Fréttablaðið - 18.11.2002, Síða 32
Ein helsta neysluvaran í nútíma-þjóðfélagi er fólk í fjölmiðlum.
Það hafa fæstir lengur tíma né af-
gangsorku til að umgangast fólk að
staðaldri utan vinnunnar og heimilin
eru orðin fámenn og tæknivædd.
Vinnufólk heyrir sögunni til og hefur
verið leyst af hólmi með traktorum
og heybindivélum til sveita og
ryksugum og þvottavélum í þéttbýl-
inu og gamlingjarnir komnir á hæli.
Maður er ekki lengur manns gaman,
heldur er fjölmiðillinn manns gaman
og um allt land sitja kjarnafjölskyld-
ur og góna á fjölmiðlafólk sem hefur
komið í stað gesta, ferðalanga og
flakkara og færir afþreyingu inn á
kvöldvökur heimilanna með spjalli,
frásögnum, söng eða hljóðfæraslætti.
ÞAÐ er að mörgu leyti þægilegt að
eiga fjölmiðlafólk í stað vina. Vinátta
getur verið erfið og krefjandi. Fjöl-
miðlafólkið gerir enga kröfu. Það
þarf hvorki að baka né búa um rúm
handa því, ekki einu sinni að hita
kaffisopa. Það kemur inn á heimilið
með bros á vör, stimamjúkt og kurt-
eist; það móðgast ekki þótt maður
geispi eða dragi ýsur og það er jafn-
vel hægt að slökkva á því þegar
manni sýnist.
ÞAÐ er ekki vandalaust að anna eft-
irspurn okkar eftir fjölmiðlafólki.
Annars vegar viljum við tilbreytingu
og hins vegar erum við íhaldssöm.
Það er hentugt rekstrarlega séð að fá
alltaf sama stjórnmálafræðinginn til
að birtast þegar Evrópumálin ber á
góma, landlækni þegar talað er um
heilsufar og sjávarútvegsráðherrann
til að tala um fisk í staðinn fyrir að
grafa upp nýtt og nýtt fólk. Eins er
það með viðtalsþætti, best að ræða
við fjölmiðlavant fólk og allrabest að
ræða við heimaræktað fjölmiðlafólk.
Þá fyrst er hægt að tala um sjálf-
bæra þróun.
ÞESS VEGNA sjáum við aftur og
aftur sömu andlitin og heyrum aftur
og aftur sömu sjónarmiðin og þess
vegna fögnum við því þegar fjöl-
miðlastorkurinn kemur með ný sjón-
varpsandlit til okkar, andlit sem eru
eins og sköpuð til að brosa glaðlega
við okkur næstu áratugina. Öll þjóðin
fékk á tilfinninguna að hún hefði
eignast yndislegan son þegar Gísli
Marteinn birtist einn góðan veður-
dag. Það var eins og skyndilega hefði
komið nýtt bragð af Bragakaffinu.
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 515 75 00, fax: 515 75 16 Ritstjórn: 515 75 05, fax: 515 75 06, ritstjorn@frettabladid.is
Auglýsinga- og markaðsdeild: 515 75 15 - fax 515 75 16, auglysingar@frettabladid.is Dreifing: 515 75 00, dreifing@frettabladid.is
VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 515 7500
Metsölubækur
barnanna
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
ED
D
1
93
99
1
1/
02
Sagan af furðufugli
Falleg myndabók um
fugl sem sannarlega er
ekki allur þar sem hann
er séður.
Fyndin og frumleg bók
sem gleður augað og
tilvalið að eldri systkini
skoðimeð þeim yngri.
Benedikt búálfur
í drekafylgd
Ný saga um Benedikt búálf
sem allir krakkar þekkja. Hér
segir frá æsispennandi ferð
Benedikts, Daða dreka og
mannsbarnsins Arnars Þórs
til drekabyggðarinnar í gjánni
miklu þar sem ýmiss konar
drekar leika lausum hala.
Bráðskemmtileg bók
„Skemmtileg og spennandi.“
Alexandra Jónsdóttir, kistan.is
„Gallsteinar afa Gissa er bráð-
skemmtileg bók fyrir börn á
öllum aldri og foreldra þeirra.“
Hildur Loftsdóttir, Mbl.
Íslensku
barnabókaverðlaunin
2002.
„Frásögnin er oft tilfinninga-
rík og lífleg á köflum, oft
fyndin ... Atburðarrásin er
fjölbreytt og vel til þess
fallin að hafa ofan af fyrir
lesendunum.“
Helga K. Einarsdóttir, Mbl.
„Listilega vel gerð“
„Ég mæli með Mörtu smörtu.“
Gunnar Hersveinn, Mbl.
„Sagan um Mörtu smörtu er
listilega vel gerð ... vel stíluð,
fyndin og þrungin mann-
eskjulegri hlýju.“
Silja Aðalsteinsdóttir, DV
Konungur háloftanna
Agnarlítill fjaðralaus dúfu-
ungi laumar sér inn í líf
fjörugrar fjölskyldu og
kemur þeim sannarlega oft
á óvart. Lygileg „en sönn“
saga sem Brian Pilkington
myndskreytir á sinn ein-
stæða hátt.
1. sæti
Bóksölukönnun október
2. sæti
Penninn/Eymundsson
barnabækur, 5. - 12. nóv.
4. sæti
Bókabúðir MM
barnabækur, 1. - 10. nóv.
3. sæti
Bókabúðir MM
barnabækur, 1. - 10. nóv.
6. sæti
Bókabúðir MM
barnabækur, 1. - 10. nóv.
www.edda.is
Tilboðsbók
mánaðarins
30%
afsláttur
5. sæti
Bókabúðir MM
barnabækur, 1. - 10. nóv.
Sjálfbær
þróun
Bakþankar
Þráins Bertelssonar