Fréttablaðið - 18.11.2002, Blaðsíða 1
FÓLK
Var
sárþjáður
bls. 27
Þverholti 9, 105 Reykjavík — sími 515 7500 Mánudagurinn 18. nóvember 2002
Tónlist 18
Leikhús 18
Myndlist 18
Bíó 20
Íþróttir 16
Sjónvarp 22
KVÖLDIÐ Í KVÖLD
FUNDUR Annar fundur
í fundaröð Péturs
Blöndals alþingis-
manns fer fram í
kvöld. Fundarefnið er
Evrópusambandið og
fundarstjóri er Jó-
hann J. Ólafsson stórkaupmaður.
Pétur býður sig fram í þriðja sæti í
prófkjöri Sjálfstæðisflokks í
Reykjavík sem fer fram næstu
helgi. Fundurinn fer fram í stofu
101 í Odda.
Pétur um
Evrópumál
FYRIRLESTUR Júlían M. D’Arcy, dós-
ent í enskum bókmenntum við Há-
skóla Íslands, flytur fyrirlesturinn
Að færa mörkin. Íþróttabókmennt-
ir, hvað er það? kl. 12. Fyrirlestur-
inn fer fram í stofu 101 í Odda.
Íþróttabókmenntir,
hvað er það?
TÓNLEIKAR Kristinn Sigmundsson og
Jónas Ingimundarson halda söng-
tónleika í Salnum, Kópavogi, í tilefni
af útgáfu disks sem hefur að geyma
öll uppáhaldslög þeirra félaga. Tón-
leikarnir hefjast klukkan 20.
Kristinn í Salnum
FUNDUR Séra Hreinn Sk. Hákonar-
son, fangaprestur Þjóðkirkjunnar,
flytur fyrirlestur í málstofu í guð-
fræði í hádeginu. Erindið nefnir
hann Kristur bak við lás og slá -
Veröld fangelsa og þjónusta kirkj-
unnar. Fyrirlesturinn fer fram í
stofu V í Aðalbyggingu Háskóla Ís-
lands.
Kristur bak
við lás og slá
TÓNLIST
Í leit að ferskum
straumum
VEÐUR Hvassviðri var um sunnan-
og vestanvert landið í gær og
setti víða strik í reikninginn.
Vestmannaeyjaferjan Herjólf-
ur komst ekki að landi í Þorláks-
höfn fyrir veðurofsa og brimi.
Ferjan lónaði utan við höfnina í
um fjóra klukkutíma áður en
Lárus Gunnólfsson skipstjóri
ákvað að snúa skipi sínu aftur til
Eyja. Áætlað var að þangað yrði
komið um sjö-leytið í gærkvöld.
Þá voru liðnir ellefu klukkutímar
frá því lagt var úr höfn í Eyjum.
Farþegar um borð voru 69 og
15 voru í áhöfn. Rætt var við
Lárus þegar um klukkutíma sigl-
ing var eftir til Eyja:
„Það eru allir hressir og kátir.
Það fer vel um fólk í góðu skipi.
Það er nóg að bíta og brenna. Það
er kannski dálítið leiðinlegt að
komast ekki á leiðarenda. Stund-
um er þetta svona á vegunum
líka,“ sagði Lárus.
Í Grindavík aðstoðuðu björg-
unarsveitarmenn við að festa
þak á verslunarhúsnæði sem var
byrjað að losna í miklum veð-
urofsa.
Á Rifi slitnaði 15 tonna trilla
frá bryggju og rak upp í fjöru í
höfninni. Skipverjar gátu komið
vélinni í gang og náðu að koma
trillunni aftur að bryggju.
Í Hafnarfirði var á tímabili
óttast að stórt auglýsingaskilti
við Reykjanesbraut myndi fjúka
um koll og stóð lögregla vakt við
skiltið. Skiltið fauk þó ekki en
skemmdist mikið. Talsvert var
um fok á lausamunum. Björgun-
arsveitarmenn voru á ferð um
bæinn og aðstoðuðu þar sem þess
var þörf.
Ellefu tíma sigling í ofsaveðri endaði á byrjunarreit:
Herjólfur komst ekki að bryggju
MÁNUDAGUR
230. tölublað – 2. árgangur
bls. 20
STJÓRNMÁL
Áfellist
aðstoðarmann
bls. 2
JERÚSALEM, AP Þegar Palestínu-
menn í Hebron á Vesturbakkan-
um vöknuðu í gærmorgun voru
ísraelskir skriðdrekar á flestum
götum bæjarins.
Ísraelskir hermenn
handtóku fjölmarga
Palestínumenn og
reyndu jafnframt
að halda reiðum
ísraelskum land-
tökumönnum í
skefjum.
Tilefni þessarar
nýjustu innrásar Ísraelshers var
atburðirnir á föstudaginn, þegar
þrír Palestínumenn drápu tólf
ísraelska öryggisverði í skot-
bardaga. Ættingjar palestínsku
byssumannanna voru handteknir
og að minnsta kosti tvö hús í eigu
þeirra eyðilögð.
Benjamin Netanyahu, utanrík-
isráðherra Ísraels, sagði í gær að
friðarsamkomulag um skiptingu
borgarinnar, sem hann sjálfur
undirritaði sem forsætisráðherra
árið 1997, væri í raun orðið mark-
laust plagg í kjölfar árása Palest-
ínumanna.
Hebron er eina borgin á Vest-
urbakkanum sem skipt er upp í
ísraelsk og palestínsk yfirráða-
svæði. Ísraelsmenn stjórna hluta
gamla miðbæjarins, þar sem um
450 ísraelskir landnemar búa inn-
an um hundrað þúsund Palestínu-
menn.
Ísraelskir ráðamenn veltu í
gær fyrir sér næstu skrefum í
framhaldi af blóðbaðinu á föstu-
daginn. Netanyahu vill sem fyrr
reka Jasser Arafat úr landi. Ariel
Sharon forsætisráðherra sagði
hins vegar líklegt að landnema-
svæðið verði tengt landnema-
byggðinni Kiryat Arba, sem er
skammt fyrir utan Hebron. Til
þess að svo megi verða þarf að
rífa hús Palestínumanna, sem lig-
gja þar á milli, og hrekja íbúana á
brott.
Ísraelskir stjórnmálamenn
eru byrjaðir að búa sig undir
harða kosningabaráttu eftir að
Verkamannaflokkurinn sagði sig
úr stjórn landsins. Kosningar
fara fram 28. janúar. Í staðinn
fyrir ráðherra Verkamanna-
flokksins eru harðlínumennirnir
Benjamin Netanyahu og Shaul
Mofaz sestir í stóla utanríkisráð-
herra og varnarmálaráðherra.
Mofaz segist kenna stjórn
Palestínumanna, með Jasser Ara-
fat í forystu, um árásina á föstu-
daginn, þrátt fyrir að Jihad, sam-
tök herskárra múslima, hafi lýst
ábyrgðinni á hendur sér.
Ísraelskir
stjórnmála-
menn eru
byrjaðir að
búa sig undir
harða kosn-
ingabaráttu.
ILLVIÐRI Í HÖFUÐBORGINNI Vegfarendur í miðbæ Reykjavíkur öttu kappi við suðaustan hvassviðri í gær. Veður var slæmt um
sunnan- og vestanvert landið og olli víða usla.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T
Ísraelsmenn
leita hefnda
REYKJAVÍK Suðaustan 8-13
m/s og slydduél eða skúrir.
Hiti 1 til 6 stig.
VEÐRIÐ Í DAG
VINDUR ÚRKOMA HITI
Ísafjörður 8-13 Él 2
Akureyri 13-18 Slydda 3
Egilsstaðir 13-18 Slydda 3
Vestmannaeyjar 8-13 Skúrir 3
➜
➜
➜
➜
NOKKRAR STAÐREYNDIR UM
MEÐALLESTUR FÓLKS Á ALDRINUM 12 TIL 80 ÁRA
Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU ER 71,1% SAMKVÆMT
FJÖLMIÐLAKÖNNUN GALLUP Í SEPTEMBER 2002.
Fr
é
tt
a
b
la
ð
ið
Meðallestur 25 til 49 ára á
mánudögum samkvæmt
fjölmiðlakönnun Gallup frá
september 2002
33%
D
V
80.000 eintök
70% fólks les blaðið
Hvaða blöð lesa
25 til 49 ára
íbúar á höfuð-
borgarsvæðinu
á mánudögum?
81%
Skeifan 8, sími: 568 2200
www.babysam.is
Allt fyrir
jólabarnið!
+
+
+
+
Ísraelsher réðst inn í Hebron í gær. Sharon vill nota blóðbaðið á föstudag
sem tilefni til þess að rífa hús Palestínumanna og hrekja íbúana á brott.
LANDSSÍMINN
Markaðsaðstæður hafa ekki breyst síðan
hætt var við sölu á honum og því engin
áform um að selja hann á næstunni.
Einkavæðing:
Landssím-
inn og ÍAV
ekki til sölu
VIÐSKIPTI Ólafur Davíðsson, for-
maður framkvæmdarnefndar um
einkavæðingu, segir ekki standa
til að selja hlut ríkisins í Lands-
símanum í nánustu framtíð.
Þá segir Ólafur engin áform
uppi um að selja tæplega 40% hlut
ríkisins í Íslenskum aðalverktök-
um (ÍAV). Eignahaldsfélagið
Kaldbakur hf., sem áður sýndi
áhuga á kaupum á hlutnum í Bún-
aðarbankanum sem nú hefur ver-
ið seldur, vill kaupa hlutinn í Aðal-
verktökum.
„Það hefur komið fram áhugi á
að kaupa hlutinn. Það hefur ekki
verið ákveðið hvort sá hlutur
verður seldur á næstunni og held-
ur ekki hvernig hann verður seld-
ur ef af því yrði. Það hefur ein-
faldlega ekkert verið rætt. Við
höfum í rauninni haft nóg að gera
með bankana. En um þetta verður
fjallað á næstunni,“ segir Ólafur.
Frekari tilraunir til sölu á eign-
arhlut ríkisins í Landssíma Ís-
lands standa heldur ekki fyrir
dyrum. Eins og kunnugt er var
hætt við þá sölu: „Markaðsað-
stæður hafa ekki breyst að undan-
förnu. Það eru engar forsendur til
þess að eiga við það á næstunni,“
segir Ólafur.
Samið var um sölu á 45,8% hlut
ríkisins í Búnaðarbanka Íslands
um helgina til S-hópsins svokall-
aða. Ólafur segir söluna vera afar
viðunandi.
Nánar bls. 4.