Morgunblaðið - 15.01.2005, Side 24
24 LAUGARDAGUR 15. JANÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ
MINNSTAÐUR
LANDIÐ
ÁRBORGARSVÆÐIÐ
Ingibjörgu Aldísi sem er að ljúka
söngnámi í Þýskalandi.
„Ég var í sveit á Fjalli á Skeið-
um þegar ég var barn og hef síð-
an haldið tengslum við þessar
sveitir,“ segir Ólafur í samtali við
Morgunblaðið. Hann segist oft
semja lögin fyrir hreppana af
gefnum tilefnum og semji alla
textana sjálfur. Hann á í fórum
sínum fjórða lagið um sveitir
Suðurlands. Þegar móðir hans,
Sigurveig Hjaltested óp-
erusöngkona, stjórnaði kór í
Landsveitinni samdi hann lag um
sveitina sem kórinn söng oft.
„Þessi lög eru töluvert öðruvísi
en sú tónlist sem ég hef mest ver-
ið að semja,“ segir Ólafur. Hann
hefur meðal annars unnið að
Flúðir | Ólafur B. Ólafsson, tón-
menntakennari og harmónikku-
leikari, færði Hrunamannahreppi
að gjöf lag á Baðstofukvöldi sem
efnt var til í Félagsheimili
Hrunamanna á Flúðum á dög-
unum. Flutti hann lagið ásamt
dóttur sinni, Ingibjörgu Aldísi.
Áður hefur hann fært Skeiða- og
Gnúpverjahreppum hvorum sitt
lagið. Segist hann gera þetta
vegna hlýhugar til þessara sveita
og áralangrar vináttu við íbúa
þeirra.
Ólafur starfar sem tón-
menntakennari við Öskjuhlíð-
arskólann í Reykjavík. Hann hef-
ur samið töluvert af tónlist, af
ýmsu tagi, og mikið leikið undir
með einsöngvurum, meðal annars
verkefnum í grunnskólum
Reykjavíkur. Hann fékk styrk úr
Þróunarsjóði grunnskóla til að
gera tónverk um vináttuna og
flutti það ásamt Ingibjörgu Aldísi
og börnum úr Öskjuhlíðarskól-
anum í haust. Næst verður það
flutt með börnum úr Háteigs-
skóla.
Nokkrir einstaklingar hafa
staðið fyrir svokölluðum Bað-
stofukvöldum á Flúðum mörg
undangengin ár. Að þessu sinni
voru tónleikar Ingibjargar Aldís-
ar Ólafsdóttur og Ólafs B. Ólafs-
sonar á dagskrá fyrrihluta
kvöldsins og á eftir skemmtu
Baðstofugestir sér við gam-
ansögur og söng við undirleik
Ólafs.
Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson
Lag Hrunamanna Ísólfur Gylfi Pálmason, sveitarstjóri í Hrunamannahreppi, þakkaði Ólafi B. Ólafssyni og Ingi-
björgu Aldísi Ólafsdóttur fyrir lagið um hreppinn og flutning þess með blómum að loknu Baðstofukvöldi.
Hef alltaf haldið góðum
tengslum við sveitirnar
Færði Hrunamönnum eigið lag og texta á Baðstofukvöldi
Hveragerði | „Við höfðum orðið varir
við áhuga á þessum lóðum en eftir-
spurnin kom þó skemmtilega á óvart.
Það er öfundsvert að vera í þessari
stöðu,“ segir Orri Hlöðversson, bæj-
arstjóri í Hveragerði, en mikil eftir-
spurn var eftir lóðum sem bærinn
auglýsti á dögunum og bæjarráð hef-
ur nú úthlutað.
Auglýstar voru 32 lóðir með 65
íbúðum við Valsheiði, Hraunbæ og
Birkimörk. Er hér um að ræða síð-
asta hluta hverfis vestan við núver-
andi byggð, upp undir Kömbunum.
214 umsóknir bárust frá 96 umsækj-
endum í þessar 32 lóðir.
Einstaklingar höfðu forgang að
einbýlishúsalóðum en verktakar
sóttu um rað- og parhúsalóðirnar.
Dregið var úr umsóknum á fundi
bæjarráðs í fyrradag og verður lóð-
unum úthlutað samkvæmt því.
Verktaki vinnur að gatnagerð og
lögnum og verða lóðirnar byggingar-
hæfar 1. júní þegar hann á að skila
götunum. Orri Hlöðversson segir að
umsækjendur hafi komið víða að og á
lista þeirra hafi verið mikið af nýjum
nöfnum í bæjarfélaginu. „Það virtust
margir vilja koma af höfuðborgar-
svæðinu og það er ekki síður ánægju-
efni að yngra fólk héðan úr Hvera-
gerði vill koma sér hér fyrir. Það er
dýrmætt því meiri líkur eru á því að
það setjist hér að varanlega,“ segir
Orri. Hann segir að þessi mikla ásókn
í lóðirnar sé nokkuð í takt við það sem
menn hafi séð í bæjarfélögunum fyrir
austan fjall að undanförnu, áhugi á
svæðinu hafi mjög vaxið. Bæjar-
stjórnin telur að áhuginn á svæðinu,
ekki síst einbýlishúsalóðum, stafi
meðal annars af geysiháu lóðaverði á
höfuðborgarsvæðinu. Hann segir að
kostnaður við að gera lóðirnar bygg-
ingarhæfar hafi verið reiknaður út og
greiði húsbyggjendurnir þann kostn-
að. Á eftirsóttustu stöðunum sé þó
innheimt ákveðið álag. Hann segir að
verð fyrir 200 fermetra einbýlishús sé
um tvær milljónir kr. Það er aðeins
brot af verði einbýlishúsalóða á höf-
uðborgarsvæðinu.
Næst byggt að Varmá
Bæjaryfirvöld eru byrjuð að huga
að næstu hverfum. Orri segir að land
sé á þrotum vestan við byggðina og
næst verði að fara alveg austur fyrir
bæinn og byggja að Varmánni.
Fyrst verður þó unnið að gatna-
gerð á þjónustusvæðinu við Suður-
landsveg og á eldri götum inni í bæn-
um sem Orri nefnir „gamlar syndir“.
Á einni þeirra er fyrirhugað að
byggja sautján íbúða fjölbýlishús.
Verktakafyrirtækið Bræðratunga
hefur fest kaup á húsnæði ullar-
þvottastöðvar Ístex hf. að Dynskóg-
um 17 til niðurrifs. Hefur hann í
hyggju að byggja þar hverfi íbúðar-
húsa og óskað eftir því við bæjar-
stjórn að fá viðbótarlóð. Lóðin er ætl-
uð fyrir stofnanir samkvæmt
aðalskipulagi og þarf því að breyta
því ef byggja á íbúðarhús. Orri segir
mikilvægt að rífa þetta hús og þar sé
fallegt byggingarland. Hins vegar
hafi ekki verið tekin afstaða til þess
hvort íbúðarbyggð verði skipulögð á
svæðinu eða hvort það verði skilið eft-
ir sem útivistarsvæði. Að sögn Orra
er einnig töluverður áhugi á lóðum á
þjónustusvæðinu við Suðurlandsveg.
Atlantsolía hefur meðal annars sótt
þar um lóð og verið er að byggja við
verslunarmiðstöðina Sunnumörk
sem orðin er fullnýtt. Segir hann mik-
ilvægt að byggja þar upp og fegra þar
með andlit bæjarins út á við.
„Öfundsvert að vera
í þessari stöðu“
Nærri 100 sóttu um 32 lóðir
Mývatnssveit | Hafin er vinna við
verkefnið Snow Magic eða Snjór og
menning eins og verkefnið hefur
verið nefnt í Mývatnssveit. Þetta er
átaksverkefni sem standa mun í
fimm vetur og er Gunnar Jóhann-
esson hjá Atvinnuþróunarfélagi
Þingeyinga verkefnisstjóri. Leitast
verður við að þróa vetrarferða-
mennsku sem sumar hafa verið á til-
raunastigi á undanförnum árum.
Hið fyrsta áþreifanlega er að fæð-
ast þessa dagana, tröllvaxnir snjó-
karlar, sem risið hafa á fjórum stöð-
um í sveitinni og nokkrir fleiri munu
fæðast á næstunni við skíðasvæðið
hjá Kröflu. Unnið er að snjóhúsi á
Álftabáru og fleira er í mótun. Einn
karlinn er við Skjólbrekku en hann á
eftir að fá andlitsförðun, húfu og
trefil.
Við verkefnið hafa skapast störf
fyrir allt að 10 manns í fimm mánuði.
Bundnar eru vonir við að það geti
eflt atvinnulífið umtalsvert í framtíð-
inni.
Morgunblaðið/BFH
Vinir Sverrir Karlsson á Skútustöðum bar sig saman við snjókarlinn um
leið og hann tók fram að hann hefði ekki átt neinn þátt í að gera hann.
Risavaxnir snjókarlar
Þorlákshöfn | Mikill fögnuður, gleði
og eftirvænting var hjá nemendum
Grunnskólans í Þorlákshöfn þegar
formlega voru teknar í notkun sjö
kennslustofur í viðbyggingu við
skólann, þar á meðal eru raunvís-
indastofa og skólaeldhús. Þarna er
um að ræða neðri hæð í liðlega
1.300 fermetra viðbyggingu. Það
voru nemendur skólans sem klipptu
á borða sem strengdur var þvert yf-
ir gang sem tengir eldri bygg-
inguna við þá nýju. Þetta er fyrsti
áfangi af þrem. Þegar verkinu er
lokið verður Grunnskólinn í Þor-
lákshöfn fullkominn tveggja hlið-
stæðna skóli, það er að tvær bekkj-
ardeildir verða þá í hverjum
árgangi. Í næsta áfanga verður
stjórnunarálma skólans tekin í
gegn, tölvustofa og bókasafn
stækka og nýjar skrifstofur fyrir
stjórnendur og aðstaða fyrir sál-
fræðing og hjúkrunarfræðing. Í
þessum áfanga verður einnig byggt
nýtt anddyri austan við skólann en
lengi hefur verið talað um að skól-
ann vantaði andlit og skemmtilegri
aðkomu. Í þriðja áfanga verða aðrar
sjö stofur á efri hæð teknar í notk-
un. Reiknað er með að verkinu ljúki
2006.
Halldór Sigurðsson skólastjóri
sagði að vissulega væri þörf á þess-
ari viðbót, „kennsluhættir í dag eru
með allt öðrum hætti en var fyrir
nokkrum árum þegar um og yfir 30
nemendur voru í hverjum bekk, nú
er námið meira einstaklingsmiðað
og það kallar á marga fámenna
hópa.“ „Starfsfólki í skólunum hef-
ur fjölgað, stuðningsfulltrúar og
skólaliðar taka nú fullan þátt í starf-
inu með kennurunum, þessi aukning
á starfsfólki er að miklu leiti velvilja
og skilningi sveitarstjórnarmanna
að þakka,“ sagði Halldór og bætti
við: „Samhliða þessum breytingum
verður unnið að endurbótum á lóð-
inni, en síðastliðið sumar var gervi-
grasvöllur byggður og næsta sumar
verður farið í bílastæði en mikil þörf
er á úrbótum þar því oft er mikil ör-
tröð við skólann.“ Í Grunnskólanum
í Þorlákshöfn eru um 250 nemendur
í dag, þeim hefur ekki fjölgað mikið
síðustu árin en börnum af erlendu
bergi brotnum hefur fjölgað veru-
lega og í dag eru þau um 10% nem-
enda skólans og fer fjölgandi dag
frá degi. Sóknarpresturinn séra
Baldur Kristjánsson blessaði bygg-
inguna og þá starfsemi sem fara
mun fram í henni.
Trésmiðja Sæmundar Gíslasonar,
Þorlákshöfn, var verktaki að fyrsta
áfanganum en arkitekt var Sig-
urður Hallgrímsson hjá Arkþing.
Kostnaður við verkið í heild er áætl-
aður um 280 milljónir en það sem
búið er að framkvæma mun vera
komið í um 150 milljónir.
Morgunblaðið/Jón H. Sigurmundsson
Viðbygging Nemendur Grunnskólans í Þorlákshöfn klippa á borða og taka þar með nýja álmu við skólann í notk-
un. Halldór Sigurðsson skólastjóri og sóknarpresturinn séra Baldur Kristjánsson aðstoða þau.
Sjö nýjar kennslustofur teknar í notkun