Tíminn - 16.05.1975, Side 3
Föstudagur 16. mai 1975.
TÍMINN
3
„BLÓÐRAUTT SÓLARLAG"
KVIKM YNDAÐ í DJÚPUVÍK
Djúpvíkingur í einu aðalhlutverkanna
SJ—Reykjavik — Nú er i athug-
un aö sjónvarpsmynd veröi gerö
eftir leikrit Hrafns Gunnlaugs-
sonar, Blóörautt sólarlag, i
Djúpuvik á Ströndum. Leikur
Hrafns gerist i eyöiþorpi og er
Djúpavik á margan hátt vel til
kvikmyndageröarinnar fallin.
Þar var eitt sinn umfangsmikil
sildarútgerö og er mikiil hiuti
staöarins I meira lagi eyðilegur,
þó búa þar nokkrar fjöískyldur,
og fann raunar leiðangur, sem
fór þangað á dögunum einn
aðalleikarann á staönum.
Hrafn Gunnlaugsson og Egill
Eövaldsson, sem væntanlega
kemur til með að stjórna
upptöku myndarinnar, ásamt
þrem mönnum öðrum komu á
þriðjudagskvöldið úr nokkurra
daga heimsókn í Djúpuvik. —
Við fundum þarna einmitt það
sem viðþurftum á aðhalda, tóm
hús, gamla sildarverksmiðju og
alls kyns rangala, sagði Egill
Eðvaldsson.
Agli og Hrafni bar saman um
að fólkið i Djúpuvik hefði verið
ákaflega vinsamlegt og sam-
starfsfúst og það væri ekki hvað
slzt mikils virði, þar sem ekkert
hótel eða önnur aðstaða er i
þorpinu fyrir kvikmyndaleið-
angur að búa á.
— Hugsanlegt er að kvik-
myndatakan geti byrjað i júni
eða ágúst, ef framkvæmdirnar
fá grænt ljós, sagði Hrafn Gunn-
laugsson. — Ég er sannfærður
um að Blóðrautt sólarlag tek-
ið i Djúpuvik er ódýrasta mynd,
sem sjónvarpið gæti gert miðað
við efni og aðstæður.
Leiðangursmennirnir mældu
upp allt þorpið, kvikmynduðu og
ljósmynduðu i bak og fyrir.
Kostnaðaráætlun lá fyrir áður
en leiðangurinn var gerður, en
málið er sagt á viðkvæmu stigi
hjá forráðamönnum sjónvarps.
Hrafn fékk sem kunnugt er mill-
jón króna styrk frá Mennta-
málaráði til að gera myndina,
en kostnaður við slikar myndir
er fljótur að hlaupa á milljónum
svo sem kunnugt er frá Lén-
harði fógeta og þvi er trúlegt að
útvarpsráðsmenn og forráða-
menn sjónvarps séu uggandi.
Að sögn Hrafns eru leikarar
aðeins fjórir auk þess sem
fannst á staðnum?
Óeðlilega mlkill verðmunur
á farþega- og leiguflugi
— segja forráðamenn Flugleiða
Gsal-Reykjavik — Mikiar um-
ræöur hafa oröiö á þingi um rikis-
ábyrgö fyrir Flugleiöir hf., en
máliö hefur enn ekki veriö til
lykta leitt þar. Ýmis mál hafa
spunnizt inn I þær umræöur á
þingi, m.a. samkeppni feröaskrif-
stofanna, sem leitt hefur til stór-
iækkunar á fargjöldum til sólar-
landa. Flugleiöir eiga þátt I þeirri
samkeppni, þvi aö þær greiddu
veg tveggja feröaskrifstofa I þá
átt aö lækka fargjöldin, — og ferö
nemenda Tónlistarskólans til
Vínar, sem var boöin á 15.000 kr.,
sem er margfalt lægra verö en
Flugleiöir bjóöa i sinu áætlunar-
flugi.
Að tilvisan stjórnarformanns
Flugleiða hafði Timinn tal af
Martin Petersen, framkvæmda-
stjóra markaðsdeildar.
Hann sagði, að verið væri að
taka hlutina úr samhengi, þegar
rætt væri um ferðina til Vinar. Að
þvi er hann bezt vissi hefði i þvi
tilviki verið búið að leigja vélina
fyrir hóp frá Austurriki til Is-
lands, og hefði hún ella flogið tóm
út.
Varðandi sólarlandaferðirnar
sagði Martin, að forráðamenn
beggja ferðaskrifstofanna hefðu
gefið skýringar á þvi, þar sem
fram hefði komið, að þeir hefðu
sjálfir gert ákveðnar ráðstafanir
hvað snerti þeirra eigin útreikn-
inga, sem hefðu breytt verðinu.
— Flugleiðir eiga ekki stærstan
þátt I þessu máli. Þær eiga
kannski einhvern þátt i þvi, en
mér finnst, að of stór orð hafi ver-
ið notuð um það, að við höfum
verið að undirbjóða. Að sjálf-
sögðu gæta allir sinna hagsmuna,
og ég geri ráð fyrir að Otsýn og
Úrval hafi verið að gæta sinna
hagsmuna í sambandi við Sunnu-
ferðaskrifstofurnar og Landsýn,
sem voru, áður en þetta kom til,
búnar að undirbjóða bæði fJtsýn
og Orval.
Martin kvað það vera skoðun
forráðamanna Flugleiða, að mjög
óeðlilegur munur væri orðinn á,
annars vegar áætlunarflugi og
hins vegar leiguflugi.
Við inntum Martin eftir þvi,
hvort hann teldi, að Flugleiðir
myndu reyna að draga sig út úr
samkeppni ferðaskrifstofukóng-
anna^ eftir að þeir fengju rikisá-
byrgð til lagfæringar rekstrar-
stöðu sinnar.
Kvaðst hann ekki geta talað um
stefnu Flugleiða á þessu stigi
málsins, þar eð þau mál hefði
ekki borið á góma enn.
Tlminn innti Kristján Guð-
laugsson, stjórnarformann Flug-
leiða eftir hans áliti á framkomnu
boði forstjóra ferðaskrifstofunnar
Sunnu, þess efnis að yfirtaka eitt-
hvað af áætlunarflugi Flugleiða,
til að sýna fram á, að hann gæti
boðið lægri fargjöld en nú standa
til boða.
— Það er bara snakk. Það vita
allir, að hann flýgur ekki fyrir 12
þús. kr. milli íslands og Norður-
landanna. Það er útilokað, þótt
hann hafi fulla vél, þvi þá hefði
hann rétt fyrir eldsneytiskostn-
aöi. Svona fullyrðingar eru bara
til að hlæja að.
Kristján kvað það algjöran
misskilning, sem fram hefði kom-
ið hjá einum þingmanna, en hann
hélt þvi fram, að ekki hefði tekizt
aö fá upplýsingar um eignir fé-
lagsins erlendis. Nefnd sú, sem
skipuð var af hinu opinbera, hefði
haft fullan aðgang að öllum
þeirra bókum og reikningum,
þannig að engu væri verið að
leyna.
Kristján taldi eðlilegt, að rikið
hefði eftirlit með rekstri félags-
ins, og kvaðst telja, að þvi yrði á
þann veg háttað, að félagið gæfi
Seðlabankanum mánaðarlegt
yfirlit um rekstur félagsins, svo
og ársfjórðungslega.
Þannig hefði eftirlitinu verið
háttað, og kvaðst hann ekki telja,
að breytingar yrðu á þvi fyrir-
komulagi, þótt rikisábyrgð feng-
ist.
Verkfallinu í
KHÍ aflétt
Gsal-Reykjavik — Kennarahá-
skólanemar hafa aflétt prófverk-
falli sinu, án þess þó aö þeir hafi
fengiö viöhlítandi lausn sinna
mála, aö þvier þeir telja. Aö sögn
eins nemandans afléttu þeir verk-
fallinu, eftir að skólastjórnin
hafðilýstþviyfir á fundi I gær, aö
hún myndi lita á máliö með vel-
vilja.
ASÍ-fundi
frestað
FUNDI ASÍ, sem boðað var til i
gær, var frestað, og hefur hann
veriö boðaður i dag kl. 2 hjá sátta-
semjara.
Verkfræðingar undirrituðu
bráðabirgðasamkomulag á fundi
i fyrrakvöld, og var félagsfundur
hjá þeim I gærkvöldi.
Ekki er okkur kunnugt um að
boöaöir hafi verið fundir i togara-
deilunni, eftir £ð upp úr samn-
ingaviðræðum slitnaði I fyrra-
kvöld.
Hvassafelliö er komiö tii Akureyrar, þar sem þaö biöur nú eftir aö
komast I slipp. Þessa ljósmynd tók Friörik Vestmann af Hvassafellinu
og brezka björgunarskipinu Lifeiine I Akureyrarhöfn i gærdag.
Sjálfsvörn segir pilturínn
Gsal-Reykjavik — Pilturinn,
sem varð manni aö bana i
Ólafsvík aöfaranótt miöviku-
dags, hélt þvi fram viö yfir-
heyrslur i fyrrinótt, aö verkn-
aöurinn heföi veriö framinn I
sjálfsvörn — en engin vitni
voru aö atburöinum. Sakir
þess, aö ekki liggur fyrir
krufningsskýrsla, kvaöst
sýslumaöurinn I Stykkishólmi
ekki geta greint frá áverkum á
líkinu, en vitaö væri um
áverka á læri og á hálsi.
Maöurinn sem lézt hét Rafn
Svavarsson, til heimilis aö
Bragagötu 38 í Reykjavik.
AFAAÆLISHÁTÍÐ
AAENNINGARVITA
Á SIGLUFIRÐI
JÞ-Siglufirði — A siðastliðnu ári
kom fram hér á Siglufirði hug-
mynd um að hefja til vegs og
virðingar á ný minninguna um 20.
mai 1918, en þann dag hlaut Siglu-
fjörður kaupstaðaréttindi fyrir 57
árum.
Fyrstu áratugina var dagurinn
haldinn hátiðlegur með ýmsu
móti, aðallega útihátiðarhöldum.
Reynslan sýndi hins vegar, að
þessi timi árs er ekki heppilegur
til útihátiðarhalda hér norður frá.
Af þessum og fleiri ástæðum
lagöist niður allt tilhald 20. mai.
Þeim, sem áhuga höfðu á
endurreisn dagsins, datt i hug, að
hægt væri að minnast hans með
öðru móti og á annan hátt, sem
ekki hefur tiðkazt áður, með þvi
að efna til eins konar afmælis-
menningarviku, sem bundin væri
við 20. mai. Hugmyndin er i stuttu
máli þessi, að tekið verði til með-
feröar og flutnings ár hvert, verk
einhvers listamanns, og verði það
dagskrá heils kvölds bundin við
20. mat, en jafnframt verði svo
höfð opin málverkasýning eins
eða fleiri listmálara i heila viku.
A málverkasýningunni einstök
kvöld, væri svo ýms dagskráratr-
iöi höfð um hönd, svo sem hljóm-
list, upplestur eða erindi.
Kiwanisklúbbúrinn Skjöldur
beitti sér fyrir þvi á sl. ári, að
skipuð var sjö manna nefnd til að
sjá um undirbúning vikunnar, og
eiga sæti I neíndinni fulltrúar frá
þjónustuklúbbnum Kiwanis,
Lions og Rotary, fulltrúi frá bæj-
arst jórn, auk þriggja manna, sem
eru tilnefndir 'þar fyrir utan.
Undirbúningur að fyrstu vikunni,
sem hefst 20. mai nk., er nú lokið,
og verður fyrsta dagskráin helg-
uð sr. Bjarna Þorsteinssyni, sem
var þjónandi prestur á Siglufirði i
47 ár. Hátiðarsamkoma verður
haldin þá um kvöldið I Nýja biói
kl. 21 og verður i mörgum atrið-
um.
Miðvikudaginn 21. mai verður
opnuð málverkasýning i Alþýðu-
húsinu kl. 21, og verða þar sýnd
úrvalsverk frá Listasafni Islands.
Samtimis verður opnuð sýningin
Islenzk grafik i Suðurgötu 10 og
sýningin ísland — Islendingar i
Sjálfstæðishúsinu. Sýningar þess-
ar verða opnar á hverjum degi til
26. mai.
og sími mesti vinnuaflsnotandi landsins
POSTUR og simi er stærsti
vinnuaflsnotandi hér á landi,
og Samband Islenzkra sam-
vinnufélaga númer tvö, eftir
þvi sem fram kemur i saman-
tekt tlmaritsins Frjálsar
verzlunar um ,,100 stærstu
fyrirtækin” á Islandi.
Samkvæmt Frjálsri verzlun
litur listinn þannig út (listinn
er unninn úr gögnum Hagstofu
Islands um vinnuaflsnotkun):
1. Pó^áur og sími.
2. Samband íslenzkra samvinnufélaga.
3. Flugleiðir.
4. Eimskip.
5. Kaupfélag Eyfirðinga (með útibúum).
6. Barna- og gagnfræðaskólar Reykjavíkur
7. Ríkisspítalar og fæðingardeild.
8. Hljóðvarp og sjónvarp.
9. Vegagerð ríkisins.
10. Borgarspítalinn.
11. íslenzka álfélagið.
12. Landsbanki íslands.
13. Sláturfélag Suðurlands.
14. Mjólkursamsalan.
15. Akureyrarkaupstaður.
16. íslenzkir aðalverktakar.
17. Landakotcspítali.
18. Rafmagnsveitur ríkisins.
19. Kleppur og Flókadeild.
20. Útgerðarfélag Akureyringa.
21. Bæjarútgerð Reykjavíkur.
22. Rafmagnsveita Reykjavíkur.
23. Stjórnsýsla lleykjavíkurborgar.
24. Kaupfélag Borgfirðinga.
25. Barnavinafélagið Sumargjöf.
26. Kaupfélag Árnesinga. 51.
27. Sjúkrahús Akureyrar. 52.
28. Olíuverzlun íslands. 53.
29. Hafnarfjarðarkaupstaður. 54.
30. Álafoss. 55.
31. Olíufélagið Skcljungur. 56.
32. Bæjarútgerð Hafnarfjarðar. 57.
33. Ilaraldur Böðvarsson og Co. 58.
34. Kópavogskaupstaður. 59.
35. Útvcgilbanki íslands. 60.
36. Hótel Saga. 61.
37. Kcflavíkurkaupstaður. 62.
38. ísbjörninn. 63.
39. Búnaðarbanki íslands.* 64.
40. Kaupfélag Skagfirðinga. 65.
41. Kópavogshæli. 66.
42. Aburðarverksmiðja ríkisins. 67.
43. Breiðholt. 68.
44. Slippstöðin, Akureyri. 69.
45. íshúsfél. Bolungarvíkur og Einar Guðfinnss. 70.
46. Vélsmiðjan Héðinn. 71.
47. Hraðfrystihús Ólafsvíkur. 72.
48. Landsvirkjun. 73.
49. Hrafnicla. ^4.
50. Kaupfélag Austur-Skaftfellinga. 75.
Sementsverksmiðja ríkisins, Akranesi.
Hampiðjan.
Árvakur.
Landhclgisgæzlan.
Götuvinna og sorphrcinsun í Rcykjavík.
S.Í.B.S., Rcykjalundi.
Meitillinn, Þorlákshöfn.
Kaupfélag Reykjavíkur og nágrennis.
Síldarvinnslan, Neskaupstað.
Kassagerð Reykjavíkur.
ísfélag Vestmannaeyja.
Vita- og hafnarmálastjórn.
Freyja, Suðureyri. 88,
Skrifstofa tolhttjóra og tollgæzlan í Rvík 89.
Hvalur. 90.
Kaupfélag Þingeyinga. 91.
Ellihcimilið Grund.
Hraðfrystihús Eskifjarðar.
76. Samvinnutryggingar.
77. Mjólkurbú Flóamanna.
78. Slippfélagið, Reykjavík.
79. Seðlabanki íslands.
80. Júpiter.
81. Akraneskaupstaður.
82. Skipaútgerð ríkisins.
83. Blaðaprent.
84. Togaraafgreiðslan.
85. Þorgeir og Ellert, Akranesi.
86. Fiskiðjusamlag Húsavíkur.
87. Pálmi Jónsson (Hagkaup).
88. Miðnes.
Síldarverksmiðjur ríkisins, Siglufirði.
íslcnzkt verktak.
Skólar í Kópavogi.
92. Flugmálastjóri.
93. Víðir, húsgagnagcrð.
Silli og Valdi. 94. Kaupfélag Rangæingn.
Hekla. 95. Vífilfell.
Dagvistunarhcim., leiksk. og vöggust. í Rv 96. Sjúkrahús Akraness.
Norðurtongi, ísafirði. 97. Barna- og gagnfræðaskólar Akurcyrar.
Ölgerðin Egill Skallagrímsson. 98. Reykjavíkurhöfn.
Norðurverk, Akureyri. 99. Hraðfrystistöð Reykjavíkur.
Vífilsstaðahæli. 100. Vestmannacyjakaupstaður.
* Útibú bankanna úti á landi vantar a. m. k. að
einhverju leyti inn í myndina.