Tíminn - 23.03.1975, Blaðsíða 20

Tíminn - 23.03.1975, Blaðsíða 20
20 TÍMINN Sunnudagur 23. marz 1975. Sunnudagur 23. marz 1975. TÍMINN Hvað gera þau í tómstundunum? Greinaflokkur Hvað gera þau í tómstundunum? Greinaflokkur Hvað gera þau í tómstundunum? Greinaflokkur Hvað gera þau í tómstundunum? Utanríkisráöhcrra er mikill tónlistarunnandi. Hann hefur gaman af margs konar tónlist, meöai annars jazztónlist, en hvaö þaö er, sem hann ætlar aö fara aö hiusta á núna, vitum viö ógerla. — Tímamynd Gunnar. Handknattleiksliö á þvi herrans ári 1939. Sitjandi (frá vinstri): Guömundur Magnússon, Einar Agústs- son og Benedikt Antonsson. Standandi (frá vinstri): Garöar Glslason (þjálfari), Páimi Möller, Vilberg Skarphéöinsson, Agúst Sveinbjörnsson og Guöjón Einarsson, formaöur. „Þá gleymi ég bók- staflega öllu öðru..!', segir Einar Ágústsson utanríkisráðherra, sem hér ræðir tómstundavinnu sína og hugðarefni Bridgefélagar á góöri stund viö spilaboröiö. Taiiö frá vinstri: Gunngeir Pétursson, séra Skarphéöinn heitinn Pétursson, örn Guömundsson og Einar Agútsson. EINAR AGUSTSSON, núver- andi utanrlkisráöherra, er einn þeirra fjölmörgu manna, sem þurfa aö eyöa flestum vinnudögum sínum viö skrifborö. Aö loknu stúdentsprófi og lög- fræöinámi I Háskóla tslands geröist hann skrifstofustjóri, en siöan bankastjóri og mál- flutningsmaður. Er þó ótalin seta I borgarstjórn Reykjavikur, á Alþingi og I tveim rikisstjórnum. öll munu þessi störf vera fremur þreytandi, og þvi ekki óllklegt að maöur, sem þeim gegnir, muni þurfa á hviid og tilbreytingu aö halda. Spilaði bridge um langt árabil Og þá liggur næst fyrir að snúa sér aö efninu og bera upp fyrstu spurninguna: — Byrjaöir þú snemma, utan- rikisráöherra, að verja tómstundum þinum skipulega á einhvern hátt? — Nei, það get ég ekki sagt. Ég hef frá blautu barnsbeini verið ákaflega hneigður fyrir bóklestur, og er það enn, en hins vegar varð það svo — eftir að ég hætti i iþróttum — að tómstunda- iðja min um langt árabil var að spila bridge. Ég eyddi i þetta miklum tima og hafði af þvi ómælda ánægju, en þegar ég tók viö ráðherraembætti, varð ég að hætta þessu alveg, og liggja til þess ástæður, sem vafalaust eru ljósar öllum, sem einhvern tima hafa spilað á spil. Eins og öllum er kunnugt, er bridge fjögurra manna leikur, og þvi þarf hver sem ætlar að leika hann að binda sig þrem mönnum til viðbótar sjálfum sér. En eftir að ég tók við þessu embætti, sem ég hef gegnt undanfarin ár, uröu kvöldin hjá mér svo upptekin, að ekki var nein leiö til þess aö ég gæti haldiö órofnu sambandinu við mina spilafélaga. Ég hef þvi alveg lagt spilamennskuna á hilluna . bæði vegna þess, að ég fæ ekki menn til þess að spila við mig þau fáu kvöld sem ég á fri, og auk þess þykir mér svo gaman að spila, að ég vil annað hvort gera talsvert mikið að þvi, eða ekki neitt. — Hvernig hefur þú þá varið þeim stopulu tómstundum sem gefizt hafa, eftir aö þú varöst ráðherra? — Ég ver þeim aðallega til þess að lesa bækur. — Hvað lest þú aðallega? — Það má heita, að ég sé alæta á bækur, en skemmtilegast þykir mér þó að lesa bækur um ættfræði' eða þjóðlegan fróðleik. Auk þess hef ég mikið yndi af tónlist, einkanlega óperum. Ef einhver man, þegar ég fékk að stjórna dagskrá Utvarpssins i eina klukkustund, ekki alls fyrir löngu, þá munu þeir minnast þess, að þar skipuðu óperur talsvert stórt rUm. Ég hlusta lika oft á hljóm- plötur heima hjá mér, þegar tómstundir gefast. Þá var haldboltinn handbolti, en ekki áfiog — Þú nefndir Iþróttir. Varstu ungur, þegar þú ánetjaöist þeim, ef ég má svo aö oröi komazt? — Ég hef alla ævi verið hneigð- ur fyrir iþróttir, og á skólaárum minum stundaði ég mjög mikið handbolta, sem Valdimar Svein- bjömsson kenndi okkur, mennt- skælingum þeirra tima. Ég náði talsverðum árangri i þessari iþrótt, og held að ég hafi meira að segja einu sinni orðið Islands- meistari. Þetta var nokkuð öðru visi handbolti en sá, sem nU er leikinn, og satt að segja finnst mér að hann hafi verið miklu skemmtilegri. Þá tiðkuðust ekki áflög, heldur var þetta raunveru- legur boltaleikur. — Toímstundaiðja þln hefur þá tekið breytingum I áranna rás? — Já, það hefur hUn óneitanlega gert. En það stafar mest af tilvilj- un, og svo af þvi, hvernig störf min hafa skipazt, fremur en að áhugi minn hafi dvinað eða horfið. Þannig hef ég til dæmis enn mjög mikinn áhuga á iþrótt- um og fylgist með þeim ásamt syni minum, fjórtán ára gömlum, sem nU er að byrja sinn iþrótta- feril. — Ert þú þá ekki líka, sem fyrr- verandi Iþróttamaður, mikiö gefinn fyrir útiveru, svona al- mennt? — JU, sannarlega. Útivera er og hefur alltaf verið mér ákaflega mikils virði. Ég á sumarbUstað hér i nágrenni Reykjavikur, þar sem ég reyni að vera eins mikið og ég get.ekki einungis á sumrin, heldur lika á veturna. Þá fer ég gjarna i gönguferðir þaðan um nágrennið. Að visu hefur orðið heldur minna um þetta undan- farna vetur en ég hefði viljað, en marga vetur hef ég reynt að komast þangað sem mest um helgar, og fer þá fótgangandi eða á skiðum, eftir þvi sem aðstæður hafa leyft, en vegasamband við sumarbUstaðinn er heldur vont, og oftast þarf ég að ganga eitt- hvaö meira eða minna, til þess að komast þangað. Og satt að segja þykir mér það fremur kostur en galli. ,,Þá gleymi ég bók- staflega öllu öðru........" — Hvaö heldur þú aö þér þyki ánægjulegast af þvl sem þú hefur gripiö til I tómstundum þinum? — Þvi er erfitt að svara. Sann- leikurinn er sá, að hugur minn er mjög opinn fyrir ýmsu, sem til skemmtunar má verða, en ef ég ætti að reyna að gera þar upp á milli, þá held ég næstum, að ég myndi setja spilamennskuna efst á blað. — En hvað finnst þér hvert um sig hafa heizt til sins ágætis af þessu, sem viö höfum veriö aö tala um? — Það, sem gerir til dæmis spila- mennsku svo aðlaðandi fyrir mig, er.aðþegaréger seztur við spila- borðið, þá gleymi ég bókstaflega öllu öðru, slaka fullkomlega á, og vandamálin, sem við er að fást i daglegu starfi, hvarfla ekki einu sinni að mér. Að þvi leyti er mér sá leikur hollur, þótt vafalaust flokkist það ekki beinlinis undir hollustu að sitja við spilaborð, iðulega i tóbaksreyk og vondu lofti. Um Utiveruna þarf naumast að ræða. Allir vita, hversu aðlaðandi og heilsusamlegt það er að ganga Uti, hvort sem ' gengið er á skiðum eða á hestum postulanna einum saman. Einnig þar veitist manni sU likn að losna við áhyggjur hversdagslifsins, en þó sækja þær fremur að mér á göngu en við spilaborðið. En hitt kemur á móti: að á gönguferðum dettur manni oft i hug einhver lausn á vandamálum, sem hafa þvælzt fyrir manni að undanförnu, án þess að fram Ur þeim hafi verið ráðið. Bóklest©- er lika allvel til þess fallinn að dreifa huganum, auk þess, sem hann veitir menntun og beina fræðslu. Mér finnst ákaflega gott að lesa ævisögur merkra manna. Mér finnst ég færast nær þessum mönnum, við að lesa sogu þeirra, en auk þess veitir slikur lestur margháttaðan fróðleik um lif og starf þeirra kynslóða, sem á undan okkur eru farnar. Og skilningur á fortiðinni ætti að hjálpa okkur til þess að leysa vandamál liðandi stundar. A skólaárum minum las ég mikið af skáldsögum, en það hefur minnkað mjög upp á slökastið. Ég er meira hneigður fyrir það sem kalla mætti þjóölegan fróðleik, og svo ætt- fræöi, sem er að ná vaxandi tök- um á mér, og sem ég hef hugsað mér að vinna að, einhvern tima seinna, ef ég fæ tima til. Þá er gott að rifja upp gaml- ar spilaþrautir — ÞU sagðist slaka á þegar þu ert seztur að spilum, en sækir þá ekkert að þér sU árátta aö verða spenntur og kappsfullur i spila- mennskunni þannig að þar komi bara ný streita i staðinn^fyrir þá, sem þU skildir eftir á skrif- stofunni? — Ekki neita ég þvi, að það geti stundum verið svolitið erfitt að sofna, eftir að maður hefur verið i hörku-spilakeppni, en það er nU samt allt annars eðlis en áhyggjur af hversdagslegum störfum. Ég hef alltaf haft sér- staka ánægju af þvi að ráða bridge-þrautir og ef það kemur fyrir, sem er að visu afarsjald- gæft nUorðið, að ég eigi erfitt með að sofna á kvöldin, þá grip ég gjarna til þess að rifja upp gamlar spilaþrautir og leita lausnar á þeim. Það hvilir hugann ákaflega mikið. — Ertu ekki lika skák- ■ maöur? — Nei. Ég hef aldrei lært al- mennilega að tefla, þótt ég að visu hafi kunnað mannganginn frá þvi að ég var barn. Ég sé eftir þvi aö hafa ekki náð viðunanleg- um tökum á skákinni. Það heföi komið sér vel að kunna að tefla nUna, eftir að tómstundir urðu færri og strjálli, þvi að vitanlega er miklu auðveldara að fá mann til þess að gripa með sér eina skák, en að ná saman fjórum mönnum til reglubundinnar spilamennsku. Áhugi á jass- músik er enn fyrir hendi — Það kom fram hér áöan, að þú hefðir yndi af hinni æöri tegund tónlistar. Hefur þú þá ekki boriö það viö að semja lög? — Nei, það hef ég aldrei gert, enda er ég alveg ólærður i tónlist. Ég þekki tónlist aðeins sem áhugamaður, er neytandi hennar en ekki framleiðandi. Mér hefur aldrei dottið i hug að semja lög, enda gæti ég það áreiðanlega ekki, þótt ég reyndi það! Hitt er annað mál, að ég hef alltaf haft mikið yndi af tónlist, og jassinn heillaði mig talsvert hér á árum áður, og enn er sá áhugi ekki með öllu kulnaður. — Lékst þú ekki I hljómsveit ein- hvern tima? — Nei,þaðhefégaldrei gert. Það er alveg rétt, sem ég sagði hér áðan, að ég er á allan hátt þiggjandi en ekki veitandi, þegar tónlist er annars vegar, ég hef ekki einu sinni leikið á hljóðfæri. Hins vegar hef ég nógu mikið eyra fyrir tónlist til þess að geta notið hennar, þegar ég er á ferð erlendis, sækist ég eftir þvi að komast á hljómleika. Hins vegar hafa þær ferðir, sem ég hef farið siðan ég varð r'áðherra, flestar verið stuttar, og auk þess er jafnan mjög ásetið, svo að timi til þess að nota ferðina sér til ánægju um leið, hefur orðið minni en ég hafði vonað og gert mér i hugar- lund áður en ég tókst þetta starf á hendur. — Býst þú ekki viö aö nema ein- hver ný lönd og sviöi tómstunda- iöjunnar slöar meir? — Þarna komst þu við kvikuna á mér. Ég hef fyrir löngu ásett mé að nota þann tima, sem mér kann að gefast á efri árum ævinnar, til þess að grUska i ættfræði. Enn sem komið er hef ég ekki samið neitt i þessu skyni, heldur látið mér nægja að lesa, og svo að eignast allan þann bókakost, sem mér er unnt um þessi efni. Ég tel mig orðinn sæmilega vel að mér um ættir hér á Suðurlandi, þar sem ættir minar liggja — og það er vist mannlegt að hafa mestan áhuga á eigin forfeðrum. Ég get þvi vel hugsað mér að nota tómstundir minar i framtiðinni til ættfræðigrUsks, en aftur á móti býst ég ekki við þvi, að ég muni nokkru sinni skrifa ævisögu mina! -VS. Einar Agústsson utanrlkisráöherra á einstaklega fallegt heimili og margt ágætra bóka, sem hann leitar gjarna til, þegar tómstundir gefast. — Tlmamynd Gunnar. Hvað gera þau í tómstundunum? Greinaflokkur Hvað gera þau í tómstundunum? Greinaflokkur Hvað gera þau í tómstundunum? Greinaflokkur Hvað gera þau í tómstundunum? t

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.