Fréttablaðið - 22.05.2005, Page 31

Fréttablaðið - 22.05.2005, Page 31
TILKYNNINGAR 11 Sumarbúðir í Þórsmörk Fyrir 12 -14 ára. Á námskeiðunum er lögð áhersla á fræðslu og leiki í tengslum við hugsjónir Rauða krossins um mannúð og óhlutdrægni ásamt úti- veru í stórbrotnu umhverfi. Þátttakendur læra að umgangast náttúruna og fá tækifæri til að leggja sitt að mörkum í formi umhverfisvinnu og fá æf- ingu í undirstöðuatriðum skyndihjálpar. Nám- skeiðin standa frá mánudegi til föstudags. Rauða kross deildir á Suðurlandi, Suðurnesjum og á höfuðborgarsvæðinu reka búðirnar. Samstarfsaðilar: Landgræðsla ríkisins og Ferðafélag Íslands. Nám- skeiðin fengu Landgræðsluverðlaunin árið 1999. Hámarksfjöldi á hverju námskeiði er 15 þátttakend- ur svo tryggt er að enginn verði útundan. Leiðbeinendur eru 4. Námskeið l 12. – 16. júní – laust Námskeið ll 20. – 24. júní – nokkur sæti laus Námskeið Ill 27. júní – 1. júlí – fullt Tekið er við skráningum í síma 482-2106 Verð kr. 15.000.- 20% systkinaafsláttur. Sumarnámskeiðin Mannúð og menning Fyrir 9 -11 ára. Á námskeiðunum er lögð áhersla á fræðslu og leiki í tengslum við hugsjónir Rauða krossins um mannúð og óhlutdrægni. Þátttakendur fræðast um Rauða kross starf, skyndihjálp, mismun- andi menningarheima og umhverfið. Námskeiðin standa frá mánudegi til föstudags. Mannúð og menningarnámskeiðin eru rekin af Rauða kross deildum á höfuðborgarsvæðinu. Leiðbeinendur eru 2. Námskeið I 6. -10. júní í Reykjavík að Laugavegi 120 Námskeið ll 4. – 8. júlí í Kópavogi að Hamraborg 11 Námskeið lll 4. – 8. júlí í Mosfellsbæ að Urðarholti 4 Tekið er við skráningum í síma 864 6750 . Verð kr. 7.500.- 20% systkinaafsláttur. Gengið er frá greiðslum á bæði námskeiðin við skráningu. Hægt er að greiða með millifærslu í heimabanka og kreditkortum í gegnum síma. BYLTINGARKENND NÝJUNG Í tilefni dagsins verða aðrar gólfþvottavélar á allt að 50% afslætti. Þriðjudaginn, 24.maí næstkomandi kl.16 verður haldin Evrópukynning á byltingakenndri nýjung í gólfþvottavélum. Kynningin verður haldin í húsakynnum BESTA að Suðurlandsbraut 26, Reykjavík. Nauðsynlegt er að tilkynna þátttöku í síma 893 6587 eða á tölvupóst: gudny@besta.is Besta ehf • Suðurlandsbraut 26 108 Reykjavík • Sími: 510 0000 Fax: 510 0002 • www.besta.is • besta@besta.is SÉRFRÆÐINGAR Í HREINLÆTI Samgönguráðuneytið óskar eftir umsóknum um styrki af fjárlagaliðnum Vetrarsamgöngur og vöruflutningar 10 – 190 – 1.12. Vetrarsamgöngur og vöruflutningar eru sérstakur liður á fjárlögum sem ætlaður er til stuðnings við sveitarfélög þar sem sveitarfélagið eða hluti þess býr við erfiðar og kostnaðarsamar samgöngur og ekki er veitt fullnægjandi samgönguþjónusta af hálfu stofnana ríkisins. Styrkir verða einungis veittir þeim sveitarfélögum sem senda inn vel rökstuddar umsóknir. Umsóknir skulu berast samgönguráðuneytinu fyrir 15. júní 2005. Styrkir verða hvorki veittir til reksturs sérleyfa á landi, sjó eða í lofti né til stofnkostnaðar vegna kaupa á tækjum og búnaði. Umsóknir berist samgönguráðuneytinu merktar Rúnari Guðjónssyni. Samgönguráðuneytið – Hafnarhúsinu við Tryggvagötu – 150 Reykjavík Suzuki Intruter VS 800 árgerð 2003. Keyrt 9500 kílómetra. Eins og nýtt hlaðið krómi. Verð 880 þúsund staðgreitt. Upplýsingar í síma 692 8744. Hjól til sölu F.h. Fasteignastofu Reykjavíkurborgar: Sparkvöllur við Seljaskóla – útboð nr. 956. Útboðsgögn verða seld á kr. 2.000, í upplýsingaþjónustu Ráðhúss Reykjavíkur, frá og með þriðjudeginum 24. maí 2005. Opnun tilboða: 3. júní, kl 10:00 í Ráðhúsi Reykjavíkur 10560

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.