Fréttablaðið - 09.05.2003, Síða 2
2 9. maí 2003 FÖSTUDAGUR
„Ég segi alltaf sannleikann en svo
snúa menn misjafnlega út úr.“
Haft hefur verið eftir Stefáni Jóni Hafstein, og vitn-
að í útvarpsviðtal, að hann vilji láta bjóða allan
kvótann út á heimsvísu.
Spurningdagsins
Stefán Jón, varstu kannski að segja
sannleikann?
■ Bráðalungnabólgan
Fjölmiðlar á Norðurlöndunum fjalla um kosningarnar á Íslandi:
Evrópusambandið þagað í hel
KOSNINGAR Úrslit þingkosninganna
á Íslandi gætu haft talsverða þýð-
ingu fyrir Norðmenn, að mati
norska ríkisútvarpsins. Í grein á
vef NRK, þar sem fjallað er ítar-
lega um kosningarnar, er vakin at-
hygli á því að hugsanlegt sé að hér
á landi komist til valda flokkur
sem er fylgjandi aðild að Evrópu-
sambandinu. Þar sem Norðmenn
og Íslendingar hafi að stórum
hluta til sömu hagsmuna að gæta
gagnvart sambandinu geti þetta
haft mikil áhrif á þróun mála í
Noregi.
Greinarhöfundur NRK lýsir þó
undrun sinni á þeirri staðreynd
hversu lítið hefur verið rætt um
aðild að Evrópusambandinu í
kosningabaráttunni. Kollegi hans
hjá finnska dagblaðinu
Hufvudstadsbladet tekur í sama
streng en leggur þó meiri áherslu
á valdabaráttu Davíðs Oddssonar
og Ingibjargar Sólrúnar. Í grein
blaðsins er rætt við Jón Baldvin
Hannibalsson, sendiherra Íslands
í Finnlandi.
„Stjórnarflokkarnir eru að
sækja í sig veðrið sem bendir til
þess að stjórnarskipti séu ekki í
vændum,“ segir Jón Baldvin.
Sendiherrann telur líklegt að
framhald verði á samstarfi Sjálf-
stæðisflokks og Framsóknar-
manna ef flokkarnir haldi meiri-
hluta sínum á þingi. Hann hefur
litla trú á því að Samfylkingin og
Sjálfstæðisflokkurinn muni reyna
að mynda ríkisstjórn. „Samfylk-
ingin stefnir að því að koma nú-
verandi ríkisstjórn frá völdum og
sækist ekki eftir samstarfi við
stjórnarflokkana. Ekkert er þó
útilokað,“ segir Jón Baldvin. ■
Árni Magnússon vonar að Framsókn nái kjörfylgi:
Einstaklega skemmtileg kosningabarátta
STJÓRNMÁL. „Dagurinn leggst mjög
vel í okkur,“ sagði Árni Magnússon,
annar maður á lista Framsóknar-
flokksins í Reykjavík norður að-
spurður um kosningadaginn. „Þetta
er búin að vera einstaklega
skemmtileg kosningabarátta. Mikil
gleði og stemmning í okkar röðum.
Dagarnir hafa verið strangir, maður
vaknar við fyrsta hanagal og sofnar
við fyrsta hanagal. Þetta eru nátt-
úrulega mikil læti en þannig á það
líka að vera.
„Allar okkar kosningaskrifstof-
ur eru opnar upp á gátt, þar verða
hnallþórur á borðum, tertur,
brauðtertur og pönnukökur, allt
sem nöfnum tjáir að nefna fyrir alla
sem hafa áhuga og vilja kíkja. Svo
grillum við ofan í gesti og gangandi
og reynum bara að skapa skemmti-
lega sumarstemningu.
„Það er mjög misjafnlega gaman
að kosningabaráttum en það sem
stendur upp úr núna, að minnsta
kosti hér í Reykjavík, er hversu
mikið við sjáum af ungu fólki í
framboði. Mikil endurnýjun hefur
verið í flokknum, sérstaklega fyrir
þessar kosningar. Þetta er ungt fólk
með brennandi áhuga og áhuginn
smitar út frá sér í allan hópinn.
„Svo bara bíðum við og sjáum
hvað kemur upp úr þessum kjör-
kössum áður en við veltum stjórn-
armyndun fyrir okkur. Ef ríkis-
stjórnin fellur blasir það við að fara
þarf aðrar og nýjar leiðir við mynd-
un nýrrar stjórnar. Við erum búin
að lýsa yfir að við erum tilbúin í það
ef við fáum góða kosningu. Per-
sónulega vona ég að okkur takist nú
að komast kjörfylgi okkar, um eða
yfir 18 prósent.“ ■
Selfoss:
Reyndu að
stela humri
LÖGREGLUMÁL Tveir menn voru
handteknir eftir að hafa brotist inn
í fiskvinnslufyrirtæki í Þorláks-
höfn aðfaranótt miðvikudagsins.
Innbrotsþjófarnir höfðu brotið
sér leið inn í frystigeymslu og tek-
ið til nokkurt magn af humri sem
þeir ætluðu að stela. Vaktmaður
öryggisfyrirtækis sá mennina
koma út úr húsinu og inn í bíl. Lét
hann strax lögreglu vita. Lögregl-
an í Reykjavík handtók mennina
síðan á Breiðholtsbraut. Við yfir-
heyrslu viðurkenndu mennirnir
innbrotið. Að auki viðurkenndu
þeir að hafa reynt innbrot á Eyrar-
bakka og Stokkseyri. ■
STJÓRNMÁL „Ég mæti klukkan átta
og er sendur hingað og þangað á
fundi og í dreifingu,“ segir Atli
Gíslason lögmaður sem er annar
maður á lista Vinstri grænna í
Reykjavík norður.
„Yfirleitt reyni ég að fara á
staði sem standa mér nær en aðr-
ir. En ég fer á alla mögulega staði;
skóla, öldrunar-
stofnanir og
fiskiver. Á
morgun (í dag)
fer ég á
skemmtilegan
fund hjá kaup-
mönnunum á
horninu í versl-
uninni Kjötborg
aftan við elli-
h e i m i l i ð
Grund,“ segir Atli.
Fylgi Vinstri grænna hefur
mælst nokkuð stöðugt um og und-
ir 10% í fylgismælingum undan-
farið.
„Það er kannski klisja en mér
finnst ég finna fyrir miklu betri
stemmningu en mælist í könnun-
um. Við fáum mjög fínar viðtökur
alls staðar þar sem við komum og
það er mjög mikið rennsli á kosn-
ingaskrifstofunni. Við höldum
okkar striki. Við erum með mál-
efnin á hreinu og erum hress og
glöð,“ segir Atli, sem segist vera
að taka þátt í flokkspólitísku starfi
í fyrsta skipti og oft vera slæptur
þegar hann kemur heim seint að
kvöldi. Hann hafi þó afar gaman af
kosningabaráttunni sem lýkur í
dag.
„Þetta er síðasti dagurinn og þá
verð ég á ferðinni frá því klukkan
átta að morgni fram undir klukkan
sjö. Þá fer maður og horfir á for-
ingjaeinvígið í sjónvarpinu. Það
markar endalokin á kosningabar-
áttunni,“ segir Atli sem hefur
hugsað sér að nota kjördaginn
sjálfan til að hugsa um fjölskyld-
una sem lengi hafi verið vanrækt.
„Þetta er ekki eingöngu
skemmtilegt. Stundum dettur
maður niður í þunglyndi en rífur
sig þá bara upp. Maður þarf allaf
að vera í stuði; alveg gráupplagð-
ur að hitta alls kyns ólíkt fólk,“
segir frambjóðandinn.
Að sögn Atla hefur kosninga-
baráttan verið honum ómetan-
legur lærdómur:
„Það besta hefur verið að
kynnast unga og skemmtilega
fólkinu sem ber starfið uppi. Og
maður lærir mikið af vinnu-
staðafundunum. Þetta hefur
verið einn allsherjar skóli. Best
er þegar fólk er ósammála
manni – þá getur maður skipst á
skoðunum.“
gar@frettabladid.is
YFIR 500 FALLNIR Í VALINN Að
minnsta kosti 507 manns hafa lát-
ist af völdum bráðalungnabólg-
unnar um heim allan og um 7.000
eru smitaðir. Sjúkdómurinn hefur
komið hvað harðast niður á íbú-
um Kína. Skráð dauðsföll þar í
landi eru yfir 220 og að minnsta
kosti 4.700 eru smitaðir.
ÁÆTLUÐ DÁNARTÍÐNI TVÖFÖLD-
UÐ Með hliðsjón af niðurstöðum
nýrra rannsókna hækkaði Al-
þjóðaheilbrigðisstofnunin áætl-
aða dánartíðni bráðalungnabólg-
unnar úr sex til tíu prósentum í
fjórtán til fimmtán prósent.
RÁÐIST Á HEILBRIGÐISSTARFS-
MENN Æstur lýður gerði aðsúg
að heilbrigðisstarfsmönnum og
velti sjúkrabíl um koll í þorpi í
norðanverðu Kína. Sá orðrómur
hafði komist á kreik að heilsu-
gæslustöð í þorpinu yrði notuð
sem sjúkrahús fyrir sjúklinga
smitaða af bráðalungnabólgu.
Yfir 120 her- og lögreglumenn
voru kallaðir til til að kveða niður
ólætin.
HNEIGINGAR Í STAÐ HANDA-
BANDA Kínversk yfirvöld hafa
beint þeim tilmæl-
um til meðlima
Kommúnistaflokks-
ins að þeir láti
tímabundið af þeim
gamla sið að takast
í hendur og hneigi
sig þess í stað. Er
þetta liður í því að
hefta útbreiðslu
bráðalungnabólgunnar.
FERÐAMENN ÓVELKOMNIR Heil-
brigðisyfirvöld á Grikklandi hafa
ráðlagt ferðaþjónustuaðilum að
taka ekki við pöntunum frá Kína
eða öðrum Asíulöndum þar sem
bráðalungnabólgan hefur skotið
rótum. Einnig hefur verið ákveð-
ið að herða til muna eftirlit með
flugfarþegum á grískum flugvöll-
um.
EKKI LÁTIN GJALDA STUÐNINGS
Georgi Parvanov, forseti Búlgar-
íu, fór þess á leit við Evrópusam-
bandið að þjóð hans yrði ekki lát-
in gjalda stuðnings hennar við
Bandaríkjamenn þegar kemur að
innlimun nýrra ríkja í sambandið
2007. Kemur þetta eftir að nokk-
ur ríki innan sambandsins gagn-
rýndu Búlgara fyrir undirlægju-
hátt frammi fyrir Bandaríkjun-
um. Búlgaría og Rúmenía eiga
enn í viðræðum við stjórn sam-
bandsins og er hvorugt ríkjanna
meðal þeirra sem fá inngöngu á
næsta ári.
DAVÍÐ ODDSSON
Óttast að vera of lengi í embættinu.
Þýskt tímarit ræðir við
Davíð Oddsson:
Vill hætta
fyrir sextugt
STJÓRNMÁL „Ég get ekki hugsað
mér að vera ennþá í stjórnmálum
þegar ég er orðinn sextugur,“ seg-
ir Davíð Oddsson í viðtali við
þýska tímaritið Der Spiegel. „Ég
óttast að vera of lengi í embættinu
og hef áhyggjur af því að það
drepi niður hjá mér sköpunargáf-
una.“
Í greininni í Spiegel, sem birt-
ist á vefsíðu tímaritsins á mið-
vikudaginn, er fullyrt að Davíð
hyggist helga líf sitt skáldskapn-
um ef hann tapi í kosningunum á
morgun.
Fjallað er vítt og breitt um fer-
il Davíðs í greininni, sem skrifuð
er í tilefni af kosningunum hér á
landi. Meðal annars er minnst á
átök Davíðs og Ingibjargar Sól-
rúnar Gísladóttur og vináttu hans
við Kára Stefánsson. ■
ATLI GÍSLASON
Atli Gíslason var í Spönginni í Grafarvogi í gær að kynna málefni Vinstri hreyfingarinnar
græns framboðs. „Maður þarf allaf að vera í stuði; alveg gráupplagður að hitta alls kyns
ólíkt fólk,“ segir frambjóðandinn.
„Best er
þegar fólk er
ósammála
manni - þá
getur maður
skipst á skoð-
unum.“
Alltaf að vera
gráupplagður
Atli Gíslason mætir á kosningaskrifstofu Vinstri grænna að morgni og
fær fyrirmæli um verkefni dagsins. Hann endar kosningabaráttuna á að
fylgjast með sjónvarpseinvígi foringjanna í kvöld.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T
JÓN BALDVIN HANNIBALSSON
Í finnska dagblaðinu Hufvudstadsbladet er
fjallað um komandi þingkosningar á Ís-
landi og leitað álits hjá íslenska sendiherr-
anum í Helsinki.
HÖFUÐSTÖÐVAR FRAMSÓKNAR
Árni segist aldrei hafa haft jafn gaman af neinni kosningabaráttu.
■ Evrópa