Fréttablaðið - 07.05.2003, Blaðsíða 22
Efnið í pottinn: Hænsnanet,5mm stálþræðir, sandur, sem-
ent og málning. Hversu miklum
tæknibúnaði og umgjörð er bætt
við fer eftir hverjum og einum.
Steypa er þess eðlis að hægt er að
forma hana að ósk hvers og eins,
svo hugarflugið getur ráðið, en
hér eftir fylgir uppskrift að ein-
um heitum potti.
1. Veljið stað fyrir heita pott-
inn. Betra er að byrja að rissa upp
á blað hvernig afstaða hlutanna
er. Í byggingareglugerð er heiti
potturinn kallaður setlaug og vert
er að sækja um leyfi til bygging-
aryfirvalda. Í reglugerðinni er
sagt að barmur setlaugar skuli
vera a.m.k. 40 cm yfir göngu-
svæði umhverfis hana. Einnig eru
ákvæði um öryggi sem vert er að
fara yfir. Ekki viljum við brenna
börnin okkar.
2. Útvegið efni og áhöld.
Áhöld sem þið eigið ekki má taka
á leigu. Efnið fæst í bygginga-
vöruverslunum.
3. Grafið fyrir potti og lögn-
um. Tækin eru haki, skófla og
hjólbörur, sem gefur líkamsrækt í
leiðinni, eða lítil skurðgrafa fyrir
þá sem vilja borga fyrir líkams-
ræktina annars staðar.
4. Leggið lagnir sem þarf inn
undir pottinn. Hér voru notuð
PVC-rör með límdum samskeyt-
um sem fást í Vatnsvirkjanum.
5. Með jarðvegi, einangrun
og krossviði er lag pottsins mótað.
Ferrósteypan sjálf er aðeins um
ein tomma á þykkt svo formið
verður nánast eins og mótið.
6. Mótið er klætt tveimur til
þremur lögum af hænsnaneti.
Netið er fest með heftibyssu í
krossviðinn. Þá eru bundnir með
bindivír og snellu 5 mm teinar í
7. maí 2003Hús og garðar4
Gerðu þinn eigin pott sjálfur:
Heitur pottur
úr ferrósteypu
Hallgrímur Axelsson
verkfræðingur ráðleggur
lesendum um hvernig hægt er
að gera heitan pott í garðinum.
NEÐSTI HLUTI MÓTSINS STILLTUR
Síðan er möl mokað að.
EFRI HLUTI MÓTSINS
Kominn á sinn stað.
HÆNSNANETIÐ
Þarf að hefta fast.
PÁSA
Litið upp út járnabindingunni.