Morgunblaðið - 04.11.2005, Blaðsíða 53

Morgunblaðið - 04.11.2005, Blaðsíða 53
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. NÓVEMBER 2005 53 MINNINGAR ✝ María HerborgÞorsteinsdóttir var fædd í neðri Mið- vík í Aðalvík hinn 6. desember 1912, elst sex barna Hólmfríð- ar Ragnheiðar Guð- mundsdóttur og Þorsteins Bjarna- sonar, bónda í neðri Miðvík. Systkini hennar voru Sigurð- ur, Pálína, Hjálm- fríður, Kristinn og Hólmfríður. Þau eru öll látin. María ólst upp í neðri Miðvík. Um tvítugt fer hún í vist til Ísa- fjarðar og þaðan fer hún árið 1932 að Eyri í Skötufirði þar sem hún síðar hóf búskap með manni sínum Jóni Þ. Helgasyni. Þar voru þau með búskap til ársins 1969. Þá bregða þau búi og flytjast suður til Reykjavíkur og síðar til Þorláks- hafnar. Jón lést 1971. María flyst til Hafnarfjarðar árið 1974 þar sem hún dvelur til æviloka, lengst af á Jófríðarstaðavegi 10 hjá yngstu dóttur sinni, tengdasyni og börnum þeirra, en allra síðustu ár á Sólvangi. Börn Mar- íu og Jóns eru: 1) Sigurður Árni, f. 1934, maki Árný Vismin Jónsson. 2) Guðjón Helgi, f. 1936, d. 2003, maki Jóna Jónsdóttir. 3) María Elísabet, f. 1938, maki Atli Már Kristjánsson. 4) Hólmfríður Ragnheiður, f. 1942, maki Halldór Valgeirsson. 5) Þóra Bjarnveig, f. 1950, maki Kristján Albertsson, látinn, núverandi maki Steindór Ingimundarson. Af- komendur Maríu og Jóns eu 92 talsins. Útför Maríu verður gerð frá Hafnarfjarðarkirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 15. Ég krýp og faðma fótskör þína, frelsari minn á bænastund. Ég legg sem barnið bresti mína, bróðir, í þína líknar mund. Ég hafna auðs og hefðarvöldum, hyl mig í þínum kærleiks öldum. (Bortmiasky.) Elsku mamma mín, hér sit ég með penna og blað og skrifa þér hinstu kveðju. Þú þráðir hvíldina og talaðir mikið við ástvini þína sem farnir eru eins og þeir væru hjá þér. Ég sat við rúmið þitt og hélt í höndina á þér dag- inn áður en hjartað þitt hætti að slá. Allt í einu bráði aðeins af þér og þú reyndir að rísa aðeins upp og kallaðir á Guðjón bróður. Ég spurði hvort hann væri hjá þér og þú svaraðir: „Já.“ Ég var ánægð að heyra það. Þú varst búin að vera mjög veik síðustu vikuna en ef eitthvað bráði af þér fórstu að syngja sálma. Við Jóna vor- um hjá þér tveimur dögum áður en þú fórst og þá fórstu að syngja „Ó, þá náð að eiga Jesú“ og „Jesú bróðir besti“ og öll versin rétt. Það var dýr- mæt stund sem ég hefði ekki viljað missa af, þetta fékk mig til að hugsa til baka til æskuáranna. Þú varst oft að syngja sálma og kenna mér bænir, þú sáðir trúarfræinu í barnssálina mína, það er besta veganesti sem móðir gefur barni sínu því hvorki mölur né ryð fá því grandað. Þú varst mjög trúuð og hefur það komið sér vel fyrir þig sem misstir ástkæra móður þína aðeins níu ára gömul, elst sex systkina. Þá varst þú að taka á þig mikla ábyrgð því faðir þinn stundaði sjóinn samhliða bú- skapnum. Það er erfitt að setja sig í þín spor sem þú varst í þá. Það var harðbýlt á veturna í Aðalvík en sum- arfagurt. Þú talaðir oft um hvað það hefði verið fallegt að sjá sólina hníga í hafið. Það er svo margt sem kemur í hug- ann, elsku mamma, en erfitt að koma í orð, eitt er þó víst að ekki hefðu allir farið í sporin þín þegar efri bærinn á Eyri brann 1938 og þið pabbi misstuð allt. Þá var búið í lambhúsinu um sumarið meðan verið var að byggja nýja húsið. Þá voru börnin orðin þrjú, elsta fjögurra ára, næsta tveggja ára og ársgömul í vöggu. Þar eldaðir þú matinn því smiðir voru fengnir til að byggja nýja húsið ásamt heimamönn- um. Það verður aldrei af þér skafið að þú varst einn af kvenskörungum síð- ustu aldar, þú varst mikil matkona og oft er minnst á góða matinn og kök- urnar hennar mömmu og ömmu. Það fór enginn svangur frá þínum dyrum en oft með nesti. Þegar þið pabbi fór- uð að búa á Eyri varst þú um tvítugt. Eyri er tvíbýlisjörð og sjómennska var ætíð stunduð með búskapnum enda nóg af fiski í Djúpinu. Lengst af bjuggu Guðjón og Jóna á móti ykkur síðustu árin og var það stuðningur fyrir ykkur er árin færð- ust yfir. 1969 veiktist pabbi og þá flytjið þið öll suður eftir að pabbi dó 1971. Síðan bjóst þú hjá Þóru systur og Kristjáni, hafðir þar séríbúð og eiga þau þakkir frá mér fyrir góða að- hlynningu þegar árin færðust yfir. Þar var gott að koma. Mamma var mjög félagslynd og hafði gaman af að spila gömlu góðu lögin, ekki má gleyma vöfflunum og jólakökunum sem þú varst alltaf að baka eða að elda mat í stórum potti. Þú varst mjög gestrisin, vildir alltaf hafa líf og fjör í kringum þig. Þér fannst nú lífið létt með alla takka- þjónustuna sem þú kallaðir öll heim- ilistæki nú til dags. Svo fórstu vestur að Eyri á hverju sumri og þar var nú umferð eftir að vegurinn kom og það stoppuðu margir bílar hjá þér og var öllum tekið höndum tveim, þú hafðir stórt hjarta. Ég veit að nú líður þér vel að vera búin að hitta alla ástvina þína, og hafðu hjartans þökk fyrir allt og allt. Það vex eitt blóm fyrir vestan og vornóttin mild og góð kemur á ljósum klæðum og kveður því vögguljóð. Ég ann þessu eina blómi sem aldrei ég fékk að sjá og þangað horfir minn hugur í hljóðri og einmana þrá. Og því geng ég fár og fölur með framandi jörð við il. Það vex eitt blóm fyrir vestan og veit ekki að ég er til. (Steinn Steinarr.) Blessuð sé minning þín, elsku mamman mín. Þín dóttir Hólmfríður R. Jónsdóttir. Sjá dagar koma ár og aldir líða og enginn stöðvar tímans þunga nið. Í djúpi andans duldir kraftar bíða. Hin dýpsta speki boðar líf og frið. Í þúsund ár bjó þjóð við nyrstu voga. Mót þrautum sínum gekk hún djörf og sterk. Í hennar kirkju helgar stjörnur loga og hennar líf er eilíft kraftaverk. (Davíð Stef.) Í dag kveð ég móður mína um sinn. Mér verður hugsað aftur í tímann til uppvaxtaráranna og sé ég þá fyrir mér vasklega konu að elda mat á kolaeldavél, seinna olíueldavél og loks á gasplötu, fiskibollur þær allra bestu, steikta silunginn, steinbítinn og rauðmagann. Þar bakaði hún líka bestu jólaköku sem ég hef smakkað, einnig lagaköku, kleinur og allt það. Móðir mín var ekki bara móðir heldur líka mikil matmóðir, enginn fór svangur frá hennar dyrum, hún vildi öllum vel og gerði öllum gott og gaf af sjálfri sér alla tíð. Ég hef ekki kynnst gjafmildari manneskju á minni lífsleið ennþá. Hún hafði stóran faðm og hlýjan og hennar mesta gleði og ríkidæmi var í því fólgið að geta gefið öðrum eitthvað og allt sem hún gaf sagðist hún fá margfalt til baka. Hún var fróðleiksfús og las sér til um margt. Hún unni ljóðum og orti sjálf en flíkaði því ekki, hún naut þess að vera í kvæðamannafélagi Hafnarfjarðar um árabil og hafði mikla ánægju af. Í huga mínum er það mikill fjársjóður að geta ætíð minnst uppvaxtaráranna á Eyri hjá ástríkri móður og föður. Móðir mín hafði mjög svo gaman af allri tónlist og alltaf var góð tónlist í hávegum höfð hjá henni, hún kunni ótal texta og söng gjarnan með. Hún hafði stálminni og var fljót að læra alla texta utanað. Á góðum stundum var dreginn upp gítar og sungið af mikilli innlifun Kvöldið er fagurt, og Nú blika við sól- arlag, Fram í heiðanna ró og fleira og fleira. Ég vil þakka þér, elsku mamma mín, fyrir veganestið sem þú gafst mér út í lífið, fyrir bænirnar sem þú kenndir mér, fyrir faðminn þinn hlýja og stóra. Guð geymi þig, elsku besta mamma mín. Þín Þóra. Hin langa þraut er liðin, nú loksins hlaustu friðinn, og allt er orðið rótt, nú sæll er sigur unninn, og sólin björt upp runnin á bak við dimma dauðans nótt (V. Briem.) Já, elsku mamma mín, ekki er að undra þó þú hafir verið orðin þreytt, þetta var orðinn svo hár aldur, svo við vorum alveg hætt að geta tekið þig um helgar og í bíltúr. Þrekið var búið og fátt orðið að gleðjast við, en þú átt- ir gott að hafa ekki tekið alvarlega sjúkdóma eins og margur í dag þarf að þjást og líða, svo við þökkum góð- um guði fyrir að hafa þig svona lengi hjá okkur. Guð geymi þig. Far þú í friði, friður guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðar hnoss þú hljóta skalt. (V. Briem.) María E. Jónsdóttir. Mig langar að minnast ömmu minnar Maríu Þorsteinsdóttur frá Eyri í Skötufirði, sem var af þeirri kynslóð sem fæddist í torfbæjum og sem betur fer er staðan á Íslandi í dag ekki sú sama og á þeim árum þegar þú varst að alast upp, amma mín. Ég hef oft hugsað um það hvernig þú fórst að á Eyri þegar gamli bærinn brann, með þrjú börn á unga aldri og allt heimilisfólkið þurfti að búa í lambhúshlöðunni, auk tveggja smiða sem voru við að reisa nýja bæinn. Þarna þurfti að elda, sofa og matast, aldrei lét fólk bugast, alveg sama hvað gekk á, hætturnar á hverju horni, sjórinn, fjöllin, lækirnir og stöðugt eftirlit með með börnunum, sem sóttu á þessa staði fyrir forvitni sakir. Mínar fyrstu minningar um þig eru frá því að ég sat í fanginu á þér í sveit- inni og oftar en ekki söngst þú „Ó, Jesú bróðir besti“ og eitt sinn spurði ég þig að því hvernig guð væri. Þú sagðir mér að hann væri gamall mað- ur með hvítt hár og með hvítt skegg og allir gætu leitað til hans og hann hjálpaði öllum sem það gerðu. Þannig er guð fyrir mér í dag, og hann reynd- ist þér vel, amma mín, og þú reyndist honum líka vel, það er ég alveg viss um. Þú varst eins og drottning í ríki þínu á Eyri og brostir breitt þegar þú hafðir í bæjarlæknum selkjöt, salt- fisk, svartfugl, silung og góðan fýr á eldavélinni með mörgum pottum full- um af mat, helst ekki seinna en um fjögurleytið því maturinn varð að vera tilbúinn á réttum tíma því að fólkið varð að fá að borða, enginn mátti vera svangur, og ekki var nú verra ef nokkrir gestir stoppuðu á hlaðinu. Þá slapp enginn án þess að njóta gestrisni þinnar, nei, það var alltaf nóg að borða á Eyri, sagðir þú alltaf. Og ég man kvöldvökurnar fyrir vestan á Eyri á sumrin eftir að þið fluttuð suður þegar Gaui frændi tal- aði um sveitungana og lýsti atburðum í sveitinni, hvað þú gast hlegið og minntir á næsta atburð sem hann átti að leika. Síðan tóku Eyrarsystur lag- ið og allir sungu með. Síðan ákvaðst þú að nú væri nóg komið og allir ættu nú að fara að sofa, og ekki voru nú all- ir alltaf sammála um það, en við það sat. Þú varst alltaf tengiliðurinn í ætt- inni því að hjá þér fengust fréttir af öllum hinum því að allir höfðu sam- band við þig. Þannig hélst þú utan um hópinn þinn. Og þegar þú tókst upp jólapakkana upp um leið og þeir bárust sendir þú þá til einhvers annars sem þú taldir að hefði meiri þörf fyrir það heldur en þú sem ættir nóg af öllu, eins og þú sagðir, en þú máttir aldrei neitt aumt sjá og gast alltaf gefið öðrum af þínu, alveg sama hversu lítið þú áttir sjálf. Mig langar að þakka þér, elsku amma mín, samfylgdina, þau ógleym- anlegu ár sem við áttum saman, og ég veit að þú ert á góðum stað í ríki guðs. Guð veri með þér. Jón Marías Arason og fjölskylda. Í dag kveð ég hana ömmu mína og minningarnar streyma um í huga mínum, þær eru svo margar því amma mín var stór hluti af mínu lífi. Ég var svo heppin að fá að alast upp með ömmu mína innan veggja heimilisins og maður gat alltaf leitað til hennar með hvað sem var. Amma var líka aðalmanneskjan á Eyri, það er ekki eins að koma þang- að þegar hennar nýtur ekki við þegar við förum þangað á sumrin. Hún var alltaf vöknuð á undan okkur og búin að kveikja upp til að hita húsið áður en við hin vöknuðum og hellti upp á kaffi og eldaði eitthvað gott, hún var alltaf alsæl þar við eldavélina sína því að það var hennar líf og yndi að hugsa um aðra og sjá til þess að allir fengju nóg. Hún var óeigingjarnasta og gjaf- mildasta manneskja sem ég þekki. Amma kenndi okkur systkinunum bænirnar sem við kunnum í dag og margar vísur, við sátum oft hjá henni heillengi þar sem hún söng fyrir okk- ur eða las fyrir okkur bænirnar. Svo var líka svo gott að koma niður til ömmu því að hún var oft með heitt kakó og nýbakaðar vöfflur, pönnsur eða kleinur handa okkur. Elsku amma mín, þín verður sárt saknað, þú hefur kennt mér svo margt og verið til staðar fyrir mig þegar ég þurfti á að halda. Ég mun sjá til þess að dóttir mín fái að kynn- ast þér í gegnum mig og ég mun vera dugleg að kenna henni þær vísur og bænir sem þú kenndir mér. Þín alltaf mun ég minnast fyrir allt það góða sem þú gerðir fyrir allt það sem þú skildir eftir fyrir gleðina sem þú gafst mér fyrir stundirnar sem við áttum fyrir viskuna sem þú kenndir fyrir sögurnar sem þú sagðir fyrir hláturinn sem þú deildir fyrir strengina sem þú snertir. Ég ætíð mun minnast þín. Þín Berglind Ósk. Drottinn er minn hirðir, mig mun ekkert bresta. Á grænum grundum lætur hann mig hvílast, leiðir mig að vötnum, þar sem ég má næðis njóta. Hann hressir sál mína, leiðir mig um rétta vegu fyrir sakir nafns síns. Jafnvel þótt ég fari um dimman dal, óttast ég ekkert illt því að þú ert hjá mér, sproti þinn og stafur hugga mig. Þú býrð mér borð frammi fyrir fjendum mínum, þú smyr höfuð mitt með olíu, bikar minn er barmafullur. Já, gæfa og náð fylgja mér alla ævidaga mína, og í húsi Drottins bý ég langa ævi. (23. Davíðsálmur.) Elsku amma mín. Nú hefur þú fengið hvíldina og ert búin að hitta alla ástvinina sem eru farnir á undan þér. Nú veit ég að þér líður vel, takk fyrir allar góðu stundirnar og líka á Eyri. Blessuð sé minning þín. Þín dótturdóttir María Dögg Halldórsdóttir. Elskuleg amma mín er fallin frá 92 ára að aldri. Við vorum ætíð náin og ég gleymi aldrei sumrinu sem ég sem barn dvaldi með henni á Eyri. Það var yndislegt sumar og þá fann ég virki- lega hversu tengd við vorum. Hversu sterkar taugar voru á milli okkar. Ég man að ég hjálpaði ömmu að höggva í eldinn og vitja silunganet- anna. Ég smíðaði mér kassabíl og fór yfir á næsta bæ að sækja mjólk, lifi- brauð. Ég lék mér mikið uppi á Bergholti og ég mun aldrei gleyma því hversu gestrisin hún elsku amma mín var og hversu mjög hún naut þess að hlusta á tónlist. Með eindæmum músíkölsk. Er ég heyri lagið Fram í heiðanna ró hugsa ég ávallt til hennar með ástúð og þakklæti. Það gerðist ótalmargt þetta ljúfa sumar og ætíð mun ég muna hana ömmu eins og hún var þá. Ég er ríkur maður að eiga allar þessar fögru minningar og fullur þakklætis til al- mættisins. Ég veit að ömmu minni líður vel núna. Megi Guð blessa og varðveita minningu hennar. Bjarni G. Steinarsson (Baddi). Ég kveiki á kertum mínum við krossins helga tré. Í öllum sálmum sínum hinn seki beygir kné. Ég villtist oft af vegi. Ég vakti oft og bað. Nú hallar helgum degi á hausaskelja stað (Davíð Stef.) Elsku amma mín. Nú ertu farin til Guðs sem þú trúðir á allt þitt líf, ég man þegar ég var fimm ára þegar ég kom með mömmu og pabba að Eyri. Það var yndislegt að koma til þín þar á sumrin. Við frændsystkinin lékum okkur mikið á Bergholtinu og fengum að fara á skektunni út á fjörð, það var nú toppurinn á tilverunni. Þú varst alltaf með opinn faðminn þegar við komum, og áttir svo góðan mat og kökur. Svo kúrðum við öll saman á nóttunni. Ég kveð þig núna, elsku amma mín, og vertu Guði ávallt falin, þakka öll liðnu árin. Þinn dóttursonur Jón Valgeir Halldórsson. Mig langar að skrifa nokkur kveðjuorð um mjög svo sérstaka konu, Maríu Þorsteinsdóttur frá Eyri. María var einstök að mörgu leyti, sérlega minnug, stór í orðum, oft hnyttin og kjarnyrt og afar elsku- leg og umhyggjusöm kona. Ég hitti hana oft á Sólvangi þar sem hún dvaldi síðustu árin og það veitti mér ætíð ánægju. María var afar mikið fyrir tónlist og í gegnum tíðina gaf hún mér marg- ar kassettur sem hún hafði tekið upp á. Ávallt gjafmild og alltaf tók hún mér vel er við hittumst. Ég votta skyldmennum hennar samúð mína. Megi minning góðrar og duglegrar konu ætíð lifa í hjörtum vorum. Guðlaug Ingibjörg Hovland. Með söknuði kveð ég ömmu mína Maríu. Eftir sitja dýrmætar minning- ar í huga mér. Minningar um góða konu sem átti alltaf eitthvað að gefa öðrum þó hún ætti ekki mikið. Allar minningarnar frá Eyri eru ómetanlegar og þessar minningar mun ég alltaf geyma því hún var svo góð við alla. Man hvað hún var fín í fjólubláa kjólnum sínum sem hún átti í svo mörg ár. Hvað það var gott að kúra í heitu bólinu hennar þegar ég var lítil. Bænirnar sem hún kenndi mér. Þess- ar minningar fylgja mér allt lífið. Ég fel í forsjá þína, Guð faðir, sálu mína, því nú er komin nótt. Um ljósið lát mig dreyma og ljúfa engla geyma öll börnin þín, svo blundi rótt (M. Joch.) Vertu sæl, amma frá Eyri. Astrid. MARÍA ÞORSTEINSDÓTTIR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.