Fréttablaðið - 18.11.2002, Page 2
2 18. nóvember 2002 MÁNUDAGUR
LÖGREGLA Talsvert var um lík-
amsmeiðingar í Reykjavík í
fyrrinótt. Dyravörður á LA Café
missti tvær tennur þegar ósátt-
ur gestur barðist við að halda
sér innandyra. Árásarmaðurinn
var tekinn höndum og fluttur í
fangageymslu.
Við Jafnasel í Breiðholti kom
til átaka milli þriggja manna
fyrir utan veitingastað. Lög-
reglumaður sem kom á staðinn
var kýldur í andlitið og er bólg-
inn eftir. Sá er veitti honum
höggið gisti á lögreglustöðinni.
Einn maður var skilinn eftir
nefbrotinn eftir slagsmál utan
við Gauk á Stöng. Lögregla telur
sig hafa haft uppi á hinum slags-
málahundunum.
Maður sem skemmdi bíl á
Grensásvegi var sleginn í göt-
una af ökumanni bílsins og far-
þega hans. Engin kæra hefur
verið lögð fram. Maðurinn rank-
aði við sér af sjálfsdáðum.
Einnig má geta slagsmála á
Lækjartorgi sem voru að vísu
yfirstaðin þegar lögreglan birt-
ist. Þátttakendur í þeim átökum
munu hafa náð samkomulagi að
lokum.
Ráðherra áfellist
aðstoðarmanninn
Magnús Stefánsson mun leiða lista framsóknarmanna í Norðvesturkjör-
dæmi. Páll Pétursson hættir þingsetu eftir tæp 30 ár á þingi. Hann ætlar
ekki úr ráðherrastólnum.
KOSNINGAR Páll Pétursson félags-
málaráðherra segir að Árni Gunn-
arsson, fyrrverandi aðstoðarmað-
ur sinn, hafi komið í veg fyrir
áframhaldandi þingsetu sína. Í
kjölfar úrslita prófkjörs framsókn-
armanna í Norðvesturkjördæmi er
ljóst að Páll, sem setið hefur á
þingi frá árinu 1974, hættir þing-
mennsku í vor.
Páll sóttist eftir fyrsta sætinu
en hafnaði í því fjórða eftir fyrstu
umferð kosninganna. Hann gaf
ekki kost á sér í annað en fyrsta
sætið.
„Það kom í ljós að menn voru
afar fastir í gömlu kjördæmunum
og kusu eftir þeim,“ segir Páll.
„Það hafði fjölgað mikið í flokkn-
um, bæði á Vestfjörðum og í
Skagafirði, og Skagfirðingar kusu
mig ekki nema í litlum mæli.
Stuðningur minn var því fyrst og
fremst bundinn við Húnvetninga.
Til þess að ná kjöri hefði ég þurft
að hafa óskiptan stuðning Norður-
lands vestra.“
Aðspurður hvort hann hefði
verið ósáttur við að Árni Gunnars-
son, fyrrverandi aðstoðarmaður
hans, hefði boðið sig fram sagði
Páll: „Mér þótti það náttúrulega
verra. Það liggur í augum uppi að
það er hann sem kemur í veg fyrir
áframhaldandi þingsetu mína.“
Páll segist ekki ætla að fara úr
ráðherrastólnum. Hann sé kjörinn
til vors og reikni með því að sitja í
ráðherrastólnum þar til kjörtíma-
bilinu ljúki. Ekkert annað hafi
komið til tals
Magnús Stefánsson alþingis-
maður mun leiða lista framsóknar-
manna í Norðvesturkjördæmi.
Hann hlaut 231 atkvæði eða 53,97%
atkvæða í annarri umferð kosning-
anna. Kristinn H. Gunnarsson, for-
maður þingflokks framsóknar-
manna, fékk 46,03% atkvæða.
Kristinn H. hlaut síðan 53,8% at-
kvæða í annað sætið. Árni Gunnars-
son, fyrrverandi aðstoðarmaður
Páls, fékk 22,38% atkvæða og Her-
dís Sæmundardóttir 19,29%.
Herdís hafði betur en Elín Lín-
dal Finnbogadóttir frá Akranesi og
Árni í kosningunni um þriðja sæt-
ið. Í fjórða sæti lenti síðan Elín Lín-
dal, Ingibjörn Árnason frá Skaga-
firði varð í því fimmta og Al-
bertína Elíasdóttir frá Ísafirði
varð í því sjötta.
trausti@frettabladid.is
Manns á fertugsaldri enn saknað:
Leit á Vestfjörðum
bar ekki árangur
LEIT Leitin að rauða Isuzu Trooper-
jeppanum hefur enn engan árang-
ur borið. Talið er að maður á fer-
tugsaldri sé í bílnum, en hans hef-
ur verið saknað í viku.
Valgeir Elíasson, upplýsinga-
fulltrúi Slysavarnarfélagsins
Landsbjargar, segir að um 150
björgunarsveitarmenn hafi tekið
þátt í leitinni um helgina. Um 50
björgunarsveitarmenn frá 14
björgunarsveitum leituðu í gær á
sunnan- og norðanverðum Vest-
fjörðum. Tuttugu björgunarsveit-
arjeppar voru notaðir við leitina,
sem bar ekki árangur. Á laugar-
daginn var leitað allt frá Rangár-
vallasýslu og upp að Snæfellsnesi.
Samkvæmt áreiðanlegum vís-
bendingum sást til ferða jeppans í
Hrútafirði á þriðjudaginn. Síðan
hefur ekkert spurst til ferða hans.
Slysavarnafélagið biður þá sem
hafa orðið varir ferða jeppans að
hafa samband við Lögregluna í
Reykjavík. Jeppinn er árgerð
1982 með bílnúmerið U-3949.
MAGNÚS STEFÁNSSON
„Maður gat átt von á hverju sem
er í sjálfu sér.“
Prófkjör Framsóknar:
Úrslitin
komu ekki
á óvart
KOSNINGAR Magnús Stefánsson
þingmaður segist vera mjög sátt-
ur við niðurstöðu prófkjörs fram-
sóknarmanna í Norðvesturkjör-
dæmi. Hann er sammála Páli Pét-
urssyni félagsmálaráðherra um
að menn hafi kosið samkvæmt
gömlu kjördæmaskipaninni.
„Fyrirfram var mjög erfitt að
gera sér grein fyrir því hvernig
þetta myndi enda,“ sagði Magnús.
„Þetta kom mér samt ekkert endi-
lega á óvart, en maður gat samt
átt von á hverju sem er í sjálfu
sér.“
Aðspurður segist Magnús fyr-
irfram ekki gera tilkall til ráð-
herrastóls. Fyrst verði að koma í
ljós hvort Framsóknarflokkurinn
muni sitja áfram í ríkisstjórn eft-
ir kosningarnar.
„Við sjáum bara til hvernig
málin þróast.“
Kristinn H. Gunnarsson:
Ósáttur
við niður-
stöðuna
KOSNINGAR Kristinn H. Gunnars-
son þingmaður segist ekki vera
sáttur við niðurstöðu prófkjörs-
ins. Hann hefði viljað fá fyrsta
sætið líkt og hann hefði sóst eftir.
„Ég fékk mesta fylgið í fyrstu
kosningunni og hefði talist sigur-
vegari í flestum öðrum prófkjör-
um,“ segir Kristinn H. „Í seinni
kosningunni fóru menn að kjósa
gegn mér. Sérstaklega Skagfirð-
ingar sem ákváðu að styðja Magn-
ús og það réði úrslitum.“
Kristinn H. segir það ekki hafa
komið á óvart að Páll Pétursson
félagsmálaráðherra skyldi ekki
hafa náð kjöri.
„Mér fannst það fyrirséð. Tími
hans var kominn.“
Hann telur engan vafa á því að
Árni Gunnarsson, fyrrverandi að-
stoðarmaður ráðherra, hafi eyði-
lagt fyrir honum.
„Það er líka ljóst að það voru
einhver bandalög á milli Magnús-
ar og Árna. Þau hafa greinilega
bara haldið annan veginn, því
Árni fór tómhentur heim af þing-
inu.“
PÁLL PÉTURSSON
Félagsmálaráðherra segir að það liggi í
augum uppi að Árni Gunnarsson, fyrrver-
andi aðstoðarmaður hans, hafi komið í
veg fyrir áframhaldandi þingsetu sína.
Bílvelta á Sæbraut:
Tveir alvar-
lega slasaðir
LÖGREGLA Tveir menn liggja alvar-
lega slasaðir á gjörgæsludeild
Landspítalans í Fossvogi eftir bíl-
veltu við Laugarnestanga á mið-
nætti á laugardag. Annar mann-
anna er í öndunarvél. Tvennt ann-
að var í bílnum en þau sluppu mun
betur frá slysinu.
Fernt var í fólksbílnum sem
ekið var vestur Sæbraut. Þegar
kom að gatnamótunum við Laug-
arnesveg missti ökumaður vald á
bílnum, sem valt og endasentist
langt út fyrir veg. Slóð bílsins
utan vegar var um 180 metrar.
Hann fór meðal annars ofan í
skurð og upp úr honum aftur áður
en hann endaði á hvolfi.
Grunur leikur á að ökumaður-
inn hafi verið ölvaður. Hann er
sagður hafa sloppið einna minnst
slasaður frá óhappinu.
Fólkið sem var í bílnum er fætt
á árunum 1974 til 1980.
ÚRSLIT FYRSTU
UMFERÐAR UM 1. SÆTI:
Atkvæði
Kristinn H. Gunnarsson 147 33,95%
Magnús Stefánsson 112 25,87%
Árni Gunnarsson 76 17,55%
Páll Pétursson 61 14,09%
Þorvaldur T. Jónsson 37 8,55%
2. umferð:
Magnús Stefánsson 231 53,9%
Kristinn H. Gunnarsson 197 46,3%
LISTI FRAMSÓKNARMANNA:
1. Magnús Stefánsson
2. Kristinn H. Gunnarsson
3. Herdís Sæmundardóttir
4. Eydís Líndal Finnbogadóttir
5. Ingibjörn Árnason
6. Albertína Elíasdóttir
Kosið var um hvert sæti og þurfti
frambjóðandi að fá meira en 50% at-
kvæða til að hljóta kosningu.
LA CAFÉ
Dyravörður á LA Café missti tvær tennur eftir átök við óvelkominn gest í fyrrinótt.
Talsvert var um slagsmál í Reykjavík í fyrrinótt.
Sumar fréttastofur sáu samhengi milli þeirra og
hnefaleikasýningar í Laugardalshöll fyrr um kvöldið.
Gunnar I. Birgisson flutti frumvarp um hnefaleika
sem samþykkt var á Alþingi fyrr á árinu.
Það get ég ekki ímyndað mér, ekki frekar
en að horfa á karate. Þeir sem stunda þes-
sar íþróttir þurfa að gæta þess að fari ekki
með þær á torg. Það hafa verið byrjun-
arörðugleikar hjá öllum þessum íþróttum,
eins og karate og Tae Kwon Do, þegar þær
hafa byrjað hér. Menn verða að passa sig
að stunda íþróttina innan hringsins.
SPURNING DAGSINS
Hvetur keppni í hnefaleikum
til líkamsrása? Slagsmál í Reykjavík í fyrrinótt:
Tennur slegnar
úr dyraverði
RAUÐI JEPPINN
Slysavarnafélagið biður þá sem hafa orðið
varir ferða Isuzu Trooper-jeppans að hafa
samband við Lögregluna í Reykjavík. Jepp-
inn er árgerð 1982 með bílnúmerið
U-3949.
Vilhjálmur Egilsson:
Prófkjör
kært
KOSNINGAR Félagar í fulltrúaráðum
Sjálfstæðisfélaganna í Húnavatns-
sýslu og Skagafirði hafa óskað eftir
því að miðstjórn flokksins taki fyrir
framkvæmd prófkjörsins í Norð-
vesturkjördæmi, sem og úrskurð
kærunefndar. Niðurstaðan gæti
leitt til nýs prófkjörs í kjördæminu.
Vilhjálmur Egilsson þingmaður,
sem lenti í 5. sæti prófkjörsins, seg-
ir að miðstjórnin þurfi að kveða upp
úr um það hvaða áhrif þeir ann-
markar sem voru á prófkjörinu hafi
haft á úrslit þess. Hann segist von-
ast til að miðstjórnin bregðist skjótt
við.
„Þetta gengur ekki eins og þetta
er núna,“ segir Vilhjálmur. „Það
gengur ekki að það sé hægt að vinna
prófkjör með því að beita brögð-
um.“