Fréttablaðið - 28.02.2004, Síða 20

Fréttablaðið - 28.02.2004, Síða 20
20 28. febrúar 2004 LAUGARDAGUR ÚLFAR EYSTEINSSON Er afkomandi Eysteins vendilkráku sem var konungur í Svíþjóð. Afkomandi Eysteins vendilkráku Ég held að nafnið hafi bara ver-ið úti í loftið hjá foreldrum mínum,“ segir Úlfar Eysteinsson, kokkur og eigandi veitingahúss- ins Þrír Frakkar, um nafn sitt. „Nafnið kemur hvergi fyrir í ættinni og það voru ekki margir sem báru þetta nafn í þjóðskrá þegar ég kem,“ segir Úlfar, sem hefur meðal annars grafist fyrir um nafnið í gömlum skagfirskum ættartölum. Þar komst hann hins vegar að því að hann er afkom- andi Eysteins vendilkráku sem var konungur í Svíþjóð. Þegar Úlfar var yngri átti hann einn eldri nafna í Hafnarfirði og svo vissi hann af tveimur sem bjuggu í Reykjavík. Eitthvað hef- ur nöfnum hans þó fjölgað því nú eru 177 sem bera það sem fyrsta eiginnafn og 33 sem annað. Nafn- ið Úlfar er myndað af forliðnum „Úlfur“ og viðskeytinu „ar“ sem merkir hermaður. Úlfar er stundum kallaður Úlli og er sáttur við bæði nöfnin. „Ég skil alveg að fólk kalli mig stund- um Úlla. Það er alltaf verið að stytta nöfn,“ segir meistarakokk- urinn sem var þó ekki strítt á nafninu. „Mér var aldrei strítt á þessu nafni enda afar erfitt. Það er varla hægt að búa til neinar ambögur á því. En það voru líka menn með mér í skóla sem báru hressandi nöfn. Einn hét til að mynda Ljótur og ég get ímyndað mér að það hafi verið erfitt fyrir hann að bera það framan af. En það vissu allir í Hafnarfirði hver ég var enda nafnið fátítt,“ segir Úlfar Eysteinsson. ■ Istanbul er næsta stopp Istanbul verður næsta stopp hjámér, en þangað fer ég í maí. Og það vill svo skemmtilega til að þang- að hefur mig alltaf langað til að koma,“ segir vinsælasti sjónvarps- þáttamaður þjóðarinnar, Gísli Mart- einn Baldursson. „Ég held að allir sem hafa snefil af sagnfræðiáhuga hljóti að vilja koma að þessu hliði Asíu, og hafa fyrir augunum sögu heimsins síðustu 2000 ára. Ég fer reyndar þangað í vinnuferð, því eins og kunnugt er verður Eurovision- keppnin haldin í Istanbúl í maí og hana mun ég kynna fyrir Íslendinga, en vonandi gefst tími til að skoða borgina vel. Ég er ákveðinn í að njóta alls þess besta sem borgin hef- ur upp á að bjóða. Fara í tyrkneskt bað, borða mikið af allskonar kebabi (ekki bara Döners, sem all- ir þekkja á Vesturlöndum en er bara ein af fjölda tegunda kebabs), ganga um miðbæjarmarkaðinn sem ilmar víst af þúsund kryddtegund- um, drekka aníslíkjörinn þeirra sem heitir raki og njóta tyrkjadrykksins kaffis, sem mér skilst að sé borið fram sterkara þarna en nokkurs staðar ann- ars staðar í heimin- um. Ég ætla líka að fara í siglingu og sigla á milli Asíu og Evrópu, en borgin er sú eina sem stendur í tveimur heimsálfum. Og það er dálítið fyndið að vestræni hluti borgarinnar, sá sem er hvað líkastur því sem við þekkum í Evrópu, er einmitt Asíumegin í borginni. Evrópumegin er hinsvegar gamla Istanbul með öllum moskum sínum og menjum. Eða það skilst mér að minnsta kosti. Ég hef líka heyrt að íbú- ar Istanbúl séu mjög vin- gjarnlegir og gestrisnir, og fleiri þjóðir mættu taka upp kveðju þeirra sem er á tyrk- nesku „güle güle“, sem þýðir farðu brosandi! Ég hef fulla trú á því að ég komi brosandi frá þessu næsta stoppi mínu.“ ■ Jennifer Aniston þarf ekki að örvænta þó að vinirnir í Friends farir brátt hver í sína áttina. Hún virðist hafa komið ár sinni nokkuð þokkalega fyrir borð. Skærasta stjarnan í Ameríku Frægðarsól Jennifer Annistonvirðist hafa náð nýjum hæðum undanfarið. Þessi leikkona í þátta- röðinni Friends vann sér inn litlar 35 milljón Bandaríkjadali á síð- asta ári, eða rétt tæpan tvo og hálfan milljarð króna, og nú ný- verið var hún valin „skærasta stjarnan“ í afþreyingariðnaðinum í Bandaríkjunum af tímaritinu Forbes, en tímaritið byggði þá niðurstöðu sína á innkomu hennar og því hversu sjáanleg hún var í fjölmiðlum á liðnu ári. Og það er fleira sem Anniston hefur til brunns að bera. Framleiðslufyrir- tæki hennar, Plan B, er með sautján kvikmyndir í burðarliðn- um og svo má reyndar geta þess að auki, að eiginmaðurinn er Brad Pitt. Það virðist því óhætt að fullyrða að Anniston hafi notað árin í Friends – sem urðu nokkuð mörg, en þáttaröðin hóf göngu sína fyrir tíu árum – ákaflega vel til þess að koma ár sinni fyrir borð. Mikið er spáð og spekulerað þessa dagana um það hver verða örlög leikaranna í þessum vinsæla gamanþætti, nú þegar síðasta þáttaröðin er um það bil að renna sitt skeið á enda. Eitt er víst: Aniston, öðru nafni Rachel Green, er í góðum málum. Snemma á svið Aniston fæddist í Sherman Oaks í Kaliforníu árið 1969 og er dóttir sápuóperuleikarans John Aniston og Nancy Aniston. Guðfaðir hennar var enginn annar en Telly heitinn Savalas, öðru nafni Kojak. Aniston steig fyrst á svið þegar hún var 11 ára, en síðar fór hún leiklistarnám í New York og hóf atvinnuferil sinn í leikhúsum þar í borg. Hún sást fyrst í sjónvarpsþáttum árum 1989, þegar hún tók að sér hlutverk í þáttunum Molloy. Einnig lék hún í sjónvarpsþáttum sem byggðir voru á kvikmyndinni Ferris Bueller day off svo eitthvað sé nefnt, en hlut- irnir fóru þó ekki að rúlla fyrr en henni var boðið að taka að sér hlut- verk í litlum þætti sem hét þá „Fri- ends Like These.“ Það var vita- skuld Friends, og þótti Aniston koma til greina í hlutverk Monicu. Hún hafnaði því og vildi fremur leika hina sterkefnuðu úthverfa- prinsessu Rachel Green, sem hún hefur síðar gert með þekktum ár- angri. Með bein í nefinu „Mér finnst eins og ég hafi aldrei átt neitt val,“ sagði Aniston í viðtali við berska blaðið The Observer nýverið. „Ég hef aldrei haft það mikla trú á sjálfri mér að ég teldi að ég gæti gert nokkuð annað en að þykjast, leika og skemmta. Mér finnst gaman að gleðja fólk. Það hentar mér mjög vel að vera gleðigjafi, að fá að vinna við það að skapa fólki tæki- færi til þess að flýja raunveruleik- ann í einn til tvo tíma og skemmta sér.“ Þannig lýsir leikkonan sjálfri sér, en þó er ekki víst að hún hafi endilega hitt naglann á höfuðið. Innkoma hennar og fyrirtækja- rekstursins, sem hún stundar með eiginmanni sínum, bendir til þess að hún hafi eftir allt mun meiri trú á sér en hún vill vera láta. Blaða- maður Observer nefnir dæmi í við- talinu sem sýnir að Aniston hefur bein í nefinu. Eftir viðtalið fór leik- konan nefnilega og gekk frá samn- ingum við framtakssaman einstak- ling í London sem hafði selt af henni myndir, þar sem hún var í sólbaði án brjóstahaldara. Þessi einstaklingur mátti greiða Aniston litlar 40 milljónir króna í skaða- bætur. Þess má geta að áður höfðu blöðin tvö sem birtu myndirnar greitt henni skaðabætur líka. Það borgar sig greinilega ekki að abb- ast upp á Anniston um þessar mundir. gs@frettabladid.is ■ Næsta stopp ■ Nafnið mitt ISTANBUL Sú fagra borg verður næsta stopp hjá Gísla Marteini Baldurssyni en þangað hefur hann alltaf langað til að koma. GÍSLI MART- EINN BALD- URSSON Hann kynnir Eurovision-keppn- ina sem haldin verð- ur í Istanbul í maí og seg- ist vera viss um að koma brosandi þaðan. „Mér finnst gaman að gleðja fólk. JENNIFER ANISTON Stjarna hennar rís hátt um þessar mundir. Hér kemur hún skartklædd til frumsýningar á Along Came Polly í London á dögunum. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /H AR I

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.