Fréttablaðið - 11.09.2002, Page 2
2 11. september 2002 MIÐVIKUDAGURLÖGREGLUFRÉTTIR
STJÓRNMÁL „Ég sagði í vor að ég
stefndi ekki í þingframboð. Ég
ítreka það núna,“ segir Ingi-
björg Sólrún Gísladóttir, borgar-
stjóri. Hún segir að í kjölfar
þess að hafa lagst undir feld og
skoðað möguleikann á framboði
hafi hún komist að þeirri niður-
stöðu að ekkert hefði breyst í
pólitísku landslagi sem yrði til
þess að hún söðlaði um.
Ingibjörg Sólrún segir tvennt
hafa ráðið mestu um niðurstöðu
hennar. „Ég gaf fólki kost á því
að sannfæra mig um að ein-
hverjar pólitískar breytingar
hefðu orðið sem kölluðu á að ég
breytti afstöðu minni. Mín niður-
staða er sú að svo væri ekki.
Enda eru aðeins fjórir mánuðir
frá kosningum. Það er engin
pólitísk umræða í gangi. Þetta er
í pólitísku tómarúmi.“ Hún segir
að staða hennar gagnvart kjós-
endum í Reykjavík hafi þó verið
veigameiri. „Ég sæki umboð
mitt til kjósenda. Ég sæki það
ekki til flokksstofnana. Kjósend-
ur eru mitt bakland. Ég gekkst
undir ákveðnar skuldbindingar
fyrir þá. Það hefur ekkert það
breyst, hvorki í mínu lífi né póli-
tískt, sem knýr á um að ég söðli
um.“
Borgarstjóri segir fyrri yfirlýsingar standa:
Stefnir ekki á þingframboð
INGIBJÖRG SÓLRÚN GÍSLADÓTTIR
Hefur legið undir feldi síðan skoðanakönn-
un sýndi þriðjungs fylgisaukningu Samfylk-
ingar færi hún í framboð.
Össur um ákvörðun
borgarstjóra:
Kemur þó
síðar verði
STJÓRNMÁL „Auðvitað hefði ég frek-
ar viljað sjá Ingibjörgu Sólrúnu
koma til liðs við Samfylkinguna í
þingkosningum,“ segir Össur
Skarphéðinsson, formaður Sam-
fylkingar. Hann kveðst hins vegar
skilja afstöðu hennar. „Ég er þeirr-
ar skoðunar að hún muni einhvern
tíma aftur láta að sér kveða í
landsmálunum. Þá undir merkjum
Samfylkingar þó það verði kannski
ekki fyrr en undir lok næsta kjör-
tímabils. Ég hlakka hins vegar til
þess að fá að takast með henni á
við okkar fornu fjendur, Sjálfstæð-
ismenn.“
Minniháttar eldur kom upp ívélbátnum Brekey um hálf
níu-leytið í gærmorgun. Bátur-
inn lá bundinn við bryggju þeg-
ar upp komst um eldinn og var
tilkynnt til neyðarlínunnar að
reykur bærist frá bátnum. Eld-
ur var í kapísu í messa bátsins
og voru sendir tveir reykkafar-
ar niður í bátinn og gekk greið-
lega að slökkva eldinn.
Skemmdir eru mest megnis af
völdum reyks og sóts. Pareks-
fjordur.is sagði frá.
Bílavelta varð á Reykjanes-braut í gærdag. Missti öku-
maður stjórn á bíl sínum eftir
að hann lenti í djúpum hjólför-
um fullum af vatni. Ökumaður
slapp með skrámur en bíllinn er
talinn ónýtur. Suðurnesjafréttir
sögðu frá.
Viðskiptaráðherra:
Bankasala í
góðum farvegi
EINKAVÆÐING „Málið er í ágætis far-
vegi,“ segir Valgerður Sverrisdótt-
ir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra,
um viðræðurnar sem hefjast munu
um sölu á hlut rík-
isins í Landsbank-
anum. Engar
ákvarðanir hafi þó
verið teknar fyrr
en samið hafi verið
um söluna.
Valgerður segir
eðlilegt að næsta
skref verði að Bún-
aðarbankinn fari í
sama ferli og
L a n d s b a n k i n n .
Nokkrir viðmæl-
endur blaðsins
lýstu fyrir nokkru áhyggjum af því
að offramboð yrði á bönkum á
næstu mánuðum. Of mikið væri að
ætla að selja hlut ríkisins í tveimur
bönkum og hlutafé í Íslandsbanka
að auki.
Valgerður kvaðst ekki hafa
áhyggjur af þessu. „Við ætlum ekki
að selja báða bankana í einu. Við
höfum nokkra mánuði til þess.“
Stefnan sé sú að láta reyna á að selja
hlut ríkisins í báðum bönkum.
Laumufarþegi:
Fannst um
borð í skipi
LAUMUFARÞEGAR Albanskur laumu-
farþegi fannst um borð í
Skógarfossi síðastliðið
föstudagskvöld. Að sögn Hauks
Más Stefánsson hjá Eimskip
hefur eftirlit um borð í skipum
verið hert, meðal annars vegna
atburða 11. september síðastliðin.
Maðurinn reyndist skilríkjalaus.
Hann hafði dvalist á Íslandi í
fjörtíu daga. Hann var færður á
lögreglustöð.
EINKAVÆÐING „Þessi ráðagerð er í
samræmi við þær ráðagerðir
okkar að afla mikilla sölutekna af
ríkiseignum á þessu ári. Áhrifin
yfir á næsta ár eru óljós. Þá verð-
ur væntanlega reiknað með enn
frekari sölu,“ segir Geir H. Haar-
de, fjármálaráðherra, um vænt-
anlegar samningaviðræður við
Björgúlfsfeðga og Magnús Þor-
steinsson um sölu á hlut ríkisins í
Landsbankanum. Geir segir þó
óvíst á þessu augnabliki hvort
salan gangi eftir. „Það á eftir að
leiða hana til lykta með samning-
um“
„Það eru ekki bein tengsl á
fjárlagagerð næsta árs við þess-
ar ráðagerðir,“ segir Geir. „Þarna
er verið að selja upp í þann sölu-
hagnað sem ráðgerður var í fjár-
lögunum. Það er mjög jákvætt.
Fyrirhugaðar viðræður einka-
væðingarnefndar við þremenn-
ingana voru til umræðu á löngum
ríkisstjórnarfundi í gærmorgun.
Þar fóru Halldór Ásgrímsson,
starfandi forsætisráðherra, Geir
og Valgerður Sverrisdóttir, við-
skiptaráðherra, yfir málin með
Ólafi Davíðssyni, formanni
einkavæðingarnefndar og ráðu-
neytisstjóra í forsætisráðuneyt-
inu. Ólafur hafði þá nýlokið fundi
með Björgúlfi Thor Björgúlfs-
syni.
Viðræður um sölu Landsbanka:
Í samræmi við ráðagerðir
VIÐSKIPTI Björgólfur Thor Björg-
ólfsson segir ekki rétt á þessu
stigi í samningum um Landsbank-
ann að tala um verð fyrir bank-
ann. „Sá hluti þessa samningaferl-
is sem við erum í núna snerist
ekki um verðið. Við höfum ekki
fengið þær upplýsingar um rekst-
ur bankans sem gefa okkur for-
sendur til að tala um verð í hann.“
Björgólfur segir að þeir félag-
ar nálgist kaupin á bankanum eins
og allar aðrar fjárfestingar. „Við
viljum hlut þar sem við höfum
áhrif á stefnu bankans og arðsemi
fjárfestingarinnar. Við lítum svo á
að við vinnum þannig jafnt fyrir
alla hluthafa bankans sem fá
sama arð og við af fjárfestingu
sinni.
Rætt hefur verið um pólitík í
sambandi við sölu ríkisbankanna.
Aðspurður um það hvort þeir fé-
lagar séu fyrst og fremst kaup-
sýslumenn segir Björgólfur: „Við
erum það ekki fyrst og fremst.
Við erum eingöngu kaupsýslu-
menn. Við höfum ekki áhuga á
öðru í okkar viðskiptum.
Björgólfur segir að nokkuð
hafi skort á að upplýsingum um
eðli ferlisins hafi verið komið til
almennings. „Ríkinu er ekki sama
hvað gert verður við hlutinn. Í
ferlinu var verið að meta fjóra
þætti. Fjármögnun, verð, framtíð-
arsýn og getu og reynslu kjöl-
festufjárfestis til að takast á við
verkefnið. Verðið er bara einn
þessara þátta og því fáránlegt að
tala um það eins og það sé eina
forsenda þess að velja þann sem
ræða á við.“
Björgólfur leggur áherslu á að
þeir séu alþjóðlegir fjárfestar
með víðtæka reynslu af samstarfi
við þekkt fjármálafyrirtæki.
Þannig var fjármögnun á bjór-
verksmiðju í Rússlandi í gegnum
London. Þar sem eigin fé var safn-
að og verkefnið unnið í náinni
samvinnu við Deutche Bank. Þeir
hafi því fengið traust stórra við-
urkenndra fjármálafyrirtækja og
séu komnir með mikla reynslu af
alþjóðaviðskiptum.
Þetta er ekki í fyrsta skiptið
sem þeir félagar taka þátt í einka-
væðingu. Þeir hafa einu sinni haft
betur í slíkum viðskiptum í
Búlgaríu. Í öðrum urðu þeir undir.
„Forsendurnar voru mjög skýrar
og við vissum að hverju við geng-
um. Þær voru auglýstar og í til-
vikinu þar sem við töpuðum var
hreint verðtilboð, þar sem tilboðin
voru opnuð á blaðamannafundi.“
Björgólfur segir að allar for-
sendur í þessum viðskiptum hafi
verið skýrar. Honum finnst nokk-
uð hafa skort á skýrleikann í
þessu einkavæðingarferli. Meðal
þess sem hann hefur gagnrýnt er
að stór eign eins og VÍS hafi verið
seld úr bankanum í ferlinu. „Við
vildum skýringar frá einkavæð-
ingarnefnd, en fengum þau svör
að þetta væri ákvörðun Lands-
bankans. Í Landsbankanum feng-
um við þau svör að við fengjum
ekki aðgang að gögnum fyrr en
við værum komnir að bankanum.“
Björgólfur segir að þeir hafi
verið að leita fjárfestingartæki-
færa og sýnt Landsbankanum
áhuga. „Við vildum viðræður og
þá fór þetta ferli í gang sem hef-
ur tafið málið. Það má segja að nú
séum við aftur komnir á þann
reit sem við vorum á þegar við
óskuðum eftir viðræðunum í upp-
hafi.“
haflidi@frettabladid.is
Einkavæðing skýrari
í Búlgaríu en hér
Björgólfur Thor Björgólfsson er í forsvari fyrir þremenninganna sem ræða við einkavæðingar-
nefnd um kaup á ráðandi hlut í Landsbankanum. Hann segir engar forsendur ennþá fyrir um-
ræðum um verðið. Í þessari lotu hafi menn verið að horfa á fjármögnun, framtíðarsýn og reynslu
kjölfestufjárfesta. Hann telur farveginn sem málið var sett í hafa tafið það.
NÆSTA LOTA
Björgólfur Thor Björgólfsson einn þremenninganna sem bjóða í Landbankann segir þá félaga vera kaupsýslumenn sem taki ákvarðanir
sínar á viðskiptalegum forsendum. Hann segir samninga um kaupin á byrjunarstigi.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/B
IL
LI
VALGERÐUR
SVERRISDÓTTIR
Telur að unnið
hafi verið faglega
og málefnalega
að öllu.
VIÐ KÍNVERSKA SENDIRÁÐIÐ
Enginn hefur skipt sér af mótmælunum
Viðræður Falung gong
við stjórnvöld:
Segja frá í dag
MÓTMÆLI Falun Gong hreyfingin
greinir í dag frá viðræðum hen-
nar við íslensk stjórnvöld. Þær
snerust um komu kínverska
forsetans fyrr í sumar. Þá var
fjölmörgum iðkendum Falung
Gong meinað að koma til landsins.
Liðsmenn Falun Gong hreyf-
ingarinnar hafa setið við kín-
verska sendiráðið síðan í fyrra-
kvöld og mótmælt framferði kín-
verskra stjórnvalda í sinn garð.