason - Þormóður Egilsson, Izudin Daði Dervic (Vilhjálmur Vil- hjálmsson 77.), Heimir Guðjónsson - James Bett, Salih Heimir Porca, Rúnar Kristinsson, Ein- ar Þór Daníelsson, Hilmar Björnsson - Tómas Ingi Tómasson, Tryggvi Guðmundsson. Áminningar: Rúnar, Heimir og Porca, KR. Maður leiksins: Heimir Guðjónsson, KR. nú voru Frammarar í hinu hlut- verkinu. Það voru ekki liðnar margar mínútur af leiknum þegar KR-ing- ar fengu sitt fyrsta færi. Strax á þriðju rnínútu tókst Tómasi Inga Tómassyni að losa sig við tvo varnarmenn innan við vítateigslín- una en á síðustu stundu tókst Frömmurum að bægja hættunni frá. Tómas Ingi var aftur á ferðinni skömmu síðar en var þá of seinn að gefa knöttinn og sóknin rann út í sandinn og mætti Tómas vera aðeins fljót- ari að skila bolt- anum frá sér, óþarfa dútl gerir ekkert gagn og spillir bara fyrir. Fyrsta mark leiksins kom síð- an á markamín- útunni frægu, 43. mínútu. Þá átti Einar Þór Daníelsson sannkallað hörkuskot að marki Fram sem Birkir Kristins- son gerði vel í að verja í horn. Upp úr hornspyrnunni sem Hilmar Björnsson tók, skoraði Izudin Daði Fervic úr þvögu í markteign- um. Staðan orðin 1:0 fyrir KR og skömmu síðar var flautað til leik- hlés. í seinni hálfleik tóku KR-ingar strax öll völd á vellinum. Frammar- ar virtust alveg vera búnir að gefast upp og framherjar KR, svo og kant- mennirnir, hreinlega tættu Fram- vörninai sig hyað eftir annað. Ein- ar Þór fór alveg á kostum á kantin- um en kann sér stundum ekki hóf og má vera sneggri að koma knett- inum frá sér. Bett virkaði þungur en skilar þó frá sér mjög góðum sendingum og virkar yfirvegaður á miðjunni. Eftir góðar sendingar miðjumanna kornu tvö seinni mörk KR, fyrst þrumuskot Porca eftir frábæra sendingu Tómasar Inga og síðan glæsilegt langskot Tryggva Guðmundssonar. „Ég sá að Birkir var illa staðsettur og því var ekki annað að gera en að negla í fjærhornið,“ sagði Tryggvi ánægð- ur eftir leikinn. Framliðið var langt í frá sannfær- andi í þessum leik og ljóst er að mikið meira býr í liðinu. Leikirnir í Reykjavíkurmótinu þar sem KR saltaði Fram í tveimur leikjum sátu kannski eitthvað í mönnum en bet- ur má ef duga skal. 0 l.deild I Staðan IA 5 8:2 13 KR 6 11:3 10 FH 5 3:1 10 ÍBK 5 7:3 7 Fram 6 9:10 6 ÍBV 5 2:3 6 Valur 5 3:6 5 UBK 5 4:12 4 Þór 5 4:6 3 Stjarnan 5 1:6 3 Markahæstir: Óli Þór Magnússon: 4 Tómas Ingi Tómasson: 4 Mihajlo Bibercic: 3 1 Ríkharður Daðason: 3 Reykjavflc larair ætila að ræðaá HM 46 Mai 9i Verður Kolumbía lið kepnninnar? 45 Svíar æstir í að sýna betri leik en í HM ‘90 45 Margir bestu knatt- spymumenn sam- fímans á áhorfenda- bekkjunum 46 Sigurður Jónsson verður frá í tvær vikur Mikil blóðtaka fyrir Skagamenn Nú er endan- lega ljóst að Skagamaðurinn sterki, Sigurður Jónsson, verð- ur að fara í að- gerð vegna kvið- slitsins sem hefur þjáð hann undanfarna daga. Að sögn Harðar Helgasonar veltur allt á því hvenær læknirinn, sem sér um spegilskurðaðgerðir, er tilbúinn en eftir aðgerð mun líða allt að tveimur vikum þar til Sigurður verður leikfær aftur. Sigurður mun því missa af leikn- um gegn Blikum í kvöld, leiknum við KR 24. júní, bikarleiknum 29. júní og ef allt fer á versta veg, leikn- um við Keflvíkinga 7. júlí. Þó er lík- legt að Sigurður verði orðinn klár í þann leik. Það er ljóst að þetta er mikii blóðtaka fyrir Skagaliðið, sem er eitt efst á toppi deildarinnar með þrettán stig. Olafur Þórðarson er nýstiginn upp úr meiðslum og er athyglisvert að skoða árangur liðs- ins sé haft í huga að enn hefur ekki verið hægt að stilla Sigurði og Ólafi saman í byrjunarliði. 0

x

Eintak

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eintak
https://timarit.is/publication/309

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.