Fréttablaðið - 28.04.2004, Blaðsíða 28

Fréttablaðið - 28.04.2004, Blaðsíða 28
20 28. apríl 2003 MIÐVIKUDAGUR SAMHERJAR Á NÝ Roberto Carlos og Ronaldinho á æfingu brasilíska landsliðsins fyrir leikinn gegn Ungverjum í kvöld. Á sunnudag átti Ron- aldinho stóran þátt í sigri Barcelona á Ro- berto Carlos og félögum í Real Madrid. Fótbolti hvað?hvar?hvenær? 25 26 27 28 29 30 1 APRÍL Miðvikudagur ÁEnglandi þurfaleikmenn að leika að minnsta kosti tíu deildarleiki á leiktíð- inni til þess að fá medalíu fyrir meistaratitil. Martin Keown, Nwankwo Kanu, Jose Antonio Reyes og Jeremie Aliadiere hafa enn ekki náð þessum leikjafjölda með Arsenal í vetur. Kanu og Reyes hafa leikið níu leiki og Ali- adiere hefur leikið sjö en Keown þarf að leika alla fjóra leikina sem Arsenal á eftir til að ná tíu leikja markinu. Markvörðurinn Jens Lehmann er eini leikmaður Arsenal sem hefur leikið alla 34 deildarleikina í vetur. Thierry Henry, Kolo Toure og Robert Pires hafa leikið 33 leiki, Sol Campbell 31 og Gil- berto Silva 30. ■ FÓTBOLTI Ásgeir Sigurvinsson landsliðsþjálfari var rétt nýbúinn að klára æfingu og léttur í bragði þegar Fréttablaðið sló á þráðinn til hans í Ríga í Lettlandi. „Þetta lítur allt ágætlega út hjá okkur nema það að Helgi Sigurðsson fékk högg á brjóstholið í síðasta leik sínum og er jafnvel talið að hann sé með brákað rifbein eða eitthvað slíkt, þannig að hann verður ekki með að þessu sinni. Að öðru leyti eru allir klárir í slaginn og verkefnið leggst vel í mannskapinn.“ Verða einhverjar áherslubreyt- ingar á leik liðsins? „Engar stór- vægilegar, við leggjum upp með svipaða leikaðferð og við höfum verið að nota undanfarin misseri en það gætu þó læðst inn nokkrar taktískar breytingar.“ En er einhverju breytt í tengsl- um við leik andstæðinganna? „Nei, engu sérstöku, en við erum búnir að fara ágætlega yfir þeirra leik og búnir að sjá þrjá leiki með þeim. Við vitum hvernig þeir spila og verðum að hafa góðar gætur á eldsnöggum framherjum þeirra. Þá erum við að sjálfsögðu búnir að fara vandlega í gegnum síðasta leik okkar, á móti Albönum, og við þurfum að bæta okkur verulega frá þeim leik – það er á hreinu að það stendur til að gera betur en við gerðum í þeim leik og ég held að menn ætli sér allir að leggjast á eitt í þeirri viðleitni. Það verða ákveðnar áherslubreytingar sem við ætlum að prófa okkur áfram með í leiknum, þróa leik okkar að- eins og prófa okkur áfram í okkar kerfi, en það er einmitt megintil- gangur svona leikja. Það verða því einhverjar breytingar á liðs- uppstilingunni og ný andlit í byrj- unarliðinu frá síðasta leik.“ Hvernig eru aðstæður í Lett- landi? „Þær eru að mestu leyti ágætar en aðalvöllurinn gæti verið betri. Við erum búnir að æfa á honum og hann er bara eins og malbik, það verður að segjast eins og er, alveg grjót- harður og ég ætla bara rétt að vona að hann verði vökvaður eitt- hvað á morgun.“ Er ekki ánægjulegt að spila við lið eins og Letta sem komu svo skemmtilega á óvart í und- ankeppni EM, náðu öðru sæti rið- ilsins og kórónuðu svo frammistöðuna með því að leggja Tyrki að velli í umspili og tryggja sér sæti í loka- keppninni sem fram fer í Portúgal í sumar ? „Jú, það verður gaman að kljást við þá og sjá hvar við s t ö n d u m gangnvart þeim. Það var mjög gam- an að fylgjast með liðinu í undankeppn- inni og óvænt að sjá þá slá Tyrki út, sem voru fyrir fram mun sigur- stranglegri. Þetta sýnir bara að það er allt hægt í þessu og árangur þeirra er ákveðið leiðarljós fyrir okkur og þótt svona gerist kannski ekki nema á áratuga fresti er ekkert útilokað. Alla kitlar að komast á stórmót og Lettarnir sönnuðu að litlu þjóðirnar geta ótrúleg- ustu hluti og árangur þeirra er lýsandi dæmi um að draumar geta ræst. Við höldum að minnsta áfram að láta okkur dreyma,“ sagði Ásgeir Sigur- vinsson að lokum. ■ FORMÚLA 1 „Einhvern tímann hætt- ir Michael Schumacher og við verðum að athuga hver verður bestur þegar að því kemur,“ sagði Ross Brawn, tæknistjóri Ferrari- liðsins. „Ég er viss um að Jenson Button verði á þessum lista.“ Jenson Button, sem nú ekur fyrir BAR-liðið, hafði ekki komist á verðlaunapall þegar keppni þessa árs hófst. Hann varð sjötti í fyrstu keppninni sem fram fór í Ástralíu, þriðji í Malasíu og Bar- ein og annar á Imola-brautinni um helgina. Hann er nú í þriðja sæti með 23 stig, einu stigi á eftir Rubens Barrichello sem er annar. „Mér finnst hann hafa staðið sig frábærlega,“ sagði Brawn. „Hann þekkir brautirnar núorðið og hann er að læra að vinna með liðinu. Hann verður eftirsóttur á næstu árum.“ ■ ■ ■ LEIKIR  19.15 KA og FH leika í Boganum í átta liða úrslitum í deildabikar- keppni karla í fótbolta.  20.00 ÍA og Fylkir keppa á Leiknis- velli í átta liða úrslitum í deilda- bikarkeppni karla í fótbolta. ■ ■ SJÓNVARP  15.45 Olíssport á Sýn. Fjallað er um helstu íþróttaviðburði heima og erlendis.  16.15 Fákar á Sýn. Þáttur um allar hliðar hestamennskunnar.  16.45 Landsleikur í knattspyrnu á Sýn. Bein útsending frá leik Letta og Íslendinga.  19.00 US PGA Tour 2004 á Sýn. Þáttur um MCI Heritage Classic mótið.  20.00 Meistaradeild UEFA á Sýn. Útsending frá leik Deportivo La Coruna og AC Milan sem fram fór fyrr í þessum mánuði.  22.00 Olíssport á Sýn. Fjallað er um helstu íþróttaviðburði heima og erlendis.  23.45 Snjókross á RÚV. Þáttur um kappakstur á vélsleðum,  00.10 Snjókross á RÚV. Þáttur um kappakstur á vélsleðum. Ole Gunnar vill ekki í aðra aðgerð KNATTSPYRNA Ole Gunnar Sol- skjær, leikmaður Manchester United, heldur því fram að hann þurfi ekki að fara í aðra skurðaðgerð á hné, andstætt því sem læknir norska lands- liðsins, Thor Einar Andersen, telur. Solskjær, sem á nokkuð langt í land með að ná sínu besta formi eftir hnémeiðslin, hafði þetta að segja um um- mæli Andersens: „Ég mun halda mínu striki og önnur að- gerð er ekki á dagskránni eins og sakir standa. Ég hef ekki náð mér að fullu og mun ræða við Thor Einar fljótlega um að setja upp æfingaprógramm fyr- ir mig í sumar. Honum finnst ég ekki hafa náð nægilegum bata frá því að ég fór í síðustu að- gerð en ég er ekki sammála. Ég hef rætt við leikmenn sem hafa orðið fyrir svipuðum meiðslum og þeir segja sömu sögu og ég - þeir fundu fyrir meiðslunum 8- 9 mánuðum síðar en síðan ekki söguna meir.” ■ FÓTBOLTI „Ég er stoltur af því að vera leikmaður Chelsea,“ sagði finnski framherjinn Mikael Forssell í viðtali á heimasíðu fé- lagsins. „En mér sýnist að það muni aðeins bæta mig sem leik- manna að vinna eitt ár til viðbót- ar með Steve Bruce, fram- kvæmdastjóra Birmingham.“ Forsell er samningsbundinn Chelsea til ársins 2007 en hefur lýst því yfir að hann hafi ekki áhuga á að vera í einhverju aukahlutverki á Stamford Bridge. Í fyrra var hann í láni hjá þýska félaginu Borussia Mönchengladbach og skoraði sjö mörk í sextán leikjum. Bor- ussia vildi hafa hann áfram en úr varð að hann var lánaður til Birmingham. Hann hefur skor- að sautján mörk í úrvalsdeild- inni, fimm mörkum meira en Jimmy Floyd Hasselbaink, markahæsti leikmaður Chelsea. „Það hefur hjálpað að bæta leik minn að leika reglulega með Birmingham City,“ sagði Fors- sell. „Mér finnst þetta sam- komulag þjóna hagsmunum allra þriggja aðilanna. Mér hef- ur farið fram sem knattspyrnu- manni og það getur aðeins verið af hinu góða fyrir mig að vera eitt ár til viðbótar í Miðlöndun- um.“ Mikael Forssell er metinn á fimm milljónir punda og er talið að Birmingham vilji fá hann fyrir fullt og allt til félagsins. ■ ■ Tala dagsins 10 Jenson Button: Til Ferrari? JENSON BUTTON Í þriðja sæti eftir fjórar keppnir. MIKAEL FORSSELL Hefur skorað fimm mörkum meira í úrvalsdeildinni en markahælsti leikmaður Chelsea. Mikael Forssell: Lengur í láni hjá Birmingham ÁSGEIR SIGURVINSSON Ákveðnar taktískar breytingar en svipuð leikaðferð og undanfarin misseri. Einhverjar breytingar á byrjunarliðinu frá því í leiknum gegn Albönum. Til stendur að gera betur en í síðasta leik Verður gaman að kljást við Letta, segir Ásgeir Sigurvinsson.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.