Fréttablaðið - 22.05.2005, Síða 63

Fréttablaðið - 22.05.2005, Síða 63
31SUNNUDAGUR 22. maí 2005 RAMBÓ 7 ÖRFÁ SÆTI LAUS Í KVÖLD! Stóra sviðið kl. 20:00 KLAUFAR OG KÓNGSDÆTUR – H.C Andersen Í dag sun. 22/5 kl. 14:00 örfá sæti laus, lau. 28/5 kl. 14:00 nokkur sæti laus, sun. 5/6 kl. 14:00. Síðustu sýningar í vor. EDITH PIAF – Sigurður Pálsson Í kvöld sun. 22/5 uppselt. Síðasta sýning í vor. DÍNAMÍT – Birgir Sigurðsson 8. sýn. fim. 26/5 örfá sæti laus, 9. sýn. fös. 3/6, 10. sýn. lau. 11/6, 11. sýn. sun. 12/6. ÞETTA ER ALLT AÐ KOMA – Hallgrímur Helgason/leikgerð Baltasar Kormákur Fös. 27/5 nokkur sæti laus, lau. 28/5, lau. 4/6 nokkur sæti laus, fim. 9/6, fös. 10/6. Aðeins örfáar sýningar vegna fjölda áskorana. MÝRARLJÓS – Marina Carr Sun. 29/5. Allra síðasta sýning Litla sviðið kl. 20:00 KODDAMAÐURINN – Martin McDonagh Mið. 25/5 nokkur sæti laus, fim. 26/5 örfá sæti laus. Síðustu sýningar í vor. Ekki er hægt að hleypa inn í salinn eftir að sýning er hafin. Smíðaverkstæðið kl. 20:00 RAMBÓ 7 – Jón Atli Jónasson Í kvöld sun. 22/5 örfá sæti laus, fös. 27/5, lau. 28/5 Valaskjálf Egilsstöðum: EDITH PIAF Á AUSTURLANDI – söngdagskrá Mið. 1/6 kl. 20:00, fim. 2/6 kl. 20:00. Miðasala á Bókasafni Héraðsbúa. Opið alla virka daga frá kl. 14-19. Sími 471 1546 I Í STÓRA SVIÐ 99% UNKNOWN - Sirkussýning CIRKUS CIRKÖR frá SV´ÍÞJÓÐ Þri 14/6 kl 20, Mi 15/6 kl 20, Fi 16/6 kl 20, Fö 17/6 kl 20 Aðeins þessar sýningar 25 TÍMAR Dansleikhús / samkeppni LR og Íd í samstarfi við SPRON. Fi 9/6 kl 20 - 2.500,- Einstakur viðburður DRAUMLEIKUR e. Strindberg. Samstarf: Leiklistardeild LHÍ. Fö 27/5 kl 20 Síðustu sýningar HÍBÝLI VINDANNA leikgerð Bjarna Jónssonar eftir Vesturfarasögu Böðvars Guðmundssonar Í kvöld kl 20, Fi 26/5 kl 20 Síðustu sýningar HÉRI HÉRASON e. Coline Serreau Lau 28/5 kl 20 Síðasta sýning KALLI Á ÞAKINU e. Astrid Lindgren Í samstarfi við Á þakinu Í dag kl 14 - UPPS., Lau 4/6 kl 14 UPPS. Su 5/6 kl 14 - UPPS., Su 12/6 kl 14, Su 12/6 kl 17, Lau 18/6 kl 14, Su 19/6 kl 14, Su 26/6 kl 14 NÝJA SVIÐ/LITLA SVIÐ/ÞRIÐJA HÆÐIN ALVEG BRILLJANT SKILNAÐUR Einleikur Eddu Björgvinsdóttur. Í kvöld kl 20, Fi 26/5 kl 20 - UPPS., Fö 27/5 kl 20, Lau 28/5 kl 20, Su 29/5 kl 20, Fi 2/6 kl 20, Fö 3/6 kl 20 THE SUBFRAU ACTS - GESTALEIKSÝNING The paper Mache og Stay with me Fi 26/5 kl 20, Fö 27/5 kl 20 Börn 12 ára og yngri fá frítt í Borgarleikhúsið í fylgd fullorðinna - gildir ekki á barnasýningar Miðasölusími 568 8000 • midasala@borgarleikhus.is Miðasala á netinu www.borgarleikhus.is • Miðasalan í Borgarleikhúsinu er opin: 10-18 mánudaga og þriðjudaga, 10-20 miðviku-, fimmtu- og föstudaga 12-20 laugardaga og sunnudaga MEST LESNA TÍMARIT LANDSINS Birta er komin út Blaðauki um snyrtivörur Hvað er í kremunum? Förðunin í sumar Persónuleikapróf og stjörnuspá Öflugasta sjónvarpsdagskrá landsins Herdís Þorgeirsdó ttir prófessor ræðir um hugsjón ir og mannréttind i „Ég reyni að spá sem minnst í framtíðina,“ segir Unnar Geir Unnarsson tenórsöngvari, sem syngur á burtafartónleikum sín- um frá Tónlistarskóla Kópavogs, sem haldnir verða í Salnum í Kópavogi í dag. Unnar Geir hefur komið tölu- vert fram á tónleikum á vegum skólans. Fór meðal annars með að- alhlutverkið í óperunni Orfeo eftir Monteverdi, einni fyrstu óp- eru sögunnar, sem flutt var í Saln- um fyrir tveimur árum. Einnig lék hann Pamino í Töfraflautunni eftir Mozart, sem sýnd var á sama stað fyrir fáeinum vikum. Á tónleikunum í dag verður meðal annars frumflutt nýtt verk eftir Báru Sigurjónsdóttur, sem var sérstaklega samið fyrir Unnar Geir. „Þetta er verk fyrir söngrödd og kammersveit. Það heitir Mold- varpan og er samið eftir bók sem heitir „Moldvarpan sem vildi vita hver skeit á hausinn á henni“, sem Þórarinn Eldjárn þýddi. Okkur finnst þetta báðum ákaflega skemmtilega bók.“ Það er Hljómsveit Báru Sigur- jónsdóttur sem leikur með í þessu verki, en einnig leika með Unnari Geir á tónleikunum þau Krystina Cortes á píanó og Hannes Þ. Guð- rúnarson á gítar. Unnar Geir segist eiga erfitt að gera upp við sig hvort hann ætli að halda í framhaldsnám í söng eða hvort hann leggi frekar fyrir sig leiklistina. „Ég hef verið að leikstýra amatörleikfélögum og byrjaði þrettán ára gamall að leika aust- ur á Egilsstöðum með áhugaleik- félaginu þar. Þetta er svolítil glíma hvort ég fari í leikstjórann eða sönginn.“ ■ ■ ■ KVIKMYNDIR  16.00 Japanska myndin Godzilla, Mothra, King Ghidorah: Giant monsters all out attack frá árinu 2001 verður sýnd í Gerðubergi í tengslum við sýninguna Stefnumót við safnara II. ■ ■ TÓNLEIKAR  15.00 Sigrún Hjálmtýsdóttir söng- kona og Anna Guðný Guðmunds- dóttir píanóleikari flytja íslensk sönglög og söngva eftir Franz Schubert á síðustu tónleikum vetrar- ins í Laugarborg í Eyjafirði.  15.00 Kvennakórinn Léttsveit Reykjavíkur heldur tónleika í Tón- minjasetri Íslands á Stokkseyri. Stjórnandi kórsins er Jóhanna V. Þórhallsdóttir og undirleikari er Aðalheiður Þorsteinsdóttir.  16.00 Kór Stykkishólmskirkju syngur ásamt einsöngvurum og hljóðfæraleikurum á fyrstu tónleikum hinnar árlegu sumartónleikaraðar Stykkishólmskirkju.  16.00 Burtfarartónleikar Unnars Geirs Unnarssonar tenórsöngvara verða í Salnum. Krystina Cortes leik- ur á gítar, Hannes Guðrúnarson ásamst hljómsveit Báru Sigurjóns- dóttur.  17.00 Sönghópurinn Norðurljós heldur sína fyrstu tónleika í Selja- kirkju. Einsöngvari er Elmar Þór Gil- bertson tenór. Stjórnandi er Arn- gerður M. Árnadóttir.  17.00 Pamela De Sensi flautuleik- ari og Sophie Marie Schoonjans hörpuleikari halda tónleika í Nes- kirkju.  20.00 Djasshljómsveitin Nordic Kollektiv heldur tónleika í Norræna húsinu. Meðlimir hópsins eru Esa Pietilä sem leikur á saxófón, Kjartan Valdemarsson á píanó, Markku Ounaskari á trommur, Mathias Eicke á trompet og Uffe Krokfors á bassa. ■ ■ OPNANIR  14.00 Auður Vésteinsdóttir opnar einkasýningu í Heimilisiðnaðarsafn- inu á Blönduósi. Sýningin ber heitið Straumur og eru myndverkin öll ný. ■ ■ FYRIRLESTRAR  15.00 Oddný Eir Ævarsdóttir, heimspekingur og mannfræðingur, flytur í Gerðubergi fyrirlestur sem hún nefnir „Þrá, innhvörf, endurnýj- un, losti og dauði: Fimm sýni úr lífi safnara“. ■ ■ LISTAHÁTÍÐ  11.00 Sigrún Eðvaldsdóttir fiðlu- leikari og Gerrit Schuil píanóleikari leika þrjár af alls tíu sónötum Beet- hovens fyrir fiðlu og píanó í tónlistar- húsinu Ými við Skógarhlíð. Næsta sunnudag flytja þau síðustu þrjár sónöturnar. Upplýsingar um viðburði og sýningar sendist á hvar@frettabladid.is ekki síð- ar en sólarhring fyrir birtingu. UNNAR GEIR UNNARSSON Syngur á burtfarartónleikum sínum í Salnum í Kópavogi í dag. Glímir vi› tvær listagy›jur HVAÐ? HVENÆR? HVAR? 20 21 22 23 24 Sunnudagur MAÍ Hvernig á ég að hefja þessa sorg- arsögu? Þegar Garbage ruddist fram á sjónvarsviðið var hljómur sveitarinnar mjög framandi, ný- tískulegur og spennandi. Aldrei fyrr hafði jafn sótthreinsað rokk hljómað jafn vel, og lögin voru grípandi og fersk. Shirley Man- son var fáránlega foxí og sveitin virtist hafa fundið skothelda for- múlu. Svo gaf Garbage út aðra plötu sína, sem var jafnvel enn meira spennandi en sú fyrri. Eftir það varð hljómur sveitarinnar fljótt þreyttur og leiðigjarn. Þessi nýja plata er svo eins óspennandi og plötur geta orðið. Mér finnst erfitt, sem gamall Garbage-aðdáandi, að heyra jafn skapandi fólk og er hér á ferð ekki hafa hugmynd í hvaða fót það eigi að stíga. Textar Shirley fyllast ávallt meiri sjálfsvorkunn og vangaveltum um eigin fegurð. Okkur finnst þú alveg sæt Shirley, ég var meira að segja bálskotinn í þér þegar fyrsta platan ykkar kom út, þú mátt alveg fara að hætta þessu „litla andarunga“ rugli! Þú ert svanur, þó svo að platan ykkar nýja sé hvorki fugl né fiskur. Þetta er hugsanlega leiðinleg- asta plata sem ég hef heyrt í lang- an tíma, því miður. Tími til þess að fara hætta þessu. Birgir Örn Steinarsson Út me› rusli› GARBAGE BLEED LIKE ME NIÐURSTAÐA: Niðurstaða: Garbage skilar af sér sinni verstu plötu frá upphafi. Hér er ekkert spennandi á ferð, sándið nákvæmlega eins og áður og lögin alveg fáránlega pirrandi. Hvað gerðist eiginlega? [ TÓNLIST ] UMFJÖLLUN SJÓNVARPSDAGSKRÁ VIKUNNAR »

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.