Fréttablaðið - 18.11.2002, Side 10
10 18. nóvember 2002 MÁNUDAGURSVONA ERUM VIÐ
ALVARLEGUM
LÍKAMSÁRÁSUM FJÖLGAR
Skráðum líkamsmeiðingarmálum hefur
ekki fjölgað á undanförnum árum. Alvar-
legum líkamsárásum hefur hins vegar
fjölgað eins og sjá má.
Áhyggjufullir viðskiptavinir héldu að Brynja væri að hætta:
„Fólk var þrumu lostið“
VERSLUN Járn- og byggingavöru-
verslunin Brynja er ekki að
flytja úr miðborginni. Brynjólf-
ur Björnsson, eigandi Brynju,
segir að verslunin hafi verið á
Laugaveginum síðan 1919 og
ekkert fararsnið sé á mönnum.
Í Fréttablaðinu á miðviku-
daginn kom fram að samkvæmt
tillögu að nýju deiliskipulagi á
Laugaveginum væri heimilt að
rífa húsnæðið á Laugavegi 29,
en þar hefur Brynja verið til
húsa síðan 1929. Fyrstu árin var
verslunin annars staðar á
Laugaveginum. Brynjólfur
segir að eftir að fréttin birtist
hafi margir áhyggjufullir gaml-
ir viðskiptavinir lagt leið sína í
verslunina.
„Fólk var þrumu lostið,“ seg-
ir Brynjólfur. „Menn voru
hræddir um að verslunin væri
að flytja eða hætta. Það stendur
hins vegar ekkert slíkt til, enda
væri það ekki vel séð því þetta
er eina svona verslunin í mið-
borginni.“
Brynjólfur segist eiga lóðina
þar sem Brynja er og í raun sé
ágætt að vita að það megi rífa
núverandi húsnæði og byggja
nýtt. Hann segist vera mjög
sáttur við nýju deiliskipulagstil-
löguna. Miðborginni veiti ekki
af frekari uppbyggingu. Sér-
staklega megi taka til á baklóð-
um við Laugaveginn.
„Við verðum að eiga almenni-
lega miðborg. Við megum ekki
vera eins og Kaninn, bara með
verslunarmiðstöðvar í úthverf-
unum.“
BRYNJÓLFUR Í BRYNJU
„Við verðum að eiga almennilega miðborg.
Við megum ekki vera eins og Kaninn, bara
með verslunarmiðstöðvar í úthverfunum.“
NATO stækkar enn
Sjö fyrrverandi austantjaldsríki bætast væntanlega í hóp Natóríkjanna í þessari viku. Leiðtoga-
fundur Atlantshafsbandalagsins og samstarfsríkja þess hefst í Prag á fimmtudaginn.
ATLANTSHAFSBANDALAGIÐ Nú í vik-
unni er talið að Atlantshafsbanda-
lagið veiti sjö fyrrverandi austan-
tjaldsríkjum aðild. Þetta eru
Eystrasaltslöndin þrjú, Eistland,
Lettland og Litháen, ásamt
Búlgaríu, Rúmeníu, Slóvakíu og
Slóveníu.
Frá þessu verður gengið á leið-
togafundi bandalagsins, sem hald-
inn verður í Prag, höfuðborg
Tékklands. Fundurinn hefst á
fimmtudaginn og stendur fram á
laugardag.
Bandaríkjamenn hafa látið í
ljós efasemdir um að þrjú þessara
ríkja eigi það skilið að fá aðild að
Nató. Lettland og Búlgaría hafi
ekki staðið sig nógu vel við að
endurskipuleggja varnir sínar.
Slóvenía ekki heldur, auk þess
sem mikil andstaða mun vera
meðal íbúa Slóveníu við aðild að
Nató.
Engu að síður er talið að
Bandaríkin og önnur Natóríki hafi
fallist á að þessum sjö ríkjum
verði öllum boðin aðild að þessu
sinni.
Alls hefur því aðildarríkjun
Nató fjölgað úr 16 í 26 á rúmlega
þremur árum, fái þessi sjö ríki að-
ild núna. Vorið 1999 bættust þrjú
fyrrverandi austantjaldsríki í
hópinn, Pólland, Tékkland og
Ungverjaland.
Rússar voru lengi vel algjör-
lega á móti því að Eystrasaltsrík-
in þrjú og fleiri fyrrverandi aust-
antjaldsríki fengju aðild að Nató.
Þeir hafa þó ekki haft hátt um
andstöðu sína undanfarið, hvort
sem það er nú vegna þess að þeir
telji sig ekki hafa afl til að
standa gegn stækkun Nató eða
vegna þess að þeir beri meira
traust til Natóríkjanna en áður.
Á fundinum í Prag er mein-
ingin að einnig kynna stefnu-
breytingu í þá veru, að Nató taki
að sér veigameira hlutverk í bar-
áttunni gegn hryðjuverkamönn-
um, sem Bandaríkin hafa haft
forystu um.
Í kjölfar hryðjuverkanna í
Bandaríkjunum 11. september í
fyrra ákvað Nató að líta beri á
þessi hryðjuverk sem árás á eitt
af aðildarríkjum Nató og þar
með árás á öll aðildarríkin. Í
framhaldi af því var ákveðið að
endurskipuleggja hernaðarmátt
bandalagsins með hliðsjón af
þeirri nýju hættu sem talin var
stafa af hryðjuverkamönnum.
Nató ætlar af þessu tilefni að
stofna nýjar hersveitir, sem
eiga að geta brugðist snöggt við.
Þá verður kynnt sameiginleg
áætlun Natóríkjanna og sam-
starfsríkja þeirra um baráttu
gegn hryðjuverkum.
Ekki hefur verið einhugur
meðal Natóríkjanna um þessar
aðgerðir, frekar en stækkun
bandalagsins.
HERMAÐUR Í FLUGHER RÚMENÍU
Rúmenía og Búlgaría hafa þann kost í augum Nató, að eiga strönd að Svartahafinu.
AP/VAD
IM
G
H
IR
D
A
AP
/E
SR
I
Bannað að selja unglingum kveikjaragas:
Nota gas til að komast í vímu
LÖGEGLUMÁL Bannað er að selja
ungmennum undir 18 ára aldri
kveikjaragas. Hollustuvernd
ríkisins hefur sent frá sér ítrek-
un sem minnir á reglugerð, sem
sett var árið 1987, í kjölfar
ábendinga um að börn og ung-
lingar séu að sniffa kveikjara-
gas. Gasið er stórhættulegt og
vitað er um mörg alvarleg slys
og jafnvel dauða af völdum þess.
Umferðaróhapp sem varð á
Sauðárkróki síðustu helgi má
rekja til þess að ökumaður er
grunaður um að hafa sniffað
kveikjaragas. Fundust kveikj-
arabrúsar í og við bílinn. Bílnum
hafði verið ekið á miklum hraða
á gangbraut og hafnaði hann á
ljósastaur. Auk ökumanns voru
tvö önnur ungmenni í bílnum.
Björn Mikaelsson, yfirlög-
regluþjónn á Sauðárkróki, segir
umtalsverða söluaukningu hafa
verið undanfarnar viku á
kveikjaragasi. Staðfest sé að
unglingar hafi notað það til að
komast í vímu. Hollustuvernd
hafi sent honum reglugerðina og
búið sé að koma ljósriti til allra
þeirra sem selt hafi kveikjara-
gas.
KVEIKJARAGAS
Óheimilt er að selja kveikjaragas nema á bensínstöðvum samkvæmt reglugerð Hollustu-
verndar ríkisins.
HANS BLIX Á FLUGVELLINUM
Yfirmaður vopnaeftirlits Sameinuðu þjóð-
anna hélt í gær af stað áleiðis til Íraks.
Vopnaeftirlit SÞ:
Kemur til
Íraks í dag
VÍN, AP Tveir æðstu yfirmenn
vopnaeftirlits Sameinuðu þjóðanna
héldu í gær af stað frá Austurríki
áleiðis til Íraks til þess að undirbúa
vopnaeftirlitið þar. Þeir halda svo
til Íraks í dag ásamt 25 manna und-
irbúningssveit vopnaeftirlitsins.
Sjálft vopnaeftirlitið hefst þó ekki
af fullum krafti fyrr en 8. desem-
ber.
Hans Blix hefur yfirumsjón
með vopnaeftirlitinu. Mohamed El
Baradei stjórnar leit að kjarna-
vopnum. Báðir tóku þeir áætlunar-
flug í gær frá Vínarborg til Kýpur,
þar sem vopnaeftirlitið mun hafa
aðalbækistöðvar sínar.
Vopnaeftirlitinu í Írak á að ljúka
ekki síðar en 21. febrúar. Þá skilar
vopnaeftirlitið skýrslu til Öryggis-
ráðs Sameinuðu þjóðanna, sem tek-
ur svo ákvörðun um hvort frekari
aðgerða er þörf.
FÆSTIR SAKNA KEIKÓS Skoðana-
könnun Eyjafrétta á Netinu sýnir
að fjórðungur lesendanna saknar
háhyrningsins Keikós úr Vest-
mannaeyjum. Hinir sakna hans
ekki.
AP/RO
N
ALD
ZAK
INNLENT
SKRÁÐ LÍKAMSÁRÁSARMÁL Í
MÁLASKRÁ LÖGREGLU
1999-2000
Minniháttar1 Alvarleg 2 Alls
1999 1082 258 1340
2000 1134 297 1431
2001 1065 324 1389
Heimild: Ársskýrsla Ríkissaksóknara
1Brot á 217. grein hegningarlaga
2Brot á 218. grein hegningarlaga