Fréttablaðið - 11.09.2002, Qupperneq 4
4 11. september 2002 MIÐVIKUDAGURKJÖRKASSINN
WASHINGTON, AP „Afmæli geta orð-
ið hryðjuverkamönnum tilefni til
aukinnar athafnasemi,“ sagði Ari
Fleischer, blaðafulltrúi Hvíta
hússins, í gær. „Bara sú staðreynd
að nú er ár liðið frá árásunum ger-
ir það að verkum að við verðum á
nálum.“
Bandarísk stjórnvöld gáfu út
viðvörun á mánudaginn og báðu
fólk um að hafa varann á alla
þessa viku. Sérstaklega eru opin-
berar stofnanir, bankar og flutn-
ingafyrirtæki hvött til þess að
vera vel á verði.
Lögreglan verður við öllu búin
og mikil öryggisgæsla er við
sendiráð og herstöðvar Banda-
ríkjanna erlendis.
Bandarískar leyniþjónustu-
stofnanir hafa síðustu daga orðið
varar við aukin samskipti á boð-
leiðum, sem eftirlit er haft með og
þykir það til merkis um að auknar
líkur séu á að hryðjuverkamenn
láti til skarar skríða.
Bandarísk stjórnvöld telja ein-
nig ástæðu til að vara við því, að
hryðjuverkamenn gætu gert vart
við sig í tengslum við Allsherjar-
þing Sameinuðu þjóðanna, sem
haldið er í New York dagana 10.
til 20. september. Þá er einnig
varað við hættu á árásum í kring-
um ársfund Alþjóðabankans og
Alþjóðagjaldeyrissjóðsins í Was-
hington dagana 25. til 29. septem-
ber.
Ótti við hryðjuverk:
Bandaríkin
á varðbergi
ÖRYGGISVERÐIR VIÐ SENDIRÁÐ BANDARÍKJANNA Í BRETLANDI
Þessir þrír öryggisverðir stóðu fyrir utan sendiráð Bandaríkjanna í London á mánudaginn.
Öryggisgæsla við sendiráð og herstöðvar Bandaríkanna erlendis hefur verið stórefld síð-
ustu daga.
AP
/D
AV
E
C
AU
LK
IN
LEIÐRÉTTING
Þorleifur Friðriksson, sagn-fræðingur, var fyrir mistök
nefndur Hjörleifur í frétt um
framboðsmál Vinstrihreyfingar-
innar - græns framboðs í gær.
Hann er beðinn velvirðingar.
NIMES, AP Að minnsta kosti tuttugu
manns fórust af völdum óveðurs
og flóða í suðurhluta Frakklands
um helgina. Í gær var leitað að tólf
manns í viðbót, sem var saknað.
Nokkur fljót í héruðunum
Gard, Vaucluse og Herault flæddu
yfir bakka sína og fjölmargar
stíflur brustu undan vatnsflaumn-
um, sem flæddi yfir götur og akra.
Úrhellisrigning hófst þar á sunnu-
daginn og ekki stytti upp fyrr en í
gær.
Lestarsamgöngur lágu niðri í
gær. Víða voru vegir einnig lokað-
ir vegna flóðanna.
Flóð í Frakklandi:
Tuttugu
manns fórust
FORSÆTISRÁÐHERRA
KOMINN Á VETTVANG
Jean-Pierre Raffarin, forsætisráðherra
Frakklands, fór að skoða skemmdirnar á
flóðasvæðunum í Suður-Frakklandi í gær.
AP
/C
LA
U
D
E
PA
R
IS
Sex flugfélög
stofnuð frá 1973:
Öll farið
á hausinn
SAMGÖNGUR Óðum styttist í yfir-
lýsingu frá forráðamönnum nýs
flugfélags sem ráðgert er að hefji
starfsemi hér á landi á næstunni.
Eins og greint hefur verið frá hér
í blaðinu sér nú fyrir endann á
tveggja og hálfs árs samninga-
ferli sem leitt hefur verið af Jó-
hannesi Georgssyni fyrrum for-
stöðumanni SAS - flugfélagsins
hér á landi.
Frá stofnun Flugleiða, árið
1973, hafa sex aðilar reynt að
koma flugfélagi á laggirnar sem
keppa myndi við Flugleiðir. Allar
hafa þær tilraunir mistekist.
Flugfélögin sex voru: Air Viking,
Arnarflug, Flugferðir - Sólarflug,
Atlantsflug, Emerald Air og Artic
Air.
KJARAMÁL Kjaranefnd hefur synj-
að ósk Haraldar Johannessen
ríkislögreglustjóra um auka-
greiðslur vegna starfsálags á
meðan á utanríkisráðherrafundi
NATO stóð í Reykjavík síðastlið-
ið vor. Að fenginni synjun nefnd-
arinnar hefur Haraldur farið
fram á rökstuðning um hvers
vegna hann eigi ekki rétt á
álagsgreiðslum.
„Það er umhugsunarefni fyrir
alla ríkisforstjóra að þeir skuli
ekkert hafa um laun sín að segja
heldur þurfa að sækja þau til
nefndar úti í bæ sem lítinn skiln-
ing hefur á ábyrgð og störfum
þeirra. Málið snýst ekki um krón-
ur og aura heldur vildi ég ein-
faldlega fá vitneskju frá kjara-
nefnd um hvort greiða eigi fyrir
tímabundið álag í starfi,“ segir
Haraldur Johannessen sem áður
hefur þegið aukagreiðslur á þess-
um forsendum: „Það var vegna
Kristnihátíðarinnar,“ segir hann.
Guðrún Zoega, formaður
kjaranefndar, segir að nefndin
muni senda ríkislögreglustjóran-
um rökstuðning fyrir synjun
sinni. Það sé mat nefndarinnar að
greiðslur vegna aukaálags í
starfi ríkislögreglustjórans séu
innifaldar í launum hans sem séu
tæplega 600 þúsund krónur á
mánuði.
„Ég veit til þess að yfirlög-
regluþjónar og aðstoðaryfirlög-
regluþjónar hafa fengið greitt
vegna álags samfara utanríkis-
ráðherrafundi NATO en ég fæ
ekkert,“ segir Haraldur og er þó
alls ekki ósáttur við kjör sín. „Nú
er svo komið að yfirlögregluþjón-
ar eru komnir með svipuð laun og
lögreglustjórar. Ætli þeir séu
ekki með um 500 þúsund krónur á
mánuði,“ segir hann.
Haraldur Johannessen hefur
verið ríkislögreglustjóri frá því í
febrúar 1998. Hann var skipaður
til fimm ára og rennur skipunar-
tími hans því út eftir rúma fjóra
mánuði. Aðspurður segist hann
hafa áhuga á að gegna starfinu
áfram.
eir@frettabladid.is
HARALDUR JOHANNESSEN
Umhugsunarefni fyrir alla ríkisforstjóra að þeir skuli ekkert hafa um laun sín að segja.
Ríkislögreglustjóri vill
hærri laun vegna álags
Kjaranefnd synjar ósk hans þar að lútandi. Segir álagsgreiðslur innifald-
ar í tæplega 600 þúsund króna mánaðarlaunum. Haraldur Johannessen
krefst rökstuðnings. Segir kjaranefnd hafa lítinn skilning á ábyrgð og
störfum ríkisforstjóra.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/B
IL
LI
SKRAUTLEGAR SAMNINGAVIÐRÆÐUR
Á ýmsu gekk í samningaferli Green og
Baugs um Arcadia. Green hefur nú sett
fram formlegt tilboð með blessun stjórnar
Arcadia.
Skrautlegum
Arcadiasamningum
lokið:
Green
kominn
með form-
legt tilboð
VIÐSKIPTI Stjórn Arcadia og Philip
Green hafa náð samkomulagi um
skilmála varðandi kaup á Arcadia.
Stjórn Arcadia sendi frá sér yfir-
lýsingu um að tilboð Greens væri
sanngjarnt og færði hluthöfum
góðan arð af fjárfestingu sinni.
Green hefur nú lagt fram form-
legt tilboð í fyrirtækið. Fram til
þessa voru tilboð hans óformleg.
Töluverð dramatík var í kring-
um samningana um kaupin, eftir
að efnahagsbrotadeild lögregl-
unnar gerði húsleit hjá Baugi.
Bresku blöðin hafa gert sér mik-
inn mat úr atburðunum. Green
segist hafa reiðst yfir því að Jón
Ásgeir hafi leynt sig atburðunum.
„Ég sagði við Jón að hann væri
heppinn. Hann hefði tapað bar-
daganum en fengið 75 milljón
punda hagnað af bréfunum sín-
um.“ Green gefur Jóni Ásgeiri 10
fyrir þrautseigju en 2 fyrir samn-
ingatækni.
Green vísaði ráðgjafa Baugs
frá Deutche Bank á dyr þegar sá
sagði hann ósanngjarnan. „Samn-
ingatækni Green er hressileg og
litrík;“ sagði bankamaðurinn við
Sunday Times.
Leit að tveimur konum:
Fundust
heilar á húfi
LEIT Gerð var leit að tveimur kon-
um sem ætluðu að ganga frá
Landmannalaugum í Hólaskjól.
Björgunarsveitin Stjarnan í
Skaftártungu hóf leitina í gær-
morgun þegar þær skiluðu sér
ekki á tilsettum tíma deginum
áður. Eftir að búið var lýsa eftir
þeim í útvarpsfréttum í hádeginu
í gær hafði maður samband við
lögregluna í Vík og sagðist hafa
tekið tvær konur í bíl sinn degin-
um áður og keyrt niður að Skaft-
ártungu afleggjara.
Konurnar fundust síðan á
tjaldstæðinu í Vík í Mýrdal um
eittleytið. Þær höfðu fengið far
til Víkur seinnipartinn á mánu-
dag en ekki haft samband við
þann aðila sem átti að sækja þær
og látið vita af breyttri ferðaá-
ætlun.
Farðu inn á frett.is og segðu
þína skoðun
frétt.is
37.7%
Nei 62.3%
Á að skipta um landsliðs-
þjálfara í knattspyrnu?
Spurning dagsins í dag:
Tók borgarstjóri rétta ákvörðun að
fara ekki í framboð?
Niðurstöður gærdagsins
á www.frett.is
Já
ATLI EÐVALDSSON
Meirihluti netverja
stendur þétt að baki
landsliðsþjálfarans.
ENGAR MINNINGARATHAFNIR
Engar minningarathafnir hafa verið skipu-
lagðar í Kuala Lumpur í tilefni 11. septem-
ber. Osama bin Laden er hins vegar ekki
gleymdur þar, eins og sjá má á myndinni.
Al Kaída samtökin sögð
hættulítil:
Hættan
stafar af
einförum
BERLÍN, AP Víða um heim hafa ör-
yggisráðstafanir verið hertar
vegna hugsanlegra hryðjuverka í
tengslum við 11. september. Emb-
ættismenn í Evrópu segja litla
hættu stafa beinlínis af Al Kaída,
hryðjuverkasamtökum Osama bin
Ladens. Starfsemi þeirra sé nán-
ast í molum. Hætta stafi miklu
frekar af einförum.
„Í Evrópu eru margir reiðir
múslimar, sem lifa á útjaðri sam-
félagsins,“ segir ítalski saksókn-
arinn Dambruoso, sem stjórnaði
rannsókn á starfsemi hryðju-
verkamanna Osama bin Ladens á
Ítalíu.
Dambruoso segir Al Kaída
samtökin ekki vera til lengur í
sömu mynd og þau voru fyrir ári.
Margir meðlima samtakanna hafi
verið handteknir eða fallið í átök-
unum í Afganistan. Hins vegar sé
ekki hægt að útiloka að þeir taki
saman höndum á ný síðar.