Fréttablaðið - 06.03.2003, Blaðsíða 1

Fréttablaðið - 06.03.2003, Blaðsíða 1
EFNAHAGSMÁL Samdráttur í útflutningi bls. 8 Suðurgötu 10, 101 Reykjavík — sími 515 7500 Fimmtudagurinn 6. mars 2003 Tónlist 20 Leikhús 20 Myndlist 20 Bíó 22 Íþróttir 18 Sjónvarp 24 KVÖLDIÐ Í KVÖLD ALÞINGI. Á þingfundi sem hefst klukkan 10.30 verður rætt um mörk Suðvesturkjördæmis og Reykjavíkurkjördæmis suður. Þá verða fjáraukalög um aðgerðir í at- vinnu- og byggðamálum rædd, sem og frumvarp til laga um þriðju kynslóð farsíma. Kjördæmamörk rædd KÖRFUBOLTI Heil umferð verður leikin í Intersport-deildinni í körfu- bolta og hefjast leikirnir sex klukk- an 19.15. Grindavík, efsta lið deild- arinnar, mætir Hamri í Hveragerði. Haukar taka á móti KR, Keflavík leikur við Snæfell á heimavelli, Breiðablik sækir Njarðvík heim og Tindastóll ÍR. Þá mætast tvö neðstu lið deildarinnar, Valur og Skalla- grímur, í Valsheimilinu. Grindavík mætir Hamri FYRIRLESTUR Ný fyrirlestraröð um umhverfismál hefst klukkan 16.15 í VRII við Hjarðarhaga. Fyrsta fyr- irlesturinn heldur Dr. L. Donald Duke, dósent við umhverfisfræði- og umhverfisstjórnunarskor Suður- Flórídaháskóla í Tampa í Florída- ríki í Bandaríkjunum og Fulbright gistiprófessor við Umhverfisstofn- un Háskóla Íslands. Hann mun fjalla um hagnýtingu takmarkaðra náttúruauðlinda og vatnabúskap í Kaliforníuríki. Hagnýting náttúruauðlinda MYNDLIST Gerir hljóðið sýnilegt FIMMTUDAGUR 55. tölublað – 3. árgangur bls. 30 AFMÆLI Bjóða til veislu bls. 20 FÓTBOLTI bls. 6 Vill verða stjóri United BANDARÍKIN Beinir augum að forsetastól bls. 18 REYKJAVÍK Austlæg átt, 5-10 og skýjað með köflum á morgun. Hiti 2 til 7 stig. VEÐRIÐ Í DAG VINDUR ÚRKOMA HITI Ísafjörður 13-18 Smá él 2 Akureyri 8-13 Slydda 3 Egilsstaðir 8-13 Slydda 3 Vestmannaeyjar 8-13 Bjart 5 ➜ ➜ ➜ ➜ + + + + NOKKRAR STAÐREYNDIR UM MEÐALLESTUR FÓLKS Á ALDRINUM 12 TIL 80 ÁRA Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU ER 69,6% SAMKVÆMT FJÖLMIÐLAKÖNNUN GALLUP Í OKTÓBER 2002. Fr é tt a b la ð ið M o rg u n b la ð ið Meðallestur 25 til 49 ára samkvæmt fjölmiðlakönnun Gallup frá október 2002 28% D V 80.000 eintök 70% fólks les blaðið Hvaða blöð lesa 25 til 49 ára íbúar á höfuðborgar- svæðinu á fimmtu- dögum? 53% 72%            !"# $% &'()*  ALÞINGI Frumvarp til laga um byggingu álvers á Reyðarfirði var afgreitt sem lög frá Alþingi í gær með 41 atkvæði gegn 9. Fjarver- andi voru 12 og einn sat hjá. Katrín Fjeldsted var eini þingmaður stjórnarliða sem greiddi atkvæði gegn frumvarpinu og það gerðu einnig þingmenn Vinstrihreyfing- arinnar – græns framboðs. Allir þingmenn Samfylkingarinnar samþykktu frumvarpið nema þær Rannveig Guðmundsdóttir og Þór- unn Sveinbjarnardóttir. Þingmað- ur Frjálslynda flokksins sat hjá. Tillaga frá Steingrími J. Sigfús- syni, formanni Vinstri grænna, um þjóðaratkvæðagreiðslu var áður felld með 35 atkvæðum gegn 6. Valgerður Sverrisdóttir iðnað- arráðherra sagði að það hefði ver- ið einstök upplifun að hafa fengið að vera þátttakandi í því gríðar- lega undirbúningsstarfi sem álver krefðist. Hún væri stolt af hæfni íslenskrar stjórnsýslu, starfs- manna Landsvirkjunar og verk- fræðistofa, sem hefði gert það að verkum að markmið hafi náðst. Kolbrún Halldórsdóttir, þing- maður Vinstri grænna, sagði með- al annars að þjóð og þing hefðu staðið frammi fyrir afarkostum í málinu. Ekki hefði verið gerð til- raun til að meta verðgildi náttúr- unnar, allt væri falt og afhent er- lendum auðhring á silfurfati. Andstæðingar framkvæmd- anna fjölmenntu á þingpalla og var nokkuð um klapp og baul þegar þingmenn gerðu grein fyrir at- kvæði sínu. Þeir sem lýstu sig and- snúna fengu klapp en hinir baul. Af þeim sökum sá forseti ástæðu til að áminna gesti um að sýna Al- þingi viðeigandi virðingu. „Þetta er sorgardagur,“ var kallað af þingpöllum. Eftir að frumvarpið varð að lög- um var frumfluttur á Austurvelli sorgarmars eftir Björgvin Gísla- son. ■ LÖG UM ÁLVERKSMIÐJU Á REYÐARFIRÐI SAMÞYKKT Ögmundur Jónasson þungur á brún. Fyrir framan hann eru Þórunn Sveinbjarnardóttir, annar tveggja þingmanna Samfylk- ingar sem greiddu atkvæði gegn lögunum, og Karl Matthíasson, einnig Samfylkingunni. Alþingi samþykkti álverið: Klappað og baulað SJÁVARÚTVEGUR „Ég er auðvitað ánægður með að vera sýknaður. Samt stöðvuðu þeir bátinn í hálf- an annan mánuð og sviptu mig at- vinnunni,“ segir Kolbeinn Hlynur Tómasson, fyrr- verandi stýrimað- ur á Báru ÍS 364, sem ásamt skipsfé- lögum og útgerð var kærður fyrir brot á lögum um umgengni sjávarnytja í kjölfar þess að myndir birtust í Sjón- varpinu af brottkastinu. Kolbeinn hefur nú fengið um það bréf frá embætti ríkislögreglustjóra að fallið hafi verið frá rannsókn á máli hans. Myndatökumenn Sjónvarpsins og Morgunblaðsins fóru í sjóferð með Báru í nóvember 2001 og mynduðu það sem gerðist í róðr- inum. Einnig voru þeir um borð í Bjarma ÍS þar sem þeir mynduðu brottkast skipverjanna. Magnús Þór Hafsteinsson fréttamaður og Friðþjófur Helgason myndatöku- maður stóðu fyrir umfjölluninni, sem vakti gríðarlega athygli. Sjávarútvegsráðherra véfengdi að þarna væri um raunverulegt brottkast að ræða og taldi að um sviðsetningu hefði verið að ræða. Ráðherrann var dæmdur fyrir þau orð sín. „Ég sagði við yfirheyrslur að þetta hefði verið skemmdur fisk- ur og þeir gátu ekki hrakið það. Það var ekkert á myndum sem sýndi að lögbrot hefði verið framið. Ég vil taka skýrt fram að allt var með hefðbundnum hætti í sjóferðinni og því ekki um neinar falsanir að ræða. Umræðan eftir að myndirnar voru sýndar voru af ýmsu tagi. Okkur var meðal annars líkt við fíkniefnasala vegna þessa brottkasts. Það er gott að þetta er að baki og ég hef verið sýknaður. Ég mun nú kanna rétt minn til skaðabóta,“ segir Kolbeinn. Fréttablaðið hefur ekki heim- ildir fyrir því hvort fallið hafi verið frá rannsókn á málum út- gerða Bjarma ÍS og Báru ÍS en báðir útgerðarmennirnir hafa lýst því yfir að þeir muni sækja bætur á hendur ríkinu vegna þess að skipin voru á sínum tíma svipt veiðileyfum. Þær kröfur á hendur sjávarútvegsráðuneytinu munu nema tugum milljóna króna að teknu tilliti til tjóns út- gerðanna. rt@frettabladid Sýknaður af brottkasti Stýrimaður Báru ÍS mun krefjast bóta vegna þess að báturinn var sviptur veiðileyfi. Brottkast- málið gæti kostað ríkissjóð tugmilljónir króna. „Okkur var meðal annars líkt við fíkni- efnasala.“ KOLBEINN TÓMASSON Sýknaður í frægu brottkastsmáli. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V IL H EL M

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.