Morgunblaðið - 10.11.2005, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 10.11.2005, Blaðsíða 4
4 B FIMMTUDAGUR 10. NÓVEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ       !"#           $%&  '! (!   )  ! *#! +! *! # % +! " ,%&&-%. !  /001 ' 2  ,%0                   3  4  4    4  4  4  4  4              !    "  #  #   !"#  ' 56   7!0 8 + 7!0 ,' 7!0 ,9 7!0 8 7            : ; " <8 " <+'! 9                  = $:, $ !! %&" >!                )?@A  BC ;  ,E$@ (=A *                     F  D ' ' G # $0  (  *.  E  .  E  .  E  .  E  .                               0    .  B =  = 4  3  3  B =  = 4  3  3  B =  = 4  3  3  B =  = 4  3  3  0    .  0    .  0    .        HAGNAÐUR SAS nam 529 millj- ónum sænskra króna á þriðja árs- fjórðungi, tæpum fjórum millj- örðum íslenskra króna, en var 133 milljónir sænskra króna á sama tímabili í fyrra. Ástæðan fyrir betri afkomu er aukin farmiðasala og minni kostnaður. Jørgen Lindegaard, forstjóri SAS, segir afkomuna vera í takt við væntingar og í samræmi við áætl- anir um þá arðsemi sem félagið stefni að. SAS flaug með 9,3 milljónir far- þega á ársfjórðungnum, sem er 8,9% aukning, og sölutekjur jukust um 7,4% og námu 16,6 milljörðum sænskra króna. Þegar horft er til fyrstu níu mán- aða ársins nam tap SAS þó liðlega 1,1 milljarði íslenskra króna fyrir skatta. Í tilkynningu SAS segir að óvissa um þróun flugrekstrar gefi tilefni til varkárni en verði ekki óvæntar breytingar á rekstr- arumhverfinu eigi að verða hagn- aður á rekstrinum á árinu öllu. Afkoma SAS í takt við væntingar ÞEIM fjölgar dag frá degi sem vilja að dregið verði úr yfirburða- stöðu stærstu keðjanna á smásölu- markaðinum í Bretlandi. Útlit er fyrir að þeim verði að ósk sinni innan tíðar, að því er fram kemur í grein í breska blaðinu Observer um síðustu helgi. Í Morgunblaðinu síðastliðinn mánudag var greint frá frétt í Ob- server þar sem sagði að þingmenn, samkeppnisaðilar stóru verslana- keðjanna í Bretlandi og ýmsir aðr- ir þar í landi, kalli eftir því að stjórnvöld grípi í taumana til að hægt verði að draga úr yfirburða- stöðu Tesco og annarra smásölu- keðja. Í greininni í Observer um síð- ustu helgi segir að Tesco, sem er stærsta keðjan af fjórum sem hafa yfirburðastöðu og er með um 30% markaðshlutdeild á smásölumark- aði, standi nú frammi fyrir stærri vandamálum en nokkru sinni áður. Hvert sem litið er, þar sé and- stæðinga keðjunnar að finna, hjá þingmönnum allra flokka, birgjum, samkeppnisaðilum og fleirum. Þá segir í greininni að það kunni að hljóma út í hött að efast um hver framtíð öflugustu smásölukeðju Bretlands verður, þegar haft er í huga að neytendur verja þar einu af hverjum átta pundum sem þeir eyða. Hins vegar megi ætla að á næstu sex mánuðum verði gripið til aðgerða sem muni koma til með að draga úr áhrifum Tesco. Áhyggjur af ójafnvægi Observer segir að í næsta mánuði sé væntanleg skýrsla frá þing- nefnd, sem falið var að kanna stöð- una á smásölumarkaðinum í Bret- landi. Segir blaðið að líklegt sé að þingnefndin, sem í eiga sæti fulltrúar þeirra flokka sem eiga sæti á breska þinginu, muni m.a. leggja til að verslanakeðjum verði ekki heimilt að bjóða helstu neysluvörur á verði undir kostn- aði. Einnig verði settar hömlur á það að stóru keðjurnar, og þá sér- staklega Tesco, geti keypt upp fleiri verslanir af samkeppnisað- ilum. Gerry Sutcliffe, sem fer með málefni iðnaðar- og viðskipta í rík- isstjórn Tonys Blair, sagði í síð- ustu viku, þegar hann mætti hjá þingnefndinni, að hann hefði mikl- ar áhyggjur af því ójafnvægi sem sé á smásölumarkaðinum. Þar sé verk að vinna. Aðgerðir gegn Tesco innan sex mánaða Eftir Grétar Júníus Guðmundsson gretar@mbl.is SÆNSKUR verðbréfamiðlari hef- ur verið áminntur af aganefnd kauphallarinnar í Stokkhólmi fyrir að hafa í ágúst haft milligöngu um að 945 þúsund hlutir í Skandia yrðu seldir fyrirtæki og síðan keyptir strax aftur af söluaðil- anum, á sama verði. Verðmæti hlutafjárins er um 40 milljónir sænskra króna og segir í frétta- tilkynningu frá nefndinni að markmið viðskiptanna hafi ekki verið að bjóða hlutina til sölu heldur eingöngu að búa til við- skiptafærslur í bókunum fyr- irtækjanna. „Þess háttar atferli stríðir gegn reglum kauphall- arinnar,“ segir í tilkynningunni. Jafnframt bendir nefndin á að viðskipti sem eiga sér stað utan kauphallarinnar skuli tilkynnt inn- an fimm mínútna en þessi við- skipti voru ekki tilkynnt fyrr en daginn eftir. Áminntur fyrir viðskipti með Skandia EASYJET flaug með tæplega 14% fleiri farþega í október, miðað við sama mánuð í fyrra, eða liðlega 2,7 milljónir farþega. Sætanýtingin reyndist vera heldur minni eða 85,6% á móti 87% í október í fyrra, að því er kemur fram í tilkynningu félagsins. Fjölgun farþega easyJet er þó enn meiri þegar horft er til síðustu tólf mánaða eða 20,4%. Félagið flaug þá með hátt í 29,9 milljónir farþega og sætanýtingin var 85,1% sem er held- ur betri nýting en tólf mánuðina þar á undan. Heildartekjur félagsins á fjárhagsári þess frá október 2004 til loka september 2005 jukust sam- kvæmt bráðabirgðauppgjöri um 21,8% í nálega 1,36 milljarða punda, jafngildi um 144 milljarða íslenskra króna. Áður höfðu stjórnendur easy- Jet fært upp áætlanir sínar um hagn- að félagsins og gefið upp að hann yrði svipaður og í fyrra eða í kringum 6,5 milljarðar króna. Ray Webster, forstjóri easyJet, sem láta mun af störfum í næsta mánuði, segir bráðabirgðauppgjör vegna nýliðins fjárhagsárs verða kynnt 22. nóvember næstkomandi. Hagnaður írska lágfargjaldaflug- félagsins Ryanair fyrir skatta frá 1. apríl til loka september jókst um 18% miðað við sama tímabil í fyrra og nam 237 milljónum evra eða nær 17 millj- örðum íslenskra króna, að því er kemur fram í tilkynningu félagsins. Heildartekjur félagsins jukust um þriðjung í 67,8 milljarða króna og farþegum Ryanair fjölgaði um 29% í 18 milljónir talsins. Tekjur á hvert flogið sæti jukust því um 3% á milli ára. Aukinn hagnaður Ryanair er til kominn vegna vaxandi umsvifa og strangs kostnaðareftirlits en hins vegar hækkaði eldsneytiskostnaður félagsins um 108% á milli tímabila. Af hálfu félagsins er þó tekið fram að 90% af eldsneytiskaupum vegna síð- ari hluta fjárhagsársins til loka mars séu tryggð með framvirkum samn- ingum sem geri um 49 dali á tunn- una. „Við erum áfram varfærnir í áætl- unum okkar fyrir síðari hluta fjár- hagsársins. En spá okkar um hagnað ársins alls er óbreytt,“ sagði forstjóri Ryanair, Michael O’Leary, en sam- kvæmt þeim mun hagnaðurinn aukast um 10% í liðlega 21 milljarð króna. „Við gerum ráð fyrir að það verði áframhaldandi hörð samkeppni á flugmarkaðinum í vetur og að lágfar- gjaldafélögum muni fækka vegna hækkandi verðs á eldsneyti,“ sagði O’Leary. Í samtali við Berlingske Tidende sagði O’Leary að það kæmi honum á óvart ef SAS skilaði hagnaði í ár. Greinilegt var af ummælum hans að hann hefur ekki mikla trú á SAS: „Ef SAS verður rekið með hagnaði í ár verður það tilviljun. Það eina sem SAS-menn eru góðir í er að tapa pen- ingum.“ Farþegum easyJet fjölgar um fimmtung Farþegum Ryanair fjölgaði um fjórar milljónir AP Eftir Arnór Gísla Ólafsson arnorg@mbl.is Góður gangur Mikill vöxtur hefur verið hjá Ryanair og þannig jukust tekjur félagsins um þriðjung á tímabilinu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.