Tíminn - 11.08.1974, Blaðsíða 15

Tíminn - 11.08.1974, Blaðsíða 15
14 Spámaður- inn í Lundi GÖSTA EHRENS- WARD, prófessor i Lundi i Sviþjóð, samdi fyrir nokkru rit, sem nefndist „Fyrir — eftir”. Hann segir: i,,Það, sem ég hef reynt að lýsa á hófsamlegan hátt, er einfaldlega það, að við eigum framundan verulega erfiðar aldir, áður en við náum fram til þess jafnvægis mannfélagsins, sem einkennist af sjálfs- eignarbændum með þröng en örugg lifs- kjör. Er öröugt að sætta sig við þaö, aö fólk i þróuðum iönaöarlöndum neyöist fyrr eöa siöar til þess að hverfa frá þeim lifskjörum, sem gefizt hafa á áttunda tug þessarar aldar og lifa ein- földu lifi i náinni sambúð við mold og skóg, með sáningu og uppskeru i sólskini og regni með iðnað, sem er miklu þrengri stakkur skorinn en við höfum vanizt? Er það svo óþægileg tilhugsun, að barnabörn barnabarna okkar verði að erja merkur og úthaga? Við rennum huganum til þessara komandi ættliða i framtið, sem okkur er smám saman að birtast. Okkur skilst kannski smám saman, að allt, sem við gerum nú samstundis — það gerum við fyrir þá”. Meöal þess, sem við getum gert fyrir niðja okkar, er að dómi Ehrenswards, er að spara oliu og rafmagn um veröld alla, forðast mengun náttúrunnar, stöðva óhófs- framleiðslu og hervæðingu, fara skynsamlegar með mat i iönaðarlöndunum og veita miklu meira fé til takmörk- unar á mannfjölgun i heim- inum og rannsókna á vetnis- orku. Þeir, sem nú lifa, verða að vakna og gerast raunsæir — timi dagdraum- anna er liðinn fyrir fullt og allt, segir að bókarlokum. TÍMINN Sunnudagur 11. ágúst 1974 Sunnudagur 11. ágúst 1974 Þeir spá dómsdegi á næstu öld Þessi einfalda lúðurlaga teikning er i rauninni undirstaða alls þess, sem Gösta Ehrensward segir um framtiðarhorf- ur mannkynsins. Hún er fengin úr skýrslu, sem bandariski visinda- maðurinn W.K. Hubbert samdi fyrir nokkrum ár- um um orkulindir jarðar. Hún sýnir, hversu miklu eytt er og eytt hefur verið i kilóvattstundum orku við brennslu af forða jarðarinnar af kolum, oliu og náttúrlegu gasi frá þvi um 1700, Núllið svarar til nútiðarinnar, og teikningin sýnir, að það er harla tak- markaður timi, sem við höfum til stefnu, áður en þessar orkulindir eru uppurnar. Hún segir okkur, að orkuævintýrið mikla i sögu mannkyns- ins verður næsta skammvinnt, ef ekki er spyrnt við fótum. Svipuð teikning leiðir i ljós, að málmbirgðirnar eru ekki heldur óþrjótandi. Þær munu ekki heldur endast nema skamma hrið með þeim óhófsaustri, sem nú á sér stað. Og „skömm hriö” merkir i þessu tilviki örfáar aldir. Orðin Fyrir — eftir við súluna á teikningunni eru nafn dómsdags- bókar Gösta Ehrenswards. Hún kom i fyrsta skipti út árið 1972, en hefur nú verið endurprentuð fjór- um sinnum. Hún hefur þvi verið m jög lesin, og að sama skapi hafa orðið um hana miklar umræður. í formála fimmtu útgáfu itrekar höfundurinn enn veigamesta þátt kenningar sinnar: Að mannkynið verði fyrr eða siðar að snúa sér að jarðrækt á ný. Hann bætir þvi við, að hagnýting úraniums kunni þó að létta þá ásókn, sem er i náttúr- legar orkulindir, og geti visinda- menn leyst vandamál i sambandi við vetnisorku innan hóflegs tima, geti það miklu bjargað i orkubúskap okkar. En — og það er stórt en — maðurinn lifir ekki á orku einni saman. Jafnvel næg orka getur ekki fært sivaxandi mannfjölda nógan mat. Rannsóknir hans benda til þess, að um áriö 2050 hefjist meiri þrengingar en áður hafa gengið yfir mannkynið. Hann treystir þvi ekki, að þeir, sem verða um þritugt árið 2000 — það er aö segja börnin sem fæðzt hafa þessi misseri — muni ein- huga stefna að mannfækkun. Hann spáir þvert á móti mann- fjölgun, sem eftir fimmtiu til hundrað ár muni leiða til mikillar hungursneyðar — áður en orku og málma þrýtur. Þetta hungurskeið mun vara um tvö hundruð ár, og Ehrens- wa'rd telur, að neyðin verði mest við upphaf 22. aldar, og eitt af STOÐVIÐ HAG- VÖXTINN ÞESSU getur ekki lengur farið fram. Hluti mannkynsins er að kæfa sig í munaði og óhófi og eyða orkulindum og málmum jarðarinnar á örskömmum tíma, en hinn hlutinn berst við daglega neyð, en f jölgar þó svo hratt, að skelf- ingu veldur. Hvarvetna um lönd ræða hugsandi menn um, hvaðtii bragðs skuli taka, og herópin kveða við: „Stöðvið hag- vöxtinn, sem er að eyða öllu þvi, er ætlað var ókomnum kynslóðum" — „stöðvið mannfjölg- unina, svo að við yfir- fyllum ekki hungraðan heim". Og á það er lögð áherzla, hversu skammur er sá frestur, sem mannkynið hefur til stefnu, ef ekki á allt að fara úr böndunum. Hér á þessum síðum má heyra örfáar raddir af fjölmörgum, sem hafa látið til sín heyra — spádóma og lausnarorð. Það eru yfirleitt vísindamenn, sem tala, en þegar til kastanna kemur, er það hlutverk stjórnmálamannanna að stíga þau skref, sem stigin verða. En víða kunna þeir að eiga undir högg að sækja hjá skuggalegum hers- höfðingjum, sem alið hafa með sér annað hugarfar en vísinda- mennirnir. vandamálum þeirrar tiðar verði að bjarga visindalegri þekkingu og verkkunnáttu yfir þessar dökku aldir. Þá verður að taka frá mat, efni og orku handa um hundrað þúsund sérfræðingum, sem lifa i vernd vopnaðs liðs i skjóli landstjórna i eins konar miðaldalegum riddaraborgum. En alþýða manna sveltur utan múranna. Þegar liður að aldamótunum 2300nálgast mannkynið það, sem Ehrenswárd kallar upprof — það er að segja jafnvægi i eins konar borgrlkjum, sem mest eiga undir landbúnaði og minna talsvert á átjándu öldina, með staðbundinn iðnað sér til stuðnings og meiri verkkunnáttu en þá gerðist, er þó þvi háð, hversu mikil þekking hefur bjargazt I „riddaraborg- unum”. Fáir milljarðar manna hafa þraukað af eymdartimabilið með jarðrækt og skógyrkju, oftast með mjög frumstæðum hætti. Hann telur, að þeir, sem lifa af þessi ragnarök, verði harð- fengir m'enn og þrautseigir, sem ekki vila fyrir sér að vinna hörðum höndum og með athvarfi i frumstæðum húsakynnum. Það er þarna, segir EhrenswáVd, sem mannkynið byrjar að fóta sig á ný i kringum árið 2300. Stór- borgirnar frá þvi um árið 2000 verða fyrir löngu mannlausar, og hrynjandi múrar rústanna verða aðeins minnismerki um gönu- skeið, sem ekki verður endur- tekið. Þá munu menn með undrun og óhugnaði horfa til baka til liðinna alda, þegar auðlindum jarðar var sóað af hemjulausu offorsi. Þá verða allir hrapaðir niður af tindi óhófseyðslunnar og forsjárleysins á þá jafnsléttu, ,,þar sem tungl- ferðir fortiðarinnar eru fjarlægur draumur og stigið hjól verður tákn útþenslugetu mannsins”. Ragnarök, segir tölvan EF VIÐ EIGUM að forð- ast aumkunarverð endalok alls, sem okkur þykir nú hvað mest um vert, i kringum árið 2050, verður að stöðva blessaðan og marglofað- an hagvöxtinn nú þegar. Það er mikilvægasta á- lyktunin i einni af um- deiidustu dómsdagsbók- inni, Takmörk þensl- unnar, sem hópur vis- indamanna og iðnaðar- forsprakka gaf út árið 1972. Með aðstoð tölvu hefur verið kannað, að hverju fer, ef núver- andi þensla heldur áfram fram til ársins 2100. Niðurstaðan er þessi: Að liðnum fyrstu áratugum tuttugustu og fyrstu aldarinnar, mun framleiðsla á matvöru og iðnaðarvarningi á hvern mann dragast stórlega saman, þvi að þá verða hráefni og orka æ dýrari. Þetta veldur þyi, að dánartala eykst til mikilla muna, og fólks- fjöldinn i heiminum fer minnk- andi eftir miðja tuttugustu og fyrstu öldina. Það er þó ljós fjöð- ur á þessum væng, að um árið 2040 fer sjálfkrafa að draga úr mengun. Það kemur þó ekki til af góðu: Orsökin er samdráttur framleiðslunnar. Til þess að spádómar af þessu tagi yrðu ekki of einhliða, var tölvan notuð til annarra útreikn- inga, þar sem meira var tekið með af þvi, sem gat gert niðurstöð urnar ofurlitið bjartari. Þar var meðal annars gert ráð fyrir ótak- markaðri orku — til dæmis kjarn- orku og sólarorku, — baráttu gegn mengun frá og með árinu 1975, þannig að mengunarvaldar drægjust saman um fjórðung, og takmörkun á mannfjölgun. En eigi aö siður var dómur tölvunnar óglæsilegur. Ragnarökunum var aðeins talið skotið á frest fram undir 2100. Sennileika þessara útreikninga hefur m jög verið andmælt, meðal annars sökum þess, að þar var litið framhjá framleiðslu á mat- vöru úr gerviefnum og nýtingu námaauðs á hafsbotni. Verð- hækkun á ýmsum varningi geti lika hvatt til þess, að ódýrari vara verði eftírsóttari en áður og leitt til uppgötvana á verklegu sviði, er dragi úr orkunotkun og kapp- hlaupi um dýr hráefni. Mengun þarf ekki heldur endilega að auk- ast með aukinni framleiöslu, og vilja ýmsir telja hitt sennilegra, að snúizt verði til varnar gegn henni, þegar alkunna er, hversu geigvænlegar afleiðingar hún hefur 1 för með sér. Afnóm hervalds og stofnun alheimsstjórnar - ÞIÐ ÆSKUMENN, tuttugu til tuttugu og f jögurra ára, karlar og konur, sem þegar hafið eignazt börn eða munu eignast á næstu árum: Getið þið látið ykkur nægja að lifa kyrrlátu fjölskyldu- lifi með ráöagerðum um uppeldi barna ykkar og menntun i veröld, sem fljótt á litið er nokkuð tryggt hæli, en kann að sigla inn i krapp- an sjó, áður en langt um liður, þegar börnin eru komin á ykkar aldur? Þið vitið, að sifellt verður þröngbýlla i þéttbýlustu löndum heimsins, og þetta veldur óhjá- kvæmilegri spennu milli rikja, er að siðustu verður óþolandi. Væri ekki betra, að þið hugleidduð nú þegar, hvernig þið gætuð stuðlað að þvi að kveða það niður, sem ég kalla hernaðaryfirdrottnun — skiptingu heimsins i rikisheildir, sem byggjast á vopnavaldi? Eitthvað á þessa leið kemst átt- ræður maöur, Daninn H.V. Bröndsted, að orði I bók sinni Arið 2030: Og hann heldur áfram: Væri ekki skynsamlegra, að þið legðuð börnum ykkar þetta á hjarta, þegar þau hafa aldur til þess að skilja þaö, og notuðuð ykkur þannig þá þekkingu, sem þið hafið aflað ykkur við sögunám i skólunum. Væri ekki heppilegra, að þið horfðust i augu viö heims- vandann og reynduð að skilja hann betur en þið hafið gert — ekki sizt þar sem þið eruð alin upp við þá hugmyndafræði, að til- vera þessara hervelda sé nauð- syn? Börn ykkar verða komin til þroska árið 2000, og þá munu þau fæða af sér næstu kynslóð, er elur ykkur barnabarnabörn árið 2030. Þá má viða búast við væringum i heiminum. Væri ekki æskilegra, að þið glædduð nú þegar þann hugsunarhátt, sem getur hnekkt hernaðarvaldinu? H.V. Bröndsted segir, að mikil og gagnger sinnaskipti byrji að jafnaði á hljóðlátan hátt. En nýj- ar hugsanir, sem hafa i sér fólgiö lifsmagn, eru Hkastar hringun- um, sem myndast, þegar steini er kastað i vatn. Þær breiðast út. Og það er hlutverk unga fólksins að sjá um, að nýjar hugsanir með lifsmagni koðni ekki niöur. En heilinn er dásamlegt liffæri, segir Bröndsted, og hann getur alið og fóstrað hugsanir, sem koma þvert á venjubundin viðhorf. Veriö þess vegna ekki kviðin. Hann ætlast til þess, að unga fólkið sæti hvarvetna þeim tæki- færum sem gefast til þess að hnekkja trúnni á hervaldið i ver- öldinni og sannfæra alla um, hve viðsjárvert það er og hættulegt. Þetta nýja lifsviðhorf vill hann láta unga fólkið breiða út mann frá manni, þvert yfir öll landa- mæri og án tillits til litarháttar, trúarbragða, stjórnmálaskoðana, efnahags og stéttar. Hann segir, að svona boðun eigi auðvitað visa andspyrnu: „Þið munuð auðvitað alls stað- ar sæta viönámi, og andspyrnan verður mismunandi eftir þvi hvar er — mest I voldugustu rikjunum, stórveldunum, og allra hörðust i einræðisrikjunum, hvort sem þau eru i austri eða vestri. Þvi enginn skyldi dyljast þess, að einræðis- hneigðir eru einnig til i hinum vestræna heimi”. Draumur Bröndsteds er sá, að stofnuð verði alheimsstjórn, er trúin á hervaldið hefur verið brot- in á bak aftur, hervæðingin stöðv- uð og aðeins til vopnaðar gæzlu- sveitir, sem verða ekki nema ti- undi hluti þeirra herja, sem nú er haldiö uppi. Þessar gæzlusveitir eiga i rauninni aðeins að vera lög- reglulið, sem fylgjast með þvi, að samþykktum alheimsþings og ákvörðunum alheimsstjórnar verði framfylgt. Hvergi verði neinar herstöðvar af neinu tagi, nema þær, sem þessar alþjóðlegu gæzlusveitir þarfnast til þess að gegna störfum sinum. A alheimsþingi hugsar Brönd- sted sér tvo fulltrúa frá hverju riki I veröldinni og ekki fleiri frá stórveldunum en smárikjunum. Það verður auðvitað að hafa fjár- ráð, og tekjur þess eiga að vera skattur sem á er lagður i réttu hlutfalli við meðaltekjur þjóða á hvern mann og breytist eftir þvi, sem efnahagur þjóða breytist. Hann imprar á þvi að Simla á Indlandi veröi aðsetursstaður al- heimsþings og alheimsstjórnar. „En mikilvægast er, að hafizt verði handa”, segir Bröndsted. „Það má ekki gerast seinna en árið 2030, að stofnað veröi al- heimsþing og alheimsstjórn, þvi að á þeim tima, og jafnvel fyrr, mun mannkyniö hafa náð þeirri tölu, sem yfirleitt er unnt að hafa á stjórn á þvi landrými, sem jörð okkar býður”. Auknum hagvexti fylgir óhjákvæmiieg mengun Iofts, jarðar og vatns. Hve Iengi er hægt að auka framleiðslu og hagvöxt á kostnað þeirra lifsnauðsynja sem eru óhjákvæmileg til aö mannkynið getiö lifað áfram á jörðinni? TÍMINN Styrjaldir eru mesta hörmungin sem mannkynið leiðir yfir sig og verði ekki linnt vfgbúnaðarkapphlaupi og eyðileggingu er voðinn vís I framtiöinni. Þurfum ekki að óttast, ef.... VIÐ GETUM EKKI haldið áfram eins og við höfum gert. Þetta segja þrjátiu og fimm visinda- menn, flestir enskir, i bók, sem heitir Ef við eigum að lifa. Vigorð þeirra er þjóðfélög með jafnvægi. Það táknar eitthvað þveröfugt við það, sem Jónas Hall- grimsson kvað á sinum tima um að mönnunum munaði annaðhvort aft- ur á bak ellegar nokkuð á leið. Þessir visinda- menn vilja, að i staðinn fyrir iðnaðarsamfélög, þar sem trú manna er sú, að stöðug þensla sé helzt blessunin, komi kyrrstaða og hægfara breytingar i átt til mannfélags, sem fær staðizt til langframa. Hér verður að nema staðar, segja þeir, ef við viljum halda mannlegu samfélagi á þvi stigi, sem ekki kallar hörmungar yfir niðja okkar. Gerum við ekki sjálf- viljugir þær ráðstafanir, sem duga, munu þau lögmál, er eng- inn fær stöðvað, koma þil sögunn- ar og valda farsóttum hungurs neyð, þjóðfélagslegum kreppum og styrjöldum. Breytingar eru nauðsynlegar vegna þess, að mannfjölgunin og eyðslan á hvern einstakling er að kippa grund- vellinum undan lifsskilyrðum okkar. Umhverfi okkar er i hættu og auölindir að ganga til þurrðar. Visindamennirnir þrjátiu og fimm, sem flestir eru liffræðing- ar, vilja hrinda af stað, hreyf- ingu, sem á aö þrýsta ríkisstjórn- um til þess að stiga þau skref, er geta leitt til þess, að mannlegt samfélag festist i skorðum og maðurinn geti lifað af þá ógnun, sem nú blasir við. Uppástungur þeirra snúast, auk mengunar- málanna, meðal annars um þetta: Stofnað verði mannfjöldaráð fyrir 1980, og á hlutverk þess að vera að vinna að þvi, að fólkinu i heiminum hætti að fjölga. Refsingum verði beitt gegn framleiðslu tizkuvarnings og alls konar umbúða, sem hent er. 1 þvi skyni benda þeir á sérstakt skatt- kerfi. Einkaeign á farartækjum verði mjög skert, en samgöngutæki, sem þjóna almenningi, verði auk- in að sama skapi. Atvinnurekstri verði dreift og pólitiskt vald fært á fleiri staði, og verði þessari dreifingu svo langt komið árið 2050, að mikill hluti fólks búi i smáborgum, bæjum og sveitum. Markmiðið er kerfi hóf- legra samfélaga, sem hafa sjálf- stjórn og eru sem mest sjálf- bjarga, og verði þetta skipulag komið á til fulls árið 2075. Getum við komið þessari skipu- lagsbreytingu á án stórra áfalla og mikilla vandkvæða, eru miklar likur til þess, að okkur takist að koma á betri lifsháttum en við eigum nú við að búa, fyrir börn okkar og niðja, segja bókar- höfundar. Og þeir bæta við: Slik- um samfélögum er unnt að halda uppi til langframa, þveröfugt við þau samfélög, sem við nú lifum i, svo að sá arfur örvæntingar, sem við nú hrúgum upp, getur á elleftu stundu breytzt i arf, er kenna má til vonar um þolanlega framtið. Þegar vinnandi hend ur verða óþarfar — HVAÐ gerðist eigin- lega, ef i fyrramálið yrðu sett lög, sem fyrir- skipuðu sabbár — ár, þegar enginn mætti gera handarvik án þess að eiga það á hættu að vera sviptur launum sinum? Sennilega myndi fjöldi fólks bila á taugum af þeirri þolraun, sem að- gerðarleysið yrði þeim. Þessi orð féliu i umræðum um iðnarsamfélag það, sem virðist blasa við i háþróuöum löndum. Fyrr en varir getur það orðið eitt höfuðvandamálið, ef svo fer fram sem nú horfir að fá fólk til að að- hæfa sig tilveru, þar sem fæstir mega vinna. Með allri tækninni, sem sífellt fleygir fram, verður það sem sé ekki neitt vandamál að framleiða nóg handa öllum, þrátt fyrir sivaxandi kröfur og si- vaxandi eyðslu, svo lengi sem auðlindir endast. Það getur allt gerzt I sjálfvirkum verksmiðjum og athafnastöðvum, þar sem öllu er stjórnað með tölvum. Þær munu gera mannshöndina óþarfa við framleiðsluna á æ fleiri svið- um, og má þar benda á rannsókn- irog spádóma manna einsog Col- ins Clarks og Hermanns Kahns — bandariskra þróunarsérfræðinga. Eina fólkið, sem veröur þessum tæknisamfélögum nauðsynlegt, er fámennur hópur þrautlærðra sérfræðinga, sem einir kunna tök- in á stjórnun vélvæðingarinnar. Verkfræðingar, tæknifræðingar og dálitlir hópar visindamanna, sem fást við rannsóknir og til- raunir, skipa þær stöður, sem allt veltur á, og mega hafa verk með höndum. Aðrir geta gert það, sem þeim sýnist, ef eitthvað er. Einhverjum kann að finnast þetta lýsing á einhverju sæluriki. En 1 reynd er liklegt, að annað yrði upp á teningnum. Miklum fjölda fólks myndi áreiðanlega veitast erfitt að sætta sig við slika iðjuleysistilveru, margt ganga úr skorðum og mörgum verða ofboð- ið. Slik kollsteypa mannlegra hátta myndi draga dilk á eftir sér og ekki eiga sér stað án þess að margir gyldu þess grimmilega. Að visu myndi trúlega risa upp ný starfsgrein. Nú eru allir hlutir auglýstir allt hvað af tekur i þvi skyni að örva, laða, tæla og blekkja fólk til þess að kaupa flest milli himins og jarðar. t stað þess að gylla fyrir almenningi þennan eða hinn fatnaðinn, húsgögn og bila, spryttu trúlega upp hópar manna, sem hefðu á takteinum ráð til þess að kenna fólki, hvern- ig það á að eyða óendanlegum, ævilöngum tómstundum sinum, án þess að við sálarmorð jaðri. En þetta yrði auðvitað ekki ætl- að öllum, heldur einvörðungu hin- um nafnlausa múg. Þegar i bernsku yrðu þeir valdir úr, er gáfaöastir og hugkvæmnastir virtust, þvi að þar felast þeir, sem eiga að læra og stjórna og halda öllu gangandi. Þegar svona væri komið, yrði það ekki aðalsmerki i mannfélög- unum að eiga dýrasta bilinn og finustu fötin, heldur að mega vinna. Einmitt af þvi verður eng- inn hörgull á fólki, sem vill hatda áfram að starfa og leggja á sig hið mesta erfiði. Þar kemur til greina metnaðargirnin, frama- vonin(löngunin til að standa efst i þjóðfélagsstiganum. Við skulum bara vona, að þessari aðalsstétt framtiðarinnar detti ekki i hug að gera verkfall og skemmta sér við það, hvernig múgurinn iðjulausi og kunnáttúlausi bregzt við.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.