Morgunblaðið - 29.10.2005, Page 36

Morgunblaðið - 29.10.2005, Page 36
36 LAUGARDAGUR 29. OKTÓBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ FERÐALÖG manns, en saumaklúbbinn P-pilluna skipa hjúkrunarfræðingar, sem voru samtíða í Hjúkrunarskóla Ís- lands á árunum 1974 til 1977. Ferðafélagarnir þurftu að vera í svolítið góðu formi því það átti að hjóla marga kílómetra í ferðinni auk þess sem menn hugðust kynn- ast borgarmenningu í Búdapest. Helgi Benediktsson, hjúkr- unarfræðingur hjá Heimahlynningu Krabbameinsfélags Íslands, hefur verið í saumaklúbbnum frá upphafi og er þar með eini karlmaðurinn í klúbbnum. Helgi var fyrst spurður um tilurð ferðarinnar. „Þetta er fyrsta utan- landsferðin, sem saumaklúbburinn ræðst í. Eins og gengur hefur verið spáð og spekúlerað lengi og brugð- um við á það ráð að safna í ferða- sjóð. Tvær hjúkkur úr hópnum komu svo með þá hugmynd að fara í hjólaferð til Ungverjalands og tókum við hin góðan tíma í að hugsa málið. Við komumst í sam- band við ræðismann Íslands í Ung- verjalandi, Íslandsvininn Ference Utassy, sem skipulagði hjólaferð fyrir hópinn í kringum Balaton- vatnið, sem er langstærsta stöðu- vatn í Ungverjalandi. Vatnið er 77 km langt og mesta breidd er 12 kílómetrar. Hjólin voru leigð á staðnum – Hvernig var ferðatilhögunin? „Flogið var frá Keflavík til Lond- on með Iceland Express og þaðan til Búdapest, höfuðborgar Ung- verjalands, með Sky Europe. Þegar þangað var komið, var farið beint hótelið Club Tihany, fjögurra stjörnu, sem stendur við Balaton- vatnið, um 100 km frá höfuðborg- inni. Þar átti að gista fyrstu nótt- ina, en þangað áttum við eftir að koma að nýju á fjórða degi að af- lokinni hjólaferðinni. Hjólin voru leigð á staðnum og einnig var hægt MEÐLIMIR saumaklúbbsins P- pillunnar og makar þeirra voru mikið búnir að hlakka til utanlands- ferðar, sem farin var í september síðastliðnum til Ungverjalands. Hópurinn samanstóð af átján að fá leigða hjálma og hjólatöskur ef menn vildu. Það er mjög láglent við vatnið og hjólað var á hjólastíg- um allan tímann. Alls voru um 275 km að baki þegar hjólaferðinni lauk og voru leiðangursmenn ekkert að kvarta yfir erfiði þar sem leiðin þótti fremur létt. Aðeins var léttur hjólafatnaður tekinn með í hjóla- ferðina og annar farangur geymdur á Club Tihany, sem var að heita má okkar bækistöð. Gist var á þremur öðrum hótelum við vatnið, þar af voru tvö þriggja til fjögurra stjörnu, en eitt var gamalt komm- únistahótel, sem mátti muna sinn fífil fegurri. Mikil náttúrufegurð er á þessum slóðum og greinilegt er að svæðið laðar til sín marga ferðamenn að jafnaði. Maður bregður sér hins- vegar aldrei út fyrir landsteinana öðruvísi en að hitta landann. Árni Gunnarsson, fyrrverandi alþing- ismaður, og Svavar Jónatansson, ræðismaður Ungverjalands á Ís- landi, eiga sumarhús við vatnið. Við áttum mjög skemmtilega kvöld- stund með þeim félögum og eig- inkonum þeirra. Þeir buðu hópnum vitanlega upp á ungverska gúll- assúpu og leyfðu okkur að smakka á eigin vínframleiðslu. Veðrið var upp á sitt besta allan tímann. Ef frá er talin mígandi rigning fyrsta hjóladaginn, heilsaði okkur sól og 25 stiga hiti hina dag- ana með stafalogni. Hinsvegar voru flugur að þvælast svolítið fyrir okk- ur og voru margir í hópnum bitnir. Við vorum svo séð að fá með okkur leiðsögumann í hjólatúrinn sem reyndist nauðsynlegur því fáir tala ensku á þessum slóðum. Hún heitir María Utassy og er systir ræð- ismannsins, sem sá um alla skipu- lagningu fyrir okkur. Menningarferð í höfuðborgina Eftir afslöppun á Club Tihany eftir hjólatúrinn, var haldið til Búdapest þar sem gist var á fimm stjörnu hóteli, Hótel Atrium Sofitel, í lúxusherbergjum með útsýni yfir Dóná. „Ference ræðismaður fór með hópinn í skipulagða skoð- unarferð um borgina sem endaði með tónleikum heima hjá vinafólki hans, György Geiger trompettleik- ara og Evu Maros hörpuleikara, sem m.a. hafa gefið út geisladiska og komið fram í Salnum í Kópavogi. Næstu dögum eyddum við bara á röltinu og drukkum í okkur menn- ingu Ungverja. Meðal annars upp- lifði ég ásamt tveimur öðrum bað- menningu heimamanna sem gengur út á heilsulindir af öllu tagi.“ – Hvernig er verðlagið? „Í Ungverjalandi er bæði ódýrt og gott að versla. Sér í lagi löð- uðumst við að handbragði Ungverja og keyptum dúka af öllum gerðum og stærðum. Matur á veitinga- húsum reyndist mjög góður og gerðum við vel við okkur í þeim efnum. Heimamenn virkuðu mjög vinalegir og gestrisnir svo að ferð- mönnum finnst þeir vera miklir au- fúsugestir. Þrátt fyrir að hafa verið svolítið efins um ágæti hjólaferðar um Ungverjaland, stóð ferðin í alla staði undir væntingum og gott bet- ur,“ segir Helgi að lokum.  UNGVERJALAND | Saumaklúbburinn P-pillan hjólaði kringum Balaton-vatnið sem er stærsta stöðuvatn landsins Gist á gömlu kommúnistahóteli Þeir átján Íslendingar sem tóku þátt í hjólaferðinni til Ungverjalands leigðu sér hjól á staðnum og einnig vær hægt að fá leigða hjálma og hjólatöskur. Ferja gengur yfir Balaton-vatnið. Handan þess sést í Club Tihany þar sem hópurinn hafði bækistöð. Íslendingarnir Árni Gunnarsson og Svavar Jónatansson buðu öllum hópn- um heim í sumarhúsið, sem þeir eiga í Ungverjalandi. Eftir Jóhönnu Ingvarsdóttur join@mbl.is TENGLAR ..................................................... www.clubtihany.hu Góð gisting í Kaupmannahöfn Hótel í miðbænum. Snyrtileg herbergi. 295 danskar kr. fyrir manninn í 2ja manna herb. með wc og sturtu. Tökum einnig á móti hópum. Løven Hotel, Vesterbrogade 30, DK-1620 Cph. V. Sími +45 33 79 67 20. www.loeven.dk • loeven_bb@hotmail.com frá 11.300 3 dagar í Danmörku Opel Corsa eða sambærilegur kr. - ótakmarkaður akstur, kaskó, þjófavörn, flugvallargjald og skattar. ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S H ER 3 00 09 10 /2 00 5 Sími: 50 50 600 www.hertz.is Bókaðu bílinn heima - og fáðu 500 Vildarpunkta Ódýrari bílaleigubílar fyrir Íslendinga. Bílar frá dkr. 1.975.- pr. viku. Innifalið í verði; ótakmarkaður akstur, allar tryggingar, engin sjálfsábyrgð. ( Afgr.gjöld á flugvöllum. ) Höfum allar stærðir bíla, 5 - 7 manna og minibus 9 manna og rútur með/án bílstjóra Sumarhús Útvegum sumarhús í Danmörku af öllum stærðum - frá 2ja manna og uppí 30 manna hallir. Valið beint af heimasíðu minni. Pantið núna fyrir árið 2006 og greiðið staðfestingar- gjald eftir áramót. Fjölbreyttar upplýsingar á heimasíðu; www.fylkir.is Fylkir.is ferðaskrifstofa sími 456-3745 Eina ferðaskrifstofan á Vestfjörðum sem ekki nýtur styrkja frá opinberum aðilum. Bílaleigubílar. Sumarhús í DANMÖRKU

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.