Vikublaðið


Vikublaðið - 06.01.1995, Blaðsíða 5

Vikublaðið - 06.01.1995, Blaðsíða 5
VIKUBLAÐIÐ 6.JANUAR 1995 Tímamót 5 Ólafur Ragnar Grímsson formaður Alþýðubandalagsins s Arið 1994 færði Alþýðubandalaginu glæsi- lega sigra í sveitarstjómarkosningum. Arangurimi var einhver sá besti í sögu flokksins og skilaði víðtækum áhrifum um allt land. Alþýðubandalagið er nú sterkara í stjóm- um sveitarfélaga á höfúðborgarsvæðinu en nokkm sinni fýrr. Auk þátttöku í sigri félags- hyggjuaflanna í Reykjavík er Alþýðubandalags- fólk nú meirihlutaaðili í Hafharfirði og Mos- fellsbæ og forysmafl í stjómarandstöðunni í Garðabæ og Kópavogi. Ásamt því að vera ótvíræður sigurvegari á landinu í heild styrkti Alþýðubandalagið til muna stöðu sína í kjölfar kosninganna. Alþýðu- bandalagsfólk ber nú ábyrgð á stjóm málefna Akraness, Borgamess, Siglufjarðar, Húsavíkur, Egilsstaða og Selfoss, svo aðeins nokkrir staðir séu nefndir. Þriðja kynslóðin í forysm Nes- kaupstaðar sldlaði einnig glæsilegri árangri en áður hefur náðst í 50 ára valdaferli í bænum. Þessi mikli árangur Alþýðubandalagsins er á- vöxmr af markvissu uppbyggingarstarfi á liðn- um árum. Flokkurinn hefur notað tímann vel. Við höfum eignast nýja stefiiuskrá og sett fram viðamiklar tillögur í atvinnumálum, nýjar hug- myndir um lífskjarajöfnun, siðbót og skýrar leikreglur í íslensku þjóðfélagi. Fulltrúar okkar í byggðarlögunum hafa sýnt ábyrgð og hæfni. Þau hafa verið í fararbroddi fyrir endumýjun og uppbyggingu. Við höfum kappkostað að Alþýðubandalags- fólk geti sér gott orð vegna árangurs í starfi. Kjörorðið Flokkur sem getur - Fólk se?u þorir var ekki aðeins einkunnarorð okkar á valdatíma síð- usm ríkisstjómar og í þingkosningunum 1991 heldur einnig leiðarljós i' starfi og baráttu allt þetta kjöm'mabil, jafnt í landsmálum sem á starfsvettvangi sveitarstjóma. Alþýðubandalagið hefur aldrei fyrr haft jafh víðtæk áhrif um allt land. Það er athyglisvert að fjölmenn fulltrúasveit okkar er skipuð fólki á besta aldri, fætt um eða efidr 1950 og því tölu- vert yngra að árum en hið unga íslenska lýð- veldi. Það er dýrmætt vegamesti fyrir flokk að eiga í senn traustar ræmr í öllum landshlutum og fjölmenna, unga og kröftuga forysmsveit í málefhum byggðanna. Endurnýjun stefnunnar - Nýjar hugmyndir I kjölfar vinnunnar að nýrri stefnuskrá 1991 tók Alþýðubandalagið forysm í mótun nýira hugmynda um atvinnulíf og efhahagsmál á Is- landi. Haustið 1992 lögðum við firam ítarlega greinargerð sem bar heitið Ný leið Islendinga og hvöttum til samstöðu stjómmálaflokka og hagsmunasamtaka. Án nýrra vinnubragða væra því miður litlar horfur á að íslendingum tældst að styrkja svo atvinnulífið að allir landsmenn gæm gengið að öraggum störfum og lífskjör bömuðu. í ffamhaldi af tillögugerðinni Ný leið Islend- inga vom í aðdraganda landsfundarins 1993 lögð ffam drög að heildarstefnu í efnahags- og atvinnumálum sem jafnffamt fólu í sér lýsingu á h'fskjarajöfnun og siðbót í íslenskum þjóðmál- um. Þessi stefnumótun, sem bar heitið Uiflutn- ingsleiðin: Atvinna -Jöfnuður - Siðbót, var meg- inefhi landsfundar okkar 1993. í kjölfar nánari umfjöllunar í miðstjóm og öðrum stofnunum flokksins var hún vorið 1994 gefin út í Grænni bók. Þessi atburðalýsing sýnir að Alþýðubanda- lagið hefur nýtt liðin ár með óvenjulega virkum hætti. Það er sjaldgæft að flokkur í stjómarand- stöðu noti tímann til að taka ffumkvæði í stefhumótun og tillögugerð. Ekkert slíkt hefur þjóðfélagi vom margir sem hæddust að tillögu- gerðinni og töldu hana eiga lítrið erindi á opin- beran vettvang. Nú hafa hins vegar sldpast svo veður í loftri að æ fleiri reyna að eigna sér þær tillögur sem Alþýðubandalagið kynnti. Það er ánægjulegt fyrir forystusveit flokksins og félags- fólk allt að þetta ffumkvæði okkar skuh nú njóta víðtækrar viðurkenningar. Raunverulegur vilji til samfylkingar Auk ffumkvæðis í stefhumótun hefur Al- þýðubandalagið á árinu 1994 ítrekað reynt að koma á samfylkingu félagshyggjufólks og jafn- aðarsinna. Að loknum sveitarstjómarkosning- um, þar sem sldpulögð samvinna félagshyggju- fólks skilaði sögulegum árangri í Reykjavík, samþykkti miðstjóm Alþýðubandalagsins að flokkurinn væri tilbúinn að taka þátt í nýsköpun íslenskra stjómmála og eiga viðræður við alla þá sem áhuga hefðu á slíkum breytingum. Hvað eftir annað á liðnu sumri og haustd setti forystu- fólk flokksins ffam hugmyndir um aðferðir. Einstakar flokksdeildir, eins og t.d. kjördæmis- ráðið í Reykjavík, félögin Birting og Framsýn og hin nýju samtök kvenna í Alþýðubandalag- inu, Sellumar, sendu ffá sér ályktanir. Enginn flokkur félagshyggjufólks hefur verið jafh virk- ur í tilraununi til að koma á raunverulegri sam- vinnu félagshyggjufólks í landinu eins og AI- þýðubandalagið var í reynd á árinu 1994. Niðurstaðan varð engu að síður sú að aðrir flokkar í stjómarandstöðu og smðningssveit Jó- hönnu Sigurðadóttur reyndust engan áhuga hafa á slíkri samfylldngu. Forysta Framsóknar- flokksins hafhaði strax í upphafi öllum viðræð- um um samtengingu vinstri aflanna í landinu. Innan Kvennahstans höfðu yngri konur nokkurn áhuga, en ráðandi öfl höfðu það í gegn að Kvennalistinn hafnaði í nafhi „sérstöðunn- ar“ öllum viðræðum um slíka samstillingu kraftanna. Þrátt fyfir að Jóhanna Sigurðardótt- ir segðist í orði hafa áhuga á samstarfi kom í ljós á haustmánuðum að hún vildi fyrst og ffemst búa til nýja hreyfingu í kringum sjálfa sig. Jó- hanna var ekki tilbúin til skipulagðra viðræðna um samfylkingu en notaði sumarið og haustið til að safha hði í nýjan flokk. Hún valdi að feta í fótspor Alberts Guðmundssonar, Vilmundar Gylfesonar og Bjama Guðnasonar í stað þess að tengja saman í sterka heild þau skipulögðu sam- tök félagshyggjufólks sem djúpar rætur eiga í öllum landshlutum. j Það er athyglisvert að á síðustu vikum ársins komu í ljós margvísleg merki þess að forystu- fólk sem aðhyllist félagshyggju en hefur staðið utan við stjómmálaflokkana hefur komist að þeirri niðurstöðu að Alþýðubandalagið sé eini aðilinn sem sýnt hafi raunverulegan vilja til víð- tækrar samfylkingar. Alþýðubandalagið eitt hafi burði til að vera til lengdarjkjölfestan í nýsköp- un íslenskra stjómmála. Forystumenn úr sam- tökum launafólks og stéttarlfélögum bænda hafa ásamt áhrifafólki úr byggðáhreyfingum lýst á- huga á að ganga til samstarfs við Alþýðubanda- lagið í þingkosningum. Nú þegar hefur forystu- maður úr röðum bænda á Suðurlandi tekið þriðja sætið á hsta flokksins í komandi þing- kosningum. í Reykjavík er til umfjöllunar sá kostur að landsþekkt forystufólk launafólks myndi bandalag Alþýðubandalagsins og óháðra við alþingiskosningamar í vor og víðar á land- inu hafa farið ffam viðræður við þjóðþekkta einstaklinga sem ekki hafa áður tengst firam- boðum á vegum Alþýðubandalagsins. Tvö módel Sagan sýnir að tilraunir til nýsköpunar í ís- komið ffá núverandi stjómarflokkum, Sjálf- stæðisflokld og Alþýðuflokki, og þeir flokkar sem deilt hafa stjómarandstöðunni með okkur, Framsóknarflokkur og Kvennahsti, hafa ekki heldur lagt ffam hhðstæðan efnivið. Þjóðvald er síðan að mesm óútfyllt ávísun þótt á bakhhð hennar sé skráð rösklega þriggja ára samábyrgð Jóhönnu Sigurðardóttur með Davíð Oddssyni og Jóni Baldvin á misréttinu í íslensku samfé- la§?- , . . - í Grænu bókinni, Utflutningsleiðin: Atvinna - Jöfhuður - Siðbót, er að finna ítarlega lýsingu á nýju forriti í hagstjóm á íslandi. Þar em settar ffam yfir 350 nýjar hugmyndir og tillögur um breytingar sem gera þarf á öllum sviðum at- vinnulífs á íslandi: í sjávarútvegi, iðnaði, við- skiptum og landbúnaði. Þar em raktar hug- myndir um uppstokkun banka og sjóðakerfis, um nýtt skipulag á áhættufjármagni fyrir hugvit og hæfileikafólk og aðrar áherslur við að ákveða fjárfestingu. Utflutningsleið Alþýðubandalagsins er braut þar sem auldnn útflutningur fær forgang með margvíslegum breytingum á skattakerfi, sjóð- um og bankastofhunum. Atvinnulífi, launafólki og stjómvöldum er ædað að móta sóknarlínur í einstökum atvinnugreinum í trausti þess að með aukinni ffamleiðslu og sölu á erlendum mörkuðum vaxi þjóðartekjur, halli ríkissjóðs minnld, stöðugleiki skapist og fiill atvinna fest- ist í sessi. í tillögugerðinni er að finna ítarlegar lýsingar á því hvemig jöfituðtu og auldð rétdæti eigi að setja svip á íslenskt samfélag. Þar má nefna víð- tæka kjarajöfriun, nýtt latmakerfi, afiiám fríð- inda stjómenda og embættisstéttar, jöfiiuð í skattamálum, öflugt heilbrigðiskerfi, nútíma- legt menntakerfi og margvíslegar breytingar fjölskyldufólki til hagsbóta. Þriðji þátturinn í Grænu bókinni felur í sér margvíslegar hugmyndir tim siðbót og nýjar leikreglur í íslenskri stjómsýslu og atvinnulífi. Velsæmi í opinbem h'fi, heiðarleild ráðamanna, afnám ættarveldis og flokkshagsmuna í stjóm- sýslu og fyrirtækjum, hreyfanleiki í störfum, af- nám æviráðninga og nýjar reglur um ábyrgð og hegðan forystumanna em mildlvægir liðir í sið- væðingu á Islandi. Þegar Alþýðubandalagið fyrir rösku ári síðan setti ffam tillögur um slíka siðbót í íslensku

x

Vikublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikublaðið
https://timarit.is/publication/310

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.