Tíminn - 12.12.1972, Blaðsíða 10
10
TÍMINN
Þriftjudagur 12, desember 1972
ALÞINGI
U msjon :
Elía s Snæland Jonsson
Frumvarp um Verð-
jöfnunarsjóð að lög-
um
Fundir voru í báðum deild-
um alþingis I gær, en þeir voru
stuttir og fá mál tekin fyrir.
I efri deild var stjórnar
frumvarpið um breytingar á
lögum Veröjöfnunarsjóðsins
til annarrar umræðu. Sjávar-
útvegsnefnd klofnaði í málinu.
Fulltrúar stjórnarflokkanna
lögðu til, að frumvarpið yrði
samþykkt óbreytt, en fulltrúar
stjórnarandstöðunnar komu
með sams konar breytingatil-
lögu og sjálfstæðismenn fluttu
i neðri deild. Sú breytingartil-
laga var felld, og frumvarpinu
siöan visað til 3. umræðu. Sú
umræða fór fram strax að lok-
inni 2. umræöu og var frum-
varpiö þar samþykkt sem lög
frá alþingi.
Önnur mál i efri deild
Þá mælti Lúðvik Jósefsson,
sjávarútvegsráðherra, fyrir
frumvarpi stjórnarinnar um
skipulag á loðnulöndun, sem
þegar hefur verið afgreitt frá
neðri deild.
Mál i neðri deild
t neðri deild mælti ólafur
Jóhannesson, dómsmálaráð-
herra, fyrir stjórnarfrum-
varpi um framkvæmd eignar
náms, sem efri deild hefur
þegar afgreitt. Var málinu
siðan visað til nefndar.
Þá var tekið fyrir stjórnar
frumvarp um leigunám hval-
veiðiskipa til annarrar um-
ræöu. Stefán Valgeirsson (F)
mælti fyrir áliti meirihluta
allsherjarnefndar, sem lagði
til að frumvarpið yrði sam-
þykkt óbreytt. Haildór
Blöndal (S) mælti fyrir áliti
minnihlutans, sjálfstæðis-
manna, sem lagði til að frum-
varpinu yrði visað frá með
rökstuddri dagskrá.
Ivalskipið hefur
reynzt vel.
Óiafur Jóhannesson, dóms-
málaráðherra, sagði m.a., að
leigunám hefði verið nauðsyn-
legi til þess að fá umrætt hval-
skip til gæzlustarfa. Skipstjóri
og áhöfn skipsins væri mjög
ánægð með það, og hefði
skipið reynst i alla staði vel.
Ráðherra gagnrýndi rök
minnihlutans, og kvað tillögu
þeirra vera órökstudda
dagskrá fremur en rökstudda.
Framlenging umboðs
verðlagsnefndar
Þá mælti Lúðvik Jósefsson,
viðskiptaráðherra, fyrir
stjórnarfrumvarpinu um fram
lengingu á umboði verðlags-
nefndar, en umboð hennar
rennur út um áramótin sé það
ekki framlengt með lögum.
Var málinu siðan visað til
nefndar. — E.J.
Framsóknarfélögin í Arnessýslu:
Þriggja kvölda spilakeppninni lýkur á föstudaginn
Senn liöur að lokum þriggja
kvöldaspilakeppninnar, sem
Framsóknarfélögin i Arnessýslu
Auglýsitf
i
Tímanum
standa fyrir. Tveim umferðum er
lokiðog hin siðasta veður i Arnesi
i Gnúpverjahreppi n.k. föstudag
15. des. Aöalverðlaun i keppninni
er ferö fyrir tvö til Mallorca á
vegum Ferðaskrifstofunnar
Sunnu, oghálfsmánaðardvöl þar.
A föstudagskvöldið fæst skorið úr
um, hver verður stigahæstur i
keppninni og hlýtur verðlaunin.
Keppnin hófst i Aratungu 1. des.
s.l. Þar flutti Halldór E.
Sjálflokandi viðgerðahlekkir
f/snjókeðjubönd
(,,Patent“-hlekkir), fyrirliggjandi í tveimur
stærðum.
L ÁRMÚLA 7 - SÍMI 84450 .
Sigurðsson, fjármálaráðherra,
ræðu. Föstudaginn 8. des. var
spilað i Þjórsárveri og þar flutti
Guðmundur G. Þórarinsson,
verkfræðingur, ræðu. A fyrr-
nefnda staðnum var spilað á 39
borðum, en á hinum siðarnefnda
á 37 borðum.
Sem fyrr segir verður úrslita-
keppnin háð i Árnesi. Þar mun dr.
Ólafur Ragnar Grimsson, lektor,
flytja ræöu. Áð keppninni lokinni
leikur hljómsveit Gissurar
Geirssonar fyrir dansi. Til að
betri timi gefist til að dansa hefur
verið ákveðið, að spilakeppnin
hefjist fyrr siðasta keppnis-
kvöldið en hin fyrri. Verður þvi
byrjað að spila i Árnesi kl. 21, eða
hálftima fyrr en áður.
Auk aðalverðlaunanna verður
þeim karli og konu, er flest stig fá
fyrir hvert kvöld, veitt sérstök
verðlaun.
Það var þéttsetinn salurinn, er spilakeppnin fór fram i Arnesi.
ENDURMIMING4R
FRIÐRIKS GUÐMUNDSSONAR
ral
yi
LMHIt-
YIINMM.AIt
FRIÐRIKS GUOMUNDSSONAR
Endurminningar Frið-
riks Guðmundssonar
fró Hólsijöllum Jöktu
óskipta athygli lands-
manna, þegar Gils
Guðmundsson las upp
úr þeim í útvarpinu fyr-
ir nokkrum árum. Þessi
merka minningabók
verður áreiðanlega
mörgum kærkominn
lestur um jólin. Verð í
góðu bandi kr. 800,00
auk söluskatts.
VALDIÐ DULDA
ÞÓRARINN JÓNSSON FRÁ KJARANSSTÖDUM
Valdið dulda eftir Þór-
arin Jónsson frá Kjar-
ansstöðum. Þórarinn-
hefur á langri ævi
fundið návist hins ó-
sýnilega heims alls
staðar í kringum sig. í
bók þessari eru . frá-
sagnir af dulrænni
reynslu, frásagnir, sem
mörgum mun leika for-
vitni á að kynnast.
Verð í góðu bandi kr.
625,00 auk söluskatts.
ÞÓHAMNN JÓNSSON
ritÁ KJAKANSSTÍlDUM
VALDIÐ
DULDA
HUGSVNIR CROISETS
Jack Harrison Pollack
HUGSÝNIR CROISETS
Ævar Kvaran islenzkaöi
VIKURUTGAFAN
Hugsýnir Gerards Croi-
sets er forvitnileg bók
um skyggpigáfu þessa
stórmerka Hollendings.
Croiset telst til hinna
merkustu manna, sem'
dularsálfræðingar hafa
rannsakað og greinir
hér frá afrekum hans
við að koma upp um
þjófa og morðingja,
finna börn, fullorðna
menn, dýr. og hluti.
Þýðinguna gerði Ævar
R. Kvaran. Verð í vönd-
uðu bandi kr. 700,00
auk söluskatts.
Dagperlur, ný aimælis-
dagabók með vísum
eftir 31 þjóðkunn skáld.
Bókin er prentuð í
tveim litum á vandað-
an skrifpappír, prýdd
teikningum af skáldun-
um og gömlum stjörnu-
merkjum-.' — 3undin í
brúnt og rautt alskinn.
Tilvalin gjafabók. Verð
kr. 900,00 auk sölu-
skatts.
GDAGPERÚJRj
Afniælis dagabók
indversk heimspekí
Gunnan dqi
Gunnan dqi
indversk
neimspeki
Indversk heimspeki eft-
ir Gunnar Dal. Greint
er frá kjarna indverskr-
ar heimspeki á einfald-
an og alþýðlegan hátt.
Forvitnileg og mjög
aðgengileg bók handa
öllum þeim, sem vilja
fræðast um þessi efni.
Verð í góðu bandi kr.
700,00 auk söluskatts.
Mundu ekki einhverjar
þessara bóka henta yður
til jólagjafa? Góð bók
er bezta vinargjöfin.
VÍKURÚTGÁFAN