Tíminn - 23.06.1972, Síða 2
2
TÍMINN
Köstudagur 23. júni 1972.
ÞJÓÐNÝTTUR BITHAGI
011 beit á óræktuðu landi er i
raun og veru þjóðnýtt. Með þvi
er ekki aðeins átt við, að þeir,
sem eiga beitarfénaö, en ekkert
land, telja sér heimilt að aka með
hann út á þjóðvegina á vorin og
sleppa honum þar, sem gróður-
lendi sýnist sæmilegt. Hitt er öllu
heldur haft i huga, að þegar
kostnaöarliöir við búrekstur eru
reiknaðir til ákvörðunar við verð
á búvöru, gildir hið sama um
úthagann og sjálft lifsloftiö:
Hvorugt er reiknað til verös.
Fóðurþörf búfjár að sumrinu er
alls ekki talin með, þegar
ákvarðaðer, hvað bændur eigi að
bera úr býtum fyrir framleiðslu
sina.
Stundum er verið að býsnast'
yfir verði á kjöti og mjólk, sem
þó er raunar ekki dýr matur
miðað við margt annað. En hér
siá menn aö minnsta kosti, að
ekki er þessi liður ofreiknaður,
þar sem hann er alls ekki talinn
með. Sumarhaga verða bændur
þó að eiga.
Bóndi
KMBÆTTISHROKI
Landfari góöur, má ég biðja þig
fyrir örfáar linur. Það veröur
ekki spunninn lopinn af mikilli
mælgi, þvi að ég er búinn að sjá,
að þér er ekki gefið um það.
En sem sagt: Mér verður
hugsað til bóndans á Teigi i
Mosfellssveit, sem setti lögbann á
framkvæmdir hitaveitu Reykja-
vfkur, er forráðamenn hennar
ætluðu að böölast yfir land hans,
án þess að eiga einu sinni
orðastað við hann.
bað, sem ég vil koma á framfæri
er þetta: Hvernig stendur á þvi,
að almannastofnanir, sem hafa i
veltunni tugi og hundruð
milljóna, sem eign þegnanna
sjálfra, leitast ekki við að ná
samningum, þegar svona stendur
á? Hvaða réttlæti er það, að
einstaklingar, efnalitlir sem
efnaðir, verða að eiga svo mikið i
húfi eins og hér er tilfellið? Þetta
er sannarlega ójafn leikur og
tæpast samboðið þjóðfélagi, sem
skreytir sig með þeim nöfnum, er
við notum oft og iðulega. Ahættan
er svo óralangt frá því að vera
jöfn, þegar annars vegar er
einstaklingur, sem ekki má sin
mjög mikils efnalega, en hins
vegar stofnanir, sem haldið er
uppi af almannafé og sækja
peninga eftir þörfum i vasa borg-
aranna.
Sá embættishroki sem birtist i
þessu, er óþolandi og það ætti að
vera fyrsta boðroð þeirra manna,
sem þess konar stofnunum
stjórna, að reyna ævinlega að ná
samningum.svo fremi sem þess
er kostur, áöur en málum er
fleygt i dómstólana. Fátækur
maður á þess bókstaflega engan
kost að standa i svona striði. Það
þýðir, að honum er meinað að ná
hugsanlegum rétti, og þar meö er
réttaröryggi i landinu feykt út i
veður og vind. Er ekki sagt svo,
að rikir og fátækir eigi að vera
jafnir fyrir lögunum?
Með þökk fyrir birtinguna.
Gjaldþegn hitaveitunnar.
Þetta er nýi, hvíti 12 volta 53 amp. SÖNNAK-
rafgeymirinn í V.W., Opel o. fl. nýja þýzka bfla.
Fjöibreytt úrva) SÖNNAK-rafgejtma ávallt fjrrir-
liggjandi.
3. ógúst 15 daga
18. ógúst 15 daga
'1. september 15 daga
15. september 15 daga
29. september 22 daga
20. oktober 10 daga
Allt úrvalsferðir að sjdlfsögðu.
FERÐASKR/FSTOFAN
URVAL
Eimskipafélagshúsinu simi 26900
ARMULA 7 - SIMI 84450
•rí7.KUHysi>
LA FÖSTUOAGA ^ verga enn „úf-
isaelu íslenzku húd^ ti ku.
þegar ^Wnafiur, Módel-
r, sem Í8,enzkUrr ”Clda a»a töstudaga,
n og Rammagerðin og nýjustu
t aS kynna sérstæð i9,enzkUrn u»ar-
skínrvavörum.