Fréttablaðið - 19.05.2005, Blaðsíða 74

Fréttablaðið - 19.05.2005, Blaðsíða 74
42 19. maí 2005 FIMMTUDAGUR VEITINGASTAÐURINN VEITINGASTAÐURINN RAUÐA HÚSIÐ BÚÐARSTÍG 4, EYRARBAKKA Leirlistarkonan Margrét Árna- dóttir er æði flink þegar kemur að matreiðslu. Hún byrjaði snemma að elda heima hjá sér eða um tólf ára gömul. Á þeim tíma var Hrísateigsglás í mestu uppáhaldi en sá réttur var búinn til úr hakki og fleiru og eldaður á pönnu. Þessi réttur er ekki ólíkur hakki og spaghettíi eins og fólk þekkir í dag. Nú um stundir hef- ur Margrét mest dálæti á því að elda pottrétti úr allskonar hrá- efni og skiptir ekki máli hvort pottréttirnir séu úr kjöti eða fiski. „Mér finnst skipta mestu máli að hráefnið sé gott. Ég slæ hendinni aldrei á móti glænýjum fiski og nýuppteknum kartöfl- um,“ segir Margrét. Þegar kemur að kryddi vill Margrét helst ekk- ert annað en krydd frá Potta- göldrum. „Mér finnst öll kryddin frá þeim góð en fiskikryddið og Lamb Islandia eru algerlega ómissandi. Ég nota Lamb Is- landia í alla pottrétti hvort sem þeir eru úr lambakjöti eða ekki.“ Á meðan á eldamennskunni stendur finnst henni gott að hlusta á útvarpið og þá verður Rás 1 ávallt fyrir valinu því hún segir að Gufan sé besta stöðin. „Það er líka alltaf gott að hafa eitthvað á fóninum,“ segir hún og hlær. Margrét er þó ekki bara sleip í eldamennskunni heldur er hún afbragðsgóður bakari og hef- ur Fréttablaðið heimildir fyrir því að hún baki heimsins besta döðlubrauð. Hún segist upphaf- lega hafa fengið uppskriftina að döðlubrauðinu úr bókinni Af bestu lyst, sem var gefin út í samvinnu við Hjartavernd á sín- um tíma en hafi breytt henni töluvert. „Það getur verið æði sniðugt að breyta brauðinu með því að setja rúsínur í það eða hörfræ eða bara eitthvað allt annað. Það er alltaf gaman að prófa eitthvað nýtt og sjá hvað kemur út. Það er um að gera að virkja sköpunargleðina í eldhúsinu því það er líka list- grein,“ segir Margrét. Skapandi í eldhúsinu SNEMMA BEYGIST KRÓKURINN Margrét Árnadóttir byrjaði að elda mat þegar hún var tólf ára. Hvaða matar gætir þú síst verið án? Skyr er matur sem ég gæti alls ekki verið án. Ég held að ég borði skyr nánast daglega! Fyrsta minningin um mat? Sjálfsagt ætti ég að segja stappaðir bananar, en ég man ekkert eftir því. Æskuminning um fiskbakstur og kakósúpu hjá mömmu ylj- ar. Besta máltíð sem þú hefur fengið? Grillaður humar sem maðurinn minn mat- reiddi og kampavín með! Er einhver matur sem þér finnst vondur? Hákarl er matur sem ég get ekki látið inn fyrir mínar varir nema ég haldi helst fyrir nefið. Leyndarmál úr eldhússkápnum? Hm... ég held ég verði að segja klettasalat og fetaost- ur. Það klikkar aldrei. Hvað borðar þú þegar þú þarft að láta þér líða bet- ur? Þar sem ég er óvirkur súkkulaðifíkill borða ég popp þegar ég þarf að láta mér líða betur. Oftast líður mér sem betur fer vel og poppið er þá bara til að auka ánægjuna á letistund- um. Hvað áttu alltaf í ísskápnum? Skyr þarf alltaf að vera til í ísskápnum og ávextir. Ef þú yrðir föst á eyðieyju, hvaða rétt myndir þú taka með þér? Ef ég yrði föst á eyðieyju væri aldeilis ágætt að eiga vínber, osta, ávexti og kaffi en ég yrði að eiga skyr! Hvað er það skrýtnasta sem þú hef- ur borðað? Það er líkast til krókódíll, kengúra og strútur. Allt saman var þetta lostæti. MATGÆÐINGURINN ÓLÖF RÚN SKÚLADÓTTIR FRÉTTAMAÐUR Hvernig er stemmningin? Það er alltaf jafn gaman að koma í Rauða húsið á Eyrarbakka. Staðurinn flutti reyndar á dögunum í nýtt og stærra húsnæði en þrátt fyrir flutningana hefur góða and- rúmsloftið haldið sér. Nýi staðurinn er mun bjartari enda státar hann af stórum gluggum, ljósum eikargólfum og fóðruðum veggjum. Húsgögnin eru þau sömu og á gamla staðnum. Það er bæði skemmtilegt að heim- sækja staðinn að sumri og að vetri til. Staðurinn er rómantískur og því ekki vitlaust að fara þangað á deit. Matseðillinn: Það eru bara gómsæt- ir réttir á matseðli Rauða hússins, bæði af sjó og af landi. Staðurinn er þekktur fyrir humarinn sinn, sem er sérlega bragðgóður. Vinsælast: Sjávarréttasúpan er vin- sælust en hún er matarmikil, full af fiski, humri og alls kyns grænmeti. Með henni er borið fram nýbakað brauð og hummus. Réttur dagsins: Boðið er upp á rétt dagsins yfir daginn, til fimm. Réttirnir eru misjafnir frá degi til dags og kosta á bilinu 1.200-2.200 krónur. HOLLANDIA: Gerist vart ódýrari Nýlega kom í Vínbúðirnar nýr ódýr 4,8% bjór á aðeins 155 kr. dósin og gerist það vart ódýrara. Kærkomin viðbót sem margir munu eflaust taka fagnandi í Eurovision partíunum um helgina. Hol- land er lítill blettur á heimskortinu en Hollendingar hafa frá fornri tíð verið leiðandi í heimsverslun og síðast en ekki síst frábærir bjórframleiðendur. Holland er gífurlega stór bjórútflytjandi og er það að þakka góðum bjór, góðum gæðum og umfram allt góðum viðskiptatengslum frá fornu fari sem ná til allra landa. Hollandia-bjórinn er háklassa premium- bjór sem á sívaxandi vinsældum að fagna bæði innan og utan Hollands. Hollandia- bjórinn er framleiddur eingöngu úr nátt- úrulegum hráefnum, fyrirtækið maltar sitt eigið bygg og á sína eigin vatnsupp- sprettu sem tryggir gæðinn. Hollandia er með góðri fyllingu; frískandi og þægileg- ur bjór 4,8% að styrkleika sem tryggir gott bragð. Fæst í Heiðrúnu og Kringlunni og kostar 155 kr. í 500 ml dós. Sveitarómantík á Eyrarbakka FR ÉT TA B LA Ð IÐ : G VA Óvirkur súkkula›ifíkill Ferskur. Það er alltaf jafn skemmtilegt að heimsækja Rauða húsið á Eyrarbakka. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /E .Ó L. Döðlubrauð Margrétar 4 dl af hveiti 2 dl heilhveiti 1 1/2 eða 2 dl af haframjöli, eftir smekk 4 tsk lyftiduft 1 tsk salt 2 1/2 dl sykur 2 1/2 dl púðursykur 400 gr döðlur, gróft saxaðar 200 gr valhnetur, gróft saxaðar 4 egg 4 dl léttmjólk eða 2dl af mjólk og tveir af vatni 6 msk matarolía 2-3 tsk vanilludropar Öllum þurrefnum skellt saman í skál og þau hrærð saman. Síðan er döðlum og valhnetum bætt út í. Því næst eru mjólk, egg, vanilludropar og olía þeytt saman með gaffli eða góðum pískara og svo er þurr- og blautefnum blandað saman. Deigið er sett í tvö vel smurð ílöng form eða eitt stórt. Döðlubrauðið er bakað við 180˚ gráður í 45 mínútur. Þegar það er tilbúið er það látið kólna í mótunum og svo pakkað í smjörpappír og sett í plastpoka. Sniðugt er að frysta annað brauðið en þá er mjög mikilvægt að láta það þiðna í ís- skáp. 180 gráður í 45 mínútur, látið kólna í mótum og pakkið inn í smjörpappír og setjið í plastpoka. Ef maður frystir þetta þá þarf að láta það þiðna í ísskáp. Gott er að borða döðlubrauðið með smjöri og osti. 74-75 (42-43) Matur 18.5.2005 19.46 Page 2
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.