Fréttablaðið - 17.05.2005, Page 21

Fréttablaðið - 17.05.2005, Page 21
ÞRIÐJUDAGUR 17. maí 2005 Við Laufásveg stendur virðu- legt steinhús sem ber nafnið Þrúðvangur. Húsið á sér langa og merkilega sögu og hefur þjónað sem heimili fjölda fólks fyrir utan að þjóna gyðjum mennta og tónlistar. Í dag búa hjónin Páll V. Bjarnason arki- tekt og Sigríður Harðardóttir ritstjóri í húsinu og í kjallaran- um hafa dóttir þeirra, Ólöf, og maðurinn hennar, Guðmundur Albert Harðarson, hreiðrað um sig með syni sína tvo. Páll og Sigríður keyptu húsið árið 1990 og gerðu upp efri hæð- irnar, en kjallarinn sat eftir þangað til nýlega að dóttir þeirra kom heim frá námi í arki- tektúr. Hún hefur nú innréttað kjallarann frá grunni fyrir sig og fjölskyldu sína. Páli þykir afar vænt um hús- ið og þekkir sögu þess vel. „Húsið er byggt árið 1918, en það var Margrét Zoëga sem byggði það. Hún átti og rak Hót- el Reykjavík við Austurvöll sem brann í brunanum mikla árið 1915, en þetta hús byggði hún þremur árum seinna.“ Páll segist ekki vita ástæðu þess að ekkjan réðst í byggingu þessa stóra húss, orðin frekar fullorðin og börnin löngu farin að heiman. „Margrét var tengdamóðir Einars Benediktssonar,“ segir Páll. „Eftir brunann 1915 bjó hún í Höfða hjá Einari og Val- gerði dóttur sinni, og þegar hún byggði þetta hús hefur hún greinilega verið undir einhverj- um áhrifum frá Höfða. Þegar Einar og Valgerður komu heim frá Kaupmannahöfn árið 1921 leigðu þau hér og bjuggu hjá Margréti til ársins 1927, að þau fluttu út aftur. Margrét seldi svo húsið Kjartani Gunnlaugs- syni stórkaupmanni árið 1928. Hann var forstjóri fyrirtækis sem hét Helgi Magnússon og Co. sem var eitt stærsta fyrirtækið í byggingarvörum og slíku. Sú fjölskylda átti húsið til ársins 1951, en þá keypti Tónlistar- félagið í Reykjavík húsið og hér var Tónlistarskólinn í Reykja- vík í tíu ár. Hér var kennt á öll hugsanleg hljóðfæri og tónlist og söngur ómaði um húsið, enda sérlega góður andi hér,“ segir Páll brosandi. Stórslysi afstýrt „Þrúðvangur var seldur Framkvæmdabankanum árið 1961. Þá var bankastjóri þar dr. Benjamín Eiríksson og hann keypti líka húsið númer 9 við Laufásveginn og tvö hús við Miðstrætið, allt til niðurrifs því hann hugðist byggja stórhýsi fyrir Framkvæmdabankann á lóðunum. Sem betur fer varð ekkert úr því slysi, en í staðinn leigði Framkvæmdabankinn Menntaskólanum í Reykjavík húsið fyrir kennslustofur. Menntaskólinn var svo hér til ársins 1999 þegar við keyptum.“ Þrúðvangur er um það bil 450 fermetrar með viðbyggingunni sem Kjartan Gunnlaugsson lét byggja, líklega þegar þau hjón voru orðin eldri og komust illa milli hæða. Nú er teiknistofa Páls og Ólafar í þeim hluta hússins. Páll er formaður Torfusam- takanna og mikill húsverndar- maður. Hann tók húsið í gegn frá grunni, skipti um lagnir og gólfefni, og klæddi það að innan. „Við verðum að passa að afmá ekki söguna, það verða stórslys öðru hvoru en við höfum sem betur fer skánað hvað þetta varðar,“ segir Páll. Heiðni og kristni togast á „Í Þrúðvangi hafa í gegnum tíðina glatast ómetanleg verð- mæti eins og tréskurðamyndir eftir Ríkarð Jónsson, en nokkr- ar þeirra prýða húsið enn. Rík- arður skar út í stofuhurðir og gerði rismyndir fyrir ofan hurð- irnar. Hér voru til dæmis út- skornar rennihurðir milli stof- anna en þær eru glataðar. Hins vegar eru sem betur fer nokkr- ar rismyndanna hér enn. Það er eitthvað trúarlegt hér í gangi sem ég átta mig ekki alveg á,“ segir Páll hlæjandi. „Ein mynd- anna er með tilvitnun úr Biblí- unni, „Ef að drottinn ekki bygg- ir húsið erfiða smiðirnir til einskis“, en svo er hinum megin mynd úr norrænu goðafræðinni, af þremur valkyrjum sem ganga um beina í Valhöll. Þær eru nafngreindar og heita Hildur, Þrúður og Hlökk. Það togast hér eitthvað á úr heiðni og kristni en ég hef aldrei komið því alveg saman hvað það á að þýða. En andinn hér er góður og húsið stórkostlegt.“ edda@frettabladid.is „Ef að drottinn ekki byggir húsið...“ Bætt líðan með betra lofti Nánari upplýsingar á www.ecc.is og í síma 511 1001 Skúlagötu 63 - 105 Reykjavík Hreinsar lof t ið | Eyðir lykt | Drepur bakter íur NÝTT! LOFTHREINSITÆKI Í stofunni er nýju og gömlu blandað saman. Skemmtileg skil milli flísategunda. Páll V. Bjarnason arkitekt er mikill hús- verndarmaður. Hér er hann með barna- barni sínu, Herði Sindra Guðmundssyni.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.