Tíminn - 22.12.1972, Page 16
16
TÍMINN
Föstudagur 22. desember 1972
Baráttan gegn
brottför hersins
GLÆSILEG RÁÐSTEFNA HERSTÖÐVAANDSTÆÐ-
INGA SENDIR FRÁ SÉR MERKAR ÁLYKTANIR
„...Þann eina tilgang að greiða fyrir þvi að brottflutningur
bandariska liðsins frá íslandi geti átt sér stað innan þeirra tima-
marka....” y
í tilefni af þeim viðræðum við Bandarikjastjórn sem utan-
rikisráðherra Islands hefur boðað að hefjist snemma á næsta
ári, ályktar ráðstefna herstöðva-andstæðinga, haldin i Félags-
heimili stúdenta dagana 2. og 3. desember 1972, eftirfarandi og
beinir þvi til utanrikisráðherra:
Ráðstefnan minnir á það ákvæði i málefnasáttmála núverandi
rikisstjórnar að „varnarsamningurinn við Bandarikin skal tek-
inn til endurskoðunar eða uppsagnar i þvi skyni að varnarliðið
hverfi frá íslandi i áföngum. Skal að þvi stefnt, að brottför liðsins
eigi sér stað á kjörtimabilinu”. Ráðstefnan telur að væntanlegar
viðræður milli rikisstjórna íslands og Bandarikjanna hafi af
hálfu Islendinga þann einn tilgang að greiða fyrir þvi að brott-
flutningur bandariska liðsins frá Islandi geti átt sér stað innan
þeirra timamarka er i málefnasáttmálanum greinir. Fallist
Bandarikjastjórn ekki á það að leggja niður herstöðvar á Islandi
með samkomulagi við tslendinga, ber islenzku rikisstjórninni að
segja upp herstöðva-samningnum frá 1951 og knýja þannig fram
brottför hersins i samræmi við 7. grein samningsins.
„...leitum á öryggisráðstefnunni málefnalegs samstarfs án til-
lits til stórveldasjónarmiða....”
Ráðstefna herstöðva-andstæðinga, haldin i Reykjavik 2. og 3.
desember 1972, skorar á islenzk stjórnvöld að undirbúa sem bezt
sjálfstæða þátttöku íslands i væntanlegri ráðstefnu um öryggis-
mál Evrópu. Bendir fundurinn á þýðingu þess, að við tökum þar
skýra afstöðu i samræmi við hagsmuni okkar sem smárikis og
leitum á öryggisráðstefnunni málefnalegs samstarfs án tillits til
stórveldasjónarmiða og aðildar okkar að NATO. Islendingar
eiga að beita sér fyrir þvi, að dregið verði úr her- og vopnabúnaði
hjá ráðstefnurikjum og allt erlent herlið verði flutt burt úr
Evrópulöndum.
„....herstöðvar á íslandi verði afnumdar með öllu....”
Vegna tillögu á Alþingi um athugun þess, hvort íslendingar
geti eftir brottför bandariska NATO-hersins af Islandi gegnt
gæzluhlutverki i þágu Atlanzhafsbandalagsins, leggur ráðstefna
herstöðva-andstæðinga, haldin 2. og 3. desember 1972, á það
áherzlu, að herstöðvar á íslandi verði afnumdar með öllu, og
ekki komi til mála að islenzk landssvæði verði áfram hagnýtt i
þágu hernaðarbandalags.
„....afstaðan til aðildar íslands að Norður-Atlanzhafssamningn-
um tekin til rækilegrar endurskoðunnar.”
I ljósi gjörbreyttra viðhorfa i Evrópu beinir ráðstefna her-
stöðva-andstæðinga, haldin dagana2. og3. desember 1972, þvi til
islenzku rikisstjórnarinnar, að jafnframt þvi sem unnið sé að
brottför hersins, verði afstaðan til aðildar íslands að Norður-At-
lanzhafssamningnum tekin til rækilegrar endurskoðunar.
„....fjölmiðlun Bandarikjahers frá Keflavikurflugvelli sé lög-
leysa....”
Ráðstefna herstöðva-andstæðinga, haldin i Reykjavik dagana
2. og 3. desember 1972 bendir á, að fjölmiðlun Bandarikjahers frá
Keflavikurflugvelli sé lögleysa og skorar á rikisstjórn Islands að
taka þegar fyrir útsendingar hljóðvarps og sjónvarps þaðan.
Kaflar úr ályktunum FUF á Akureyri
Landhelgin og við
0 er skoðun aðalfundar
F.U.K. á Akureyri, að nú megi
ekki láta dcigan siga i fiskveiði-
dcilunni við Brcta og Vestur-
Þjóðverja. íslendingar, við eigum
og skulum sigra gömlu nýlendu-
kúgarana.
Herinn og NATO
llraða bcr endurskoðun
varnarsáttmálans með það fyrir
augum, að herinn hverfi úr
landinu i'yrir lok kjörtimabilsins.
Knnfrcmur vcrði endurskoðuð
staða Islands i bernaðarbanda-
lagi við lilið þjóða, sem hóta að
bcita okkur vopnuðu ofbeldi.
ísland og þrjðji heimurinn
l.jóst cr orðið,að einn traustasti
hakhjarl islendinga i millirikja-
samskiptum eru þjóðir hins svo-
nefnda þriðja heims, eins og
glögglcga kom i ljós við af-
greiðslu tillögu íslands og fleiri
þjóða um réttindi strandríkja, á
þingi S.Þ.
Fundurinn ályktar, að enn
nánari samskipti beri að hafa við
þessar þjóðir i framtiðinni, ekki
sizt á hinni væntanlegu
llafréttarráðstefnu S.Þ.
Þeir sem landið erfa
Fundurinn vekur athygli á hve
áhrifalitlir ungir menn hafa verið
og eru i islenzku þjóðlifi frá þvi að
sú kynslóð, sem nú skreytir sali
alþingis tók við völdum.
Krefst fundurinn þess , að
kynslóöabiliö,sem að miklu leyti
er til orðið vegna einstrengings-
lcgrar afstöðu eldri kynslóðar-
innar til hinnar yngri, verði
brúað með þvi að veita yngri
mönnum tækifæri til að sýna vilja
sinn og getu á vettvangi þjóð-
mála.
Frd fjölmennum aðal-
fundi FUF d Akureyri
Athyglisverðar ályktanir
Mjög fjölmennur aðalfundur
F.U.F. á Akureyri var nýlega
haldinn; fundinn setti Ingvar
Baldursson, formaður F.U.F. og
skipaði sem fundarstjóra Kolbein
Sigurbjörnsson. 1 upphafi fundar
flutti formaður skýrslu og las upp
reikninga vegna fjarveru gjald-
kera. Að umræðum loknum um
þau mál, var kosið i stjórn og
fulltrúaráð. Að þvi búnu hófust
fjörugar umræður, og voru
ályktanir samþykktar.
Veljið yður í hag - Úrsmíði er okkar fag
OMEGA
rOAMEr
PIEHPOflT
Niuada
Jtlpina.
Hin nýkjörna stjórn FUF á Akureyri. 1 neðri röð frá vinstri: Jóhann Karl Sigurðsson, Ingvar Baldurs-
son, formaður, Kolbeinn Sigurbjörnsson. Efri röð: Gunnlaugur Guðmundsson, Hákon Hákonarson og
Karl Steingrimsson.