Tíminn - 21.07.1970, Page 3
MUÐJUDAGUR 21. JÚLÍ 1970.
TÍMINN
■ ■ s "
' ‘ í - "' s ••
■
:::>••■■•:
Ítf®
■Xv ■•:•■•:;■:
•:•.■:•■::>
.
.... v'M’J
1
Þótt komið væri að miðnætti, beið mannfjöldi við flugstöðina á Akureyri eftir gestunum.
(Tímamyndir Gunnar)
MARGRÉT OG HENRIK Á AKUREYRI:
FENGU GEFJUNARTEPPi
Danska skipið Thala Dan, sem
sérstaklega er byggt til siglinga
í ís og á að flytja Margréti, Hen-
rik og fylgdarlið þeirra til ’austar
strandar Grænlands, kom til Ak-
ureyrar upp úr miðnætti o» þeg-
ar lokið var snæðingi á KEA,
héldu gestirnir fótgangandi til
skips.
Skipið lagði úr höfn um kl. 2
á sunnudagsnóttina.
TIL AD HALDA Á SÉR
HITA Á GRÆNLANDI
SB-Reykjavík, mánudag.
Margrét krónprinsessa Dana og
Henrik prins komu til Akureyrar
á laugardagskvöldið og liöfðu þar
rúmlega 2ja tíma viðdvöl. Eftir
að hafa snætt miðnæturverð að
Hótel KEA, gengu þau um borð
í danska skipið „Thala Dan“ sem
flutti þau áleiðis til austurstrand-
ar Grænlands, sem þau ferðast
um á næstunni.
Klukkan var um hálf tólf, þeg-
ar flugvélin ,sem kom með Mar-
gréti og Hinrik frá Grænlandi,
lenti á Akureyri. Upphaflega var
ákveðið að þau yrðu á Akureyri
daginn áður, en einhver misskiln
ingur mun hafa tafið fyrir. Kalt
var í veðri og prinsinn og prins-
sessan voru vel klædd við kom-
una, hún var í þykkri tweed-buxna
dragt, með trefil um hálsinn og
marglita slæðu, bundna um höfuð
ið að sígaunasið. Hinrik var í
frakka, hafði öllu þykkari trefil
um hálsinn og loðhúfu á höfðinu.
Á móti þeim á flugvellinum
tóku bæjarstjóri, forseti bæjar-
stjórnar, danski konsúllinn og
frúr þeirra, auk mannfjölda. Lítil
stúlka afhenti prinsessunni teppi
frá Gefjun, til að hafa með sér
í kuldann á Grænlandi.
Síðan var haldið í bæinn og upp
á Hótel KEA, þar sem snæddur
var miðnæturverður. Danski
konsúllinn, Jóhann Þorkelsson,
Bjarni Einarsson, bæjarstjóri, Jón
G. Sólnes, forseti bæjarstjórnar
og frúr þeirra, snæddu með gest-
unum.
Prinsessunni var afhent gjöf vlð komuna tll Akureyrar.
VATNSKOT - ÞING-
VALLASVEIT
Ranghermi leiðrétt
í Reykjavíkurbréfi Morgunblaðs-
ins 19. júlí s. 1. stendur eftirfar-
andi staðhæfing: „Nú hefur ís-
lenzka ríkið eignazt Vatnskot“.
Hér er farið. algerlega rangt
með staðreyndir. Engin sala eða
afhending hefur farið fram á eign
um Símonar heitins Péturssonar,
sem þar bjó síðast. Erfingjar hans
hafa því enn allan eignar- og um-
ráðarétt yfir húsi og öðruni mann-.
virkjum, en ekki íslenzka ríkið
Margrét og Hinrik heilsa Jóhanni
Þorkelssyni konsúl Dana á Akureyri
og konu hans. T. v. Bjarni Einarsson,
Erfingjar Símonar í Vatnskoti.
bæjarstj. og Jón G. Sólnes, forseti bæjarstjórnar.
3
AVIÐA
WÆKB
Nýr foringi Sjálfstæð-
isflokksins kosinn
í næsta mánuði
Nokkur óvissa virðist ríkja
innan Sjálfstæðisflokksins og
utan, um hver muni taka við
frambúðarforystu í flokknum
eftir hið sviplega fráfall Bjarna
Benediktssonar, forsætisráð-
herra. Miðstjórn og þingflokk
ur Sjálfstæðisflokksins héldu
fund „um þau nýju viðhorf
og þann mikla vanda, sem skap
azt hefur vegna fráfalls for-
manns Sjálfstæðisflokksins“ s.
1. föstudag skv. upplýsingum
Mbl. I ritstjórnargrein Mbl. er
skýrt frá efni þessa fundar
með eftirfarandi orðum:
„Var fundur þessi haldinn
til þess að helztu ráðamenn
flokksins gætu borið saman
bækur sínar, en hins vegar var
ekki að því stefnt, að á þeim
fundi yrðu teknar neinar veiga
miklar ákvarðanir, heldur var
ákveðið að boða til nýg fundar
fyrir miðjan ágúst.“
Varnaglar
Ennfremur sagði Mbl.:
„Það liggur í augum nppi, að
ógerlegt er fyrir Sjálfstæðls-
flokkinn að taka skyndiákvörð
un um mikilvægustu flokksmál
efni undir þeim kringumstæð
um, sem nú er að mæta. Menn
þurfa nokkurn tíma til að átta
sig á aðstæðum. Hins vegar
voru þegar á fyrsta degi gerð-
ar nauðsynlegar ráðstafanir tfl
að tryggja stjórnarforustu til
bráðabirgða, þannig að ekki
skapaðist vandræðaástand eða
öryggisleysi á meðan menn hugsa
ráð sitt og þétta raðirnar."
Vísir tekur afstöðu
Ritstjóri Mbl. upplýsir með
þessum orðum, að ekki þyki
sjálfsagt í æðstu stjórn Sjálf
stæðisflokksins, að Jóhann Haf
stein taki við frambúðarfor-
ystu í flokknum. Þar þykja
sjálfsagt fleiri koma til greina
og þá líklegast fyrst og fremst
Geir Hallgrímsson. En þótt
vomur kunni að vera á ýmsum
í Sjálfstæðisflokknum um þess
ar mundir, þá er Vísir ekki f
neinum vafa um niðurstöðuna
og slær því föstu án þess að
slá nokkra varnagla, að Jóhann
Hafstein sé frambúðarforsætis-
ráðherra þessarar stjórnar og
framtíðarforingi Sjálfstæðisfl.
Foringi í kosningum
í niðurlagj ritstjórnargreinar
sinnar i gær dregur ritstjóri
Vísis enga dul á það, að hann
stendur með Jóhanni Hafstein,
sem frambúðarforingja Sjálf-
stæðisflokksins, hvað sem fylg
ismönnum Geirs Hallgrímsson
ar og varnöglum ritstjóra Morg
unblaðsins líður. Gengur rit-
stjóri Vísis algjörlega fram
hjá þeirri staðreynd, að þing
flokkur og miðstjórn Sjálfstæð
isflokksins hafa ákveðið að
koma saman til fundar í næsta
inánuði til ákvörðunar um
málið. Orðrétt hljóðar niður
iag ritstjórnargreinarinnar á
þessa leið.
„Við vitum bví af fenginni
reynslu, að nýi forsætisráðherr
ann er dugmikill hæfileikamað
ur. Hans hlutverk er að veUa
áfram örugga stjórnarforustu
í anda Bjarna Benediktssonar,
er til sigurs megi leiða í næstu
kosningum." — TK.
I