Morgunblaðið - 19.10.2005, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 19.10.2005, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. OKTÓBER 2005 45 JODIE Foster á vel heima í myndum um konur sem hafa engan að halla sér að og verða upp á sitt eindæmi að bjarga sér og sínum út úr vonlaus- ustu kringumstæðum. Andlitið end- urspeglar einbeitni, viljafestu og hlýju en hún geislar ekki af kyn- þokka, sem er til bóta í slíkum hlut- verkum sem hún afgreiðir býsna vel í Flightplan og þar á undan í The Pa- nic Room. Ekki alls fyrir löngu lék Angelina Jolie lögreglukonu í bar- áttu við fjöldamorðingja í Taking Li- ves og rústaði trúverðugleika mynd- arinnar með kyntröllshætti. Það er ófrávíkjanlegt undirstöðuatriði að áhorfandinn hafi trú á manngerð- unum sem túlka hlutverkin. Jolie var hárrétt valin í hlutverk Mrs. Smith, Foster hrífur okkur með sér í Flig- htplan og er það afl sem bindur glompótta sögu saman. Foster leikur flugvélaverkfræð- inginn Kyle, Bandaríkjamann sem unnið hefur að gerð nýrrar ofurflug- vélar í Berlín. Þegar maður hennar fellur skyndilega frá pakkar Kyle saman og flyst aftur vestur um haf ásamt Juliu (Marlene Lawston), sex ára dóttur sinni. Reyndar er pabbinn líka með í ferð, í kistu sinni í farang- ursrýminu. Kyle kemur sér fyrir, hún er þreytt og taugaspennt og tek- ur svefntöflu. Er hún vaknar hefur vélin verið þrjá tíma í loftinu og Julia er horfin. Það sem verra er, það er eins og vélin hafi gleypt hana; þrátt fyrir gaumgæfilega leit eftir uppi- stand móðurinnar finnst hún ekki og enginn kannast við að hafa séð telp- una sem finnst ekki heldur á farþega- listanum. Er Kyle gengin af göfl- unum eða er eitthvert ráðabrugg í gangi? Leikstjórinn, Þjóðverjinn Schwentke, setur sig í Hitchcock- stellingar og handritshöfundarnir fá nokkur atriði lánuð úr verkum meist- arans. Hjartað sem Julia teiknar á gluggann í flugvélinni er t.d. endur- unnið úr lestarrúðunni í The Lady Vanishes. Schwentke er flinkur, tón- listin, takan og Foster bæta öll myndina sem líður aðeins fyrir áber- andi slappan lokakafla, þar sem framvindan er bæði spennandi og okkur haldið í efa um heilbrigði aðal- persónunnar lengst af. Til viðbótar er endirinn máttlaus og flugvélarlík- anið, sögusvið myndarinnar, fer und- ir lokin að verða áberandi stúd- íóvinna og fara í pirrurnar á manni þótt vandað sé. Flightplan er búin að vera á toppn- um vestanhafs að undanförnu á rýru hausti, það er ekki sagt myndinni til hnjóðs því hún hefur margt gott til að bera, sérstaklega tekst Foster og kvikmyndagerðarmönnunum vel upp við að halda áhorfandanum í efa um heilbrigði Kyle. Það sem helst má að myndinni finna er einmitt það sem ekki má nefna; uppgjörið, aðdragandinn að því og afleiðingarnar. Telpan hverfur „Leikstjórinn setur sig í Hitchcock-stellingar og handritshöfundarnar fá nokkur atriði lánuð úr verkum meistarans,“ segir meðal annars í dómi um Flightplan. Jodie Foster og Peter Sarsgaard í hlutverkum sínum. KVIKMYNDIR Sambíóin, Háskólabíó Leikstjóri: Robert Schwentke. Aðalleik- arar: Jodie Foster, Peter Sarsgaard, Sean Bean, Erika Christensen. 96 mín. Banda- ríkin. 2005 Flightplan  Sæbjörn Valdimarsson Óskarsverðlaunahafarnir Russell Crowe og Renée Zellweger fara á kostum í sterkustu mynd ársins. Upplifðu stórkostlegustu endurkomu allra tíma. Mynd eftir Ron Howard (“A Beautiful Mind”). Skelltu þér á alvöru mynd. Það er alltaf hægt að þekkja myndir sem eiga eftir að keppa um Óskarinn. R.H.R / MÁLIÐ D.V. S.V. MBL kvikmyndir.is FLIGHT PLAN kl. 8 - 10 CINDERELLA MAN kl. 10 GOAL! kl. 8 KEFLAVÍKAKUREYRIÁLFABAKKI KRINGLAN FLIGHT PLAN kl. 6 - 8.15 - 10.30 B.i. 12 ára. FLIGHT PLAN VIP kl. 3.45 - 6 - 8.15 - 10.30 WALLACE AND... m/Ísl tali kl. 4 - 6 WALLACE AND... m/enskutali kl. 6 - 8.15 - 10.30 CINDERELLA MAN kl. 5 - 8 - 10.50 B.i. 14 ára. THE 40 YEAR ... kl. 5.30 - 8 - 10.30 B.i. 14 ára. GOAL kl. 8.15 - 10.30 VALIANT m/- Ísl tal. kl. 3.40 SKY HIGH kl. 3.50 CHARLIE AND THE ... kl. 3.45 TOPPMYNDIN Í USA 2 VIKUR Í RÖÐ Spenntu beltin og undirbúðu þig undir háspennumynd ársins með Óskarsverðlaunahafanum Jodie Foster. ATH! Á undan myndinn er stuttmyndin “Madagascar Mörgæsirnar halda í jólaleiðangur sýnd. Sjáið Wallace & Gromit í sinni fyrstu bíómynd. Frábær skemmtun fyrir alla fjölskylduna OGFRÁ FRAMLEIÐENDUM SÁ BESTI Í BRANSANUM ER MÆTTUR AFTUR! FÓR BEINT Á TOPPINN Í USA FRÁ FRAMLEIÐENDUM THE PROFESSIONAL OG LA FEMME NIKITA TOPPMYNDIN Í USA 2 VIKUR Í RÖÐ Spenntu beltin og undirbúðu þig undir háspennumynd ársins með Óskarsverðlaunahafanum Jodie Foster. TRANSPORTER 2 kl. 6 - 8 - 10.10 B.i. 16 ára FLIGT PLAN kl. 8 - 10.10 B.i. 12 ára WALLACE & GROMIT m/Ísl tali kl. 6 MUST LOVE DOGS kl. 8 - 10.10 SKY HIGH kl. 5.45 FLIGHT PLAN kl. 8 THE 40 YEAR.. kl. 8  V.J.V. TOPP5.IS ROGER EBERT Vinsælasta myndin í USA og á BRETLANDI Í dag. Kvikmyndir.com  H.J. / MBL S.K / DV  HEIMFRUMSÝND Á FÖSTUDAG TÖLFRÆ‹INÁMSKEI‹ Í SPSS Mán. 17. okt og þri. 18. okt. kl. 8:30–17:00 GAGNAVINNSLA • L†SANDI TÖLFRÆ‹I ÁLYKTANDI TÖLFRÆ‹I Kynntu flér máli› og skrá›u flig á endurmenntun.is E N N E M M / S ÍA / N M 18 7 7 3 Er kynlíf unglinga or›i› skiptimynt? mi› kl. 21Sirr‡ Unglingar og kynlíf í kvöld!

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.