Tíminn - 16.05.1975, Page 14
14
TÍMINN
Föstudagur 16. mai 1975.
Höfundur: David Morrelí
Blóðugur
hildarleikur
22
— Áuðvitaðen ég skil ekki til hvers þú sendir lögreglu-
manninn til aðstoðar við að troða þeim inn f bílinn,
svaraði Orval þegar hann kom upp á hæðarbrún. Horfðu
til sólar. Eftir klukkustund verður skollið á niðamyrkur.
— Heldur þú ég viti það ekki?
— Ég held þú vitir það, sagði Orval. Ég var ekki að
reyna að predika yfir þér.
Teasle óskaði, að hann hefði þagað. Hann hafði ekki
efni á að byrja allt á nýjan leik. Þetta var of mikilvægt
Orval kom alltaf fram við hann eins og hann væri enn
þrettán ára. Hann sagði Teasle hvað ætti að gera og
hvernig ætti að gera það — rétt eins og hann haf ði gert
þegar Teasle var hjá honum á unga aldri. Þegar hann
hreinsaði byssu eða bjótil sérstaka skothleðslu, þá kom
Orval til skjalanna, gaf ráð og tók við verkinu. Teasle
hataði það og sagði honum oft að skipta sér ekki af því —
sagðist geta gert hlutina sjálfur. Þeir rifust oft.
Teasle vissi hvers vegna honum var lítið um ráðlegging-
ar gef ið: Hann hitti oft kennara, sem aldrei gátu hætt að
leggja mönnum ráð. Jafnvel utan skólastofunnar. Hann
líktist þeim þó nokkuð. Teasle var svo vanur að gefa
f yrirskipanir, að hann gat ekki sætt sig við að aðrir segðu
honum fyrir verkum. Hann neitaði þó ekki alltaf ráð-
leggingum. Góð ráð þáði hann. En það mátti ekki verða
vani. Til að geta sinnt störf um sínum sem vera bar, varð
hann að treysta á sjálfan sig. Honum hefði staðið á sama
ef Orval hefði aðeins stöku sinnum reynt að segja honum
fyrir verkum. En hvert sinn sem þeir hittust — það var
of mikið. Nú voru þeir nærri komnir í hár saman, rétt
einu sinni enn. Teasle vissi, að hann yrði að stilla sig. Á
þessari stundu var Orval sá maður, sem Teasle þarf nað-
ist. Orval var nógu þrjóskur til þess að fara heim með
hundana ef þeim lenti aftur saman.
Teasle reyndi að þvinga fram bros: — Sinntu ekkí
vesældarhljóðinu í mér, Orval. Það er gaman að sjá þig.
Hann rétti fram hönd sína. Þegar Teasle var drengur
hafði Orval kennt honum að takast í hendur. Langt og
ákveðið, hafði hann sagt. Handtakið á að vera jafn
traust og loforð þín. Langt og ákveðið. Hendur þeirra
mættust, og Teasle fann að háls hann herptist saman.
Honum þótti vænt um þennan gamla mann, þrátt fyrir
allt. Hann gat ekki sætt sig við nýjar hrukkur í andliti
hans og hvítan hárkransinn á höfði hans sem var nú
þunnur eins og kóngulóarvefur. Handtak þeirra var
klaufalegt. Af ásettu ráði hafði Teasle ekki hitt Orval í
þrjá mánuði. Orval hafði látið falla ósköp sakleysislega
athugasemd um það hversu spenna ætti á sig byssuhulst-
ur. — Þetta varð að langri deilu og lauk með því að
Teasle fór fokvondur frá honum. Skömmu síðar hafði
hann skammast sín fyrir að yf irgefa húsið með þessum
hætti. Hann skammaðist sín nú — og reyndi að láta sem
ekkert væri og horfa óhikaö í andlit Orvals. Honum fórst
það illa.
— Mér þykir leitt hvað gerðist síðast, Orval. Mér er al-
vara. Þakka þér fyrir að þú komst svona f Ijótt þegar ég
þarfnaðist þín. Orval glotti aðeins, hann var dásamleg-
ur. Sagði ég þér ekki, að tala aldrei við mann á meðan þú
tekur í hönd hans? Horfðu beint í augun á honum.
Þvaðraðu ekki á meðan. Ég er enn þeirrar skoðunar, að
skammbyssuhylki eigi að snúa aftur á bak. Hann drap
tittlinga í áttað hinum mönnunum. Rödd hans var lág og
ómandi. Hvað er svo með þennan náunga? Hvað er orðið
af honum?
— Þessa leið sagði Teasle. Hann fór á undan honum
yf ir tvo lausa steina í vatnsfallinu, að trjáþyrpingunni og
upp í skarðið. Þeir gengu upp að staðnum, þar sem
mótorhjólið lá á hliðinni ofan á greinum fallins trés.
Undir trjánum var skuggsælt og svalt. Það heyrðist ekki
lengur til skordýranna. Teasle og mennirnir hættu að
ganga gegn um grasið. Um leið fóru skordýrin aftur að
suða. Orval kinkaði kolli i átt að hrúgu steina, fallinna
trjáa, hinum megin skarðsins og l.ágvaxins gróðursins,
veggja vegna. — Já, það sést hvar hann hef ur skrönglast
upp gegnum runnana þarna hægra megin. Það var eins
og rödd hans hefði varað einhvern við, því það heyrðist
skrjáfa í einhverju stóru í runnaþykkninu. Teasle fannst
það möguleiki, að ungi maðurinn væri þarna á ferð.
Hann dró ósjálfrátt fram skammbyssuna.
Mannsrödd heyrðist frá runnunum: Þarna er enginn.
Steinvölur og jarðvegur runnu niður. Þetta var Lester
sem var á leið út úr runnaþykkninu, jaf nvægislaus. Hann
hafði dottið i vatnsfallið og var rennvotur. Augu hans
voru venjulega nokkuð þanin, en þegar hann sá byssu
Teasles stækkuðu þau um helming. — Vertu rólegur það
er bara ég. Ég var að athuga hvort náunginn leyndist
kannski einhvers staðar nærri.
Orval klóraði sér undir hökunni. Þetta hefðir þú ekki
átt að gera. Þú hef ur kannski ruglað lyktarslóðina. Will
— ertu með eitthvað af náunganum, sem hundarnir
mínir geta þefað af?
— [ skottinu á bílnum. Nærföt, buxur og stígvél.
— Þá skortir okkur ekkert nema mat og góðan nætur-
FÖSTUDAGUR
16. mai
7.00 Morgunútvarp Veður-
fregnir k. 7.00, 8.15 og 10.10.
Morgunleikfimi kl. 7.15 og
9.25 Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og
forustugr. dagbl.), 9.00 og
10.00 Morgunbæn kl. 7.55.
Morgunstund barnanna kl.
8.45: Jóna Rúna Kvaran les
„Dísu ljósálf” eftir Roth-
man (5). 9.05 Landspróf og
gagnfræöapróf I ensku:
Verkefni Tilkynningar kl.
9.35. Þingfréttirkl. 9.45 Létt
lög milli atriða. Spjallað við
bændur kl. 10.05 Morgun-
popp kl. 10.25 Morguntón-
leikar kl. 11.00: William
Bennett, Harold Lester og
Dennis Nesbitt leika Trió-
sónötu í C-dúr op. 1 nr. 5
eftir Handel/Braband hljóð-
færaflokkurinn leikur Trió-
sónötu I F-dúr nr. 2 eftir
Henri-Jacques De Croes/-
Dietrich Fischer-Dieskau
og þýsk kammersveit flytja
„Kanarffuglakantötuna”
eftir Telemann/Milan
Turkovic og Eugene Ysaye
strengjasveitin leika
Fagottkonsert I F-dúr eftir
Stamitz.
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir.
Tilkynningar.
13.00 Við vinnuna. Tónleikar.
14.30 Miðdegissagan: „Bak
við steininn” eftir Cesar
Mar Valdimar Lárusson les
sögulok (9).
15.00. Miðdegistónleikar Kór
ungverska útvarpsins syng-
ur lög eftir Kodaly: Zoltán
Vasarhelyi stj. Ungverska
rikishljómsveitin leikur
„Ruralia Hungarica”, svitu
op. 32 eftir Dohnanyi: Gy-
örgy Lehel stjórnar.
15.45 Lesin dagskrá næstu
viku.
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
(16.15 Veðurfregnir).
16.25 Popphornið.
17.10 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til-
kynningar.
19.35 Þingsjá. Umsjón: Kári
Jónasson.
20.00 Tónieikar Sinfóniu-
hljómsveitar tslands i Há-
skólabiói kvöldið áður.
Hljómsveitarstjóri: Kar-
sten Andersen. Einleikari á
selló: Gunnar Kvaran a.
„Harðangurskviða” eftir
Geir Tveitt. b. Sellókonsert i
B-dúr eftir Luigi Boccher-
ini. c. „Scheherazade”,
sinfónfskt ljóð op. 35. eftir
Andrej Rimský-Korsakoff.
— Jón Múli Árnason kynnir
tónleikana.
21.30 útvarpssagan: „öll
erum við imyndir” eftir
Simone de Beauvoir Jó-
hanna Sveinsdóttir endar
lestur sögunnar i þýðingu
sinni (14).
22.00 Frétir.
22.15 Veðurfregnir. Húsnæðis
og byggingarmál Ólafur
Jensson spjallar við Gunnar
S. Björnsson, formann
meistarasambands
byggingarmanna, um hús-
næðiskostnað.
22.35 Afangar Tónlistarþáttur
í umsjá Asmundar Jónsson-
ar og Guðna Rúnars Agn-
arssonar.
23.25 Fréttir i stuttu máli.
Dagskrárlok.
Föstudagur
16. mai
20.00 Fréttir og veður
20.30 Dagskrá og auglýsingar
20.35 Undur Eþiópiv. Breskur
fræðslumyndaflokkur. 4
þáttur. Bláa NIlÞýðandi og
þulur óskar Ingimarsson.
21.05 Kastljóst. Fréttaskýr-
ingaþáttur. Umsjónarmað-
ur ólafur Ragnarsson.
22.00 Töframaðurinn. Banda-
riskur sakamálamynda-
flokkur. SvartagullÞýðandi
Kristmann: Eiðsson.
22.50 Dagskrárlok
sjónvarp — SF