Fréttablaðið - 11.09.2002, Side 22
22 11. september 2002 MIÐVIKUDAGUR
HÚSIÐ
Ægissíða 80 er meðal glæsileg-ustu einbýlishúsa í borginni.
Húsið var reist 1956 og var ytra
borð þess friðað árið 1999. Arki-
tekt hússins er Sigvaldi Thordar-
son. Sigvaldi teiknaði mörg íbúð-
arhús, ekki síst blokkir og rað-
hús, sem setja sterkan svip á höf-
uðborgarsvæðið. Nefna má tvær
blokkir sem báðar snúa út að
Miklubraut, önnur stendur við
Skaftahlíð en hin við Fellsmúla.
Sigvaldi notaði lit húsanna sem
nokkurs konar vörumerki en þau
voru máluð hvít, blá og gul eins
og sést á Ægissíðu 80. Hús og
íbúðir teiknaðar af Sigvalda eru
ekki aðeins falleg að utan heldur
þykja einstaklega vel hannaðar
að innan.
Þetta verður allt í hófi,“ segirKristinn R. Ólafsson í Madríd,
sem er fimmtugur í dag. „Ég
verð að vinna, og fer svo væntan-
lega með fjölskyldunni á Casa
Lucio, sem er heimsfægur staður
í Madríd. Þar borða fyrirmenn-
in,“ segir hann kampakátur.“
Eins og hvaða fyrirmenni? „Ja,
Clinton og svona kallar. Staður-
inn er frægur fyrir aðalrétt húss-
ins, spælt egg og franskar, hreint
himneskt,“ segir Kristinn og af-
tekur með öllu að rétturinn sé
nokkuð annað en það sem hann
lítur út fyrir að vera. „Spælda
eggið er reyndar steikt oní kart-
öflurnar svo úr verður eins kon-
ar kássa, svona splundruð egg.“
Kristinn situr við skriftir í
Madríd og segir áhugamálin
skarast við vinnuna. „Þetta er
lausamennskunnar lága stand,“
segir hann, en vill ekkert gefa
upp um hvort skáldsaga sé í fæð-
ingu. Hann gerir þó ýmislegt
annað en að skrifa, er stundum
fararstjóri íslenskra ferðalanga
á Spáni og læðir því svo út úr sér
að hann hafi nýverið leikið í kvik-
mynd. „Nei, nei, við skulum ekk-
ert tala um það,“ segir hann.
„Fólk heldur bara að ég sé að
monta mig.“ En nú hefur Krist-
inn sagt a og er píndur til að
segja b. Og hann upplýsir með
semingi að hann hafi farið með
tvö lítil hlutverk í kynningar-
mynd fyrir Canal Satélite Digi-
tal. „Ég lék annarsvegar Svía
sem var að hlusta á draugahljóð
og hins vegar dómara sem sagði
eitt orð, Out! Þetta var ægilega
skemmtilegt.“ Svo kemur auðvit-
að í ljós að Kristinn er enginn ný-
græðingur í kvikmyndaleik.
Hann lék einu sinni lítið hlutverk
í kvikmyndinni La playa de los
galgos, eða Mjóhundaströndinni,
eftir fægan spænskan leikstjóra,
Mario Camus. „Þar lék ég fullan
Dana á krá. Við sungum eitt lag,“
segir Kristinn og syngur við
raust: „Vi sejler op ad åen, vi
sejler ned ad igen. Det var vel
nok en dejlig sang, den må vi ta’
endnu en gang.“ Þegar Kristni
hefur verið hrósað fyrir sönginn
er komið að síðustu spurning-
unni: Hvað er helst sammerkt
með Spánverjum og Íslending-
um? Hann skellihlær. „Það eru
auðvitað þessir tveir rauðu
þræðir: Að klæmast og tala illa
um náungann.“
edda@frettabladid.is
TÍMAMÓT
AFMÆLI
Colin Baird er þjálfari Keikósog hefur vakað yfir velferð
hans í um það bil eitt ár. Fyrst í
Vestmannaeyjum og nú í Noregi.
Baird er 35 ára gamall
Kanadamaður. Hann er mennt-
aður hagfræðingur en lét þau
fræði sigla sinn sjó og hefur
unnið með sjávarspendýrum í
sædýrasöfnum í heimalandi sínu
árum saman. Hann eyðir mest-
um tíma sínum með Keikó, fóðr-
ar hann, fylgist með andlegri- og
líkamlegri heilsu hans og fer
með honum í siglingar, sem hann
kallar „göngutúra“ í firðinum.
Baird segir að byrjað sé að
huga að betri vetrardvalarstað
fyrir Keikó þar sem Skálarvík-
urfjörður henti honum alls ekki.
Vatnið sé fínt núna en muni
frjósa þegar líða fer á veturinn.
Hann gerir ráð fyrir því að fylg-
ja Keikó eftir hvert sem hann
fer: „Ég skildi eiginlega allt mitt
hafurtask eftir á Íslandi og rauk
á eftir honum til Noregs og mun
fylgja honum áfram.“ Baird á
foreldra og systkin í Kanada en
heimshornaflakkið kemur ekki
illa við hann þar sem hann er
ógiftur og barnlaus.
Baird tók blóðprufu úr Keikó
um síðustu helgi og telur hann
annaðhvort vera með snert af
kvefi eða bara stressaðan. Hann
þvertekur fyrir að Keikó sé með
hita og varar við því að fólk trúi
öllu sem norskir fjölmiðlar
segja um háhyrninginn og full-
yrðir að honum sé engin hætta
búin. Baird kærir sig lítið um at-
hygli fjölmiðla og var tregur til
viðtals. Hann segir Keikó miklu
betur til þess fallinn að baða sig
í kastljósi fjölmiðlanna. „Enda
er hann miklu myndarlegri en
ég“.
Colin Baird er þjálfari Keikós og fylgir
honum hvert sem hann fer.
Persónan
Fylgir Keikó eins og skugginn
Farþegaþota frá Trans WorldAirlines, sem rænt var í inn-
anlandsflugi í Bandaríkjunum,
hafði viðdvöl á Keflavíkurflug-
velli á leið til Parísar árið 1976.
Ræningjarnir gáfust upp í París.
Þeir voru króatískir.
KR tryggði sér Íslandsmeist-aratitil í knattspyrnu karla í
fyrsta sinn í 31 ár árið 1999. Dag-
inn eftir varð félagið bikarmeist-
ari í kvennaflokki.
Hryðjuverkaárásir voru gerð-ar á Bandaríkin árið 2001.
Fjórum flugvélum var rænt og
tveimur þeirra flogið á World
Trade Center í New York, einni á
varnarmálaráðuneytið í Was-
hington og ein hrapaði til jarðar í
Pennsylvaníu. Hryðjuverkasam-
tökin al-Qaeda undir stjórn
Osama bin Ladens voru ábyrg
fyrir hryðjuverkunum. Þúsundir
létu lífið.
Í HLUTVERKI SVÍA Í KYNNINGARMYND
Kristinn vill taka það sérstaklega fram að pípan er partur af hlutverkinu. Hann er löngu
hættur að reykja.
Íþróttafréttamaðurinn snarpi,Valtýr Björn Valtýsson, hefur
snúið heim á fornar slóðir til
starfa hjá
Norðurljós-
um. Valtýr
Björn stýrir
nú íþrótta-
þætti á út-
varpi Sögu
að loknu
Hrafnaþingi
Ingva Hrafns
Jónssonar í
hádeginu.
Valtýr var
um langt skeið yfirmaður
íþróttadeildar Stöðvar 2 og
Bylgjunnar en kvaddi með hvel-
li þegar Snorri Sturluson tók við
starfi hans. Þykir endurkoma
hans til marks um að öll sár
grói um síðir.
Pólitískir textarýnar telja yf-irlýsingu Ingibjargar Sól-
rúnar Gísla-
dóttur um að
ekkert hafi
gerst sem
réttlæti
brotthvarf
sitt úr ráð-
húsinu ekki
skella loku
fyrir að hún
blandi sér í
alþingiskosningaslaginn á næsta
ári. Kremlverjinn Eiríkur Berg-
mann Einarsson telur yfirlýs-
inguna þó afdráttarlausa og
harmar niðurstöðu hennar, enda
Kremlarkönnunin, sem hleypti
öllu af stað, varla meira en
stormur í vatnsglasi ef hún gef-
ur ekki kost á sér. Eiríkur óttast
ekki að umræðan skaði Sam-
fylkinguna og Ingibjörgu sjálfa
enda sé fátt eðlilegra í lýðræð-
isþjóðfélagi en að málin séu
rædd. Kremlverjar virða því
ákvörðun Ingibjargar og vænta
mikils af henni í framtíðinni.
FÓLK Í FRÉTTUM
MEÐ SÚRMJÓLKINNI
Jólasveinn, tannálfur, heiðar-legur lögfræðingur og gömul
fyllibytta voru saman á göngu.
Allt í einu komu þeir auga á 5000
króna seðil á götunni. Hver var
fyrstur að ná honum?
Gamla fyllibyttan náði honum
því enginn hinna er til í alvör-
unni.
Sendu brandarann þinn á
surmjolk@frettabladid.is
JARÐARFARIR
15.00 Halldór Steingrímsson, Skúla-
götu 68, Reykjavík, verður jarð-
sunginn frá Fríkirkjunni.
15.00 Hannes G. Thorarensen, Kjalar-
landi 21, Reykjavík, verður jarð-
sunginn frá Bústaðakirkju.
15.00 Kristín Bjarnadóttir, fyrrv. hús-
freyja, Goðheimum 18, Reykjavík,
verður jarðsungin frá Langholts-
kirkju.
ANDLÁT
Ingibjörg Auðbergsdóttir lést á hjúkr-
unardeild Hrafnistu 24. ágúst. Útförin
hefur farið fram.
Ásmundur Jón Pálsson, Laufskálum 5,
Hellu, lést 8. september.
Gísli Kristján Líndal Karlsson, Nýbýla-
vegi 98, Kópavogi, lést á Landspítalan-
um 7. september.
Sveinn Skorri Höskuldsson, prófessor,
Kórsölum 5, Kópavogi, lést 7. septem-
ber.
Sverrir Bjarnason, læknir, Blikahólum 6,
Reykjavík, lést á Landspítalanum 7. sept-
ember.
Bryndís Emilsdóttir, Grettisgötu 73,
Reykjavík, lést á Landspítalanum 6. sept-
ember.
Ómar Sigtryggsson, Háteigsvegi 19,
Reykjavík, lést á Landspítalanum 5. sept-
ember.
AFMÆLI
Kristinn R. Ólafsson í Madrid er fimm-
tugur í dag.
COLIN BAIRD
Eyðir nánast öllum sínum tíma með
Keikó. Viðrar hann, fóðrar og fylgist
með heilsufarinu.
Spæld egg og franskar
á frægu veitingahúsi
Kristinn R. Ólafsson í Madríd er fimmtugur í dag. Hann fagnar
líka öðrum tímamótum í desember þegar hann verður 25 ára
„Madrídingur“. Fáir vita að Kristinn hefur leikið í kvikmyndum.
SAGA DAGSINS
11. SEPTEMBER
Vert er að ítreka að Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir hefur enn ekki afsalað
sér rétti til forsetaframboðs árið
2004, 2008 eða 2012.
Leiðrétting
Naglalökk á 1/2 virði
• Næra og bæta
• Tolla lengur
• Fljótþornandi
• Án Formaldehyde og Toluene.
Fæst í betri apótekum.
Tilboð
PERUR
Engar tímapantanir.
Komdu núna!
REYKJAVÍK • AKUREYRIAB
X
/
S
ÍA