Fréttablaðið - 11.02.2005, Blaðsíða 21
Smáauglýsingar
Flokkar
Bílar & farartæki
Keypt & selt
Þjónusta
Heilsa
Skólar & námskeið
Heimilið
Tómstundir & ferðir
Húsnæði
Atvinna
Tilkynningar
Frjáls íbúðalán
vextir
100
%
veð
set
nin
gar
hlu
tfa
ll
Engin skilyrði um önnur bankaviðskipti
Lánin eru verðtryggð og bera fasta 4,15% vexti sem eru endurskoðaðir
á fimm ára fresti. Hægt er að greiða upp án uppgreiðslugjalds þegar vextir
koma til endurskoðunar. Engin hámarksupphæð og er lánstími allt að 40 árum.
Krafa er gerð um fyrsta veðrétt íbúðarinnar. Lánshlutfall er allt að 80%
við endurfjármögnun fasteigna (engin hámarksupphæð) og 100% við kaup
fasteignar (hámarksupphæð 25 milljónir króna).
Hægt er að nota lánin til íbúðarkaupa, til að stokka upp fjármálin
eða í eitthvað allt annað.
Ráðgjafar okkar veita allar nánari upplýsingar. Þú getur litið inn í Ármúla 13a,
hringt í síma 540 5000 eða sent tölvupóst á frjalsi@frjalsi.is www.frjalsi. is
H
i
m
i
n
n
o
g
h
a
f
Hólmgeir Hólmgeirsson
rekstrarfræðingur er lánafulltrúi
á viðskiptasviði
Ragnheiður Þengilsdóttir
viðskiptafræðingur er lánafulltrúi á viðskiptasviði.
Lánstími 5 ár 25 ár 40 ár
4,15% vextir 18.485 5.361 4.273
*Lán með jafngreiðsluaðferð án verðbóta
Dæmi um mánaðarlega greiðslubyrði af 1.000.000 kr.*
Góðan dag!
Í dag er föstudagur 11. febrúar,
42. dagur ársins 2005.
REYKJAVÍK 9.36 13.42 17.49
AKUREYRI 9.29 13.17 17.25
Heimild: Almanak Háskólans
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Anna Sigríður Helgadóttir söngkona
hefur alltaf búið með eðalkokkum.
Hún segist sjálf vera góð í hakk- og
pastaréttum.
Anna Sigríður bjó á Ítalíu um fjögurra ára
skeið og tók með sér í farteskinu strauma
úr ítalskri matargerð þegar hún flutti heim
aftur. Hún segist þó ekki vera mjög fram-
sækin í eldamennskunni og lítið hafa þurft
að elda sjálf í gegnum árin. „Ég hef aldrei
búið ein og alltaf búið með svo góðum kokk-
um. Það hefur bara æxlast þannig,“ segir
Anna Sigríður. „Ég var til dæmis gift ítölsk-
um manni sem er miklu betri kokkur en ég
og nú bý ég með manni sem er algjör sér-
fræðingur í ákveðnum réttum. Við vorum
til dæmis með fólk í mat um helgina sem
fékk bókstaflega tár í augun, svo góður var
hryggurinn sem hann eldaði. Það er ein-
hver galdur þarna sem er engu líkur.“
Anna Sigríður segir að helst sé eldað á
hennar heimili á virkum dögum þar sem
hún vinnur óreglulegan vinnutíma og mest
um helgar. „Ívar sér um alla matseld á fiski
en ef við erum með hakk- eða pastaétti þá
elda ég.“
Sigríður er með uppskrift að einföldum
pastarétti með tómötum og basil og léttu
salati með. „Þetta er einmitt matur sem
hentar eftir bollu- og sprengidaginn, að
ekki sé talað um allan þorramatinn.“
Sigríður er tónlistarstjóri Fríkirkjunnar,
í hálfu starfi á móti Carli Möller, og er nú í
önnum með kórnum sem ætlar að vera með
tónleika næstkomandi fimmtudag í tilefni
Vetrarhátíðar Reykjavíkurborgar. „Þarna
verða Helena Eyjólfs-dóttir, Þorvaldur
Halldórsson og Ragnar Bjarnason og svo
rek ég nú hugsanlega upp einhverjar rokur
sjálf,“ segir Anna Sigríður hlæjandi. „Svo
spilar að sjálfsögðu tríó Carls Möllers.
Þetta er óskaplega spennandi og skemmti-
leg efnisskrá.“
Sjá uppskrift að tagliatelle og salati á næstu opnu.
edda@frettabladid.is
Gestirnir grétu af gleði
yfir lambahryggnum
Standlampar, borðlampar, úti-
ljós og ljósakrónur eru meðal
þess sem verslunin Glóey í
Ármúla 19 býður á verulega
lækkuðu verði um þessar
mundir því þar stendur yfir út-
sala og nemur afsláttur allt að
70%. Kastarar af mörgum gerð-
um eru líka á útsölunni og má
nefna þrjá kastara á palli, hvíta
með gylltri rönd, sem lækka
um helming, úr 4.60 í 2.300 og
annan sem kostaði 3.300 en er
nú á 1.980.
50-80% afsláttur er á kven-
fatnaði í versluninni Iðunni á
Skerjabraut 1 á Seltjarnarnesi
því þar hefur verið sett upp
lagersala. Þar fást dragtir, peys-
ur, buxur og káp-
ur en eins og
eðlilegt má
teljast eftir
mánaðarút-
sölu er far-
ið að vanta
inn í núm-
erin. Um er
að ræða
haustfatn-
að frá síð-
asta
hausti og
einnig
eldri lager.
Undirfatnaður er á afar góð-
um kjörum í versluninni
Change í Smáralindinni enda
eru síðustu dagar útsölunnar
runnir upp. Afslátturinn nemur
sjötíu prósentum á allri vetrar-
línunni en þar eru dekkri litir
en í vorlínunni. Undirfatasett
eru flest á 2 til 4.000 og þau
ódýrustu ná ekki tvöþúsund-
kallinum. Náttföt og sloppar
eru á útsölunni líka og flís- og
velúrheimagallar.
Blaðabakkar og ruslafötur
eru seld á hálfvirði í verslunum
Office 1 nú í febrúar. Blaða-
bakkarnir eru
á 199
krónur
og rusla-
föturnar á
295. Margt
fleira er á
febrúartilboð-
inu, svo sem ljósritun-
arpappír, tölvumús og far-
tölvustandur. Fimmtán pró-
senta afsláttur er af öllum duft-
hylkjum, vasareiknir sem áður
var á 695 kostar nú 395 og far-
tölva sem kostaði 139.900 selst
nú á 119.900. Hún er með
tveggja ára ábyrgð.
Anna Sigríður syngur gjarna við matargerðina. Hún og Ívar elda á virkum dögum, en fara frekar út að borða um helgar.
Smáauglýsingar
á 995 kr.
visir.is
LIGGUR Í LOFTINU
í tilboðum
FASTEIGNIR HEIMILI HEILSA HÚS NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR ATVINNA FJÁRMÁL TILBOÐ o.fl.
KRÍLIN
Ég á rólu en
nú vantar mig
bróður til að
ýta mér!
Galakjólar seldir með afslætti
BLS. 5
][
SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000
tilbod@frettabladid.is