Tíminn - 16.05.1975, Blaðsíða 2
2
TÍMINN
Föstudagur 16. mai 19V5.
Óbreytt álagning
á allar vörur
til 17. maí
Opið til 10 föstudagskvöld
Vorumarkaðurin nhf.
1 ÁRMÚLA 1A Símar:
Matvörudeild 86-111
Húsgagnadeild 86-112
Heimilistækiadeild 86-112
Vefnaðarvörudeild 86-113
Skrifstofan 86-114
Bifvélavirki óskast
Bílaleiga Loftleiða h/fóskar eftir að ráða
bifvélavirkja til viðgerða og réttinga bif-
reiða.
Eingöngu um sumarstarf að ræða.
Upplýsingar gefnar hjá Bilaleigu Loft-
leiða h/f.
Flugleiðir h/f
Bókhaldsvélar
til sölu
Viljum selja þrjár bókhaldsvélar. — Lyst-
hafendur hafi samband við okkur i sima
92-2100.
Bókhaldsstofa Árna R. Árnasonar
Skólavegi 4 — Keflavik
Bændur
óskum eftir að koma tveim 5 ára telpum á
gott sveitaheimili i 2-3 vikur i sumar.
Helst á S-Vesturlandi.
Upplýsingar i sima 15663 og 84578.
KJÖTSKROKKAR
1 , nauta
% svin
folöid
M lömb
-4-55/ks
-588/kg
2?0/kg
29?/kg
ÚTB, POKKUN, MERKING
innifdiö í verði.
TILBÚIÐI FRYSTIRINN í
FRAMLEIÐSLUAUKNING
í IÐNAÐI ÓVERULEG
FYRSTA ÁRSFJÓRÐUNGINN
NIÐURSTÖÐUK rannsóknar á
afkomu iðnaðarins benda til, að
einhver framleiðslumagnsaukn-
ing hefur orðið á árinu 1974 miðað
við 1973, eða um 4-5% samkvæmt
þeim upplýsingum, er bárust um
hiutfallslega breytingu fram-
leiðslumagnsins. Samsvarandi.
hlutfallstala árið áður var 7-9%,
og virðist þvl vera um mun hæg-
ari aukningu að ræða. Aukningin
var mest I prjónavöruiðnaði,
plastiðnaði og smlðum og við-
gerðum rafmagnstækja, hins
vegar varð minnkun, t.d. I sæl-
gætisgerð og kemiskum undir-
stöðuiðnaði.
Nokkur framleiðsluaukning
varð á 4. ársfjórðungi 1974 miðað
við 3. ársfjórðung, og var þar um
svipaða aukningu að ræða og árið
áður. Ekki var gert ráð fyrir, að
um neina verulega framleiðslu-
aukningu yrði að ræða I iðnaðin-
um á 1. ársfjórðungi 1975, en gert
ráð fyrir að framleiðslumagnið
yrði mjög svipað og á síðasta árs-
fjórðungi 1974.
Fyrirliggjandi pantanir og
verkefni voru töluvert minni i
árslok 1974en ilok 3. ársfjórðungs
1974, og taldi um þriðjungur fyrir-
tækjanna, er þátt tóku i könnun-
inni, að fyrirliggjandi pantanir
væru minni.
Lltilsháttar minnkun varð á
starfsmannafjölda á 4. ársfjórð-
ungi 1974 miðað við 3. ársf jórðung
1974. Hins vegar er gert ráð fyrir
enn frekari fækkun starfsfólks á
1. ársfjórðungi 1975. Þessarar
niðurstöðu hefur ekki gætt um
árabil.
Nýting afkastagetu var svo til
sii sama I árslok 1974 og i lok 3.
ársfjórðungs. Arið áður hafði nýt-
ing afkastagetu hinsvegar batnað
talsvert.
Innheimta söluandvirðis versn-
aði nokkuð á 4. ársfjóðrungi mið-
íslenzki þjóð-
búningurinn
vinsæll
— K.l. gefur út tvo
bæklinga
ÞAR SEM Islenzki þjóðbfiningur-
inn virðist njóta vaxandi vinsælda
á meðal æskufólks, hefur K.í.
ráðizt I að gefa út lýsingu og leið-
beiningar um saum á upphlut
telpna. Fylgir einnig snið af upp-
hlutsbol I tveimur stærðum.
Ýtarlegar vinnulýsingar af
upphlut 20. aldar má finna i ritinu
íslenzkir þjóðbúningar I, sem
gefinn var út i fyrra á þjóðhátið-
arárinu af Heimilisiðnaðarfélagi
Islands, Kvenfélagasambandi ts-
lands og Þjóðdansafélagi Reykja-
vikur. Segja má að bæklingurinn
„Upphlutur telpna” sé nokkurs
konar framhald af ritinu Þjóð-
búningur I.
Sama er að segja um hinn
bæklinginn, Upphlutur nitjándu
aldar, sem út er kominn. í þeim
bæklingi er lýsing á búningnum,
og m.a. snið af upphlutsbol og
húfu, uppskrift af “prjónaðri
djúpri skotthúfu og tillaga um
upphlutsskyrtu.
Elsa E. Guðjónsson safnvörður
hefur tekið saman báða bækling-
ana.
að við 3. ársfjórðung. Sambæri-
leg, en miklu hægari þróun hefur
átt sér stað undanfarin ár. Er
sem áður, að þetta er mest áber-
andi hjá fyrirtækjum, er skipta
aðallega við útgerðarfyrirtæki og
önnur fyrirtæki tengd sjávarút-
vegi. En sífellt bætast nýjar
greinar verksmiðjuiðnaðarins
BH-Reykjavik — A vegum Verzl-
unarráðs tslands verður efnt til
viðskiptaþings I næstu viku, þess
fyrstasem Verzlunarráðið gengst
fyrir.cn samvinnuaðilar þess um
þingið eru Bllgreinasambandið,
Félag Isl. stórkaupmanna, Kaup-
mannasamtök Islands, Landsam-
band islenzkra verzlunarmanna
og Verzlunarmannafélag Reykja-
víkur. Viðfangsefni þingsins er að
ræða um hlutverk verzlunar og
verðmyndunar I frjálsu markaðs-
hagkerfi.
1 viðtali við Timann sagði Hjalti
Geir Kristjánsson, stjórnarmað-
ur i Verzlunarráðinu, að á sl. ári
hefði lögum Verzlunarráðsins
við, s.s. matvæla- og drykkjar-
vöruiðnaður, fataiðnaður og inn-
réttingasmiði.
Minna var um fyrirhugaðar
fjárfestingar i iðnaði um siðustu
áramót miðað við áramótin þar á
undan, en þá hugði helmingur
fyrirtækjanna á fjárfestingu árið
1974.
veriö breytt, þannig að þvi bæri
að halda viðskiptaþing annað
hvert ár, það ár, sem aðalfundur
er ekki haldinn. Viðskiptaþingið
stendur I tvo daga. Það hefst
þriöjudaginn 20. mai kl. 13.30 i
Kristalsal Hótel Loftleiða, og
starfar þar, en lýkur með mót-
töku að Þverá á miðvikudags-
kvöld.
Ætlunin er, að með þessu við-
skiptaþingi verði leitað svara við
þeirri spurningu, hvort hagkerfið
og verðmyndunarkerfið hafi ver-
ið með þeim hætti, sem æskileg-
ast væri, og ef ekki, þá helzt að
komast að niðurstöðu um, á hvern
hátt megi færa það til betri vegar.
Borgarleikhúsið:
Stofnskráin samþykkt
í borgarstjórn
BH-Reykjavik — Leikarar og
starfsmenn Leikfélags Reykja-
vikur fjölmenntu á áheyrenda-
paliana i borgarstjórn I gær, en
mjög er óvanalegt að sjá þar
gesti. Starfsmenn L.R. höföu þó
ærið tilefni til að heimsækja borg-
arstjórn, þvi þar var fjallað um
stofnskrá borgarleikhússins.
Þegar úrslit atkvæðagheiðslunn-
ar voru kunn, dundi við dynjandi
lófatak, þvi stofnskráin var sam-
þykkt með fjórtán samhljóða at-
kvæðum.
Borgarleikhúsið mun rlsa af
grunni i nýja miðbænum I
Kringlumýrinni og mun leikhús-
ráð verða skipað þremur mönn-
um úr stjórn L.R., leikhússtjóra
og einum fulltrúa borgarstjórnar.
Albert Guðmundsson, borgar-
fulltrúi ihaldsins krafðist meiri
stjórnar borgarinnar yfir þessari
„borgarstofnun” og sat þvi hjá
við atkvæðagreiðsluna, þar eð
skoðanir hans fengu engan hljóm-
grunn.
Teikningar að borgarleikhúsinu
munu senn fara til bygginga-
nefndar og þvi ætti ekki að liða
langur tími, þar til bygginga-
framkvæmdir hefjast.
Viðskiptaþing
fjallar um verð-
myndunarkerfið
60 hross ú kappreiðum Fáks
A annan I Hvltasunnu heldur
Ilestamannafélagið Fákur hinar
árlegu kappreiðar, sem kenndar
hafa verið við Hvítasunnuna, I 53.
sinn. Kappreiðarnar verða haldn-
ar á kappreiðavellinum að Vfði-
völlum við Selás og hefjast klukk-
an 14. Auk kappreiða verða sýnd-
ir gæðingar félagsmanna, sem
dæmdir hafa verið, bæði alhliða
ganghestar og klárhestar með
tölti. Samtals verða sýndir 28
gæðingar og dómum, sem felldir
verða á vellinum á Iaugardag frá
klukkan 14. lýst.
Kappreiðahross eru óvenjulega
mörg eða um 60. Keppt verður i
250 metra skeiði og mæta þar til
leiks ýmsir af snjöllustu skeið-
hestum landsins.svo sem Hvinur,
sem vann vorkappreiðarnar og
Máni, frá Alsnesi. Þá verður 250
metra unghrossahlaup og 350
metra stökk. 1 þvi hlaupi má
nefna Sunnu Guðrúnar Guð-
mundsdóttur, sem vann á vor-
kappreiðunum, Loku, en knapi á
henni er Sigurbjörn Bárðarson,
Geysi og marga fleiri.
1 800 metra stökki keppa 12
hestar, þeirra á meðal Breki,
Trausta Guðmundssonar, sem
vann vorkappreiðarnar, Þjálfi og
Stormur, margfaldur sigur-
vegari. Loks er svo 1500 metra
brokk, en i þvi keppa 6 hestar.
Búast má við mikilli keppni,
þar sem auk margreyndra og
sigursælla hlaupahesta, mætir nú
til leiks fjöldi óþekktra hrossa,
sem áreiðanlega eiga eftir að
gefa þeim reyndari harða keppni.
Veðbanki verður starfræktur að
venju og má nefna, að á vorkapp-
reiðunum gaf veðbankinn allt upp
I rúmlega 8-faldan vinning.