Fréttablaðið - 30.01.2005, Blaðsíða 48

Fréttablaðið - 30.01.2005, Blaðsíða 48
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 550 5000 Frumsýning 11. febrúar kl. 20 – UPPSELT 2. sýning 13. febrúar kl. 19 – FÁAR SÝNINGAR Miðasala á netinu; www.opera.is Netfang miðasölu; midasala@opera.is • Sími miðasölu: 511 4200 Banki allra landsmanna Besta búbótin Nýr Hæstaréttardómur í máligegn Akureyrarbæ um að starf kvenkyns deildarstjóra hjá Félags- málastofnun skyldi talið jafnverð- mætt og starf karlkyns deildar- tæknifræðings er merkilegur. Konur eru enn að glíma við jafnsjálfsagða hluti og að fá greidd sömu laun og karlmenn fyrir sambærileg störf. Þessi kjarabarátta er enn sem komið er nánast eingöngu háð af konum og virðist álitin einkamál þeirra þrátt fyrir að þessi kynbundna kjaraskerð- ing bitni með augljósum hætti á fjöl- skyldum landsins þar sem fyrirvinn- ur heimilanna eru yfirleitt tvær. SÚ HUGSUN kemst illa til skila að brot gegn jafnréttislögum sé raun- verulegt lögbrot. Kynjunum er enn mismunað á atvinnumarkaði, í laun- um og við stöðuveitingar. Vitneskjan um þennan veruleika liggur fyrir. Þess vegna höfum við jafnréttislög. JAFNRÉTTISLÖGIN gera ekki ráð fyrir jákvæðri mismunun eða kynja- kvótum. Af lögunum er hins vegar leidd forgangsregla sem á við ef tveir jafnhæfir einstaklingar hvor af sínu kyni sækja um starf í starfs- grein þar sem annað kynið er í minnihluta. Lögin banna að auki hvers kyns mismunun á grundvelli kynferðis. KONUR hafa hingað til háð jafn- réttisbaráttuna á þeim forsendum að þær vilji jafna möguleika. Tal um að hæfasti einstaklingurinn skuli ráðinn er í hróplegu ósamræmi við raun- veruleikann. Staða kvenna væri ein- faldlega önnur og betri ef hæfustu einstaklingarnir fengju störfin. Full- yrðingar um að hæfni ráði eingöngu för gefur til kynna að konur séu lak- ari starfskraftar en karlar. Þar sem völdin eru finnast fáar konur. STJÓRNMÁLAFLOKKARNIR keppast við að „selja“ fjölskyldufólki hugmyndir um bætt kjör. Skatta- lækkanir, fæðingarorlof og barna- bætur, lækkun matarskatts og hag- stæðu húsnæðislánin. Ein kjarabót er furðulítið er rædd af stjórnmála- mönnum. Hún er skuldbinding stjórnvalda og atvinnulífs um að segja kynbundnum launamun stríð á hendur. Að stjórnmálamenn gerðu meira en að segjast vilja jafnrétti – þeir myndu raunverulega vinna að því að ná því fram. Launajafnrétti yrði sennilega ein besta búbót sem hægt væri að færa fjölskyldufólki. Slík loforð fela ekki í sér ívilnanir til handa sérstökum hópum, heldur ein- faldlega að allir séu metnir að verð- leikum. Konur og karlar. ■ BAKÞANKAR ÞORBJARGAR S. GUNNLAUGSDÓTTUR

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.