Fréttablaðið - 21.05.2004, Blaðsíða 29

Fréttablaðið - 21.05.2004, Blaðsíða 29
3FÖSTUDAGUR 21. maí 2004 „Uppáhaldsmaturinn minn er allt sem er grænt og vænt, meðal annars grösin úr fjöllunum í kringum mig. Ég nota þau mikið bæði fyrir mig og gestina mína,“ segir Anna Dóra Her- mannsdóttir, jógakennari sem rekur ferðaþjónustu á Klængshóli í Skíða- dal. Hún borðar allan mat en þykir hann bestur sé hann úr einhverju hollu og helst öllu lífrænu. „Ég er einmitt að fara að snæða heimabök- uð speltbrauð með jurtum úr fjall- inu. Það er uppáhaldsmaturinn minn í augnablikinu,“ segir hún þar sem hún situr við eldhúsborðið á Klængs- hóli að morgni dags. Grösin kveðst hún hafa þurrkað í fyrra, segir hún þær vera rjúpnalauf, blóðberg og að- albláberjalyng. „Það er ýmislegt hægt að nota sem gefur gott krydd- bragð og brýtur upp þetta hefð- bundna,“ segir hún. Hún kveðst líka laga allskonar jurtaseyði og segir gestum sínum þykja spennandi að smakka þau. „Maður þarf bara að vita hvernig best er að blanda grös- unum saman svo drykkurinn verði ekki beiskur,“ segir Anna Dóra og gefur heilræði í lokin. „Það er afar gott að nota saman vallhumal, pínu- litla mjaðurt sem gefur sætt bragð og setja smá fjallagrös útí. Þetta er hin besta blanda, bæði fyrir lundina og ég tala nú ekki um ef einhver kveflumbra er að læðast í mann.“ ■ [ UPPÁHALDSMATUR ] Grænt og vænt Þær eru vægast sagt girnilegar, nýju, ítölsku Zeta-sælkeravörunar sem Nóatún býður nú Íslendingum á matborðið. Bæði eru umbúðirnar lát- lausar á áberandi fallegan hátt og svo er vöruframboðið beinlínis lost- vekjandi. Þetta ítalska vörumerki er gamalgróið og þekkt fyrir ferska og framúrskarandi bragðgóða vöru. Í Nóatúni má nú fá lystilegt úrval ólífa, margar tegundir ólífuolía, allt frá ódýrri matarolíu til þriggja gullstjörnuolía, niðursoðnar baunir af ýmsum tegundum tilbúnar til notkunar, fjölbreytta flóru balsamik-ediks í árgöngum, sólþurrkaða tómata, spennandi pestó-línu og tilbúið crostini í úrvali. Og þótt Zeta sé ímynd gourmet-vöru er verðið vel sambærilegt við önnur vörumerki í sama flokki. ■Condesa de Leganza Reserva Greifynjuvín Víntímaritið virta Decanter veitti nýlega spænska víninu Condesa de Leganza Reserva umsögnina „sérstök með- mæli“ eða „Higly Recommended“ og gaf víninu 4 stjörn- ur af 5 mögulegum. Vínið hefur verið geymt á Ohio-eik og látið jafna sig á flösku í 2 ár þar á eftir. Vínið er frek- ar kröftugt með áberandi kryddtónum frá eikinni, þroskuð tannín og ávaxtarík ending. Sagan á bak við vínið er sú að María Longhetti giftist ung svissneska greifanum La Ganz. Greifinn var glaumgosi og tapaði öllu sínu fé í spilamennsku. Unga greifynjan flutti því nauðug á níðurnídda búgarðinn Leganza. Mar- ía réð til sín bústjóra og hóf vinnu við víngarðinn sem umlukti bæinn. Hún þótti ströng bústýra og leið ekki á löngu þangað til vínin hennar urðu þekkt fyrir þau gæði sem hún krafðist í einu og öllu. Fæst í Heiðrúnu og Kringlunni og kostar 1.290 kr. Nýtt í Nóatúni: Ítölsk sælkeralína Nýtt í vínbúðum Til hnífs og skeiðar GUÐRÚN JÓHANNSDÓTTIR ELDAR HANDA MINNST FJÓRUM FYRIR 1000 KR. EÐA MINNA. Ýsa grilluð á spínati Grill er helst notað við matreiðslu á stórum steikum eða nýdregnum laxfiski á sumrin og samkvæmt klisjunni er grillað um helgar og sjá karlar um framkvæmdirnar. Grill, sérílagi gasgrill, má einnig nota hversdags. Þótt auðvelt sé að henda hamborgurum á grillið þá eru fleiri möguleikar, og eftirfarandi réttur ágæt tilbreyting sem er síst meira mál en er þó bæði betri og hollari en hamborgarnir. Byrjið á því að roðfletta og beinhreinsa ýsuna. Takið því næst tvö blöð af álpappír og útbúið tvo pakka til að setja á grillið. Skiptið spínatinu í tvennt og setjið neðst í hvern pakka, þá er ýsan sett ofan á spínatið og hún smurð með karrímaukinu, þá er rjómanum er hellt yfir. Eplum, papriku og humri er svo skipt í tvennt og fagurlega rað- að efst á hvern pakka. Saltið aðeins. Pakkið öllu vel inn og setjið á heitt grillið og grillið í 7 til 10 mínútur. Mér finnst frábært að setja tortillur með osti á grillið og bera fram með þessum rétti. Kostnaður um 1000 kr. 700 g ýsuflök [ 650 kr.] 1/4 poki ferskt spínat [ um 100 kr.] 1/2 grænt epli (skorið í þunna fleyga) 1/4 rauð paprika (skorin í mjóa strimla) 1/2 tsk. mild curry paste 4 msk. rjómi 6 litlir humrar eða ca 1 dl af rækju [ um 200 kr. ] Álpappír Gæði á góðu verði: Tuborg á 169 krónur Íslendingar kaupa gjarnan bjórinn sinn í hálfs lítra um- búðum, enda er lítraverðið jafnan hagstæðast á þeirri einingu. Í vetur lækkaði Ölgerðin Egill Skallagrímsson verðið á Tuborg í 0,5 lítra dósum og flöskum til að koma til móts við bjórunnendur sem sækjast eftir hámarks- gæðum á hagstæðu verði. Tuborg skipaði sér þar með í flokk ódýrustu bjórtegunda sem í boði eru og það án þess að nokkru sé fórnað, hvorki bragðgæðum né ströngum kröfum um efnainnihald og vandað fram- leiðsluferli. Tuborg í hálfslítra dós kostar 169 krónur og Tuborg býður hagstæðustu 0,5 lítra flöskurnar hérlendis en þær kosta 198 krónur. Tuborg er dæmigerður skandinavískur pilsner sem þýðir að hann er bragðmildur og með meðalfyllingu, ljósgull- inn á lit og vínanda er stillt í hóf. Hann bragðast því eink- ar vel með flestum mat, ekki hvað síst grillmatnum sem fer að verða æ algengari á borðum landsmanna nú þeg- ar sumarið kemur fyrir alvöru og rjúka fer af réttunum á svölum og í görðum á góðviðrisdögum. Nýtt í vínbúðum ! HÚSRÁÐ: HRÍSGRJÓNEf þú vilt að hrísgrjónin þín límist saman má setja litlateskeið af ediki út í vatnið. Sletta af sítrónusafa gerir þau hvít-ari. Til að auka næringu er gott að elda þau í grænmetissoði.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.