Tíminn - 19.09.1972, Qupperneq 20
Loksins — fimmtán mfnútum fyrir áætlaOa brottför — skrifaöi Fischer nafn sitt stórum og skýrum
stöfum á skákborðiö, en Spasskl skrifaöi hinu megin, áöur en hann för af landi brott. Viö hliö Fischers
er Sæmundur Pálsson, en hann fór meö heimsmeistaranum til New York.
Loks skrífaði
Bobby á borðin
KJ—Reykjavik
Nýkrýndur heimsmeistari i
skák, Bobby Fischer, yfirgaf
tsland um klukkan sjö á sunnu-
daginn, en hér hafði hann þá
dvalið siðan 4, júli, og hefur
gengið á ýmsu i sambandi við
dvöl hans hér
Fischer var, sem kunnugt er,
ekki alltof lipur i samskiptum
sinum við Skáksamband tslands,
en meðal þess, sem lögfræðingar
hans höfðu lofað skáksamband-
inu, var, að hann myndi skrifa
nafn sitt á tiu viðarskákborð,
sem siðan er ætlunin að selja i
Bandarikjunum.
Spasski skrifaði á borðin strax og
hann var beðinn um það og sömu-
leiðis skrifaði hann nafn sitt á
leðurhluta skákborðsins, semþeir
kappar sátu við á sviðinu i
Laugardalshölldinni.
Fischer var aftur á móti
erfiðari viðureignar, og þrátt
fyrir öll loforð lögfræðinga hans,
fékkst hann ekki til að skrifa nafn
sitt á viðarborðin. Eitt sinn biðu
bæði aðstoðarmenn hans og lög-
fræðingar ásamt stjórnar-
mönnum i skáksambandinu i
marga klukkutima i Laugardals-
höllinni, eftir að Fischer birtist
til þess að skrifa á borðin — en
ekki kom Fischer
Náöi honum i rúminu
Svo var það, eftir að einviginu
lauk, að Guðmundur G.
Þórarinsson forseti skáksam-
bandsins, fór sjálfur með borðin
tiu upp i hótelibúð til Fischers og
fékk hann til að skrifa á borðin i
rúminu. Fischer var þá dálitið
kvefaður, og skrifaði hann á
borðin strax og Guðmundur kom.
Þá um leið lofaði Fischer að
skrifa nafn sitt á leðrið á stóra
borðinu, en hann lét ekki verða af
þvi fyrr en fimmtán minútum
áður en flugvélin, sem hann átti
far meb, átti að leggja upp frá
Keflavikurflugvelli. Sæmundur
Pálsson, aðstoðarmaður heims-
meistarans, tók þá af skarið, áður
en farið var til Keflavikur, og fór
með heimsmeistarann á Þjóð-
minjasafnið, þar sem borðið er.
Fyrir einskæra tilviljun var einn
af starfsmönnum safnsins við
látinn og gat opnað salina, þar
sem borðið er, og Fischer var
ekki lengi að skrifa nafn sitt
stórum stöfum og skýrum á
leðurhluta borðsins.
Siðan var ekið i loftinu suður á
Keflavikurflugvöll, þar sem Loft-
leiðaþotan haföi beðið sérstak-
lega i meira en 30 minútur svo að
heimsmeistarinn og Sæmi og frú
kæmust með, þvi að handan hafs-
ins beið þeirra sérstakur bill frá
Lindsay borgarstjóra, auk tölu-
verðs hóps fréttamanna, sem
Fischer ræddi við, áður en hann
hvarf inn i þvögu heimsborgar-
innar.
Viðarborðin á að selja
Ætlunin er að selja skákborðin,
sem skákmennirnir skrifuðu á, á
uppboði i Bandarikjunum, og eiga
þessi borð að færa skáksam-
bandinu þó nokkrar tekjur, eftir
þvi sem forráðamenn þess telja.
Verið er nú að lakka yfir nðfnin,
sem þeir rituðu á hvitu reitina i
hornunum, en seinna verða þau
send vestur um haf og boðin þar
UDD.
ALÞINGI
HEFST
10. OKT.
Á fundi rikisráös i gær var gefið
út forsetabréf um aö Aiþingi veröi
kvatt til fundar þriöjudaginn 10.
október.
Fischer tekur I höndina á Erling Asperlund, hótelstjóra á Loftleiöum, og þakkar honum fyrir dvölina á
hótelinu. A milli þeirra er suöur-ameriskur blaöamaöur góövinur Fischers (Tímamyndir G.E.)
Hörku slagsmál
að Hólmavaði
Klp—Reykjavik.
— Þetta voru slagsmál eins og á
siidarárunum góðu á Siglufirði,
sagði cinn lögrcgluþjónanna frá
Ilúsavik, sem var á vakt við
félagsheimilið að Hólmavaði I
Aðaldal um helgina, en þar var þá
haldinn réttadansleikur.
Lætin hófust, þegar það fréttist
meðal samkomugesta, sem voru
margir, að ballið ætti ekki að
standa lengur en til kl. eitt eftir
miðnætti, og ekki yrði framlengt.
Hófust þá slagsmál og þæfingur á
milli manna um allt hús, og fyrr
en varði voru menn farnir aö
kasta flöskum i rúður og brjóta
allt lauslegt.
Voru nær allar rúður i þessu
gamla húsi brotnar, og var heldur
ljótt um að litast á „vigvellinum”
þegar allt var komið i ró seint um
nóttina. Ekki munu hafa orðið
nein teljandi meiðsl á mönnum,
en viða mátti þó sjá menn daginn
eftir með litrika umgjörð um aug-
un, blátt nef og bólgnar varir, og
eina og eina tönn mátti finna
meðal glerbrotanna á dansgólf-
inu.
Þriðjudagur '
19. september 1972
Varð óökufær
eftir áreksf-
ur við hest
Klp—Reykjavik
Á sunnudaginn ók stór
áætlunarbifreið á tvo hesta á
veginum skammt fyrir vestan
Selfoss. Annar hesturinn dó sam-
stundis, en hinn slapp svo til
ómeiddur
Höggið var svo mikið, að bif-
reiðin, sem eins og fyrr segir var
stór áætlunarbifreiö gekk öll inn
að framan og var óökufær á eftir.
Varð að fá kranabifreiö til að
lyfta henni upp og draga i bæinn.
Slysið varð á kaflanum fyrir
vestan Selfoss, sem lagður hefur
verið oliumöl. Bifreiðarstjórinn
sá ekki hestanna fyrr en of seint,
en skyggni á þessum oliuborna
kafla er mjög slæmt. þegar rignt
hefur á mölina.
Veiðiþjófar drápu
11 laxa við Lárós
ÞÓ—Reykjavik.
Tveir ungir Grundfirðingar
murkuðu lifið úr 11 löxum á
ógcðslegar hátt á fimmtudag-
inn. Laxarnir voru allir frá
laxeldisstöðinni við Lárós.
Báöir piltarnir eru komniryfir
tvitugt og hafa komið við sögu
lögrcglunnar áður, og eru
m.a. báðir með biðdóm yfir
sér.
Það var á fimmtudaginn, að
Jóhannes Jónsson, sem vinnur
við eldisstöðina i Lárósi, varð
þess var i kiki, að tveir menn
voru eitthvað að flækjast
kringum laxagildrurnar, sem
cru við bakkann norðanmegin
við Látravikurbæinn, en þar
er eldisstöðin. Gerði hann lög-
reglunni i Grundarfirði þegar
viðvart, og brá hún skjótt við.
Fór lögreglan landleiðina á
móti mönnunum, en Jóhannes
fór yfir vatnið á báti. Náðust
mennirnir fljótlega, en enginn
lax fannst, og þrættu þeir I
fyrstu fyrir að hafa komið
nálægt laxagildrunum, hvað
þá að hafa reynt að stela laxi.
Eftir nokkurt þóf viður-
kcnndi annar maðurinn að
þcir hefðu tekið og drepið alla
laxana, sem voru I gildrunni,
og hinn viöurkenndi verknaö-
inn siðar. Sögöu þeir til um,
hvar laxarnir voru faldir, og
var þar ljót aðkoma, þvl aö
þeir höfðu veriö drepnir á ó-
geðslegan hátt. Voru þeir allir
maröir og skornir, go sumar
va var vart hægt aö þekkja
fyrir lax.
Sjö hásetar neituðu að
fara aftur til íslands
KJ—Reykjavík
Sjö skipsmenn á Fleetwood-
togaranum Boston Explorer voru
reknir af togaranum á föstu-
daginn, vegna þess að þeir höfðu
neitaðað faraafturá Islandsmið,
eftir að togari þeirra hafði dregið
systurskipiö Boston Attacker
áleiðis til Bretlands.
Það mun hafa verið á mánu-
daginn i slðustu viku, að brezkur
togari sást meö annan I togi út af
Vestfjörðum, og stefndu skipin til
Bretlands. Þetta voru systur-
skipin Boston Explorer og Boston
Attacker. 1 fyrstu lónaði Explorer
yfir Attacker i 18 tima, á meðan
reynt var að gera við vélina, en
kælikerfi vélarinnar hafði bilað.
Eftir þessa 18 tima var ákveðið að
taka Attacker i tog, en jafnframt
unnu vélstjórar beggja skipanna
að viðgerð. Komu þeir kæli
keríinu I lag eftir þriggja sólar-
hringa siglingu, og voru skipin þá
farin að nálgast Bretland.
Útgerð Explorer sendi þá
skeyti og gaf skipun um að
togarinn færi aftur til Islands, en
þvi neituðu 7 skipsmenn og eftir
að hafa undirritað yfirlýsingu um
neitunina hjá skipstjóranum, var
siglt til Fleetwood, þangað sem
komið var á fimmtudag. Skip-
verjarnir sjö voru allir hásetar,
og sögðust þeir hafa gert þetta
vegna skipshafnarinnar og út-
gerðarinnar, þar sem fiskurinn
sem var i skipinu, hefði ella eyði-
lagzt. ,,En I stað þess.” sögðu
þeir, „seldum við fyrir 6.400
sterlingspund”.
Skipverjar sögðu, að Ægir hefði
þrisvar siglt upp að hliðinni á
Explorer. „1 fyrsta skipti
skipuðu varðskipsmenn okkur að
mála nafn og númer á togarann,
en i hin tvö skipin að hifa inn
trollið”.
Sendill á vélhjóli
Sendill á vélhjóli óskast STRAX á ritstjórn
Timans, Lindargötu 9 A. Upplýsingar i sima
18300 kl. 9 árd. til kl. 20 s.d.