Tíminn - 15.10.1970, Side 12
Í2
HB333Bliié
TIMINN
MWíTTTiTíMfc
FIMJVITUDAGUR 15. október 1970
Everton kaupir annan Newton
- gaf 150 þúsund pund fyrir Henry Newton frá Nottingham Forest
Everton keypti í fyrradag leik-
manniiui Henry Newton frá Nott-
ingham Forest, fyrir samtals 150
þús. <£ (31.5 millj. ísl. kr.) —
Forest fékk helming upphæðar-
iitnar greitt í reiðufé, en hinu
helminginn með írska landsliðs-
manninum Tommy Jackson, sem
metinn er á 75 þús. £,
Kemur það nokkuð á óvart að
Everton skuli gera þessi stór-
kaup, þar sem Newton er miðju-
leikmaður, en Everton er talið
eiga sterkustu tengiliði á Eng-
landi, þar sem Ball-Harvey-Ken-
dall eru.
Newton þessi var í fyrra valinn
í 40 manna hóp, sem Sir Alf
FH og Haukar taplaus
í Reykjanesmótinu í handknattieik.
Um síðustu helgi voru leiknir
tveir leikir í Reykjanesmótinu í
M.fL karla í handknattleik, en í
því taka þátt Hafnarfjarðarliðin
bæði FH og Haukar ásamt Breiða
bliki, ÍBK og Gróttu af Seltjarn-
arnesi. Afturelding úr Mosfells-
sveit var einnig skráð í keppnina,
en hætti við þátttöku.
Úrslit leitojanna um helgina
urðu þau, að Haukar sigruðu
Gróttu með einu marki 22:21. I
hálfleik hafði Grótta yfir 16:15.
í hinum leiknum sigráði ÍBK,
Breiðablik 25:15.
Önnur úrslit í mótinu ti)l þessa
hafa orðið þau að FH sigraði
Gróttu 25:17 og Haukar ÍBK 37:16,
Breiðablik — Gróttu 15:14 og
FH — ÍBK 29:9.
Mótinu verður haldið áfram um
næstu helgi.
Ramsey valdi fyrir heimsmeistara
keppnina síðustu, en var ekki val
inn í 28nmanna hópinn, sem fór
til Mexíkó. Newton var að byrja
sitt sjöunda leikár með Forest,
en hann kostaði félagið ekki eyri.
Hann skipaði fyrirliðastöðu hjá
Forest á þessu og síðasta keppnis
tímabili. Mörg önnur félög höfðu
haft áhuga á Newton og voru þá
helzt nefnd Derby og West Ham.
— Jackson kom inná fyrir Alan
Ball í leik Keflavíkur og Ever-
ton á Laugardalsvellinum á dög-
unum. Hann mun leika með Nott
ingham Forest næstkomandi laug
ardao er þeir mæta Coventry. —
Gaman verður að sjá hvaða stöðu
Catterick, framkvæmdastjóri Ever
ton, velur handa Henry Newton
á laugardag gegn Arsenal. Eitt
er þó víst, — það verða tveir
„Newtonar" með 1. deildarliði
Everton í ár.
— kb.
I sumar tóku skipshöfnin af M.s. Brúarfoss þátt í íþróttakeþpni fyrir skips-
hafnir á eriendum skipum, sem voru í höfninni í Newport í Bandaríkjun-
um. Voru það baeði yfirmenn, undirmenn og þernur skipanna, sem tókw
þátt í þessari keppni. Skipshöfnin af Brúarfoss kom út úr þeirri keppni
sem sigurvegari, og hlutu m.a. gullverðlaun í hlaupum og stökkum karla
og kvenna. Hlaut skipshöfnin 727,07 stig en skipsmenn af Fjördaas frá
Noregi varð í öðru sæti með 705,75 stig. Það er ekki oft sem „íslenzkt úr-
valslið" hefur komið heim með fieiri verðlaun eða sigra úr sínum ferð-
um, en þetta iið, en rétt er þó að geta þess að keppnin var ekki eins
hörð og á Olympíuleikjum, og árangurinn ekki á alþjóða mælikvarða —
en hvað um það, keppnin hefur örugglega verið bæði hoil og góð — og
ísland sigraði — og það er ekki svo lítið.
ff
Knattspyrnueyjanáá
Vestmannaeyingar hafa möguleika á sigrum í 6 knattspyrnumótum í ár
Allt utlit er fyrir, að stór-
veldið í knattspyrnunni í ár
beri ekki nafnið KR, Fram eða
Valur eins og undanfarin ár,
heldur íþróttabandalag Vest-
mannaeyja, eða ÍBV eins og
það er ætíð nefnt.
Félagið sendi lið til þátttöku
í 8 íslandsmótum í ár (Reykja
víkurfélögin taka þátt í 7 ís-
landsmótum), og hefur það
góða möguleika á að sigra i
6 þeirra.
Það er þegar búið að sigra
í 3. og 4, flokki, — tók þar
báða bikarana af KR, sem sigr
aði í þessum flokkum í fyrra,
og hefur möguleika á að sigra
í 4 til viðbótar. í Bikarkeppni
KSÍ, þar sem það er komið
í undanúrslit. Bikarkeppni 1.
flokks, þar sem það er einnig
í undanúrslitum. Bikarkeppni
2. flokks, og í íslandsmóti 2.
flokks, þar sem það leikur til
úrslita við ÍBÍ og KR, en KR
er Reykjavikur- og Haustmeist
ari í þessum flokkum.
Það er engin smá árangur
ef féiagi'ð nær að sigra í öll-
um þessum mótum, og skáka
með því og máta flest stóru
félögin af höfuðborgarsvæðinu,
sem öll hafa um meiri mann-
skap að velja.
Knattspyrnan er Eyjamönn-
um í blóð borin, og hún hentar
þeim vel, því að það eru lipr-
ir og harðir náungar, sem búa
á þessari litlu „knattspyrnu-
eyju“ fyrir sunnan laad.
— klp.
FRYSTIKISTUR
iGINS-djúpfrystirinn gerir yður kleif hagkvæmari matar-
innkaup og sparar yður snúninga vegna matarkaupa.
Tvöfaldur þéttilisti í loki — hlifðarkantar á homum —
Ijós f loki — færanlegur á hjólum — Ijósaborð með
rofa fytir djúpfrystingu, kuldastilli og 3 leiðbeiningar-
j^snm, „gult djúpfrysting" — „grænt venjuleg frysting"
— ..rautt of lág frysting". —
Stærðir Staðgr.verð Afborg.verð
145 ftr. kr. T6.138.— kr. 17.555.— -) út + 5 mán.
190 ftr. kr. 19.938j— kr. 21.530.— -V út + 5 mán.
285 Itr. kr. 24.900,— kr. 26.934,— V út + 6 mán.
385-Itr. kr. 29.427,— kr. 31800— [- út + 6 mán.
-ö-
RAFIÐJAH
VESTURCOTU 11 REYKJAVÍK SÍM119294
Sólun
/fffK HJÓLBARÐAVIÐGERÐIR
|H||I snjómunst-ur veitir góða spyrnu
Xli .-jf «****' sé í snjó og hálku.
önnumst alfar viðgerðir hjólbarða
1 B'1 I með fullkomnum tækjum.
Snjóneglum hjólbarða. GÓÐ ÞJÓNUSTA. — VANIR MENN.
BARÐINN HF.
Ármúla 7. — Sími 30501.— Reykjavík.,
BRflun
RAFMAGNS-
SIXTANT RAKVÉLAR
1 Th
4f§ft|fft
Sixtant S — Sixtant S Automatic — Sixtant BN —
Hver annari fullkomnari. Snöggur og mjúkur rakstur
eins og með rakblaði og sápu. — Prófið sjálfir Braun
Sixtant og gerið samanburð.
Fást í raftækjaverzlunum í Reykjavík og víóa um land.
B R AU N - umboðið:
RAFTÆKJAVER2LUN (SIANDS H.F.
ÆGISG. 7 - SÍMI 17975 - REYKJAVfK