Tíminn - 14.05.1974, Blaðsíða 16

Tíminn - 14.05.1974, Blaðsíða 16
16 TÍMINN Þriðjudagur 14. mai 1974. En honum létti mikið, þegar hann gekk til sjávar dag- inn eftir, því að Svala var komin á fætur og stóð við grindverkið og beið hans til þess að fylgja honum til skips. Þau gengu saman eftir götunni.,,Ceres" lá úti á f irðin- um og púaði stórum, og seinustu bátarnir voru að leggja frá landi. Svala hafði talað um alla hugsanlega einskisverða hluti á leiðinni niður í f jöru. Hún gerði sér naumast grein fyrir því, hvað hún var að segja, af þvi að hjá henni komst aðeins ein hugsun að: „Skyldi hann kyssa mig?" Hún vissi vel, að hann myndi gera það, þvi að það var ekki annað en sjálfsagt, og þó fannst henni það alveg ómögulegt. Til þess að draga kveðjustundina á langinn eins og unnt væri, fór hún með honum um borð. Þar — meðal eggjakassa og gaggandi hænsna í búr- um, fiskikassa, gærubinda og fólks frá Skarðsströnd, sem ætlaði til Reykjavikur — rann þessi örlagaþrungna stund upp. Ólafur gerði totu á munninn og laut fram til þess að kyssa hana, en sá koss fór út í bláinn. — Ég get ekki! stundi hún og hélt honum frá sér bein- um handleggjum. Ég ætlaði að segja þér það— ég verð að segja þér það — ég get ekki gifzt þér! Það er Ijótt af mér, en ég get það ekki! Ég skal skrif a þér! Hún hafði ekki hugsað sig um andartak að romsa þessu upp úr sér, og það var ekki fyrr en á síðustu stundu, að henni datt í hug að slíta trúlof uninni. Það var eins og einhver, sem ekki botnaði neitt í heinu, hef ði sagt þetta fyrir hana. En svo var akkerum létt, ferjumaður- inn kallaði í ofboði á hana, hún hljóp niður stigann, og þegar báturinn ýtti frá, sá hún, að Ólafur starði á eftir henni. Skipið með þennan gríðarstóra reykháf með rauða borðanum og báta, sem héngu í davíðunum, hurfu gjörsamlega fyrir þessu stóra andliti, það var eins og sjálfur sæskrattinn á hafsbotni hefði verið rændur feng sínum, en væri ekki búinn að átta sig á þvi til f ulls. Enda þótt hún hefði sloppið úr þeim háska, sem var verri en dauðinn fann hún ekki fyrir neinum létti, því að hún vissi það ekki til hlítar, frá hverju hún var sloppin. Hún vissi það eitt, að hún hafði slitið trúlofun sinni, gengið á bak orða sinna, rofið heit sitt og valdið föður sinum sorg. Ferjumaðurinn, sem hamaðist við árarnir, tók ekki eftir neinu, og þegar að landi kom, stökk hún upp í f jör- una, þakkaði honum fyrir og hljóp heim. Hún átti ekki í neinum erf iðleikum með að hlaupa, hún mæddist ekki og hreyfingar hennar voru léttar og eðli- legar eins og hjá barni. Faðir hennar var ekki heima, svo að hún hljóp upp á loft og settist við gluggann til þess að bíða heimkomu hans. Það kom fyrir, að hún bar höndina upp að hjarta- staðtil þess að reyna í örvilnan sinni að gera sér grein fyrir því, sem hún hafði gert. Eiríkur, sem var orsök alls þess, var þessa stundina f jarri hugsunum hennar. Stórt andlit Ólafs og svipur þess yfirgnæfði allt annað. Nú sá hún föður sinn koma út dalinn. Hann nam staðar til þess að ræða við menn, og blærinn, sem barst inn um opinn gluggann og bærði gluggatjöldin, bar einnig raddir þeirra til hennar. Loks kvöddust þeir, og faðir hennar gekk heim að húsinu. Hann sá hana við gluggann og veif- aði til hennar. Hún gekk til móts við hann niður í stof una. Það vár klukkutími til hádegisverðar, og enn var ekki búið að leggja á borð. Stefán hafði kastað hatti sínum á borðið og var kominn að skrifborði sínu til að ná sér í pípu, þegar Svala kom inn. — Jæja þú hefur náð áð kveðja hann? Ég hefði sjálf ur vil jað vera þarna niður f rá, en var bara upptekinn. Hann fær aldeilis ferðaveðrið. Hann tók langa pípuna og tók að troða í hana. Hann var ekki vanur að reykja inni fyrr en á kvöldin, og hann ætl- aði að f ara og setjast á litla bekkinn við dyrnar. — Pabbi, það er nokkuð, sem ég þarf að segja þér, hóf Svala máls. Ég fylgdi honum alla leið um borð í Ceres og ég sagði honum, að... — Já? sagði Stefán og leit upp. Hvað er annars að þér, Svala? — Ég get ekki gifzt honum. Hún stóð niðurlút við borðið. Hún leit upp, meðan hún sagði þetta, en varð svo niðurlút aftur. Stefán hafði nú lokið við að troða í pípuna og stóð kyrr og starði á hana. — Hverjum getur þú ekki gifzt? — Ólafi Guðmundssyni. — Guð minn almáttugur, ertu búin að missa vitið? sagði faðir hennar. Hvað hefur Ólafur Guðmundsson gert af sér, að þú skulir ekki geta gif zt honum? — Hann hefur ekkert gert af sér, en ég get ekki gifzt honum. Stefán hafði gert sér allskonar furðulegar hugmyndir um kvenfólkið, og voru þær nánast sambland af fyrir- litningu og aðdáun. Það var sannfæring hans, að þær stæðu karlmönnunum langtum ofar hvað snerti tilfinn- ingalifið, en hann var líka jafn sannfærður um, að þær stæðu þeim langt að baki á öllum öðrum sviðum. Hann var þeirrar skoðunar, að kvenfólkið væri alltaf reiðubúið að snúast gegn karlmönnunum, ekki af neinni sérstakri A meðan, á lendingarstaðnum,- mtm I Þriðjudagur 14. mai 7.00 Morgunútvarp. Veður- fregnir kl. 7.00, 8,15 og 10.10. Morgunleikfimi kl. 7.20. Fréttir kl. 7,30, 8,15 (og forustugr. dagbl.), 9.15 og 10.00. Morgunbæn kl. 7.55. Morgunstund barnanna kl. 8.45: Oddný Thorsteinsson les framhald „Ævintýris um Fávis og vini hans” eftir Nikolaj Nosoff (20). (Jtvarp vegna unglingaprófs i dönskukl. 9.00. 12.00 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynningar. 12.25 Fréttir og veðurfregnir. Tilkynningar. 13.00 Eftir hádegið. Jón B. Gunnlaugsson leikur létt lög og spjallar við hlustendur. 14.30. Siðdegissagan: „Hús málarans” eftir Jóhannes Helga Óskar Halldórsson les (4). 15.00 Miðdegistónleikar: islenzk tónlist a. Sónata fyrir fiðlu og pianó eftir Fjölni Stefánsson. Rut Ingólfsdóttir og Gisli Magnússon leika. b. „Alþýðuvisur um ástina” eftir Gunnar Reyni Sveins- son við texta eftir Birgi Sigurðsson. Söngflokkur syngur undir stjórn höfundar. c. „Ólafur Liljurós”, ballettmúsik eftir Jórunni Viðar. Sinfóniu- hljómsveit Islands leikur: Páll P. PálSson stj. 16.00 Fréttir. Tilkynningar. (16.15 Veðurfregnir) 16.25 Popphornið 17.10 Tónleikar. Til- kynningar. 18,45. Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. Tilkynningar. 19.30 Bókaspjall Umsjónar- maður: Sigurður A. Magnússon. 19.55 Lög unga fólksins.Ragn- heiður Drifa Steinþórsdóttir kynnir 21.00 A vettvangi dóms- málanna- Björn Helgason hæstaréttarritari talar. 21.30 A hvitum reitum og svörtum Guðmundur Arn- laugsson flytur skákþátt. 22.00 Fréttir 22,15 Veðurfregnir. Kvöld- sagan: „Eiginkona i álögum” eftir Alberto Moravia. Ragnhildur Jóns- dóttir islenzkaði. Margrét Helga Jóhannsdóttir leik- kona les (3). 22.35 Harmonikulög. Jo Ann Castle leikur. 23.00 A hljóðbergi. „Vitis- vélin”, leikrit eftir Jean Cocteau: —siðari hluti Með aðalhlutverk fara Margaret Leighton, Jeremy Brett, Alan Webb, Patrick Magee og Diana Cilento, Leikstjóri er Howard Sackler. 23.55 Fréttir i stuttu máli. Dagskrárlok. IWiliiHl Þriðjudagur 14. mai 20.00 Veður og auglýsingar 20.30 Steinaldartáningarnir Nýr, bandariskur teikni- myndaflokkur i framhaldi af myndunum um Fred Flintstone og félaga hans. Nú eru börn Freds og sam- tiðarmanna hans vaxin úr grasi, og um þá ungu og uppvaxandi kynslóð fjallar þessi myndaflokkur. 1. þátt- ur. Listakonan Vala Þýð. Heba Júliusdóttir. 21.00 Stjórnmála viðhorfið Umræðuþáttur i sjónvarps- sal. Umsjónarmaður Ólafur Ragnarsson. 21.40 SkákStuttur, bandarisk- ur skákþáttur. Þýðandi og þulur Jón Thor Haraldsson. 21.50 Ileimshorn Frétta- skýringaþáttur um erlend málefni. Umsjónarmaður Jón Hákon Magnússon. Dagskrárlok

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.