Morgunblaðið - 07.10.2005, Side 61
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. OKTÓBER 2005 61
!
"#
$
%!&& !
#'&(
&&! )
"&
*# +%(
,
%
-.-/
#
0
1 (
&
' &&' &
( 2(
SVARTNÆTTIÐ grúfir yfir Dag-
renningu, hún fjallar um ógnartíma í
lífi manns, bið manndrápara eftir af-
tökustundinni. Myndin, sem gerist í
Teheran, hefst á því að verkamað-
urinn Mansour (Yari) verður yfir-
manni sínum að bana. Mansour er
fluttur í fangelsi þar sem hann verður
að láta sér lynda að þreyja löngum
stundum eftir dómsorðinu. Sam-
kvæmt boðum Kóransins hefur fjöl-
skyldufaðir fórnarlambs morðingja
ákvörðunarvald yfir lífi hans, en
skömmu eftir fangelsun Mansour
deyr móðir hins myrta og samkvæmt
heilögum orðum Kóransins ber fjöl-
skyldunni að syrgja í 40 daga. Á með-
an má ekkert hreyfa við málum
Mansour.
Yfir Dagrenningu er sviðsettur
heimildarmyndablær en Rahmanian
hefur eingöngu fengist við gerð slíkra
mynda til þessa og getið sér gott orð
fyrir. Innihald þessa fyrsta, leikna
verks leikstjórans getur tæpast verið
sammannlegra og alþjóðlegra, en
myndin fjallar fyrst og fremst um
þjáningu allra sem við sögu koma.
Fortíð morðingjans er sögð í aft-
urhvörfum, Mansour á að baki ósköp
hversdagslegt, þyrnum stráð líf.
Hann kvænist konu í heimahögunum,
sem er smábær í norðri, og atvinnu-
leysi hrekur þau til höfuðborgarinnar
ásamt foreldrum hans. Þar lýkur svo
með skelfingu þessu lífshlaupi sem
tæpast er hafið.
Til að bæta enn á ömurleikann,
eins og hann sé ekki nægur, gengur
kona Mansours með barn og fæðir
stúlku sem Mansour fær að sjá á
meðan hann bíður snörunnar. Dag-
renning er tekin í illræmdu fangelsi
þar sem stálgrár nöturleikinn nístir
merg og bein, dauðinn er greinilega
betra hlutskipti en að draga fram lífið
í þeirri óvissu sem frumraunin sýnir á
óvæginn og yfirþyrmandi hátt.
Gálgafrestur
KVIKMYNDIR
Regnboginn: AKR 2005
Leikstjóri: Hamid Rahmanian. Aðalleik-
endur: Hossein Yari, Zabi Afshar. 85mín.
Íran. 2005.
Dagrenning (Daybreak/Dame sobh)
Sæbjörn Valdimarsson
FRANSKI leikstjórinn Olivier
Assayas verður gestur Alþjóðlegrar
kvikmyndahátíðar í Reykjavík í
kvöld en nýjasta mynd hans Hrein
(Clean) er sýnd á hátíðinni. Assayas
svarar spurningum áhorfenda á sýn-
ingu Háskólabíói kl. 20 í kvöld.
Hrein var tilnefnd til Gullpálmans á
Kvikmyndahátíðinni í Cannes árið
2004 og vann verðlaun fyrir bestu
kvikmyndatöku. Maggie Cheung
hreppti jafnframt verðlaun sem
besta leikkona í aðalhlutverki.
Ennfremur verður Stuart
Samuels viðstaddur sýningu á mynd
sinni Midnight Movies: From the
Margin to the Mainstream í Tjarn-
arbíói kl. 23.
Assayas á AKR
www.filmfest.is
TÓNLISTARMAÐURINN Krist-
ján Kristjánsson, betur þekktur
sem KK, og gamla Lucky One-
bandið eru nú að leggja upp í
langferð til Kína til að taka þátt í
sjöundu Alþjóðlegu listahátíðinni í
Shanghai.
Í tilefni af Kínaferðinni verða
haldnir tónleikar á Nasa í Reykja-
vík fimmtudaginn 13. október.
Þeir munu taka lög af öllum ferli
KK þar sem blúsinn, spilagleðin
og krafturinn ræður ríkjum og
nokkuð víst er að lög eins og
„Lucky One“, „True to you“,
„Wake me“, Álfablokkin og Þjóð-
vegur 66 verða á efnisskránni
ásamt ótal fleiri lögum. Miðaverð
er 1.000 kr. Forsala er hafin á
midi.is og í verslunum Skífunnar.
Miðasala verður einnig við inn-
ganginn á tónleikadag. Húsið
verður opnað kl. 20 og tónleikarnir
hefjast stundvíslega kl. 21.30.
Bandið skipa þeir: KK: gítar,
munnharpa og söngur. Eyþór
Gunnarsson: hljómborð, ásláttur
og raddir. Þorleifur Guðjónsson:
bassi og raddir. Þorsteinn Ein-
arsson: gítar og raddir. Sigurður
Flosason: saxófónn og ásláttur.
Erik Qvick: trommur.
Tónlist | Tónleikar KK og Lucky One á NASA á fimmtudaginn
Það kvað vera
fallegt í Kína
Morgunblaðið/Björg Sveinsdóttir
Lucky One verða KK til halds og trausts á NASA 13. október.