Fréttablaðið - 12.05.2003, Side 13
MÁNUDAGUR 12. maí 2003
Árni Magnússon:
Áframhald fyrsti
kosturinn
KOSNINGAR Það skýrðist ekki fyrr
en um hálftíuleytið í gærmorgun
hvort Árni Magnússon, frambjóð-
andi Framsóknarflokksins í
Reykjavík norður, væri inni eða
úti.
„Ég var vakinn um sjöleytið af
því að þá var ég inni, en svo datt ég
út meðan ég var að nudda stírurn-
ar úr augunum,“ segir Árni hlæj-
andi. „Svo vakti ég auðvitað þang-
að til þetta var klárt,“ segir þing-
maðurinn nýi, sem mun setjast á
þing í haust.“Þetta verður spenn-
andi, og greinilegt að ríkisstjórnin
heldur. Mér finnst það hljóti að
vera fyrsti kosturinn að stjórnar-
flokkarnir ræðist við og athugi
hvort grundvöllur er fyrir áfram-
haldandi samstarfi. Þetta er fimm
manna meirihluti svo það er engin
spurning að það yrði fyrsti kostur-
inn. Ef það gengur hins vegar ekki
er ómögulegt að spá um framhald-
ið á þessari stundu.“ ■
Dagný Jónsdóttir:
Viljum forsætis-
ráðuneytið
KOSNINGAR „Ég er bara alveg í
skýjunum,“ segir Dagný Jóns-
dóttir, ný þingkona framsóknar-
manna í Norðausturkjördæmi.
„Þetta var framar björtustu von-
um og ég er enn að ná áttum,“
segir hún hlæjandi, en hún var
farþegi í bíl á leið frá Eskifirði til
Akureyrar þegar blaðamaður
náði tali af henni um hádegisbil í
gær, og að sjálfsögðu ekkert farin
að sofa. „Mér líður alveg stór-
kostlega, en er ekkert farin að
spá í framhaldið. Mér sýnist það
hins vegar morgunljóst að við
munum gera kröfu um forsætis-
ráðherrann. Við erum ótvíræðir
sigurvegarar,“ segir Dagný, sem
stóð aldrei tæpt og var örugg inn
strax þegar fyrstu tölur birtust.
Dagný mun vera yngsta konan
sem situr á þingi næsta kjörtíma-
bil. „Ég hlakka ósegjanlega til að
takast á við þetta verkefni,“ segir
hún fagnandi. ■
ÁRNI MAGNÚSSON
Var að nuddar stýrurnar úr augunum þegar
hann datt út af þingi. Tveimur tímum
seinna var hann hins vegar inni.
DAGNÝ JÓNSDÓTTIR
Er alveg í skýjunum og hlakkar til að hefja
þingstörf. Hún er yngsta konan á þingi
næsta kjörtímabil.
KOSNINGAR Af þeim 63 þingmönnum
sem unnu sér sæti í alþingiskosn-
ingunum 1999 sneru aðeins 43 aftur
að kosningunum á laugardag lokn-
um. 20 þingmenn, nær einn af
hverjum þremur, hurfu á brott. Níu
féllu í kosningunum, þrír féllu í
prófkjörum og tóku ekki sæti á
lista, þrír gáfu ekki kost á sér aftur
og fimm höfðu látið af starfi á kjör-
tímabilinu.
Níu þingmenn Sjálfstæðisflokks-
ins áttu ekki afturkvæmt. Sömu
sögu er að segja af fimm Framsókn-
armönnum, fjórum Samfylkingar-
mönnum og sitt hvorum þingmanni
Frjálslynda flokksins og Vinstri
grænna.
Átján nýliðar unnu sér sæti á
Alþingi á laugardag, sumir reynd-
ar með reynslu sem varaþing-
menn. Samfylkingin skilaði sjö ný-
liðum á þing, Sjálfstæðisflokkur-
inn fimm, Framsókn og Frjálslynd-
ir þremur hvor. Eini flokkurinn
sem fékk engan nýjan þingmann
kjörinn er Vinstrihreyfingin –
grænt framboð. ■
Vestmannaeyjar:
17 ára stúlka
lést í bílslysi
LÖGREGLUMÁL Sautján ára stúlka
lést í bílslysi í Vestmannaeyjum
í fyrrinótt eftir að bíll sem hún
var farþegi í hafnaði á steinvegg
við Steypustöðina í Vestmanna-
eyjum á Strandvegi.
Lögreglu var tilkynnt um
slysið klukkan 01.18 um nóttina.
Í bílnum voru þrjár sautján ára
stúlkur. Kalla þurfti til tækjabíl
Slökkviliðs Vestmannaeyja til að
losa eina stúlkuna úr bílnum.
Stúlkurnar þrjár voru allar flutt-
ar á Sjúkrahús Vestmannaeyja.
Skömmu síðar var stúlkan úr-
skurðuð látin. Hinar tvær voru
fluttar alvarlega slasaðar með
þyrlu Landhelgisgæslunnar á
Landspítala í Reykjavík. Að sögn
vakthafandi læknis gekkst önn-
ur stúlkan undir aðgerð í gær-
morgun og er líðan hennar eftir
atvikun. Hin stúlkan er meira
slösuð og er haldið sofandi í önd-
unarvél.
Lögreglan í Vestmannaeyjum
rannsakar nú aðdraganda slyss-
ins. ■
Endurnýjun hefur verið mikil í flestum þingflokkum:
Þriðjungur horfinn á braut
Fréttablaðið er mest lesna dagblað landsins* og prentað í 92.000 eintökum.**
*samkv Fjölmiðlakönnun Samtaka íslenskra auglýsingastofa, Samtaka auglýsenda og fjölmiðlanna.
**Fréttablaðið er aðili að upplagseftirliti Verslunarráðs Íslands.
Ferðir innanlands 2003
Auglýsendur athugið:
Dreift með Fréttablaðinu, mest lesna dagblaði landsins, í 92.000 eintökum.
Hafið samband við auglýsingadeild Fréttablaðsins í síma 515 7584 eða 515 7500
fyrir 2. júní eða með tölvupósti: petrina@frettabladid.is.
Fylgir Fréttablaðinu 4. júní.
Hagnýtar upplýsingar fyrir þá sem ætla að ferðast
innanlands í sumar. Gisting, matur, afþreying, fróðleikur
og skemmtun um land allt.