Fréttablaðið - 01.03.2003, Blaðsíða 28

Fréttablaðið - 01.03.2003, Blaðsíða 28
28 1. mars 2003 FÖSTUDAGUR LORD OF THE RINGSkl. 2 og 5.30 í lúxusSPY KIDS 2 kl. 1.40, 3.45 og 5.50. GANGS OF NEW YORK kl. 9 í Lúxus GANGS OF NEW YORK kl. 4.30, 8, 10.10 I SPY b.i. 12 ára kl. 2, 5.50 og 8 DIDDA OG DAUÐI KÖTTURINN JUWANNA MANN kl. 2, 4 og 6 LILO & STITCH kl. 1.50 GULLPLÁNETAN m/ísl.tali kl. 2 og 4 CATCH ME IF YOU CAN kl. 8 og 10 JACKASS b.i.14.ára kl. 8 SKÓGARLÍF 2 m/ísl.tali kl. 2, 4 og 6 TWO WEEKS NOTICE 5.50, 8, 10.10 Sýnd kl. 3, 5.30, 8, 10.20 b.i.16.ára 2, 5, 8 og 10CATCH ME IF YOU CAN kl. 2 og 4SKÓGARLÍF 2 m/ísl.tali kl. 2, 4 og 6DIDDA OG DAUÐI KÖTT... kl. 10.40IRREVERSIBLE e. texti b. 16 ára Sýnd kl. 2, 4, 6, 8 og 10 Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.15 b.i.16.ára kl. 3.50, 5.50, 8 og 10.10TWO WEEKS NOTICE Sýnd kl. 3.40, 5.50, 8 og 10.10 Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.15 b.i.16.ára Sýnd í lúxus kl. 5.45, 8 og 10.15 kl. 2 og 4 Athafnamaðurinn Ingvar Þórð-arson, sem búsettur hefur ver- ið í Englandi að undanförnu, hyggst framleiða kvikmynd í samvinnu við Júlíus Kemp sem fjallar um knattspyrnufélag homma í Reykja- vík. Handritið er skrifað af Jóni Atla Jónssyni og Robert Douglas en sá síðarnefndi mun leikstýra myndinni. Áður hefur Robert Douglas leikstýrt kvikmyndunum Íslenski draumurinn og Maður eins og ég en þessi mynd verður dýrari í framleiðslu en þær báðar til sam- ans. Hefur hún hlotið nafnið Strák- arnir okkar. Fjármögnun myndar- innar er vel á veg komin og hefjast tökur í sumar: Þó hér sé um gamanmynd að ræða á hún eflaust eftir að valda einhverri ólgu því hommar hafa hingað til ekki verið fyrirferðar- miklir í knattspyrnuheiminum. Þó er talið að tíundi hver maður sé hommi þannig að samkvæmt því ætti að vera einn hommi í hverju knattspyrnuliði. Grunnhugmynd myndarinnar er sú að þegar knatt- spyrnumaður kemur út úr skápn- um og fær ekki lengur að spila með stofnar hann sitt eigið lið og þá fara hlutirnir að gerast hratt. ■ ■ ■ SKEMMTANIR  20.00 Halli og Laddi verða í allra síðasta sinn með sýninguna Hætt-a- telja í Loftkastalanum. hvað?hvar?hvenær? 26 27 28 1 2 3 4 MARS Laugardagur  22.00 Sigurjón Kjartansson og Pétur Ding Dong með uppistand í Cactus, Grindavík.  22.00 Harmonikuball í Ásgarði, Glæsibæ.  23.30 Ball með SSSól á Gauki á Stöng.  Mannakorn, þeir Magnús Eiríksson og Pálmi Gunnarsson, spila á Kringlu- kránni í kvöld.  Á móti sól skemmtir á Champions Café.  Maus kynnir efni af væntanlegri plötu á tónleikum á Grandrokk.  Stórsveit Ásgeirs Páls í dansstuði á Gullöldinni.  Glymskrattarnir spila á Kaffi Strætó í Mjódd.  Valíum, þeir Hjörtur og Halli, skemmta á Ara í Ögri.  Frítt inn síðustu helgina á Sportkaffi. Kiddi Bigfoot í búrinu ásamt gestaplötu- snúðum.  Benni er mættur að nýju á skemmti- staðinn 22 við Laugaveginn.  Atli skemmtanalögga verður á Glaumbar.  Njáll leggur létta tónlist á fóninn á Kaffi Læk í Hafnarfirði.  Dj Þór Bæring og Júlli útvarpséní þeyta skífur á Vídalín.  Hljómsveitin Sixties skemmtir á Players í Kópavogi.  Danskir dagar á Fjörukránni. Danska bluegrasshljómsveitin Sine Bach Rüttel Band skemmtir.  Trúbadorarnir Máni og Jonni á Kránni, Laugavegi 73.  Land & Synir verða í Sjallanum á Akureyri. Fréttiraf fólki Djarft efnisval hjá íslenskum kvikmyndagerðarmönnum: Hommalið í fótbolta KNATTSPYRNUMENN Einn hommi í hverju liði ef marka má töl- fræði um fjölda samkynhneigðra. Fimm ára gamall sonur leikkon-unnar Julianne Moore, sem til- nefnd er til tveggja Óskars- verðlaun í ár, hefur víst verið afar iðin í því að tilkynna vinum sínum á leikskólanum að mamma hans hafi þegar unnið Óskarinn. Hann er afar stoltur af mömmu sinni og finnst hún gera allt of lítið úr til- nefningunum. Moore er tilnefnd fyrir leik sinn í myndunum „Far from Heaven“ og „The Hours“. Rokkvindar hafa blásið á móti ungum og efni-legum rokksveitum upp á síðkastið. Rokksen- an í framhaldsskólum er í tilvistarkreppu á sama tíma og hiphopp-senan blómstrar. Þetta þýðir þó á engan hátt að ekki sé nóg af frambærilegum ung- um rokksveitum í dag. Hraðasta leið ungra sveita upp á yfirborðið síð- ustu ár hefur verið í gegnum Músíktilraunir Tóna- bæjar. Þar virðist ekki skipta höfuðmáli að fara með sigur úr býtum því margar sveitir sem endað hafa í þremur efstu sætunum hafa látið á sér kveða seinna. Þar má sem dæmi nefna Strigaskó nr. 42, Tjalz Gizur (síðar Vínyll), 200 þúsund Nagl- bíta, Sign (þá Halim), Bisund og Stolía. Ókindarpiltar enduðu í öðru sæti í fyrra og nýttu þá 25 hljóðverstíma er þeir fengu að sigur- launum til þess að hljóðrita sína fyrstu breiðskífu, „Heims- endi 18“, sem kom út í gær. „Þetta er eiginlega safndiskur af því sem er búið að vera í gangi hjá okkur síðustu þrjú árin,“ segir Ingi Einar Jóhann- esson gítarleikari. „Elsta lagið er tveggja ára og nýjasta lagið splunkunýtt.“ Framtakssemin í þessum ungu mönnum er sér- staklega eftirtektarverð. Þeir unnu plötuna nánast alveg sjálfir, vinur þeirra hannaði umslagið, sem var prentað hér á landi, og diskurinn fjöldafram- leiddur ódýrt hér heima. Þrátt fyrir það er útgáf- an með glæsilegasta móti og ekki hægt að sjá að um heimalagaðan grip sé að ræða nema vel sé að gáð. „Það er svo mikið hark í þessu. Það er ekki auð- velt að fá samning,“ segir Ólafur Freyr Frímanns- son trommuleikari. „Útgefendur segja hljómsveit- um að þeir þurfi að fá að heyra meira, mæla svo með því að sveitirnar komi lagi í útvarpsspilun. Þá myndast vítahringur því útvarpsstöðvarnar taka ekki eins opnum örmum á móti sveitum sem ekki eru á útgáfusamningi hjá fyrirtæki.“ Félagarnir hrósa þó Rás 2 fyrir að vera hlið- holl „litla tónlistarmanninum“. Félagarnir bogna ekkert í baki þó á móti blási og segjast ekki hafa getað beðið lengur með útgáfu þar sem tími hafi verið kominn til þess að losa um og halda áfram niður tónstigann. „Við förum okkar eigin leiðir, bæði í tónlist og útgáfu,“ segir Ingi að lokum. Platan er nú fáanleg í 12 Tónum og Japis. Út- gáfutónleikar verða á Grand Rokk 20. mars. Heimasíða sveitarinnar er www.okind.tk. biggi@frettabladid.is ■ TÓNLIST Heimalöguð Ókind Hljómsveitin Ókind, sem lenti í öðru sæti Músíktilrauna í fyrra, lætur háa útgáfu- þröskulda hér á landi ekki stöðva sig. Út er komin fyrsta breiðskífa þeirra, „Heimsendi 18“, sem þeir unnu nánast alla upp á eigin spýtur. ÓKIND Ókind leikur tilraunakennt rokk, hefur náð að móta sinn eigin stíl og textar eru ljóðrænir, kæruleysislegir og gaman- samir. Liðsmenn segjast fylgjast vel með öðrum íslenskum sveitum. Rannsóknar- vinnuna nýta þeir sér svo til þess að átta sig í hvaða áttir sé best að fara. Jennifer Lopez settivíst allt á annan end- ann á hóteli í London þegar hún krafðist þess að vera bókuð í annað herbergi en búið var að ráðstafa henni. Ástæðan sem hún gaf var að herbergið hefði oft verið notað af fyrrum elskhuga hennar Puff Daddy og að hún gæti ekki hugsað sér að gista þar. Svo væri útsýnið hræðilegt. Hótel- stjórnin varð að endurskipuleggja allt fyrirkomulagið og biðja gesti vinsamlegast um að skipta um her- bergi. Engum datt í hug að biðja Lopez að slaka á kröfum sínum. Leikkonan Bridget Fonda, semlék meðal annars í „Single White Female“, er á spítala eftir að hafa keyrt Jagúar-bíl sínum fram af vegarkanti. Bifreiðin hafði runnið út af veginum í hellidembu. Hún meiddist á hálsi og höfði en er á batavegi. Talið er að hún losni af spítala um helgina. Pizza 67 Austurveri Háaleitisbraut 68 sími 800 6767 Allar pizzur á matseðli á 1.000 kr. sóttar + frítt hvítlauksbrauð fylgir með ef sótt er. Síðumúla 3-5 H e r r a n æ r f ö t

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.