Morgunblaðið - 04.02.2005, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 04.02.2005, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. FEBRÚAR 2005 45 MINNINGAR ✝ Sigþór Lárussonfæddist að Hnit- björgum í Jökulsár- hlíð á Fljótsdalshér- aði 14. maí 1921. Hann lést á hjúkr- unarheimilinu Droplaugarstöðum í Reykjavík að kvöldi fimmtudagsins 27. janúar. Foreldrar hans voru Guðrún Halldóra Eiríksdótt- ir, f. 16.10. 1892, d. 17.11. 1967, og Lár- us Sigurðsson, f. 13.8. 1875, d. 18.3. 1924. Þau bjuggu fyrst að Hnit- björgum í Jökulsárhlíð, en síðan á Hreimsstöðum í Hjaltastaðar- þinghá. Systkini Sigþórs eru: Ingólfur, f. 24.3. 1915, Eiríkur Björgvin, f. 25.9. 1916, d. 10. 5. Haraldur Gunnlaugsson, f. 4.12. 1898, d. 1.3. 1992, og Guðný Jónsdóttir, f. 21.7. 1894, d. 11.1. 1977. Þau bjuggu lengi á Siglu- firði. Þau Sigþór og Lórelei eign- uðust eitt barn, Harald, sem er verkfræðingur hjá Línuhönnun í Reykjavík, f. 25.9. 1961. Hann er kvæntur Esther Hlíðar Jensen, jarðfræðingi á Veðurstofu Ís- lands. Dóttir hennar er Inga María Árnadóttir, f. 2.8. 1991. Sigþór var ungur sendur í vist að Bakkagerði, þegar faðir hans lést. Hann stundaði nám á Laug- um í Þingeyjarsýslu, Reykholti í Borgarfirði, Íþróttakennaraskól- anum á Laugarvatni og Mynd- lista- og handíðaskólanum í Reykjavík. Sigþór vann sem íþrótta- og handavinnukennari í Reykjavík, lengst af við Austur- bæjarskólann. Á sumrin kenndi hann sund og íþróttir víðs vegar um landið. Hann kenndi auk þess skák og tefldi m.a. í frístundum. Útför Sigþórs fer fram frá Fossvogskirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 15. 1988 og Lára, f. 28.7. 1924. Eftir andlát Lárusar giftist Hall- dóra Þórði Guðmundi Guðmundssyni, f. 16.9. 1882, d. 8.8. 1958. Þau voru síð- ustu ábúendur á Sænautaseli á Jökul- dalsheiði. Hálfsystk- ini Sigþórs eru: Sig- urjón, f. 6.2. 1929, Eyþór Guðmundur, f. 21.11. 1931, Ástdís Halldóra, f. 15.3. 1934, og Skúli Ármann Sveinn, f. 3.4. 1937. Hinn 24. júní 1961 kvæntist Sigþór eftirlifandi eiginkonu sinni Lórelei Haraldsdóttur sjúkraliða, f. 21.2. 1932 á Ak- ureyri. Foreldrar hennar voru Fráfall föður míns kom mér alger- lega í opna skjöldu þó að vissulega hefði það átt nokkurn aðdraganda. Maður er einhvern veginn aldrei al- mennilega undir stóru áföllin búinn. Þau læðast ævinlega aftan að manni. Pabbi, þessi klettur í hafrótinu, hafði loks látið undan, eflaust samt hvíld- inni feginn, og er horfinn til betri heima. Það er ég alveg viss um. Ég er líka sannfærður um að pabbi hefði kosið eftirfarandi ljóðlínur til að kveðja með. Þær eru eftir skáldið sem hann mat svo mikils, úr kvæðinu um hreppsómagahnokkann sem hann taldi lýsa uppvexti sínum að nokkru leyti: Nú er ég aldinn að árum. Um sig meinin grafa. Senn er sólarlag. Svíður í gömlum sárum. Samt er gaman að hafa lifað svo langan dag. (Örn Arnarson.) Pabbi hafði dvalist á hjúkrunar- heimili um nokkurt skeið og heldur dregið af honum hin allra síðustu ár. Í uppvextinum og framan af ævi mátti hann þola mikið harðræði og berklaveiki en hann stóðst áföllin og var mikill íþróttamaður á yngri ár- um. Hann menntaði sig í smíði og handavinnu, en áhugi hans var þó að- allega á bókmenntum, ljóðum og fornum fræðum. Voru ófáar stund- irnar sem við feðgarnir eyddum saman við lestur góðra bóka á meðan ég bjó ennþá hjá foreldrum mínum. Pabbi vitnaði oft í ljóðlínur og fleyg ummæli og lá stundum við að hann talaði í bundnu máli. Það var þó allt- af til gamans gert. Þegar hann var nýlega búinn að stofna heimili lenti hann í mjög al- varlegu slysi sem hann náði sér aldr- ei að fullu af. Hann hélt þó áfram að vinna og búa í haginn fyrir sig og sína. Hann skildi eftir sig marga listilega útskorna muni sem koma sí- fellt til með að minna okkur eftirlif- andi á hann. Pabbi var uppfullur af alþýðufróð- leik sem hann miðlaði af kærleika og bý ég enn að þeirri vitneskju. Hann gat stundum virst nokkuð hranaleg- ur út í frá, en heima fyrir var hann mikill öðlingur. Hann kenndi mér að tefla og lengi vel var það ójafn leikur, en jafnaðist svo með tímanum. Við áttum margar góðar stundir við skákborðið. Það er helst að ég sjái eftir því núna, hversu sjaldan ég heimsótti hann. Það var einhvern veginn aldrei neinn tími til neins. Alltaf verið að vinna, ferðast og stússast. Pabbi skildi þetta þó manna best og hvatti mann áfram. Markaður af erfiðum tímum þreytt- ist hann þó seint á því að biðja mann um að hvíla sig, borða vel og klæða sig eftir veðri. Þá hafði hann vanist aðhaldi í peningamálum og veitti sér lítið en var þó ekki sparsamur við sína nánustu fjölskyldu. Honum fannst snjór, fjöll og kuldi ævinlega vera til ama en grösugum hlíðum, sumri og sól átti að gleðjast yfir. Þetta var afleiðing þess að alast upp í sveit við kröpp kjör. Við dvöldumst oft í sumarbústað þegar ég var lítill. Pabbi hlúði þar að gróðri, trjám og blómum og fór stundum með mér að veiða í vatninu. Einnig fórum við í mávseggjaleit og gönguferðir á vorin. Þetta var góður tími og kemur skýrt fram í minning- unni þegar maður lætur hugann reika. Víða mun leynast „við grass- ins rót, gamalt spor eftir lítinn fót“. Undir bláum himnum horfinna daga hverf ég til þín. Þú sýnir mér aftur sumarblómin. Og sólin skín. Þú leiðir mig aftur lítinn hnokka að læk við tún. Og skýjafanir í fjarska strjúkast við fjallsins brún. Þú talar um dásemd drottins jarðar við drenginn þinn. Og ástúð leggur úr lófa þínum um lófa minn. Allt er ljósblik og lindaniður, svo ljúft og rótt – unz bláir himnar hrynja og sökkva í húm og nótt. (Ólafur Jóh. Sigurðsson.) Pabbi var traustur og vildi vel. Það var gott að geta gengið að hon- um vísum heima á Bollagötunni þar sem foreldrar mínir bjuggu í nær 40 ár til að hlusta þegar illa gekk og hjálpa þegar þess þurfti. Enginn veit hvað átt hefur fyrr en misst hefur. Það er núna fyrst sem ég skil hvað það er mikils virði að hafa einhvern sem ævinlega er til staðar. Honum var afskaplega umhugað um sína nánustu og tók nærri sér þegar eitt- hvað bjátaði á. Hann bar þó yfirleitt harm sinn í hljóði. Ég veit að pabba verður vel tekið hinum megin, enda lét hann gott af sér leiða hérna megin. Með söknuði kveður þig þinn elskandi sonur. Ég hefi þekkt marga háa sál, ég hefi lært bækur og tungumál og setið við lista lindir. En enginn kenndi mér eins og þú hið eilífa og stóra, kraft og trú, né gaf mér svo guðlegar myndir. (M. Joch.) Haraldur Sigþórsson. SIGÞÓR LÁRUSSON Bridsdeild Barðstrendinga og Bridsfélag kvenna Mánudaginn 31. janúar voru spil- aðar þriðja og fjórða umferð að- alsveitakeppninnar og verður að segjast, að baráttan um efstu sætin hefur sjaldan verið eins jöfn og nú er. Sérsveitin er nú með eins stiga forystu á toppnum, en spilarar í þeirri sveit eru Sigurður Ólafsson, Karl Ómar Jónsson, Guðbjörn Þórðarson og Guðmundur Aldan. Staða efstu sveita í aðalsveita- keppninni er nú þannig: Sérsveitin 75 Guðrún Jörgensen 74 Stelpurnar 68 Eðvarð Hallgrímsson 66 Gleðisveit Ingólfs 65 Kristjana 63 Magnús Orri Haraldsson 63 Mánudaginn 7. febrúar koma spilarar frá B. Hafnfirðinga í heim- sókn og þá fer fram keppni milli fé- laganna tveggja, spilaðir tveir 14 spila leikir. Reiknaður út butler- árangur para. Barðstrendingar og konur heimsóttu Hafnfirðinga síðla á síðasta ári og öttu við þá kappi, en þá höfðu Hafnfirðingar betur og eiga Barðstrendingar því harma að hefna. Spilarar hjá félaginu eru hvattir til að mæta í þessa skemmtilegu keppni, kaffi og veit- ingar. Sjöundu og áttundu umferð aðalsveitakeppninnar verður síðan fram haldið mánudaginn 14. febr- úar. Bridsfélag Borgarfjarðar Mánudaginn 31. janúar var spilað þriðja kvöldið í aðalsveitakeppni fé- lagsins. Eins og fyrr gekk á ýmsu en heldur fer nú að skilja milli feigs og ófeigs í keppni um efstu sætin. Bifrestingar hanga á toppnum eftir kvöldið, vel leiddir af leiðtoga sínum Herði Gunnarssyni, sem nú hefur sem makker fjármálastjóra staðar- ins, Stefán Kalmannsson. Aðrir í þessari öflugu sveit eru Hrannar Magnússon og Ingimundur Óskars- son. Í fyrri umferð gjörsigruðu þeir „krakkasveit“ Lárusar og Svein- björns en gættu ekki að sér í seinni umferðinni og lutu í lægra haldi fyrir sveit Svanhildar 13–17. Para- sveit Borgnesinga siglir í kjölfar Bi- frestinga. Þar er nóg af keppnis- skapinu og seint lætur Elín Þórisdóttir bugast þó að á móti blási. Aðrir í þeirri sveit eru Guð- mundur Jónsson, Anna Einarsdótt- ir og Jón H. Einarsson. Borgarnes átti yfirsetu í fyrri umferð en í þeirri seinni vann hún glæstan sig- ur á sveit Halldóru 21–9. Annars vann sveit Halldóru það afrek að vinna sigursveit fyrra árs 25–2 í fyrri umferðinni. Svanhildur Hall heldur vel í hinar sveitirnar í þriðja sæti en með henni leika þeir Sveinn Hallgrímsson, Jón formaður Eyj- ólfsson og Baldur Björnsson. Nokk- urt bil er síðan í næstu sveitir en mér segir svo hugur að rétt sé að afskrifa ekki sveit Kópakallsins fyrr en í lengstu lög. Annars er staða efstu sveita sem hér segir. Bifröst 129 Borgarnes 128 Svanhildur 122 Kópakallinn 109 Lára og Fjölnir 91 Frá bridsdeild FEBK, Gjábakka Föstudaginn 28. jan. var spilaður tvímenningur á 9 borðum. Meðalskor var 216. Úrslit urðu þessi í N/S: Lilja Kristjánsdóttir – Ólafur Láruss. 254 Auðun Guðmundsson – Bragi Björnss. 246 Eysteinn Einarsson – Jón Stefánsson 232 A/V Hrafnhildur Skúladóttir – Þórður Jörundsson 267 Helga Helgadóttir – Sigrún Pálsdóttir 251 Magnús Halldórss. – Ólafur Ingvarss. 245 Úrslitin hafin í aðal- sveitakeppninni á Akureyri Þriðjudaginn 1. feb. lauk Und- ankeppninni í Akureyrarmótinu í sveitakeppni og þá strax á eftir var byrjað á úrslitunum, en fjórar efstu sveitirnar komust í A-úrslit og hin- ar fjórar í B-úrslit. Sveitirnar tóku með sér helming stiga úr undan- keppninni í úrslitariðlana. Staða efstu sveita í undankeppn- inni var þannig: Sveit Sparisjóðs Norðlendinga 166 stig Sveit Unu Sveinsdóttur 127 stig Sveit Stefáns Vilhjálmssonar 104 stig Sveit Norðurstrandarinnar, Dalvík 95 stig Eftir fyrstu umferð úrslitanna er staðan þannig í A-riðli: Sveit Sparisjóðs Norðlendinga 95 stig Sveit Unu Sveinsdóttur 76 stig Sveit Stefáns Vilhjálmssonar 70 stig Sveit Norðurstrandarinnar, Dalvík 66 stig Í B-riðli er staðan þannig: Sveit Soffíu Guðmundsdóttur 60 stig Sveit Gylfa Pálssonar 59 stig Sveit Ragnheiðar Haraldsdóttur 56 stig Sveit Hjalta Bergmann 56 stig Aðalsveitakeppninni lýkur svo þriðjudaginn kemur, með tveim leikjum. Þá verða krýndir Akureyr- armeistarar í sveitakeppni og að auki sigurvegarar í B-riðli. Ljóst er að keppnin er jöfn og spennandi og hvaða sveit sem er getur sigrað í riðlunum báðum. Reykjavíkurmót í tvímenningi Reykjavíkurmót í tvímenningi fer fram laugardaginn 5. febrúar næst- komandi. Spilaform verður monrad- barómeter. Skráningarfrestur til hádegis, föstudaginn 4. febrúar. BRIDS Umsjón Arnór G. Ragnarsson Innilegar þakkir sendum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð, vináttu og hlýhug við andlát og útför eiginkonu minnar, móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, STEINUNNAR SVEINBJÖRNSDÓTTUR frá Vegamótum, Dalvík. Steingrímur Þorsteinsson, Jón Trausti Steingrímsson, Sveinbjörn Steingrímsson, Lína Gunnarsdóttir, María Steingrímsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ÁRSÆLL MAGNÚSSON fyrrverandi umdæmisstjóri Pósts og síma á Norðurlandi, Lindasíðu 4, Akureyri. Hjartans þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og kærleika og kvöddu Ársæl með vinsemd virðingu. Guð blessi ykkur öll. Fyrir hönd barna, tengdabarna, barnabarna og langafabarna, Guðrún S. Óskarsdóttir. Ástækær faðir okkar, tengdafaðir, afi, langafi og langalangafi, VILHJÁLMUR S. HEIÐDAL, lést á Droplaugarstöðum fimmtudaginn 3. febrúar. Útförin verður auglýst síðar. Jóhanna L.V. Heiðdal, María V. Heiðdal, Þór Magnússon, Hrefna Smith, Anna V. Heiðdal, Þorsteinn Björnsson, Hjálmtýr V. Heiðdal, Anna K. Kristjánsdóttir, barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn. Okkar kæra, SIGURBJÖRG GUÐJÓNSDÓTTIR, lést á Sólvangi, Hafnarfirði, laugardaginn 29. janúar sl. Hún verður jarðsungin frá Hafnarfjarðarkirkju föstudaginn 4. febrúar kl. 13.00. Guðrún Bjarnadóttir, Geir Þórólfsson, Bjarni Þór Sigurðsson, Helga Guðjónsdóttir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.