Fréttablaðið - 13.05.2003, Blaðsíða 22

Fréttablaðið - 13.05.2003, Blaðsíða 22
ÞRIÐJUDAGUR 13. maí 2003 23 SÍMI 553 2075 Sýnd kl. 4, 6.30, 9 JOHNNY ENGLISH kl. 6, 8 og 10.10 kl. 8 og 10 Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.10 b.i. 14 ára Sýnd kl. 5.20, 8 og 10.40 b.i.14.ára THE HOURS b.i. 12 kl. 5.30 MAID IN MANHATTAN kl. 8 Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.20 b.i. 16 ára SHANGHAI KNIGHTS kl. 4 TILBOÐ 400ABRAFAX OG SJÓRÆN. CONFESSIONS b.i. 14 kl. 10.20 Sýnd kl. 4, 5,30, 8, og 10.15 b.i. 16 Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30 b.i. 12 ára BOWLING FOR... kl. 5.40, 8 og 10.20 Verslun fyrir konur, Mjódd, sími 557 5900 Vordagar í Mjódd Galla-, tencel- og hörlína frá Jensen! Einnig úrval af kvartbuxum, síðum buxum, bolum, mussum og fleiru á frábæru verði á vordögum. Verið velkomnar sími 557 3380 Vordagar í Mjódd Í tilefni af vordögum bjóðum við 20% afsl. af völdum vörum, eigum einnig úrval af fatnaði í hermannalitunum. Verið velkominn Steven Bing, sem hann segir hafa neitað sér um hlutverk vegna skoðana hans í Íraksdeilunni. Penn var mótfallinn árás og gerði allt í sínu valdi til þess að koma skoðun- um sínum á framfæri. Samkvæmt Penn hafði hann samþykkt að leika í gamanmyndinni „Why Men Shouldn’t Marry“ en framleiðand- inn hætti við vegna skoðana hans á stríðs- málum. Penn krefst þess að fá 10 milljón dollara í skaðabætur. Framleið- andinn segir hins vegar að Penn hafi ekki verið búinn að ganga frá samningum. KVIKMYNDIR Matrix-framhaldsmynd- irnar tvær, The Matrix Reloaded og The Matrix Revolution, voru teknar í einum rykk á 211 dögum í Ástralíu. Aðalleikarinn Keanu Reeves er að eigin sögn búinn að fá sig fullsaddan af dvölinni í landi andfætlinganna og nennir því ómögulega að leggja á sig ferðalag þangað til þess að vera viðstaddur frumsýningu myndarinnar. Hann segir að það hafi tekið svo á að leika í myndunum tveimur að hann sé alveg búinn að vera og vilji fá hvíld auk þess sem hann hafi saknað heimahaganna og ættingja og vina í Bandaríkjunum verulega. Hann mætti hins vegar ásamt mótleikurum sínum á forsýningu myndarinnar í Los Angeles og blandaði geði við aðdáendur og gaf eiginhandaráritanir í gríð og er. Hann sagðist einnig aðspurður úti- loka með öllu þátttöku í fjórðu Matrix-myndinni fari svo að hún verði gerð. „Það verður að vera einhver annar. Ég er þreyttur.“ ■ MATRIX-GENGIÐ Keanu Reeves mætti í sínu fínasta pússi á Matrix Reloaded-forsýninguna í Los Angeles ásamt öðrum aðalleikurum myndarinnar. Keanu Reeves: Ekki meira Matrix TÓNLIST Bandaríska rokksveitin System of a Down er byrjuð að hljóðrita nýja breiðskífu. Sam- kvæmt liðsmönnum sjálfum er um „tímamótaverk“ að ræða. Þrátt fyrir að hljómsveitin sé opinberlega í fríi hafa gítarleikar- inn Daron Malakian og bassaleikar- inn Shavo Odadjian unnið að nýjum lögum síðustu vikurnar. „Þetta verður tímamótaplata fyrir sveitina,“ sagði Odadjian í viðtali við MTV-sjónvarpsstöðina. „Við ætlum ekki að endurtaka neitt sem við höfum gert áður. Byrjum alveg upp á nýtt sem glæný hljóm- sveit. Þannig að þegar þið heyrið þessa plötu verður þetta System of a Down en samt glæný upplifun. Þegar við vorum að byrja sagði fólk að við værum að gera eitthvað sem ekki hefði heyrst áður. Okkur langar til þess að halda áfram að gera tónlist sem gefur okkur þannig viðbrögð frá fólki.“ ■ SYSTEM OF A DOWN Hefur á stuttum tíma skipað sér sess meðal vinsælustu rokksveita heims. System of a Down: Byrjuð að vinna nýja plötu Leikarinn Toby Maguire hefur við-urkennt að hafa næstum því látið hlutverk Spider-Man í framhalds- myndinni renna sér úr greipum. Hann hefur átt við bak- verki að stríða og vildi fresta tökum um nokkrar vikur til þess að jafna sig. Leikstjórinn Sam Raimi gat ekki fallist á það og Maguire var rekinn. Hann segist hafa beðið um annað tækifæri og að allir hafi fallist í faðma á endanum. Gifssteinar fyrir milliveggi og aðra breytingarvinnu. www.gifsverk.is

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.