Fréttablaðið - 11.09.2002, Blaðsíða 10
10 11. september 2002 MIÐVIKUDAGURSKÍÐASTÖKK
Á LEIÐ TIL SILFURS
Lydia Ierodiaconou flýgur hér um loftin blá
á heimsmeistaramótinu í skíðastökki með
frjálsri aðferð í fjallinu Mount Buller í
Ástrralíu. Lydia náði silfurverðlaunum á
mótinu.
Mikael Silvestre, leikmaðurManchester United, mun
væntanlega skrifa undir nýjan
samning við liðið innan skamms.
Samningur Silvestre, sem er 25
ára, rennur út á næsta ári en
bæði hann og liðið hafa lýst yfir
áhuga á framlenginu hans. Talið
er að hann muni skrifa undir nýj-
an fjögurra ára samning.
Paul Scholes, leikmaðurManchester United, verður
væntanlega frá knattiðkun í sex
vikur þar sem
hann þarf að
gangast undir að-
gerð á hné. Scho-
les missi þar með
af leikjum gegn
Leeds í ensku úr-
valsdeildinni og
gegn Maccabi Tel
Aviv frá Ísrael í Meistaradeild
Evrópu. Miðjumaðurinn snjalli
hefur átt við meiðslin að stríða
síðan á undirbúningsmóti í
Amsterdam sem fram fór í sum-
ar.
Sylvain Wiltord, franski leik-maður Arsenal, hefur verið út-
nefndur leikmaður ágúst-mánað-
ar í ensku úrvalsdeildinni.
Wiltord hefur staðið sig frábær-
lega í fyrstu leikjum tímabilsins
og er þegar búinn að skora fjögur
mörk. Hann hefur einnig staðið
sig vel með franska landsliðinu
og skoraði eitt mark í sigri á
Kýpur.
Vladimir Smicer missir aðminnsta kosti af næstu tveim-
ur leikjum með Liverpool þar
sem hann tábrotnaði í leik með
landsliðinu. Forráðamenn Liver-
pool óttast að hann verði lengur
frá. Smicer skoraði fyrir Tékk-
land þegar liðið lagði Júgóslava
að velli
Kevin Phillips, leikmaðurSunderland, verður einnig frá
knattiðkun í sex
vikur eftir að
hann kviðslitnaði.
Þetta er mikið
áfall fyrir lið
Sunderland sem
hefur byrjað
ensku úrvals-
deildina með
ágætum. Marcus Stewart og Tore
Andre Flo munu væntanlega leika
í fremstu línu fyrir Sunderland
þangað til Phillips snýr aftur.
MOLAR
ÍÞRÓTTIR Í DAG
15.05 Stöð 2
Íþróttir um allan heim
18.30 Sýn
Heimsfótbolti með West Union
19.30 Laugardalsvöllur
Coca-Cola bikar karla (KA - Fylkir)
19.31 RÚV
Bikarkeppni KSÍ
22.00 Sýn
Enski boltinn (Newcastle - Leeds)
FÓTBOLTI Ítalski ólátabelgurinn Pa-
olo Di Canio er byrjaður að æfa á
ný með liði sínu West Ham eftir
að hafa verið frá vegna meiðsla.
Di Canio hefur varla snert bolta
síðustu fjóra mánuði eftir að hann
meiddist á hné.
„Paolo hefur æft vel síðustu
vikur. Það er líka það sem maður
býst við af honum,“ sagði Glenn
Roeder, knattspyrnustjóri West
Ham. „Þó hann hafi ekki spilað
fótbolta í fjóra mánuði hefur hann
enn sömu tilfinningu fyrir íþrótt-
inni og hann hafði áður en hann
meiddist.“ Roeder ber mikla virð-
ingu fyrir Ítalanum og segir að þó
hann yrði frá knattiðkun í nokkra
mánuði til viðbótar myndi hann
ekki missa neitt niður.
Di Canio, sem er fyrirliði West
Ham, verður væntanlega á bekkn-
um þegar liðið mætir Lárusi Orra
Sigurðssyni og félögum í West
Bromwich Albion í kvöld. Þó hann
hafi enn sömu tilfinningu fyrir
boltanum vantar svolítið upp á
leikformið.
NEW YORK, AP „Serena á eftir að
verða efst á heimslista tennissam-
bandsins. Venus hefur aftur á
móti mikið stolt og ekkert
getur komið veg fyrir að
hún verði á undan að ná
fyrsta sætinu,“ sagði Ric-
hard Williams, faðir banda-
rísku tennissystranna Ser-
enu og Venus Williams, í
janúar árið 1998. Nánast
enginn tók mark á orðum
hans og hvarflaði það ekki
að neinum að báðar stúlk-
urnar myndu ná svo langt.
Venus, sem er 22 ára,
hafði reyndar þegar náð
góðum árangri. Hún var á
lista yfir 20 bestu tennis-
konur í heiminum og hafði
náð öðru sætinu á banda-
ríska meistaramótinu. Ser-
ena, sem er ári yngri en
systir sín, hafði aftur á móti
ekkert afrekað að ráði. Hún
hafði aldrei spilað á fjórum
stærstu mótunum í tennis-
heiminum og árið 1997 end-
aði hún í 99. sæti á heims-
listanum.
Það hefur heldur betur
ræst úr stúlkunum því Ser-
ena er nú efst á heimslistan-
um, sæti á undan Venus, eft-
ir að hafa sigrað hana um
síðustu helgi í úrslitum
opna bandaríska meistara-
mótsins. Hefur Serena sett
stefnuna á alslemmuna, eða
sigur á fjórum stærstu mót-
unum í tennisheiminum.
Hefur hún þegar sigrað á
þremur slíkum í röð þar
sem hún bar í öll skiptin sig-
urorð af systur sinni í úr-
slitunum. Næst á dagskrá
er síðan opna ástralska
meistaramótið sem haldið
verður í janúar á næsta ári.
Venus, sem var í efsta
sæti heimslistans á undan
Serenu, er minna gefin fyrir
sviðsljós fjölmiðlana heldur en
litla systir sín. „Ég held að Serenu
líki athyglin,“ segir Venus. „Hún
er opnari manneskja. Allir eiga
sín ár og þetta er hennar ár og
næsta ár gæti einnig orðið hennar.
Ég er ánægð hversu vel hún hefur
staðið sig.“
Serena hefur nú unnið
jafnmarga titla á stórmót-
um og eldri systir sín, fjóra
talsins. „Ég var bara orðin
þreytt á því að tapa,“ sagði
Serena, eftir úrslitaleikinn
um helgina. Það sem af er
árinu hefur hún unnið fjóra
leiki í röð gegn Venus eftir
að hafa tapað ítrekað fyrir
henni í gegnum árin, þar á
meðal í úrslitum banda-
ríska meistaramótsins í
fyrra. Serena hefur því
tekið við krúnunni af syst-
ur sinni sem drottningin í
tennisheiminum, nákvæm-
lega eins og faðir hennar
spáði svo eftirminnilega
fyrir um.
freyr@frettabladid.is
FÓTBOLTI Fylkir og KA mætast í
seinni undanúrslitaleik Coca-Cola
bikarkeppni karla á Laugardals-
velli í kvöld klukkan 19.30. Liðin
léku til úrslita í fyrra og þá hafði
Fylkir betur eftir framlengingu
og vítaspyrnukeppni, 7-6.
Fylkir er í efsta sæti Síma-
deildarinnar sem stendur með 33
stig. KA er í fjórða sæti með 22
stig. Liðin hafa mæst í tvígang í
sumar og í bæði skiptin var um
hörkuleiki að ræða. Fyrri leiknum
lauk með jafntefli, 1-1 en í seinni
leiknum, fyrir norðan, hafði Fylk-
ir betur, skoraði tvö mörk gegn
engu KA-manna. Fylkismenn
verða því að teljast sigurstrang-
legri í kvöld þótt allt geti gerst í
bikarleikjum.
KA-menn hafa tvisvar sinnum
leikið til úrslita í bikarkeppninni
og bæði skiptin þurft að lúta í
lægra haldi. Í fyrra töpuðu þeir
eins og áður sagði fyrir Fylki og
árið 1992 töpuðu þeir fyrir Val í
úrslitum með fimm mörkum gegn
tveimur. Fylkir hefur aðeins einu
sinni leikið til úrslita og hampaði
þá titlinum.
FYLKIR
Lið Fylkis hefur staðið sig frábærlega í
sumar. Liðið leikur í undanúrslitum bikar-
keppninnar í kvöld og mætir svo KR í
hreinum úrslitaleik Símadeildarinnar á
laugardag.
Undanúrslit í Coca-Cola bikar karla:
Lið Fylkis
sigurstranglegra
PAOLO DI CANIO
Fékk verðlaun fyrir háttvísi á síð-
asta tímabili. Hann er þó þekktur
fyrir allt annað.
Enski boltinn:
Paolo Di Canio til í slaginn
PABBI FYLGIST MEÐ
Richard Williams, faðir systranna,
tekur myndir í undanúrslitaleik
Serenu gegn Lindsay Davenport á
opna bandaríska meistaramótinu.
Hann hefur stutt stúlkurnar dyggi-
lega í gegnum árin.
Spádómur sem rættist
Tennissysturnar Serena og Venus Williams hafa skarað fram úr á undanförnum árum í íþrótt
sinni. Faðir þeirra hefur fylgst vel með þeim og spáði þeim á sínum tíma mikilli velgengni,
mörgum til mikillar undrunar.
AP/MYNDIR
SERENA
Serena Williams fagnar gífurlega. Henni hefur gengið allt í haginn og er nú efst á styrkleikalista tennissam-
bandsins. Hún hefur jafnframt þénað mest allra á árinu, eða rúmar 260 milljónir króna. Systir hennar hefur
þénað heldur minna, eða um 170 milljónir.