Tíminn - 22.12.1972, Síða 5
Föstudagur 22. desember 1972
TÍMINN
5
Jón. H. Guðmundsson,
ritstjóri:
VIPPI VINUR OKKAR
Hörpuútgáfan,
Akranesi.
Jón H. Guðmundsson, ritstjóri
Vikunnar, sem látinn er fyrir all-
mörgum árum, endursagði all-
margt erlendra barnasagna i
Vikunni, en þegar frá leið fór
hann að semja nýjar sögur um
söguhetju sina — Vippa. Allmikið
af þessum sögum var siðar gefið
út, og nú hafa Vippa-sögur verið
prentaðar að nýju og gefnar út i
snoturri bók, og má vera, að
ætlunin sé að gefa út fleiri bækur
með Vippasögum.
Halldór Pétursson hefur
teiknað myndir i þessa útgáfu, og
eykur það ekki litið gildi sagn-
anna.
Þessar sögur eru ekki veiga-
miklar, hvorki að frásagnarefni
né máli, en þær eru samt léttilega
sagðar og gamansemi og kimileg
atvik, hrakfarir og ævintýri
burðarás þeirra. Hugkvæmni i
söguefnum er mikil, og þótt Vippi
sé erlendur að uppruna, hafa
sögurnar verið islenzkaðar að
meira leyti en máli, og Vippi er að
öllu leyti innfluttur borgari, sem
fengið hefur islenzkan þegnrétt
og samið sig að islenzku umhverfi
og lifsvenjum. Bókin'er laglega
út gefin og likleg til þess að verða
drengjum skemmtilestur nú sem
fyrr. — AK
Bókin um Jesú,
Séra Bernharður Guð-
mundsson endursagði.
Bókaútgáfan Iðunn.
Þetta er sérlega þörf og falleg
bók, þótt æskilegast hefði verið,
að hún væri alislenzk og myndir
og texti betur fært i islenzkan
hugarheim. Mér hefur ætið fund-
izt sem pálmar, erlend dýr, fjar-
lægt landslag og framandi klæða-
burður fólks firra Jesús og boð-
skap hans islenzkum börnum, og
alls ekki væri fjarri lagi að sýna
hann meðal islenzkra barna i is-
lenzku umhverfi á sama hátt og
Jesús kyrrir vind og sjó á fær-
eyskum firði á altaristöflunni eft-
ir Mykines i kirkjunni i Götu i
Færeyjum og stendur i Dyrfjöll-
um á altarstöflu Kjarvals i
Borgarfirði eystra. Og frægur
spænskur málari sýndi Jesús og
fjölskyldu hans, eins og hún væri
spænsk bændafjölskylda á heims-
frægu málverki.
Um tilkomu bókarinnar segir
séra Bernharður i eftirmála:
„Hún er frönsk að uppruna og
varð til með þeim hætti, að nokkr-
ir foreldrar mynduðu starfshóp
ásamt guðfræðingi, uppeldisfræð-
ingi og teiknara. Markmið þeirra
var að semja bók, sem segði frá
lifi og starfi Jesú þannig að það
yrði nútimabörnum veruleiki, en
ekki enn ein ævintýrasagan.”
Ekki verður annað sagt, en
þetta verk hafi tekizt vel.
Myndirnar eru góðar, einfaldar
og hreinar i litum og dráttum og
textinn rekur i senn megindrætti i
lifssögu Jesúsar og kjarna kenn-
ingar hans.
Endursögn séra Bernharðar er
falleg og skýrorð með sterkri til-
finningu fyrir þvi, að börnin skilji
það, sem hann er að segja. Þó
skal þvi ekki neitað, að ýmislegt
er þarna, sem ég kann ekki við.
Eftir fæðingu Jesúsar i fjárhúsinu
segir til að mynda, að móðir hans
hafi „fært hann i hlý og mjúk
föt”. Þetta er önnur mynd en lifað
hefur i minum huga frá barnsár-
um um inntak fátæktarinnar i
þessari fæðingarsögu. Ég kann
ekki heldur við orðalagið „að
biðja til guðs” i stað þess að biðja
guð, eins og öllum — einkum
börnum — er eðlilegt i munni. Þá
kann ég ekki við það að guð og
drottinn skuli sifellt skrifaðir með
stórum staf og jafnvel frelsarinn
lika. Og hvaða firnum gegnir það,
að ekki skuli vera hægt að beygja
nafn Jesúsar á islenzku (eins og
til að mynda nöfnin Jónas og
Júdas) og sifellt verið að dæma
börn og aðra til þess að klæmast á
þvi?
Þrátt fyrir það er bókin fegins-
fengur og rétt að hlita ráði
Bernharðar um að leyfa ungum
börnum fyrst að nema myndirn-
ar, en fara siðan að lesa með
þeim og ræða efnið út frá þeim.
Þegar maður hugsar til þeirra af-
styrma, sem námsbækur barna-
Staða deildarstjóra
félagsmála- og upplýsingadeildar
Verkefni eru velferðarmál aldraðra og
annarra bótaþega almannatrygginga, svo
og kynningarstörf. Launakjör eru allt að
25. launaflokkur, ef að i starfið ræðst
maður með nægilega menntun og starfs-
reynslu, sem nýtist i þessu starfi.
Forstjóri og skrifstofustjóri veita nánari upplýsingar.
Umsóknir sendist stofnuninni, en ráðherra veitir starfið.
Umsóknarfrestur er til 17. janúar n.k.
Revkiavik. 19. desember 1972.
TRYGGINGASTOFNUN RÍKISINS
Útboð -
holræsagerð
Hafnarfjarðarbær óskar eftir tilboðum i
gerð aðalholræsis i Norðurbæ.
Verkið innifelur: gröft, sprengingu, lögn, fyliingu og frá-
gang i allt uni 1130 lengdar metra.
Útboðsgögn verða afhent i skrifstofu bæjarverkfræðings,
Strandgötu 6 gegn 5000 kr. skilatryggingu. Fundur ásamt
vettvangsgöngu með væntanlegum bjóðendum er
áformaður föstudaginn 29. desember kl. 10. Tilboð verða
opnuð i skrifstofu bæjarverkfræðings mánudaginn 8.
janúar 1973 kl. 11, að viðstöddum bjóðendum.
Bæjarverkfræðingur.
skólanna i kristnum fræðum eru,
hlýtur maður að fagna svona fall-
egri bók og óska þess, að svo góð-
ur sögumaður, sem séra Bern-
harður er, taki sig til, eða verði til
þess fenginn, að endursegja ævi-
sögu og boðskap Jesúsar á hreinu
og skiljanlegu islenzku máli en
ekki bibliulegu þrugli, og reyni að
færa sögu og kenningu i islenzkan
heim með þvi að bæta við dæmi-
sögurnar hliðstæðum i islenzku
lifi, jafnframt þvi sem þær eru
sagðar.
—AK
Ljósaperur, kúlu- og kertaperur
d?
4®
Rafhornið
ÁRMÚLA 7 — SÍMI 84450
Snjókeðjur
til sölu á flestar stærðir
hjólbarða
Gerum við gamlar snjókeðjur
Setjum keðjur undir bíla
FLJÓT OG GÓÐ AFGREIÐSLA
GÚMMIVNNUSTOFAN HF.
SKIPHOLTI 35 REYKJAVÍK SÍMI 31055
Svoiiíi liiigsar li'iknariiiii, (iisli Sinnrftsson,'
til sjós.
ðSCEIR IRKQBSSOl/
umáoi
i
Skipsljoriiin fór i IíiiiiI og liugsar gott til gloftarinn-
ar. 1*11 iiijiillastiiIkíiii skntliir sér utvfir grimlurnar
og lii'lnr fsi'lur forftii
Asgeir segir Irá veru sinni um
borð i afiaskipinu Sigurði og
landgöngu i fiskihöfnunum
Grimsbæ og Bremerhaven.
Þaðer engum vafa bundið, að
þetta er skemmtilegasta sjö-
mannabökin á markaðnum i
ár.
Höfundur tiundar af sinni al-
kunnu kimni ýms skoplcg atvik
um borö, og skipshöfninni
kynnist lesandinn. Hún er
þarna Ijóslifandi, meö kostum,
göllum og kúnstugheitum.
Ekki gleymast heldur lýsingar
höfundará lifinu i hafnarborg-
unum, en þar koma við sögu
i llti aflnr liiirftiiini og stvrfti til lisifs. (t 'r
triftiiiu).
furðufuglar og gleðikonur og
einnig höfðingjar og heföar-
frur.
En bókin er ekki öll i þessum
dur. Þar er einnig að finna
froðleik um veiðarnar og
vinnubrógöin og lifandi lysing
ar a lifinu um borð.
Þetta er órugglega bók, sem
sjómenn vilja eignast og lesa.
Ægisútgáfan
um B0RÐI
0G U0KKRIR
GRlmSBIEnRplETTIR
EFTIR
ASGEIR JRKOBSSOn
1
CREME
FRAÍCHE
> •
Cocktailsósa sinnepssósa
Cocktailsósa: 7/2 dl af tómatsósu í dós af sjrdum
rjóma.
Sinnepssósa: 2 msk af sinnepi í dós af sjrdum
rjóma.
Gott með fiski, pylsum, hamborgurum, steiktu
kjöti, kjúklingum, kryddsild, humar, rakju o.fl.
MJOLKURSAMSALAN I REYKJAVIK